Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
Fréttir
DV
Hriktir í stoðum Góðtemplarareglunnar IOGT hér á landi:
Templarar sundrast
vegna uppsagnar bókara
- undirskriftum safnað og stefnt í hópúrsagnir úr reglunni
Nú hriktir hátt i stoðum Góð-
templarareglunnar IOGT hér á
landi. í undirbúningi eru hópúr-
sagnir félaga úr henni vegna mikill-
ar óánægju með að bókara útgáfu-
starfsemi reglunnar skyldi sagt upp
störfum um síðustu mánaðamót.
Bókarinn, sem er kona, sá m.a um
bókhald vegna útgáfu bamablaðsins
Æskunnar. Beinist óánægjan einnig
að því að félagar í reglunni skuli
ekki koma nálægt rekstri blaðsins.
Þá gera þeir athugasemdir við að
útgáfustarf hreyfingarinnar skuli
hafa verið rekið með verulegu tapi.
Loks þykir starf Góðtemplararegl-
unnar allt að því forneskjulegt.
Horfa óánægðir félagar til ná-
grannalandanna þar sem starfsemi
IOGT hefur verið færð til nútíma-
legra horfs. Þeir benda á að hér séu
menn enn að vinna ýmis gamaldags
heit, m.a. um ævilangt bindindi. Óá-
nægjan hefur lengi kraumað undir
niðri en gaus upp með uppsögn bók-
arans.
Umræddur bókari hefur unnið
hjá Góðtemplarareglunni um 40 ára
skeið og fór þar í spor foreldra
sinna, sem unnu mikið starf I regl-
unni. Auk Æskunnar hafði bókar-
inn einnig fært bókhald fyrir sum-
arheimili templara að Galtalæk.
Eiginmaðurinn sá um allt viðhald á
staðnum. Þar voru hjónin látin
hætta störfum á sínum tíma og
vakti það mikla óánægju hluta fé-
lagsmanna.
Nú er verið að safna undirskrift-
um þar sem félagar eru spurðir um
hvort þeir vilji segja sig úr templ-
arareglunni í mótmælaskyni við
uppsögnina. Undirtektir munu vera
góðar.
Gunnar A. Þorláksson, sem sæti á
í stjóm Æskunnar, kvaðst ekki vilja
tilgreina ástæður þess að bókaran-
um hefði verið sagt upp. Hann sagði
að viðkomandi hefði að sjálfsögðu
sinn uppsagnarfrest en hefði verið
„eitthvað lítið“ i vinnu eftir upp-
sögnina. Fleiri starfsmönnum hefði
verið sagt upp vegna hagræðingar.
Á fundi um mánaðamót var lagt
fram uppgjör útgáfustarfs Góð-
templarareglunnar. Gunnar sagði
að staðan hefði „ekki verið tilgreind
utan hreyfingar að svo komnu
máli“. Hann hefði ekki leyfl til að
gefa upp aíkomutölur. Samkvæmt
heimildum DV hefur orðið milljóna-
tap á rekstrinum.
Góðtemplarareglan hefur verið
starfrækt hér á landi í 118 ár. -JSS
Innbrot í bíl
- einn handtekinn
Brotist var inn í bíl á Smiðjuvegi
í Kópavogi í nótt. Lögreglan hand-
tók einn mann á staðnum en annar
slapp á hlaupum. Lögreglumaður
sem DV talaði við í morgun taldi þó
miklar líkur á að fljótlega yrðu
hafðar hendur í hári hans. Ekki var
upplýst hvort miklar skemmdir
voru unnar á bifreiðinni. -HKr.
Mikill eldur við
Hverfisgötu
- líkur á íkveikju
Slökkviliðið í Reykjavik var kallað
út klukkan 21.38 vegna elds í bakhúsi á
Hveríisgötu 91. Mikill eldur var þá á
fyrstu hæðpg logaði út um alla glugga.
Að sögn slökkviliðs var mestur eldur í
rusli og stæðum af bylgjupappa. Greið-
lega gekk þó að slökkva eldinn. Húsið
hefur staðið mannlaust og ekki er vitað
til að rafmagn hafi verið á því. Að sögn
lögreglunnar i Reykjavík er talið líkleg-
ast að um íkveikju hafi verið að ræða.
