Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2000, Blaðsíða 28
28
37
Helgarblað
4-
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000
DV
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000
DV
Helgarblað
Eftirlæti allra
- Hilmir Snær Guðnason er leikarinn sem allir vildu ráða. Hann er eftirlæti allra, skærasta stjarna íslenskra leikara um þessar mundir.
Hilmir Snær Guðnason leikur
aðalhlutverkið. Þetta er setning
sem getur átt viö ákaflega margar
leiksýningar og kvikmyndir á ís-
landi undanfarin fimm til sex ár.
Hilmir hefur verið eftirlæti allra
og þá er bæði átt við leikstjóra,
gagnrýnendur og áhorfendur.
Um þessar mundir leikur Hilm-
ir aðalhlutverkið i uppfærslu
Þjóðleikhússins á Horfðu reiður
um öxl eftir John Osborne þar
sem hann túlkar Jimmy, unga
reiða manninn sem er orðinn að
einhvers konar samnefnara fyrir
unga reiða menn um allan heim
síðan leikritið var skrifað fyrir 44
árum. Þegar horft er til persónu
Jimmys, reiði hans og skapofsa,
kemur ósjálfrátt upp í hugann
það sem sagt var um þekktan
blaðamann á íslandi; Hann hatar
alla jafnt. Er þetta sanngjörn lýs-
ing?
„Að vissu leyti gerir hann það,“
segir Hilmir sem sjálfur er skap-
stillingin uppmáluð þar sem hann
situr í bás á Kaffi List og reykir
með kaffinu.
„Hann finnur ákaflega vel að
hann er engin hetja og hann þolir
ekki aö vera sá sem hann er.
Reiði hans brýst því út og bitnar
á öllum sem koma nálægt hon-
um.“
Þekkir þú fólk eins og Jimmy?
„Já ég þekki nokkra sem bera í
sér hluta af honum en engan ná-
kvæmlega eins.“
Það líður öllum llla
Leikritið vakti feiknalega athygli
þegar það var sýnt og gagnrýnendur
dagsins í dag virðast nokkuð upptekn-
ir af því hvar leikritið er sett í tíma og
spumingunni um hvort það eigi jafn-
mikið erindi við okkur í dag eins og
fyrir 44 árum. Hvað finnst þér?
„Persónulega finnst mér tímasetn-
ingin ekki eins mikilvæg og sumir
gagnrýnendur gera hana. Leikritið
fjallar um fólk í krísu. Þeim líður öll-
um illa. Fólki í dag líður illa og það er
beitt andlegu ofbeldi, jafnvel á heimil-
um sínum, og þó konur í dag séu ef til
vill sterkari en þær voru fyrir 44
árum þá má setja margar þeirra und-
ir sama hatt og Alison, unnustu Jim-
mys.“
Hvemig finnst þér annars gagnrýn-
in á leikritið hafa verið?
„Mér fmnst gagnrýnendur hafa eytt
of miklu púðri í að fjalla um timasetn-
ingar í leikritinu. Þetta er leikhús en
ekki heimildarmynd frá sjötta ára-
tugnum. Það var viljandi reynt að
draga það út úr þeim tíma sem það er
skrifað á og gera það tímalaust. Samt
var það ekki gert að neinu aðalatriði."
Gagnrýnendur eru bara fólk
Gagnrýnendur og leikarar virðast
standa í ástar/haturssambandi. Leik-
arar þola ekki gagnrýnendur og gagn-
rýnendur sýnast hafa hom í síðu leik-
ara á köflum. Hvemig tekur þú sjálfúr
gagnrýni?
„Gagnrýnendur em bara fólk og ber
að skoða álit þeirra í því ljósi. Það
„Um tíma tók ég of mik-
inn þátt í þessum leik,
þótti athyglin góð,
skemmtilegt að fara í við-
töl og allt sem því fylgir.
Það má segja að ég hafi
verið í svolitlum stjörnu-
leik en ég er sem betur fer
kominn niður á jörðina.
