Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 7 JOV Fréttir Hvalf j arðargöng: Ók utan í vegg á ofsahraða og stakk af DV, HVALFIRÐI:_____________________ Ekki hefur tekist að hafa upp á bíl sem ekið var á ofsahraða utan í vegg Hvalfj arðarganga um klukkan 18 laugardaginn 2. september eftir að hafa stofnað öðrum vegfarendum í bráða hættu. Bílstjóri á leið suður göngin lét Neyðarlínuna vita aö hann hefði mætt litlum, dökkleitum fólksbíl á miklum hraða á röngum vegar- helmingi í göngunum en glæfra- akstursmaðurinn hefði sveigt frá og slengt bílnum utan í vegg gang- anna. Mikil mildi var því að ekki fór verr. Göngunum var lokað í skamma stund og lögreglu gert viðvart. Lög- reglumenn sátu fyrir bílnum norð- an ganga en þangað skilaði hann sér ekki. Vaktmenn í gjaldskýli urðu heldur ekki varir við bílinn og útlit er því fyrir að honum hafi ver- ið snúið við í göngunum og ökuþór- inn forðað sér aftur suður. Víst má telja að bíllinn umræddi hafi borið glögg merki um árekstur- inn við gangavegginn, með rispum og beyglum. Þeir sem gefið gætu upplýsingar sem tengjast þessu at- viki eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu. -DVÓ Kútterinn fúinn að innan og utan: Leitað að fjár- magni til viðgerða - varla undir 5 milljóna króna viðgerð fram undan DV. AKRANESI: Kútter Sigurfari er mjög illa far- inn eins og blaðið greindi frá í vor og trúlega verr en talið var þá. „Hann er fúinn að innan og utan að góðum hluta og ef ekki á illa að fara verður að gera við skipið fyrir vet- urinn,“ segir Jón Heiðar AÚansson, safnstjóri Byggðasafnsins á Görðum á Akranesi. Kútter Sigurfari var fyrir atbeina Kiwanisklúbbsins Þyr- ils og fleiri aðila gerður upp og færður í upprunalegt horf. Sigurfari var smíðaður í Englandi 1885 og gerður út frá Hull til 1897. Þá var hann keyptur til ís- lands og gerður út á handfæri frá Reykjavík til 1920. Þá keyptu út- gerðarmenn í Klakksvík i Færeyj- um hann og notuðu til ársins 1974. „Það er rétt að kútterinn er mjög illa farinn að utan og innan að góð- um hluta en við vitum ekki hvað það er mikið fyrr en búið er að kanna það gaumgæfilega en það verður gert við hann fyrir veturinn. Það er verið að afla fjármagns til , DV-MYNDIR DANÍEL V. ÓLAFSSON. I slæmu ásigkomulagi Kútter Sigurfari viö Byggðasafnið á Göröum. Eins og sjá má er kútterinn mjög illa farinn af fúa. viðgerðarinnar og þjóðminjavörður er búinn að sækja um fjármagn til viðgerða á kútternum og þeir sem leitað hefur verið til hafa tekið vel í málið. Við getum ekki komið með neina kostnaðaráætlun fyrr en búið er að gera úttekt á honum,“ segir Jón Heiðar Allansson, safnstjóri Byggðasafnsins á Görðum. Jón segir að taka verði fljótlega ákvörðun um framtíðarvarðveislu, hvort byggt verður yfir Sigurfara en þaö yrði mjög kostnaðarsamt. Heimildarmenn DV sem skoðað hafa kútter Sigurfara segja að við- gerðir á skipinu verði kostnaðar- samar og ekki undir 5 milljónum króna. -DVÓ DV-MYND JÓN BIRGIR PÉTURSSON Snjókoma Fyrsti alvörusjórinn féll aðfaranótt laugardagsins á topp Bjólfells. Snjóar í heimkynni tröllkonunnar í Bjólfelli: Betra að snjói í vesturhlíðarnar - segir Sveinn bóndi Sigurjónsson á Galtalæk Haustið minnti á sig um helgina á Suðurlandi, greina mátti snjó á Heklutindi, og Bjólfell í Landsveit var krýnt laglegum hvítum hatti á laugardagsmorguninn. „Þetta er fyrsti snjórinn sem fellur þetta neðarlega," sagði Sveinn Sigur- jónsson, bóndi á Galtalæk, í sam- tali við DV. „Gamlir bændur sögðu að betra væri að snjóaði í vestur- fjöllin en austurfjöllin, núna hefur snjóað í austurfjöllin hér,“ sagöi Sveinn. Hann segir að fyrstu frost- in komi ekkert óvenjulega snemma þetta árið, oft gerist það þetta snemma og yflrleitt tolli þessi snjór ekki lengi. Fjallið er nærri 400 metrar á hæð og talsverðar fannir voru eina 50-60 metra niður hlíðamar. Bjólfell var heimkynni skessu einnar, en systir hennar bjó í Búrfelli handan árinnar og fóru þær yfir ána á Tröllkonuhlaupi í Þjórsá. Lögregla undirmönn- uð í umferðarátaki Nú stendur yfir sér- stakt átak lögreglu í umferðargæslu nálægt grunnskólum í Reykjavík, en því lýk- ur 15. september. Sam- kvæmt upplýsingum nokkurra skólastjóra sem samband var haft við hefur nærvera lög- reglunnar verið slitr- ótt og hafði meirihluti þeirra ekki orðið var við lögregluna nálægt sín- um skólum. Þorgrímur Guðmunds- son yfirvarðstjóri sagði að almenn deild og umferðar- deild sinntu helstu álagstímum eins og kostur væri með rad- armælingum og eftir- liti með gangbrautum þar sem umferð væri mikil. Hins vegar væru aðeins um 10-15 lögreglumenn um 35 skóla og því væri lög- reglan undirmönnuð í þessu verk- efni, ekki síst þegar mannskapur- inn þyrfti að sinna slysum víðs veg- ar um borgina. -MT arp Setjum tækið í bílinn þér að kostnaðarlausu DEH-P6100-R • 4x45 magnari • RDS • Stafrænt útvarp FM MW LW • 24 stöðva minni • RDS • BSM • Laus framhlið • RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn • Loudness þrískiptur • 3 Banda tónjafnari Mosfet 45 • MARC X • .900 kr. stgr. MACH 16 • Octaver • EEQ RaDIOæMJST Geislagötu 14 • Slml 462 1300 B R Æ Ð U R N l<2 Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.