Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Page 25
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
37
DV
Tilvera
Scary Movie frumsýnd:
Grín á kostnað
þekktra
hryllingsmynda
0 ■ Jfc,
• - • - /
Ein vinsælasta grínmynd siðustu
vikna í Bandaríkjunum, Scary
Movie, verður frumsýnd í Regnbog-
anum, Stjömubíói, Laugarásbíói,
Nýja bíói Keflavík og Borgarbíói
Akureyri á morgun. Myndin, sem
leikstýrt er af Keenan Ivory
Wayans, einum flmm Wayans-
bræðra sem starfa innan kvik-
myndageirans í Hollywood, gerir
stólpagrín að mörgum vinsælustu
hryllingsmyndum og spennumynd-
um síðustu ára sem einkum hafa
höfðað til unga fólksins, myndum
eins og Scream-myndunum þrem,
The Blair Witch Project, I Know
What You Did Last Summer, The
Sixth Sense og The Matrix. 1 mynd-
inni kynnumst við hópi unglinga
sem er ógnað af raðmorðingja sem
svífst einskis. Upphefst mikill elt-
ingaleikur og mikið ævintýri þar
sem háði og gríni eru engin tak-
mörk sett. Með helstu hlutverk fara
Jon Abrahams, Carmen Electra,
Anna Farris, Regina King og bræð-
ur Keenans, Marlon og Shawn Wa-
yans.
Keenan Ivory Wayans hefur hing-
að til verið þekktastur í Bandaríkj-
unum fyrir að vera framleiðandi,
handritshöfundur og aðalleikari
vinsæls sjónvarpsþáttar, In Living
Color, en þáttaröð þessi er marg-
verðlaunuð. Hans fyrsta kvik-
myndahlutverk var í Hollywood
Shufíle, þar sem hann var einnig
annar handritshöfunda. Fyrsta
kvikmyndin sem hann leikstýrði
var I’m Gonna Get You Sucka.
Hann lék auk þess i þeirri mynd og
skrifaði handritið. Hann hefur leik-
Hræöslan
leynir sér ekkl
Strandvaröastúlkan
og fyrrum frú
Dennis Rodman,
Carmen Electra.
heitir New Blood, þar
sem mótleikarar hans
eru John Hurt, Carrie
Anne Moss og Joey
Pantoliano. Næsta
kvikmynd Marlons er
A Requiem for a
Dream, sem Darren Ar-
onofsky leikstýrir. Mót-
leikarar hans þar eru
Jennifer Connelly og
Ellen Burstyn.
-HK
Vinkonurnar Cindy og Brenda
Regina Hall og nýliðinn Anna Farris
leika háskólastelpur sem fá sinn
skammt af hryllingnum.
Kunnugiegur svipur
Þaö leynir sér ekki
hvaöan þessi persóna
kemur sem er aö vísa
leiöina til öryggis eöa
dauöa.
ið í nokkrum kvikmyndum, meðal
annars A Low Down Dirty Shame,
Menace to South Central....og The
Glimmer Man. Wayans hefur ekki
yfírgefíð sjónvarpið þó nóg sé fyrir
hann að gera í kvikmyndum. Hann
er á síðkvöldum með sjónvarpsþátt
sem gengur undir hans nafni, The
Keenan Ivory Wayans Show, þar
sem hann fær gesti til sín í létt
spjall.
Bræður Keenans, Marlon og
Shawn, sem báðir leika i Scary
Movie auk þess að
hafa aðstoðað stóra
bróður við gerð
handritsins, hófu
báðir feril sinn hjá
Keenan, Shawn i
kvikmyndinni I’m
Gonna Get You
Sucka og Marlon í
In Living Color.
Næsta kvikmynd
sem við fámn að sjá
Shawn Wayans i
Taxi 2
Franski leigubílstjórinn
í nýjum ævintýrum
Lelgubílstjórinn Daniel
Samy Nacéri endurtekur hlutverk sitt og sest aftur upp i leigubílinn.
Frumsýnd verður í Háskólabíói
og Kringlubíói á morgun gaman-
myndin Taxi 2, sem er sjálfstætt
framhald Taxi, sem sýnd var hér á
landi fyrir tveimur árum og hlaut
góða aðsókn. Taxi 2 var vinsælasta
kvikmynd sumarsins í Frakkalandi
og höfðu selst, þegar síðast fréttist,
11 milljón aðgöngumiðar. Eins og í
fyrri myndinni er verið að fjalla um
leigubílstjórann Daniel (Samy
Nacéri) og ævintýrin sem hann
lendir í. Nú flækist hann í alþjóðleg-
an atburð þegar japanska vamar-
málaráðherranum er rænt, sem
kom til Frakklands að undirrita
samning um vörn gegn hryðju-
verkamönnum. Daniel hefur heldur
betur betrumbætt leigubíl sinn og
fyUt hann af alls kyns aukahlutum
og græjum, sem kemur sér vel þeg-
ar hann er eltur af japönsku gengi í
kraftmiklum bílum.
Um Taxi segir leikstjórinn Gér-
ard Krawczyk: „Ég tók að mér að
leikstýra fyrri Taxi-myndinni þar
sem Gérard Pires var á spítala.