Ég þarf ekki að vera
betrekktur uppi um alla
veggi úti um allan bœ. “
sem þeir skrifa er þeirra skoðun sem
getur orðið dálítið stór á prenti en
vegur kannski ekki mikið þyngra en
það sem einhver segir við mann á
kaffihúsi. Ég hef ekkert á móti gagn-
rýnendum, þeir eru nauðsynlegir og
geta oft örvað fólk til dáða eða veitt
aðhald en álit og áhrif eru ekki eins
þung á metunum og þeir sjálfir halda
stundum.
Það er misskilningur að gagnrýni
geti fellt sýningu eða komið henni á
flug. Orðsporið, álit áhorfenda er það
sem skiptir máli.“
Sumir leikhúsunnendur hafa haft
við orð að þeir sakni þess að Jón Við-
ar skrifar ekki lengur gagnrýni í blöð-
in. Ertu sammáia þeim?
„Ég er það að vissu leyti. Það er þó
mjög hættulegt þegar gagnrýnandinn
sjálfur er orðinn aðalatriðið en ekki
það sem hann skrifar eða segir.“
Grátur og djöfulæði
Hilmir hefur sagt að hlutverk
Jimmys hafi verið eitt af drauma-
hlutverkum hans. Hvers vegna?
„Þetta er breitt svið sem hann
sýnir, allt frá því að vera grátandi
og veikur yfir í einhvers konar
djöfulæði. Það gerir þetta hlutverk
alveg drulluerfitt og mig hefur
langað til að leika það síðan ég las
leikritið í skóla."
Stjörnuhlutverk eins og þetta
gerir það að verkum að meðleik-
endur Hilmis standa svolítið í
skugga Jimmys, að minnsta kosti í
augum áhorfenda. Er þetta leikrit
bara um unga reiða manninn?
„Þeirra hlutverk eru ekki síður
erfið en á allt annan hátt. Þau eru
á sviðinu nánast allan tímann og
það reynir meira á leikarann er
margir gera sér grein fyrir. Ég
reiði mig mikið á þau og þegar
Jimmy fer með sínar ræður þá get-
ur eitt augnaráð frá þeim ráðið úr-
slitum um hvort maður kemst á
flug eða ekki.“
Hamlet, Jimmy og Galdra-
Loftur
Það má telja öruggt að flestir
leikarar lumi á stuttum eða löng-
um lista yfir hlutverk sem þá
dreymir um að leika. Hvernig
stendur listinn hjá þér?
„Ég er eiginlega að verða búinn
með hann því á mínum lista yfir
draumahlutverk voru Hamlet,
Jimmy og svo dreymdi mig um að
leika í Beðið eftir Godot og sá
draumur rætist í vetur. Svo var
Galdra-Loftur á listanum en það
má alveg bíða. Benedikt Erlings-
son vinur minn fékk að leika hann
fyrir fáum árum og það er nóg fyr-
ir mig.“
Hilmir hér og Hilmir þar
Hilmir er jafnframt því að leika
i Horfðu reiður um öxl að æfa leik-
rit sem hann leikstýrir í Borgar-
leikhúsinu sem heitir Abigail býð-
ur i partí eftir Mike Lee. Síðan
tekur við að leika í Beðið eftir
Godot í Borgarleikhúsinu undir
stjórn hins sænska Peters Enquist
sem leikstýrði Ormstungu hérna
um árið. Þá leikur hann með Stef-
áni Karli Stefánssyni 20 hlutverk i
írska gamanleiknum Með fulla
vasa af grjóti í Þjóðleikhúsinu og
síðast en ekki síst leikstýrir hann
í Þjóðleikhúsinu leikritinu Maður-
inn sem vildi vera fugl og þar er
það Stefán Karl Stefánsson sem
leikur aðalhlutverkið. Leikrit
þetta er byggt á sama verki og
kvikmyndin Birdy sem hlaut mik-
ið lof fyrir nokkrum árum þar sem
Matthew Modine fór á kostum.
