Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
Fréttir
Íslandsbanki-FBA:
Lykilmenn losa
- órói meðal hluthafa
Á innan við tveimur vikum hafa
þrir af æðstu stjórnendum íslands-
banka-FBA selt talsvert af hluta-
bréfaeign sinni í bankanum, eða
fyrir samtals 103 milljónir króna.
Greiningardeild Kaupþings segir að
í ljósi þess komi lækkun á verði
bréfanna ekki á óvart þar sem sala
þremenningana skapi ókyrrð í hlut-
hafahópnum.
Þeir sem seldu voru Bjami Ár-
mannsson forstjóri fyrir 79
milljónir króna, Aðal-
steinn Jónasson, forstöðu-
maður lögfræðideildar,
fyrir 12 milljónir og Er-
lendur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækja-
Bjarni
Ármannsson
Seldi hluta bréfa sinna.
þjónustu, fyrir 11,3 milljónir
króna.
Kaupþing bendir á að fyrir
rúmum hálfum mánuði hafi
stjórnendum íslandsbanka-
FBA verið boðið að kaupa
bréf í félaginu að nafnvirði
ein milljón króna hver á
genginu 4,70. Þremenning-
arnir seldu hins vegar bréf
sin á mun hærra gengi, eða á
bréf
bilinu 5,15 til 5,25, sem þýðir 450 til
550 þúsund króna ágóða fyrir hvern.
Mjög mikil viðskipti voru með
bréf i Íslandsbanka-FBA á Verð-
bréfaþinginu á föstudag, eða fyrir
ríflega 102 milljónir króna, á geng-
inu 5,05.
1 gær voru seld bréf í bankanum
fyrir 16 milljónir króna og var loka-
gengið 4,95, miðað við 5,35 þegar það
fór hæst í fyrri viku. -GAR
Vinnsla hafin í nýjasta og glæsilegasta frystihúsinu:
Fólk óttast atvinnumissi
og meira krefjandi vinnu
DV, NESKAUPSTAD:___________________
Vinnsla bolfisks er nú hafln í
hinu nýja fiskiðjuveri Síldarvinnsl-
unnar. Er þar ein fullkomnasta
vinnsluaðstaða sem völ er á í dag.
Er lína þessi framleidd af Marel og
Skaganum hf. Þykir vinnsla öll hafa
gengið samkvæmt áætlun og eru
menn afar ánægðir með hvernig
kerfið virkar. En þrátt fyrir þessa
fullkomnun og miklu tækni er
nokkur kvíði i fólki, það telur sumt
að tæknin geti leitt til frekari fólks-
fækkunar sem hefur verið gífurleg
fram að þessu. Auk þess óttast fólk
að vinnan verði meira kreíjandi og
óaðlaðandi og þykir nóg hafa veriö
af slíku fyrir í fiskvinnunni.
í móttöku nýja frystihússins eru
fullkomnir stærðarflokkarar, haus-
arar og þrjár flökunarvélar, þar af
ein fyrir karfa, snyrtilína í vinnslu-
sal með 14 stærðum og sjálfvirkar
skurðarvélar sem skera flök í
ákveðnar stærðir. Lausfrystir er
þar sem gefur margs konar nýja
möguleika og eru þar flokkarar
ásamt pökkunaraðstöðu. Þessi lína
eykur til muna afköst frá fyrri bún-
aði og á að stytta vinnslutima hrá-
efnis.
Geta má þess að smábátaafli hef-
ur ekki verið unninn á þessu ári
hér í bænum af þeim fiski sem hef-
ur veiðst hér innan fjarðar og í
grenndinni. Það hefur ekki gerst í
1150 ár.
Kæli- og frystigeymsla Síldar-
vinnslunnar á að verða tilbúin síð-
ar á þessu ári og er grindin risin og
er mannvirki mikið. Reiknað er
með að fyrsti áfangi verði tekinn í
notkun í næsta mánuði. -KAJ
Glænýr foíll gjör-
ónýtur
Um kl. 3.30 aðfaranótt sunnudags
valt bill á Kirkjubæjarvegi á móts við
Strönd á Rangárvöllum. Læknir var
kvaddur á staðinn ásamt sjúkrabíl.
Einn maður var í bílnum en ótt-
ast var að þar hefðu einnig verið
farþegar sem kastast heföu út. Því
var tækjabíll kallaður á svæðið til
að lýsa það upp. Einnig voru kallað-
ir til björgunarsveitarmenn sem
voru á heimleið eftir að hafa verið
kallaðir út fyrr um nóttina.
Ökumaður bifreiöarinnar var
talsvert skorinn á höfði og í andliti.
Hann var fluttur til aðhlynningar á
Landspítalann i Fossvogi. Bíllinn,
sem var glænýr, mun vera gjörónýt-
ur eftir veltuna. Talið er að um ölv-
unarakstur hafi verið að ræða. -ss
Bílstuldur
Bifreið af gerðinn Volvo 460 var
stolið aðfaranótt mánudagsins 4.
september. Bifreiðinni var lagt fyrir
framan íslandsbanka viö Hlemm.
Skráningamúmer hennar er TI 690.
Þeir sem hafa oröið varir við bif-
reiðina eru beðnir að láta lögregl-
una i Reykjavík vita.
Bílslysið í Vattarfirðl
Eins og fram kom í DV í gær varö alvarlegt umferöarslys í Vattarfiröi í Austur-Baröastrandarsýslu í fyrradag. Bíllinn
lenti í lausamöl og valt af veginum um 25 metra niöur í tjörn sem sjór fellur í. Fernt var í bílnum og hlutu allir áverka
en mæögur slösuöust alvarlega. Stúlkan hlaut opiö beinbrot og móöir hennar er meö brot á hálsliö. Þær voru fluttar
meö þyrlu til Reykjavíkur. Batahorfur eru sagöar góöar.