Hafði ég mjög gaman af þeirri
vinnu. Þegar ég svo ári síðar hitti
Luc Besson (framleiðandi í þetta
skiptið) kom upp hugmynd að gera
framhald. Þegar ég las handritið sá
ég að þetta yrði meira eins og ný
mynd með sömu persónum og áður.
Við reyndum síðan að gera fyndnari
og hraðari mynd með meiri hasar.
Vondu gæjamir eru í þetta sinn jap-
anskir. Þeir eru í svörtum bílum
eins og hersveit köngulóa á hælun-
um á hvíta leigubílnum.”
.'il’3'1 l'l ■ I' I1,1, Uvfl.
★★★★ Dancer in the Dark er hámeló-
dramatísk sápuópera gerð af hjartans ein-
lægni og miklu næmi en um leið læðist
stöðugt að manni sá grunur að von Trier
sé að skemmta sér viö að hafa áhorfand-
ann að fífli.
High Fidelity
★★★★ Þetta er sérlega skondin mynd
um ofur venjulegt nútímafólk og ofur
venjulegar raunir þess, þannig gerð að
manni stendur ekki á sama um fólkið í
henni og vill því allt hið besta. Það er gott
að finna þannig til þegar maður gengur út
úr bíóinu.
-ÁS
American Psycho
★★★i Christian Bale leikur ,sækóinn“
Patrick Bateman af mikilli snilld. Hann er
óaðfinnanlegur á yfirborðinu en tómur
undir niðri. Utlit myndarinnar er fullkom-
lega í takt við satíruna sem dregur mis-
kunnarlaust dár að uppamenningunni.
American Psycho er lykiltexti í vestrænni
menningu og Mary Harron gerir honum
góð skil.
★★★ X-Men er mikið sjónarspil, tækni-
lega fullkomin. Hraðinn í atburðarásinni
kemur þó aldrei niður á sögunni sjálfri,
sem hefur marga anga, og það er merki-
legt hvað tekist hefur að gera teikni-
myndaofurmenni aö jafnlifandi persónum
og raunin er. Leikarar eru yfirleitt mjög
góðir, með þá lan McKellan og Patrick
Stewart fremsta meðal jafningja.
-HK
101 Reykjavík
★★★ Hilmir Snær leikur auðnuleysingj-
ann Hlyn sem lifir og hrærist í hverii 101
Reykjavík. Líf hans er í föstum skoröum
þar til vinkona móður hans kemur í heim-
sókn og úr verður einhver sérkennilegasti
ástarþríhyrningur íslenskrar kvikmynda-
sögu. Fjörug mynd sem býr þó yfir þungri
og alvarlegri undiröldu.
-BÆN
Keepíng the Faith
★★★ Jake og Brian eru afar skemmtilega
skrifaðar persónur og, eins og við er að
búast, eru Norton og Stiller óaðfinnanlegir
í hlutverkum sínum. Jenna Elfmann hefur
þá útgeislun sem þarf í hlutverkið og
maður skilur varla hvernig hægt er aö
vera ekki skotinn í henni.
-PJ
íslenski draumurinn
★★* Líflegt og skemmtilegt handrit sem
er uppfullt af lúmsku háði og skemmtileg-
um orðaleikjum. Styrkleiki myndarinnar er
kannski einnig helsti veikleikinn. Persón-
umar tala mikið í myndavélina og þótt
handritið bjóði upp á skemmtileg tilsvör og
orðaleiki, þar sem góðir leikarar skapa eft-
irminnilegar persónur og fara vel meö
textann, þá er ekki laust við að atburða-
rásin hafi hæðir og lægöir. íslenski draum-
urinn lofar góðu um framtíðina hjá Robert
Douglas.
★★i Aöal Titan A.E. er útlitið. Myndin er
litskrúðugt sjónarspil þar sem þeyst er á
milli plánetna og sólkeria í einni andrá í
farartækjum sem eru jafnfjölbreytt í útliti
og persónur myndarinnar. Sagan, sem er
hin skemmtilegasta, er hentug fyrir formiö
og í anda þekktra stjörnustríðsmynda og
gefur ekkert eftir mörgum leiknum mynd-
um um sama efnið í spennu.
-HK
Music of the Heart
★★* Wes Craven tók sér smáhvíld á milli
„Öskurimynda sinna númer tvö og þrjú og
leikstýrði Music of the Heart, sem er eins
langt frá hryllingsmyndum hans og hægt
er, hugljúft drama um kennslukonu sem
kennir fátækum bömum á fiðlu. Og með
henni sýnir Craven aö honum er fieira til
lista lagt en gera spennandi hryllings-
myndir sem fá hárin til að rísa. Með stór-
kostlegum leik bætir Meryl Streep enn
einni skrautfjöðrinni við einstæðan leikferil
í kvikmyndum.
Shanghai Noon
-HK
★**Þegar best lætur er Shanghai Noon
vel heppnaður farsi. Hraðinn í atburða-
rásinni er mikill. Fyndnar setningar eru
oftast á kostnaö Jackies Chans og svo er
myndin uppfull af vel útfærðum bardaga-
senum og áhættuatriöum. Enginn slær þó
Jackie Chan út í slíkum atriðum þar sem
hann nánast prjónar sig í gegnum tug af
kúrekum, eins og ballettdansari innan um
glímukappa, og gerir svo hluti sem aðrir
leikarar mundu fá áhættuleikara til að
gera fyrir sig. -HK