Loks er ákveðið að Hilmir leiki
í kvikmynd sem Lárus Ýmir Ósk-
arsson er að fara að gera og hefj-
ast tökur síðla vetrar. Þetta lítur
út eins og þéttskipuð dagskrá enda
viðurkennir Hilmir að þetta sé al-
veg á mörkum þess að vera of mik-
ið.
Hilmir hefur tvisvar sinnum
áður leikstýrt, fyrst Krákuhöllinni
í Nemendaleikhúsinu og síðan
Gullna hliðinu í Þjóðleikhúsinu í
fyrra. Ætlar hann að verða einn
þeirra leikara sem fetar sig af
sviðinu yfir í stól leikstjórans?
„Enn sem komið er heitir þetta
að ég sé að prófa að leikstýra. Það
er ágæt tilbreyting og þroskar
mann mikið sem leikara í leiðinni.
Mér finnst þetta skemmtilegt en
lít ennþá á mig sem leikara fyrst
og fremst."
Þótt Hilmir sé fastráðinn í Þjóð-
leikhúsinu vekur það óneitanlega
athygli hvernig hann skiptir sér
milli leikhúsanna i vetur. Á báð-
um stöðum fær hann draumahlut-
verk og tækifæri til að leikstýra
að auki. Staðfestir þetta hve eftir-
sóttur hann er?
„Ég hef unnið mikið með Gió
(Guðjóni Pedersen) og ég lít á
þetta sem áframhald af þvi sam-
starfi. Við höfðum oft lagt á ráðin
um ýmis verkefni sem viö vildum
ráðast í saman og nú þegar hann
er orðinn leikhússtjóri þá er eðli-
legt að ráðast í þau. Ég vil taka
fram að þetta samstarf hefur mætt
fullkomnum skilningi á báðum
stöðum."
Vandræðin í Iðnó
Margir hafa spáð því að vetur-
inn sem nú fer í hönd eigi eftir að
verða spennandi í leikhúsheimin-
um. Upphaf leikársins einkenndist
„Gagnrýnendur eru bara
fólk og ber að skoða álit
þeirra í því Ijósi. Það sem
þeir skrifa er þeirra skoð-
un sem getur orðið dálítið
stór á prenti en vegur
kannski ekki mikið
þyngra en það sem ein-
hver segir við mann á
kaffihúsi. “
af umtalsverðum væringum þar
sem hfð nýstofnaða Leikfélag ís-
lands í Iðnó rak hornin í Þjóðleik-
húsið og ásakaði það um óheiðar-
lega samkeppni. Þegar hið unga
leikfélag kynnti með lúðrablæstri
listann yfir þá leikara sem myndu
starfa með félaginu á næstu vertíð
vakti athygli að nafn Hilmis Snæs
var þar á meðal. Hilmir dró þess-
ar fréttir til baka með sérstakri yf-
irlýsingu og er áfram á samningi
hjá Þjóðleikhúsinu. í augum utan-
aðkomandi leit þetta út eins og
hann væri sá sem allir vildu ráða
og gull og grænir skógar væru fal-
ir ef hann bara kæmi. Hvað var
það sem raunverulega gerðist?
„Þetta var allt saman hálfgerður
misskilningur og vandræöagang-
ur. Ég var í viðræðum við Leikfé-
lag íslands, það er ekkert leyndar-
mál. Þeir voru heldur fljótir á sér
að tilkynna það og ég var heldur
seinn að ákveða mig og segja þeim
frá því. Stundum eru hlutirnir
ekki ákveðnir fyrr en á síðustu
stundu. Þetta kom auðvitað allt
frekar illa út og mér finnst það
leiðinlegt."
Öll dýrín í skóginum eru
vlnlr
Samkvæmt bestu heimildum DV
var Hilmir undir gífurlegum
þrýstingi meðan á þessum átökum
stóð og er haft fyrir satt að hann
hafi ekki ákveðiö að vera kyrr
uppi á Hverfisgötu fyrr en daginn
áður en Leikfélag íslands sendi til-
kynningu sína frá sér. Mun þessi
uppákoma draga dilk á eftir sér í
samskiptum hans við leikhúsin
eða verða öll dýrin í skóginum
vinir hér eftir sem hingað til?