-HKr.
DV-MYNDIR INGÓ
Ikveikja í bakhúsl
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en líklegt er að kveikt hafi verið í húsinu.
Skipulagsbreytingar í íþróttamiðstöð enn eitt hitamálið í Borgarbyggð:
Forstöðumadur látinn fjúka
- nefndarmaður segir af sér í kjölfar samþykktar bæjarstjórnar
DV, BQRGARBYGGD:_________________
I síðustu viku fóru fulltrúar
Framsóknarflokksins í Borgarbyggð
fram á aukafund í bæjarstjórn
vegna tillögu frá tómstundanefnd
um skipulagsbreytingar í íþrótta-
miðstöðinni í Borgamesi og ráðn-
ingarsamning forstöðumannsins,
Ingimundar Ingimundarsonar. For-
stöðumanninum er sagt upp en þrír
vaktstjórar ráðnir i hans stað. Mál-
ið er hitamál í Borgamesi.
Lögð var fram svohljóðandi til-
laga frá meirihluta bæjarstjórnar
Borgarbyggðar sem samþykkt var á
fundi tómstundanefndar Borgar-
byggðar 31. ágúst. Lagt er til að
staða forstöðumanns verði lögð nið-
ur og í staðinn starfi þrír vaktstjór-
ar skv. starfslýsingu og almennum
verkefnum vaktstjóra og heyri beint
undir íþrótta- og æskulýðsfúlltrúa.
Hver vaktstjóri hafi auk þess sitt
ákveðna sérsvið sem viðkomandi
standi skil á gagnvart íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa.
Kolfmna Jóhannesdóttir og full-
trúar Framsóknarflokksins lögðu til
að tillögu tómstundanefndar yrði
vísað frá. Sú tillaga var felld með 6
atkvæðum en tillaga tómstunda-
nefndar samþykkt. Kolfinna og full-
trúar Framsóknarflokksins lögðu
fram bókun eftir samþykkt tUlög-
unnar og gagnrýndu ófaglega máls-
meðferð meirihluta L- og D-lista.
Þau töldu að bæjarráð ætti að koma
að skipulagsbreytingum í íþrótta-
miðstöð Borgamess, ekki síst þar
sem staða forstöðumanns verði lögð
niður. Breytingin var tUkynnt sam-
dægurs og ráðningarsamningur for-
stöðumanns rann út. Þótti minni-
hlutanum það kaldar kveðjur meiri-
hlutans tU fráfarandi forstöðu-
manns íþróttamiðstöðvarinnar og
um leið eins af dyggustu liðsmönn-
um íþróttahreyfingarinnar til
margra ára.
í kjölfar samþykktar tUlögunnar
sagði framsóknarmaðurinn Guð-
mundur Eiríksson sig úr tóm-
stundanefnd Borgarbyggðar. í bók-
un meirihlutans kemur meðal ann-
ars fram að þessar breytingar hafi
verið á döfinni um nokkra hríð.
Kynnt hafi verið hugmynd að skipu-
riti íþróttamiðstöðvar, að hafa þrjá
vaktstjóra með íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúa sem yfirmann. Þegar í janú-
ar 1999 hafi verið rætt um breyting-
ar á þessum nótum.
Samkvæmt heimUdum DV er
þetta orðið eitt mesta hitamálið í
Borgamesi og finnst mörgum að Ula
hafi verið farið með Ingimund Ingi-
mundarson sem hefur starfað fyrir
íþróttahreyfinguna í tugi ára. -DVÓ
Traustlegur
bryndreki
Þýska þjóðin gaf í gær hinni ís-
lensku 10 tonna bryndreka. Ræðis-
maður Þýskalands afhenti Árna
Magnússyni, aðstoðarmanni utan-
ríkisráðherra, farartækið en björg-
unarsveit Landsbjargar í Öræfum
mun hafa umsjón með tryllitækinu.
