Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 Útlönd ZZ__________________________________________________________________________________-____________ PV Hörfað undan táragasi Palestínumenn flýja er ísraelskir hermenn skjóta á þá táragasi á Gazasvæðinu í gær. Meirihluti ísraela styður stofnun palestínsks ríkis Meirihluti ísraelsku þjóðarinnar styður stofnun palestínsks ríkis. Þetta er niðurstaða skoðanakönnun- ar Gallups sem birt var í ísraelska blaðinu Maariv í gær. 57 prósent eru fylgjandi stofnun palestínsks ríkis en 36 prósent eru andvíg. Samt sem áður eru 70 prósent þjóðarinn- ar hlynnt þeirri ákvörðun Ehuds Baraks forsætisráðherra að stöðva friðarferlið vegna átakanna. 23 pró- sent eru mótfallin frestun viðræðn- anna. ísraelskir hermenn skutu að minnsta kosti fjóra Palestínumenn til bana í gær á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Rotnar endur valda frönskum sælkerum áfalli Nokkrum dögum eftir að Frakkar komust að því að þeir hefðu keypt kúariðukjöt i matvöruverslunum voru þeir upplýstir um að 23 tonn af sælkeramatnum „confít de canard“ eða önd í eigin feiti, hefðu reynst rotin við eftirlit á þessu ári. Samt sem áður hafði næstum helmingn- um af kjötinu verið pakkað niður í 6 þúsund dósir, merktar gæðavara, sem senda átti á markað frá verk- smiðjunni í Dordogne í suðvestur- hluta Frakklands. Samkvæmt frétt blaðsins Le Parisien hafði kjötið verið látið standa nokkum tíma eft- ir slátrun áður en það var sett í dós- irnar. Fréttir af rotnu öndunum bárust samtímis því sem landbúnaðarráðu- neytið i Frakklandi greindi frá 7 nýjum tilfellum af kúariðu. Poul Nyrup Rasmussen Færeyska landstjórnin gekk bitur af fundi hans á fimmtudagskvöld. Styðja Nyrup í Færeyjamálinu Stjórnaranastaðan á danska þing- inu styður stefnu Pouls Nyrups Rasmussens, forsætisráðherra Dan- merkur, í samningaviðræðunum við Færeyjar. Danska stjórnin vill ekki semja við Færeyinga sem þjóð og það eru þeir ósáttir við. Þess vegna fóru viðræðurnar út um þúf- ur á fimmtudagskvöld. Færeyingar boða líklega til þjóð- aratkvæðagreiöslu um sambands- slitin við Danmörku á næsta ári. Reynist meirihluti fylgjandi sjálfstæði verða viðræður teknar upp á ný við Dani. Reiði vegna harmleiksins um borð í Kúrsk: Sjóliðarnir voru grafnir lifandi „Bréfið frá Kúrsk, sem sýnir að að minnsta kosti 23 sjóliðar lifðu af sprenginguna í Kúrsk, er banvænt fyrir stjórnina. Yfirvöld grófu Kúrsk of snemma, kannski á meðan hann var enn á lífi.“ Þetta skrifaði rússneska dagblaðið Segodnja í gær. Reiðin gegn yflrvöldum í Rússlandi fór vaxandi í gær, degi eftir að greint var frá innihaldi bréfs lautinantsins Dmitris Kolesnikovs. Bréflð skrifaði hann eftir sprenginguna 12. ágúst síð- astliðinn þegar Kúrsk sökk. Kafarar fundu bréfið í vasa Kolesnikovs. „Áhöfnin á Kúrsk var grafin lif- andi,“ segir Veronika Marsjenko, full- trúi samtakanna Réttindi mæðra. í yfirlýsingu, sem birt var í gær, segir hún að yfirvöld hafi reynt að leysa alls kyns vandamál eins og að leyna slysinu, vernda hernaðarleyndarmál, auka dvínandi vinsældir forsetans og Ekkjur sjóliðanna Nokkrar ekkjur sjóliðanna þakka björgunarmönnum störf þeirra. múta herskáum, sem tengdust mál- inu, og fréttamönnum til að þegja. „Allt var gert nema að bregðast skjótt við til að bjarga áhöfninni.“ Vjatsjeslav Popov aðmíráll, yfir- maður Norðurflotans, sagði í gær að sjóliðarnir 23, sem lifðu af spreng- inguna, kynnu að hafa lifað í heilan sólarhring eftir slysið. Talsmaður Norðurflotans, Vla- dimir Navrotskí, greindi frá því í gær að alvarleg brunasár væru á nokkrum líkanna. Navrotskí sagöi ekkert um hver kynnu að vera upp- tök eldsvoðans í kafbátnum. Einnig var greint frá því að líkin bæru þess merki að þungir og hvassir hlutir hefðu rekist í sjóliðana. Bylur og rok kom i gær í veg fyrir að kafarar gætu haldið áfram tilraunum sínum til að ná upp fleiri líkum frá Kúrsk. Forsetahjón á bæn Forseti Filippseyja, Joseph Estrada, og