Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Side 28
NÝ NISSAN ALMERA
www.ih.is
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
Her j ólf srekstur:
Lág tilboð
fýsileg
- segir vegamálastjóri
Helgi
Hallgrímsson.
„Lág tilboð eru
fýsileg svo lengi
sem þau eru
raunsæ,“ sagði
Helgi Hallgríms-
son vegamála-
stjóri um tilboð
Samskipa hf. i
rekstur Vest-
mannaeyjafeij-
unnar Herjólfs.
Tilboðið er ríf-
lega 133 milljón-
um króna lægra heldur en tilboð
Herjólfs hf. sem er núverandi
rekstraraöili. Samskip buðu 192
milljónir króna í reksturinn til
þriggja ára en Herjólfur hf. 325
milljónir.
Helgi sagði, að tilboðin fengju
heíðbundna meðferð. Farið yrði yfir
þau, þau reiknuð út og tilboðsgjafar
„látnir gera grein fyrir sínum mál-
um.“ Það færi eftir því hvemig þau
mál ynnust hve langur tími liði þar
til afstaða til tilboðanna lægi fyrir.
Ákvörðun lægi í síðasta lagi fyrir í
október en nýr samningur á að taka
gildi um áramót.
„Þetta er sláandi munur og það
verður að segjast að þetta kom
nokkuð á óvart,“ sagði Helgi.
í gær voru éinnig opnuð tilboð í
rekstur ferjunnar Baldurs sem sigl-
ir milli Stykkishólms, Flateyjar og
Brjánslækjar.
Sæferðir ehf. áttu lægsta tilboðið,
ríflega 166 milljónir króna, Breiða-
íjarðarferjan Baldur bauð tæpar 185
milljónir og Nýsir hf. i Reykjavík
tæpar 199 milijónir. Um er að ræða
rekstrartímabil til þriggja ára og
nýr rekstrarsamningur tekur gildi
1. janúar nk. -JSS
Áfallalaus
,» haustlægð
Fyrsta haustlægðin er nú að
mestu gengin yflr en að sögn starfs-
fólks á Veðurstofu íslands var hún
990 millibör sem þykir svo sem ekki
mikið. Hvergi er vitað um tjón
vegna veðurs.
Nokkur strekkingur var víða en
vindurinn náði sér misjafnlega á
strik eftir aðstæöum.
Þannig þótti lögreglumönnum á
Keflavikurflugvelli það tíðindi að
þar var veðrið mun skaplegra en í
Reykjavik.
Samkvæmt upplýsingum frá
hafnarstarfsmönnum og lögreglu á
Suðurnesjum er ekki vitað til að
neitt tjón hafi orðið vegna veðurs.
^ Ekki er heldur vitað til að veður
hafi plagað fólk í öörum landshlut-
um. -HKr.
monster viö Keykjanesvita
Þessa dagana standa yfir hér á landi tökur á myndinni Monster en hún er samvinnuverkefni íslendinga og Bandaríkja-
manna. Hinn kunni leikari Hal Hartley leikur eitt af aöalhlutverkunum í myndinni en hann er þekktastur fyrir leik sinn í
myndinni Henry Fool. Mikið rok var viö Reykjanesvita í gær og töfðust tökur á myndinni vegna þess.
Hlutabréf á Verðbréfaþingi:
Úrvalsvísi-
talan fellur
- ekki lægri í níu mánuði
Úrvalsvísitala hlutabréfa á Verð-
bréfaþingi íslands lækkaði hressi-
lega í gær og hefur ekki verið lægri
frá því 13. desember á síðasta ári.
í lok viðskiptadags í gær stóö Úr-
valsvisitalan í 1472 stigum stigi en
13. desember í fyrra var vísitalan í
1469 stigum.
Fyrirtækin sem lækkuðu mest í
verði í gær voru sjávarútvegsfyrir-
tækin Grandi hf„ sem lækkaði um
9,1%, og SÍF hf. um 7,1%. Þá lækk-
aði Skýrr um 7,5%.
Hæst reis Úrvalsvísitalan í febrú-
ar á þessu ári, í 1888 stig, og hefur
hún nú lækkað um 22% síðan þá.
Talið frá áramótum hefur vísitalan
hins vegar lækkað um 9,1%.
í gærmorgun var spáði Greining-
ardeild Kaupþings áframhaldandi
lækkum á gengi hlutabréfa á Verð-
bréfaþinginu. Sjá nánar á viðskipta-
síðu á bls. 8. -GAR
Foreldrar í Engjahverfi skera upp herör gegn eiturlyfjasölum:
Skólabörn eru not-
uð við eiturlyfjasölu
Foreldrar í Engjahverfi í Grafar-
vogi telja sig hafa vissu fyrir því að
tiltekin hjón
í hverfinu beiti bömum fyrir sig
við dreifingu og sölu fíkniefna. Al-
vara málsins er slík að
á foreldrafundi í Engjaskóla í
Engjaskóla í gærkvöld var málið
rætt og faðir 14 ára drengs gerði
grein fyrir því sem hann hafði upp-
götvað í framhaldi þess að sonur
hans kom ofurölvi heim skömmu
eftir verslunarmannahelgi.
„Hann sagðist hafa drukkið landa
ásamt fleiri krökkum og sagði mér
hvaða fólk hefði gefið honum þetta.