„Mér fannst margt í opinberum
samræðum leikhúsanna hálfkjána-
legt. Leikhúsin eiga að vinna sam-
an en ekki hvert á móti öðru.
Þetta er of lítið land til þess að
standa í einhverjum átökum því
við þurfum öll hvert á öðru að
halda.
Ég held að deilur leikhúsanna
minni um margt á það ef mönnum
verður sundurorða á kaffihúsi.
Það er yfirleitt hægt að lagfæra
með einu símtali. En það verður
allt svo stórt á prenti."
Er eftirsóttur leikari eins og
Hilmir bókaður meira en einn vet-
ur í senn eða lætur hann hverju
leikári nægja sina þjáningu?
„Mér finnst dagskráin mín vera
svo þéttskipuð í vetur að næsti
vetur er algerlega óskrifað blað.
Það verður að taka eitt skref í
einu.“
Hllmir er stjarnan
Hilmir Snær hefur auk aðalhlut-
verka á leiksviði leikið í þremur
stórum íslenskum kvikmyndum
undanfarin tvö ár. Síðastliðið
haust var Myrkrahöfðingi Hrafns
Gunnlaugssonar sýndur og um
þessar mundir var Hilmir að
leggja síðustu hönd á hljóðsetn-
ingu fjögurra þátta sjónvarpsseríu
Hilmir Snær Guðnason er eftirsóttastur allra lelkara dv-myndir tetor
„Á mínum lista yfir draumahlutverk voru Hamlet, Jimmy og svo dreymdi mig aö leika í Beöiö eftir Godot og sá draumur rætist í vetur. Svo var Galdra-Loftur á listanum en þaö má alveg bíöa. “
t
Hilmir hefur fengið mikið lof fyrir túlkun sína á Jimmy í Horfðu reiður um öxl
„Hann finnur ákaflega vel aö hann er engin hetja og hann þolir ekki aö vera sá sem hann er. Reiöi hans brýst því út og
bitnar á öllum sem koma nálægt honum. “
Hvernig
fannst þér?
- brot úr umsögnuin gagnrýnenda um Horfðu reiður um öxl
„Hilmir Snær Guðnason
kom lyndiseinkunn Jimmys
fullkomlega til skila. Aftur á
móti er persónan svo ógeðfelld
í sífelldum árásum sínum á
samferðafólkið aö það er illþol-
anlegt. Mjög svo sannfærandi
leikur en það tekur á að fylgj-
ast með Hilmi.“
Sveinn Haraldsson, Mbl.
„Reyndar stendur Hilmir
Snær Guðnason sig frábærlega
og greinilegt að allt verður aö
gulli í höndunum á þeim pilti.
sem gerð er upp úr Myrkrahöfð-
ingjanum. Þættirnir eru 50 mínút-
ur hver og verða sýndir I sænska
sjónvarpinu sem nú er komið með
Breiöbandinu inn á fjölda ís-
lenskra heimila og þar geta þeir
sem misstu af kvikmyndinni og
þeir sem sáu hana og langar í
meira séð Jón píslarvott í nýju
ljósi. Skömmu síðar komu Englar
alheimsins eftir Friðrik Þór í kjöl-
farið og 101 Reykjavik Baltasars
Kormáks. Tvær síðarnefndu
myndirnar hafa verið að fá verð-
laun á ýmsum kvikmyndahátíðum
að undanförnu og það ilýgur fyrir
að leikurum í þeim hafi boðist
ýmis gylliboð frá umboðsmönnum
þar sem stjörnuljósin í Hollywood
tindra í bakgrunninum. í öllum
myndunum lék Hilmir ýmist aðal-
hlutverkið eða eitt þeirra stærstu.
Hvernig er að vera stjarna á ís-
landi?