Bryndrekinn er ætlaður tU björgun-
arstarfa en mun einkum koma í
góðar þarfir þegar veður er of
hvasst fyrir önnur farartæki enda
lágur og traustur á veUi.
DV-MYND E.ÓL.
Ræðismaöur
Þýskalands og
aðstoðarmaður
utanríklsráð-
herra handsala
hér bryndreka-
gjöfina.
Tillaga um auölindagjald
Samkvæmt heim-
Udum sem Dagur tel-
ur áreiðanlegar mun
auðlindanefndin
leggja tU að upp verði
tekið auðlindagjald í
sjávarútvegi.
Ashkenazy gefur bestu ein-
kunn
Vladimir Ashkenazy kemur hingað
tU iands í janúar á næsta ári tU þess að
stjóma Sinfóníuhljómsveit íslands. 22
ár eru síðan Ashkenazy stjómaði síð-
ast Sinfóníuhljómsveitinni en vinslit
urðu þá með Ashkenazy og hljómsveit-
inni. Nú hafa fuUar sættir tekist og gef-
ur Ashkenazy hljómsveitinni sína
bestu einkunn. Mbl. sagði frá.
Hafnar sleifarlagi
Aðaifundur
NAUST 2000 undrast
það „sleifarlag sem
einkennir málsmeð-
ferð stjómvalda við
að koma í veg fyrir
mengun frá Uaki olíu-
skipsins E1 GrUlo í
Seyðisflrði" eins og
það er orðað í ályktun,
Aldrei meira dóp
I fyrra var lagt hald á meira magn
fíkniefna en nokkm sinni í íslandssög-
unni. Fíkniefnastofa ríkislögreglustjór-
ans heíur tekið saman tölfræðiupplýs-
ingar um fikniefnamál á árinu 1999.
Dagur sagði frá.
Skora á Sólveigu
Félág lögfræðinga
á VestQörðum skorar
á Sólveigu Péturs-
dóttur dómsmálaráð-
herra að beita sér fyr-
ir því að Héraðsdómi
Vestfjarða verði fund-
ið húsnæði sem fuU-
nægir og hæflr starf-
Afsökunarbeiðni krafist?
Svanur Kristjánsson prófessor segir
að afsökunarbeiðni eða afsagnar hefði
verið krafist ef erlendir ráðamenn
hefðu sagt það sama og HaUdór Ás-
grímsson sagði um umboðsmann al-
þingis. Stöð 2 sagði frá.
Greiðslur vegna vatnsréttinda
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
stefndi í.vetur Landsvirkjun fyrir hönd
íslenska ríkisins vegna ógreiddra
gjalda fyrir vatnsréttindi á Eyvindar-
staða- og Auðkúluheiði. Aðalmeðferð
málsins fór fram í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Mbl. sagði frá.
Hráslagalegur dónaskapur
Forstjóri Landspítalans, Magnús Pét-
ursson, segir að spítalinn hafi kynnt
bæði íslenska erfðagreiningu og Urði,
Verðandi, Skuld vegna aðkomu þeirra
að stofmm krabbameinsmiðstöðvar.
Kári Stefánsson gagnrýndi Landspítal-
ann fyrir að minnast ekki á fyrirtækið
í kymiingu sinni á verkefninu, m.a. á
heimasíðu spítalans. Talaði Kári um
„hráslagalegan dónaskap". Mbl. sagði
frá.
Njósnuðu ekki
Forstjóri Fangelsismálastofnunar
ríkisins segist ekki vita til þess að
fangaverðir hafi nokkum tíma notað
eftirlitsmyndavélar fangelsisins til að
fylgjast með einkalífi fólks utan fang-
elsisins. Mbl. sagði frá.
Umboðsmaöur breytir engu
„Álit umboðsmanns alþingis hefúr
engin áhrif á ákvörðun um ráðningu
nýs forstjóra. Þetta er nýtt hlutafélag
og álitið er ráðningarmálunum nú al-
gjörlega óviðkomandi," segir Gísli Guð-
mundsson, forstjóri B&L og stjómar-
formaður Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar hf„ i samtali við Dag.
-GAR
semi dómsins.