Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 33
33 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað Enginn venjulegur maður - Eymundur Matthíasson er leiðtogi lærisveina Sri Chinmoy á íslandi Eymundur Matthíasson er leiðtogi Sri Chinmoy á íslandi. Söfnuðurinn telur rúma 30 lærisveina og vinnur mikið hugsjónastarf. * Amánudag kl. 19.30 heldur ind- verski jógameistarinn Sri Chinmoy tveggja tíma tón- leika í Háskólabíói. Aögangur er ókeypis og öllum heimill meöan húsrúm leyfir. Chinmoy mun flytja eigin lög og ljóö og fer flutningurinn að mestu fram á bengölsku sem er móðurmál Chinmoys. „Tónlist hefur þýðingu en sú þýð- ing er án orða. Það sem vakir fyrir Chinmoy er að skapa andrúms- loft sem kemur skilaboðum til fólks. Það má segja að tónlist hans kenni okk- ur að hlusta á þögnina,“ segir Eymundur Matthiasson sem er í forystu hóps 32 læri- sveina Sri Chin- moy á íslandi. Hópurinn starf- rækir miðstöð og býður upp á ókeypis hug- leiðslunámskeið en lærisveinar Chinmoys starfa i meira en 300 slíkum miðstöðvum í um 70 löndum víðs vegar um heiminn. Sri Chinmoy er langt frá því að vera venjulegur maður. Hann fædd- ist á Indlandi árið 1931, nánar tiltek- ið í borginni Chittagong í núver- andi Bangladess. Hann varð munað- arlaus 10 ára að aldri og flutti þá til systkina sinna á Suður-Indlandi og dvaldi þar næstu 20 árin við hug- leiðslu og andlega iðkan af ýmsu tagi. Sri kom til Vesturlanda fyrst 1964, nánar tiltekið til New York þar sem hann starfaði á indverskri ræðismannsskrifstofu um tveggja ára skeið. Hann gaf út tímarit, hélt námskeið og fljótlega varð til hópur eða fylkingar lærisveina sem að- hyfltust kenning- ar hans um jóga og hugleiðslu samfara hollu mataræði og lík- amsþjálfun með áherslu á hlaup og þolþjálfun. Um 1970 hóf Sri að ferðast um all- an heim og út- breiða fagnaðarer- indi sitt og áriðl974 kom hann fyrst til Is- lands og hélt fyr- irlestra og nám- skeið. Engin takmörk Sri Chinmoy hefur um ævina af- kastað meiru en flestir dauðlegir menn og vandséð hvar skuli byrja á afrekaskrá hans. Hann hefur skrif- að og gefið út 1350 bækur um andleg málefni, leikrit, ljóð og fleira en samtals hefur hann ort yfir 50 þús- und Ijóð. Hann hefur málað um 160 þúsund myndir og teiknað 10 millj- ón myndir af fuglum. Hann hefur samið 15000 lög við eigin texta og leikur á um 20 hljóðfæri sum þekkt, eins og þverflauta, selló og pianó, en önnur minna þekkt, eins og þrefóld bambusflauta, tvöfold okkarína eða indverska strengjahljóðfærið esraj sem hann heldur mikið upp á. Þrjú tonn meö annarri hendi Sri hefuj stundað lyftingar og hlaup um árabil og hljóp 22 mara- þonhlaup og 4 últramaraþonhlaup en á sviði lyftinga mætti nefna að árið 1985 lyfti hann þremur tonnum með annarri hendinni. Hann hefur heiðrað margra merkis- menn með því að lyfta þeim og mætti til dæmis nefna íþrótta- manninn Carl Lewis en ekki síður Steingrim Hermannsson, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem Sri lyfti þegar hann kom í heimsókn til íslands 1975. Þetta sýnast vera ofurmann- leg afrek en hvemig er þetta hægt, Eymund- „Það sem vakir fyrir Sri Chinmoy er að sýna okkur fram á takmarka- leysi okkar. Hann segir að fyrst hann geti þetta þá eigum við að geta það líka. Hann sefur mjög lítið svo starfsdagur hans er margfaldur á við það sem við þekkjum. Hann vill hjálpa okkur að brjóta niður múr- ana sem við byggjum umhverfis okkur sjálf.