Þegar ég fór að spyijast frekar fyrir
um málið kom í ljós að lögreglan
veit af þessu fólki," segir faöirinn.
Hann segir að þegar hann spurð-
ist frekar fyrir um málið hafi kom-
ið á daginn að umrætt fólk hafl
haldið úti nokkrum hópi bama sem
þau gefi bæði áfengi og tóbak og
noti síðan í sendiferðir með eiturlyf.
„Þarna er verið að eyðileggja
böm markvisst. Aöferðafræðin er
sú að gefa krökkunum fyrst tóbak
og áfengi og láta þau stofna til
skuldar viö sig. Þá er farið út í önn-
ur vímuefni og krakkamir notaðir
við sölu þeirra. Sonur minn hefur
lýst því að þama inni á heimilinu
hafi fólk verið í neyslu og sumt í
hörðum efnum. Hann segist hafa
horft á fólk sprauta sig,“ segir faðir-
inn.
„Ég gerði fólki grein fyrir þvi á
fundinum í gær að þessi ógn steðj-
aði að bömum okkar og það var
ákveðið að grípa strax til harka-
legra aðgerða," segir faðirinn sem
Miklar skuldir sveitarfélaga í hlutfalli af skatttekjum:
Atjan með meira en 100 prósent
- Vesturbyggð langverst en Ólafsfjörður fylgir skammt á eftir
10 skuldseigustu
sveitarfélögin
- heildarskuldir sem
hlutfall af tekjum
Bojungarvík
ísaflörður
Vesturbyggð Skagafjörður
Stykkishólmur
» Snæfellsbær
Kópavogur
188.6 186,2 182,9 1774
HafnarQörður
lHHHIfnliiFíM
Staða sveitarfélaga á íslandi er
víða slæm og þau þurfa aukið íjár-
magn til að halda sér gangandi.
Þetta er sú mynd sem Samband ís-
lenskra sveitarfélaga hefur dregið
upp af ástandinu og kaUað eftir auk-
inni hlutdeild í skatttekjum. For-
sætisráðherra hefur sagt að það sé
mun frekar aukin ráðdeildarsemi
en aukið fjármagn sem sveitarfélög-
in þurfi á að halda.
Þegar skoðaðar eru tölur um
stöðu sveitarfélaga um áramótin
1998 til 1999 kemur vissulega í ljós
að staðan er víða slæm. Verið er að
vinna að samantekt talna fyrir árið
1999 en ekkert bendir til að ástand-
ið sé að batna.
Heildarskuldir sem hlutfall af
skatttekjum voru sem dæmi á þess-
um tíma 225,5% í Vesturbyggð. Jón
B. G. Jónssson, formaður bæjar-
ráðs, sagði í DV í gær að skuldir
íbúanna vegna félagslega íbúðakerf-
isins eins væru hátt í 500 milljónir
króna. Þá sagði hann að bæjarfélag-
ið gæti aldrei greitt þetta.
Ef skoðaðar eru skuldir tíu verst
stöddu sveitarfélaganna um áramót-
in 1998/1999 kemur í ljós að staðan
var langverst í Vesturbyggð. Þar á
eftir kom Ólafsfjörður með skuldir
sem námu 188,6% í hlutfalli af skatt-
tekjum. Síðan var Skagafjörður með
186,2%, Hafnarfjörður með 182,9%,
ísafjörður með 177,4%, Bolungarvík
með 160,1%, Kópavogur með 157,7%,
Stykkishólmur með 151%, Mosfells-
bær með 150,8% og í tíunda sæti er
svo Snæfellsbær með heildarskuldir
sem nema 141,7% af skatttekjum.
Alls eru 18 sveitarfélög á landinu
sem hafa fleiri en þúsund ibúa með
heildarskuldir sem nema meira en
100% af skatttekjum.
-HKr.
ekki vill koma fram undir nafni af
ótta við hefndaraðgeröir.
Hann segir að ákveðið hafi verið
að gripa til samræmdra aðgerða í
því skyni að bjarga bömum hverfis-
ins frá dópsölum.
„Við munum hafa samráð við
skólayfirvöld, lögregluna, SÁÁ og
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavík-
urborgar. Þá munum við foreldramir
koma upp vakt eða svokölluðu for-
eldrarölti. Það verður gengið í skrokk
á þessi liði auk þess að taka upp öfl-
ugt forvamastarf. Við erum komin í
stríð við dópsalana og þeim verður
stuggað í burtu," segir faðirinn.
Hildur Hafstað, skólastjóri í
Engjaskóla, segist ekki hafa fengið
formlegar upplýsingar um málið
sem upp hafi komið á foreldrafundi
í gær, þó með mjög óformlegum
hætti.
„Okkar viðbrögð eru þau að fara
í að kanna málið strax og ræða við
lögregluna og aðra þá sem geta veitt
upplýsingar. Manni er að sjálfsögðu
mjög bmgðið við slíkar upplýsingar
en fyrsta krafa er að kanna sann-
leiksgildi málsins og svo að gripa til
aðgerða í samræmi við það,“ sagði
Hildur i morgun. -rt/vs
Tilboösyerd kr. 4.444
bfOthST P-touch 1250
Lítil en STORmerkileg merkivél
5 leturstæröir
9 leturstillingar
prentar í 2 línur
boröi 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Vefiang: www.if.is/rafport
SYLVANIA