Ný þjónustuáætlun Eimskips:
Nýr Goðafoss á leiðinni
Nýtt skip Eimskipafélagsins, Goða-
foss, kemur hingað til lands seint í
kvöld eða aðfaranótt miðvikudagsins.
Kaup á skipinu hingað til lands eru
liður í nýrri þjónustuáætlun Eimskips
þar sem minni skip munu vikja fyrir
öðrum sem hafa meiri flutningsgetu.
Goðafoss var staddur í Þórshöfn í
Færeyjum í gær þegar DV náði tali af
skipstjóranum, Engilbert Engilberts-
syni. Hann lét vel af skipinu í þessari
fyrstu ferð og sagði það lofa góðu.
Goðafoss er fimm ára skip, 14.600
tonn að stærð. Það getur lestað 1450
gáma, en til samanburðar má geta
þess að Brúarfoss, sem áður var
stærsta skip Eimskips, lestaði 1012
gáma. „Þetta er gífurleg aukning á
flutningsgetu," sagði Engilbert.
Skipið hefur í þessari ferð sinni
lestað vörur í Hollandi, Þýskalandi,
Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Fær-
eyjum. Þá mun skipið sigla á þrjár
hafnir á íslandi.
í næsta mánuði tekur Eimskip
svo systurskip Goðafoss, Dettifoss, í
notkun. Það hefur sömu burðargetu
og hið fyrmefnda. -JSS
Sandkorn
.........Hg Umsjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.ls
&
Steikin vex í kjötboröi
Páll Reynisson hefur heldur bet-
ur skotist upp á stjömuhimininn
eftir að hafa komið
fram í helgarviðtali
DV. Þar talar hann
um afrek sín á
villidýraveiðum í
Afríku og víðar.
Mörgum til mikill-
ar undrunar voru
ekki allir hrifnir
af þeirri umflöll-
un og sumir töldu myndbirtingu af
dauðum dýrum hreinan viðbjóð.
Tveir lesendur blaðsins skeggræddu
þetta og voru mjög á öndverðri
skoðun. Annar sagði að þetta hefði
nú þótt sjálfsagður hlutur í sveitinni
og slátrun á dýrum hluti af tilver-
unni. Hinn benti þá á að sveitafólk-
ið væri líka á mun lægra menning-
arstigi en borgarbörnin sem borð-
uðu ekki myrtar skepnur.
„Einmitt", sagði þá hinn fyrrnefndi.
„Þú heldur þá kannski enn að steik-
in sem þú varst að grilla hafl vaxið
í kjötborði kaupmannsins..."
Rannsókn á fýlaveiöum
Meira af dýravernd. Dýravernd-
unarsamtök íslands eru ekki par
hrifln af veiðum á
fýl sem sagt var
frá í myndatexta í
DV fyrir skömmu.
Munu samtökin
fara fram á opin-
bera rannsókn á
drápsaðferðum
sem þar voru
hafðar í frammi.
Á myndinni mundar ungur dreng-
ur prik og reiðir, að því er virðist,
til höggs en fýll liggur hinn róleg-
asti á jörðinni. Engum sögum fór
þó af örlögum fuglsins en grand-
varir lesendur spyrja um örlög
drengsins eftir slíka opinbera rann-
sóknarmeðferð...
Klókur?
ísafjarðarbær samþykkti á dögun-
um aukafjárveitingu og lántöku
n vegna félagslegra
íbúða sem bæjarfé-
:: lagið er að kikna
■ undan. Þannig
> virðist bæjarfélagið
ætia að reyna að
standa sína plikt
varðandi afborgan-
ir af kerfinu, ólíkt
því sem gerst hef-
ur í Vesturbyggð þar sem menn hafa
hreinlega gefist upp. Átta bæjarfull-
trúar greiddu atkvæði með tillög-
unni, þar með taldir allir bæjarfull-
trúar minnihlutans. Athygli vakti
hins vegar að einn fulltrúi sjálfstæð-
ismanna í meirihlutanum, Þorsteinn
Jóhannesson yflrlæknir, greiddi at-
kvæði á móti þessum hugmyndum.
Menn velta því mjög fyrir sér hvort
Þorsteinn sé á leið út úr bæjarstjórn-
inni eða hvort hann hafi einn bæjar-
fúlltrúa verið svo klókur að sjá sama
ljósið og Vesturbyggðarmenn - hrein-
lega að senda félagsmálaráðherra
pakkann til úrlausnar...
Gegn trollveiðum
Garðar H. Björgvinsson, kvóta-
andstæðingur og stofnandi félaga-
samtakanna Fram-1
tíð Islands, ræðst I
ekki á garðinn þar [
sem hann er lægst-
ur. Nú er það ekk-
ert annað en al-
heimsstríð gegn |
botntrollsveiðum.
Hann hefur látið I
hanna límmiða
sem dreift verður í átta miUjónum
eintaka um allan heim. Þannig á
barátta Garðars ekki að fara fram
hjá kvótagreifum heimsins. Það sem
meira er, hann hefur tryggt sér sam-
stöðu samtaka á borð við Sea
Shepherd sem helst eru þekkt fyrir
það hérlendis að sökkva hvalveiði-
bátum í Reykjavíkurhöfn. Síðan
hafa íslendingar ekki þorað að veiða
hval af ótta við álit almennings í
hinum stóra heimi. Þess vegna velta
gárungar því nú fyrir sér hvort
styttast fari i að togaraflotanum
verði lagt líka...
f &
;J