“ Leitin að dýpri tilgangi Hvenær kynntist þú kenningum Sri og byrjaðir að lifa samkvæmt þeim? „Ég heyrði fyrst af honum 1975 þegar hann hélt fyrirlestur á Akur- eyri sem móðir mín sótti. Ég gerðist lærisveinn hans 1985 og hef verið það síð- an. Þá hafði ég um tima verið að leita að einhverjum dýpri til- gangi eða takmörk- um til að stefha að í lífinu og mér fannst ég finna svarið í kenningum hans og aðferðum." Auk þess að selja bækur og plötur meistarans og halda námskeið starfar hópur lærisveina Sri meðal annars að skógrækt en til þess að minnast þess að meistarinn lauk 27 þúsund ljóða flokki fyrir þremur árum ákvað hópurinn að gróður- setja 27 þúsund trjáplöntur. „Við fengum land hjá Skógrækt- arfélagi Reykjavikur í Hvalfírði og hófum þetta en það hefur reynst meira verk en okkur óraði fyrir og krefst meiri þolinmæöi. Fyrirtæki hafa gefiö okkur plöntur en við erum samt aðeins um hálfnuð." Allir vinna fyrir hugsjónina En kostar þetta allt ekki óskap- lega mikið? Það þarf aö borga leigu fyrir húsnæði, bjóða frí námskeið og halda ókeypis tónleika. Hver borgar? „Þetta er allt hugsjónastarf. Við gerum okkur grein fyrir því að það þarf að gera þetta og við sem stönd- um í þessu öflum fjár með margvís- legu móti og hver og einn lætur eitt- hvað af hendi rakna." Eymundur lagði stund á nám í stærðfræði og eðlisfræði við Was- hington and Lee háskólann í Amer- iku og lauk BS-prófi í báðum fogum. Síðar dvaldi hann í Englandi og stundaði píanónám. Eftir að hafa fengist lítillega við kennslu einbeitti hann sér að starfinu fyrir Sri Chin- moy. Alls engin fórn Varstu að fórna efnilegum náms- ferli og snúa baki við borgararleg- um lífsháttum? „Sjálfsagt finnst einhverjum þetta vera fóm mér finnst það alls ekki. Þvert á móti finn ég að þetta er það sem ég þarf að gera og veitir mér hamingju og lífsfyllingu. Eini mæli- kvarðinn á árangur andlegs starfs eins og þessa er sá hve mikla ham- ingju það veitir og ég er sannarlega hamingjusamur. Gildismat manna er misjafnt og ég lifi mjög venjulegu lífi að flestu leyti nema ég lifi eins og lærisveinn Sri Chinmoy á að gera. Ég nýti mér veraldleg gæði að því marki sem ég tel nauðsynlegt en margt sem aðrir telja nauðsynlegt er það alls ekki.“ -PÁÁ Kaneho FEGURÐIN BYRJAR MEÐ ’I'L; ói . “ ‘ *, : ' ■■■' ■' - ■'■ ' & M , W 9* r'~ * Kanebo hefur gert húðhreinsun að list og býður nú sérsniðna aðferð sem er einstök til daglegrar hreinsunar húðarinnar. Hreinsilína Kanebo býður upp á frumlega og árangursríka húðhreinsun sem hentar nútíma lífsháttum. ■ ; * *- v ... , H _ r ^ Þessi hreinsilína er hönnuð til þess að gæla við skilningarvitin og fjarlaegja óhreinindi og spennu og um leið dekra við húðina með sérstaklega völdum gjöfum náttúrunnar. fCaneba Xanobo Kanoho Jlil Xanoho Xandbe Q&mm ctíAMsiNc awN4tNf.'tm aÉmt* ______ 1-,- J 'staiáiastas sik«MSit*c •m.á.i. -t.. •.í-aS/W '. 'Síív. ■ ' ■ ■ Sri Chinmoy leikur á meira en 20 hljóöfæri og hefur samiö meira en 15000 lög viö eigin texta. ur? Hann hefur skrifað og gefið út 1350 bœkur um andleg málefni, leikrit, Ijóð og fleira en samtals hefur hann ort yfir 50 þúsund Ijóð. Hann hefur málað um 160 þúsund myndir og teiknað 10 milljón myndir af fuglum. Hann hefur samið 15000 lög við eigin texta og leikur á um 20 hljóðfæri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.