eiginkona hans, Luisa Ejercito, við messu í forsetahöllinni í gær. Forsetinn, sem sakaður hefur verið um aö hafa þegið mútur frá spilavítisstjórum, lýsti því yfir í gær að ekki væri hægt að neyða hann til að segja af sér. Óskaði forsetinn eftir vopnahléi við stjórnarandstöðuna. Hætta á heitara loftslagi en áður hefur verið spáð Jörðin hitnar miklu hraðar af út- blæstri gróðurhúsalofttegunda en vísindamenn hafa áður haldið. í nýrri skýrslu nefndar alþjóðlegra visindamanna kemur fram að með- alhiti á jörðinni muni hækka um 6 gráður til ársins 2100. Þetta er þriðja og alvarlegasta skýrslan um loftslag á jörðinni frá sérfræðinganefndinni. Nefndin, sem í eru 2500 loftslagsvísindamenn frá öllum heiminum, er nú nær alveg viss um að sambandið milli gróður- húsalofttegunda og aukins hita á jörðinni hafi verið sannað. Fyrir fimm árum spáði nefndin því að meðalhitinn á jörðinni myndi hækka um 1 til 3,5 stig á milli ár- anna 1990 og 2100. Nú spáir sama nefnd því að hitinn hækki um 1,5 til 6 stig á sama tímabili. Um er að Flóö á Ítalíu Hækkað hitastig vegna gróðurhúsaáhrifa getur valdið miklum náttúruhamförum. ræða meðalhækkun en hitahækk- unin getur orðið miklu meiri á ýms- um svæðum og getur þar með vald- ið miklum náttúruhamfórum. í annarri skýrslu kom nýlega fram að síðasti áratugur hefði verið sá heitasti i 1000 ár. Hitinn fór að hækka áberandi á áttunda áratugn- um og á síðasta áratug, einkum síð- ustu fimm árin, hefur verið óvenju- hlýtt. Vísindamennirnir sjá enga aðra líklega skýringu en gróður- húsaáhrifin. Búist er við að skýrsla vísinda- mannanna, sem reyndar er ekki al- veg tilbúin, muni vekja mikla at- hygli á ráðstefnu í næsta mánuði þegar fulltrúar flestra þjóða heims koma saman í Haag til að ganga frá Kyotosamkomulaginu um takmörk- un gróðurhúsalofttegunda. Refsað í skólanum Andrés prins, næstelsti sonur El- ísabetar Englands- drottningar, segir að sér hafi verið refsað líkamlega þegar hann var í einkaskóla nálægt Ascot í suðurhluta Englands. Breska blaðið Daily Mail greindi frá þessu í gær. Það er jafn- framt haft eftir prinsinum að for- eldrar hans hafi aldrei barið hann. Sjálfur hefur hann heldur aldrei lagt hendur á dætur sínar. Prinsinn styöur herferð gegn ofbeldi gegn bömum. Rændi sjálfum sér Argentínskur maður rændi sjálf- um sér til að svíkja um 2 milljónir króna út úr konu sinni. Konan fékk féð hjá yfirmanni sínum og afhenti það á umsömdum stað. Henni brá þegar lögreglan hafði gripið meint- an mannræningja. Kosovo fær sjálfstjórn Vojislav Kostunica, forseti Júgóslavíu, og Vladímír Pútín Rúss- landsforseti lögðu til í gær að Kosovo fengi sjálfstjórn en yrði áfram hluti af Júgóslavíu. Fáránleg bankagjöld Neytendamálaráðherra Svíþjóð- ar, Britta Lejon, segir fáránlegt að almenningur þurfi að greiða fyrir að taka út fé úr banka. 90 milljarða tap Tapið á heims- sýningunni í Hannover er áætlað að verði 90 milljarö- ar islenskra króna, sex sinnum meira en fyrst var gert ráð fyrir. Gerhard Schröder Þýska- landskanslari segir ekki hægt að meta gildi sýningarinnar í pening- um. Tölvuþrjótar hjá Microsoft Framkvæmdastjóri Microsoft, Steve Ballmer, sagði í gær að tölvu- þrjótar, sem brutust inn í tölvukerfi fyrirtækisins á fimmtudag, hefðu komist í nokkur aðalforrit fyrirtæk- isins en ekki breytt þeim. Argentína vill Pinochet Argentínsk yfir- völd kröfðust í gær framsals Augustos Pinochets, fyrrver- andi einræðisherra Chile. Pinochet er sakaður um að hafa staðið á bak við morðið á Carlos Prats, yfirmanni herráðsins i Chile, er var í útlegð í Argentínu. Prats, sem var mótfallinn valdaráni Pin- ochets, var myrtur í Buenos Aires 1974. Gore með grínara A1 Gore, forsetaframbjóðandi demókrata i Bandaríkjunum, hélt í gær kosningafund með grínleikar- anum Bill Cosby í Vestur-Virginiu. Samtímis herti George Bush árásir sínar á persónuleika Gores. Sagði hann varaforsetann lítt trúverðug- an.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.