Tók of mlkinn þátt í lelkn-
um
„Þetta stjörnuhugtak er komið
frá Hollywood og ef ég væri stjama
í þeim skilningi gæti ég ekki setið
hér á kaffihúsi. Ég er ekki meiri
stjarna en svo að ég get vel farið á
krána eftir æflngu og slakað á án
þess að það veki einhverja sér-
staka athygli. ísland er smáþorp og
Reiðin, sársaukinn, vonleysið,
allt varð þetta ljóslifandi í
túlkun HOmis og á köflum var
Jimmy svo fullkomlega óþol-
andi að erfitt var að halda
kyrru fyrir á áhorfendapöllun-
um.“
„Ég heföi reyndar kosið að
sjá yngri leikara kljást við
þetta verk...“
Halldóra Friðjónsdóttir, DV
„Leikur Hilmis Snæs
Guðnasonar í hlutverkinu var
í einu orði sagt afbragðsgóður.
það geta allir íslendingar verið
stjörnur. Ég reyni bara að vinna
vel það sem ég er að gera. Það sem
mestu máli skiptir er að ná að
koma við þá sem mæta í leikhúsið
Ég neita því ekki að fyrst eftir
„Þeir voru heldur fljótir á
sér að tilkynna það og ég
var heldur seinn að
ákveða mig og segja þeim
frá því. Stundum eru
hlutimir ekki ákveðnir
fyrr en á síðustu stundu.
Þetta kom auðvitað allt
frekar illa út og mér
finnst það leiðinlegt. “
að ég útskrifaðist gekk mér vel og
ég fékk mikla athygli fyrir hlut-
verk sem ég uppveðraðist töluvert
af. Um tíma tók ég of mikinn þátt í
þessum leik, þótti athyglin góð,
skemmtilegt að fara í viðtöl og allt
sem því fylgir. Það má segja að ég
hafi verið í svolitlum stjörnuleik
en ég er sem betur fer kominn nið-
ur á jörðina. Ég þarf ekki að vera
betrekktur uppi um alla veggi úti
um allan bæ. Mér nægir að njóta
virðingar samstarfsmanna minna
og bera virðingu fyrir þeim.“
Hilmir virðist kannski í
mýksta lagi í þennan mann,
en hann sýnir að hann getur
túlkað hina yfirgengilegu
grimmd Jimmys af djöfulleg-
um krafti, sem er nauðsynlegt
til að hinir mýkri og við-
kvæmnislegri tónar hlut-
verksins njóti sín.
...Þetta er enn ein rós í
hnappagat þessa snjalla leik-
ara, sem Þjóðleikhúsinu helst
vonandi á.“
Gunnar Stefánsson, Degi-
Tímanum
Hestamaður og leikari
Þegar Hilmir er ekki að leika
fæst hann við hestamertnsku og á
sjálfur átta hesta og hefur lúmskt
gaman af því að stunda hrossa-
prang. Þannig var frægasti hestur
íslenskra kvikmynda, sá sem fell-
ur í rómuðu upphafsatriði Engla
alheimsins og Hilmir situr á löng-
um stundum í Myrkrahöfðingjan-
um, um hríð í hans eigu. Hesta-’
mennska er sem tómstundagaman
svo útbreidd í hópi leikara að það
er nánast klisja. Hvers vegna
heillar hestamennskan leikarana
svo mikið?
„Ég hef verið í hrossunum síð-
an ég var 13 ára, löngu áður en ég
varð leikari. Mér finnst afskap-
lega gott að fara upp í hesthús og
gleyma leikhúsinu. Þaö er alveg
sama þó ég sé bara að moka skít.
Við það hverfur stressið og amstr-
ið sem stundum fylgir þessu
starfi. Svo er þetta holl útivera.
Við sem vinnum í leikhúsi mæt’-
um í vinnuna í myrkri á veturna
og yfirgefum ekki leikhúsið fyrr
en komið er myrkur. Mér finnst
þetta frábært þó ég viti ekki
hvers vegna þetta er svo útbreitt
meðal leikara. Þeir hafa sjálfsagt
áhrif hver á annan."
-PÁÁ-