Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 29
29 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000_____________________________________________________________ X>v___________________________________________________________________________Helgarblað fyrsta skipti. Aftur datt mér sveita- strákurinn i hug. „Nei, hvað sjáum við hér? Húsbónd- ann á heimilinu!“ Hann sagði þetta með nákvæmlega sama hljómfalli og hann notaði í gamanatriðum sínum. Já, þetta var eitthvað annað! Nú varð mér ljóst að þetta var í alvöru maður- inn sem ég hafði séð í svo mörgum kvikmyndum. „Reyndar er það kvenkyns," sagði ég. „Nú, það er dama.“ Hann hneigði sig riddaralega. „Bonjour mademoiselle." „Hún heitir Coco, eins og Coco Chanel," sagði ég dálítið órólegur þeg- ar hann nálgaðist svínið sem nú var komið út úr kassanum og hörfaði upp að veggnum. Áður en ég gat nokkuð gert til að grípa inn í eða vara hann við tilhneig- ingu Coco til að bíta ókunnuga karl- menn beygði Robin Williams sig nið- ur, greip í eyrun á henni og smellti stórum kossi beint á trýnið á henni. „Oj, bara,“ æpti frú Williams og hló góðlátlega eins og hún væri alvön svona skrípalátum. Þetta kom mér gersamlega á óvart, ég var höggdofa, alveg eins og Coco. Ég gat ekki látið mér detta í hug að nokkur maður myndi kyssa svín á blautt trýnið. Allir þessir hræðilegu sýklar og svo andremman. Bara mín- útu áður hafði Coco verið að róta með þessu sama trýni í sandi fullum af svínaskít. En þetta virtist ekki koma vitund iila við Robin Williams. „En dásamlegt, dásamlegt svín,“ sagði hann, fór niður á fjóra fætur og lét sjálfur eins og svín. Hann rýtti og vældi og hermdi óaðflnnanlega eftir gröðu svini. skrýtna skepna vera af hennar eigin tegund. Coco horfði bara fast á hann og beið þess hvað hann gerði næst. Reynd- ar vakti það forvitni mína líka. Robin skreið nær Coco og rak í hana bakhlutann alveg eins og göltur sem er að reyna að vekja aðdáun gyltu. „Ojnk, ojnk, sæti grís,“ sagði hann við hana. „Hæ grísagrís." Þegar hann nuddaði höfðinu við bjórinn rétt aftan við háls- inn á Coco svaraði hún með því að rýta af æsingi. Þau skildu greinilega hvort annað. Þegar þessari upphitun var lokið fór Robin að sýna gríntakta alveg eins og hann hefði gert fyrir framan hóp af áhorfendum. Hann fór að tala við hana með ails konar röddum, skipti á milli ensku, svínamáls og einhverra tungu- mála sem hann bjó til jafnóðum. Coco var gersamlega heilluð af þessum nýja vini sínum. Ég yfirgaf þau háifnauðugur þar sem frú Williams var farin til að skoða borðstofuna. Það mátti ekki skilja hana eftir eina eitt andartak. Hún gæti hlaupist á brott með rósaviðarborðið sem þrjátíu manns gátu setið við. Með- an við gengum um stofuna heyrði ég allan timann blaður og hlátrasköll gegnum hurðina og einstaka sinnum hástemmt væl sem gat hafa komið hvort sem var frá Coco eða Robin. Þegar við snerum aftur nokkrum minútum síðar lágu Robin Williams og Coco saman á gólfrnu þannig að kviðir þeirra snertust. Hann var að tala við hana með ýmsum af þeim röddum sem hann var frægur fyrir, segja henni brandara og beið svo þolinmóður eftir viðbrögðum hennar. Hann mataði hana á smákökum með annarri hendi og strauk henni um síðuna með hinni. Nú var feimni hans gersamlega horfm. Húsbóndinn á heimiiinu Við fórum herbergi úr herbergi hægt og rólega og ég fann að frú Williams var hrifin af umhverfmu og góða smekknum sem mér sjálf- um fannst svo kæfandi. Allt var út- troðið af hlutum sem aðallega voru til að sýna ríkidæmi og smekk. Hver og einn þessara gripa hefði getað prýtt hvaða vistarveru sem var, en þegar þeir komu allir sam- an voru þeir yfirþyrmandi. Robin rölti um með hendur í vösum og lét eins og þetta allt saman kæmi honum lítið við. Hann hélt áfram að stara ákaft á gólfið, var annars hugar, leiddist og leit ekki upp nema einstaka sinnum til að taka eftir einhverju sem konan hans var að benda á. Á leiðinni niður starfsmanna- stigann heilsuðum við riturunum sem voru á leiðinni upp. Mér varð ljóst að þetta var engin tilviljun þar sem bæði starfsfólk og börn voru að fylgjast með ferðum okkar um húsið og finna sér átyllur til að vera í grenndinni þegar við geng- um hjá. En Amy virti okkur ekki viðlits þegar við komum inn í eld- húsið heldur einbeitti sér að því að fægja margbrotna silfuröskju með mjóum pensli. Hún fór aldrei í bíó svo hún hafði enga hugmynd um hver þessi maður var og skildi heldur ekkert hvers vegna ég var að sýna þeim húsið. Þegar við Robin Williams, gamanleikarinn ástsæli. Honum þótti ekki mikiö til arkítektúrsins koma en var-ö yfir sig hrifinn af gælusvíninu Coco. stóð í kassanum sínum og starði á okkur meðan hún rótaði með trýn- inu í sandinum. Bévítans svínið ræðst áreiðanlega á okkur, hugs- aði ég. Coco þoldi alls ekki ókunna karlmenn. En undireins og Robin Williams sá Coco lifnaði verulega yflr honum í Kviöir þeirra snertust Coco var grafkyrr. Hún hreyfði sig ails ekki og dindillinn, sem snerist venjulega eins og hreyfdl þegar hún var æst, haggaðist ekki. Hún hafði ekki séð annað svin síðan hún var smágrís og henni hlýtur að hafa fundist þessi Maðurinn sem ég þekkti úr samtals- þáttum og kvikmyndum birtist í allri sinni dýrð og hélt einkasýningu fyrir svínið. Williamshjónin keyptu ekki húsið og komu ekki aftur til að skoða það betur. Ég er nokkum veginn viss um að þau rændu engu í heimsókn sinni, nema kannski hjarta Coco. aö taka á móti fólki sem haföi áhuga á að kaupa og sýna því húsið. Leik- arinn góókunni, Robin Williams, var einn þeirra sem bankaði upp á. Eiginkona hans var öllu áhugasam- ari en hann um hús Danielle Steel en honum fannst hann hafa himin höndum tekið þegar hann rakst á gœludýrið Coco - verólaunasvínið frá Víetnam. gengum fram hjá henni sendi hún mér augnaráð sem sagði að það væri eins gott fyrir mig að koma sem fyrst aftur í eldhúsið að hjálpa henni. Til þess að komast úr eldhúsinu inn í borðstofuna urðum við að fara gegnum matarbúrið. Ég var búinn að gleyma tilvist Coco sem Einkaþjónninn og börnin Þórhallur ásamt fimm af börnum Danielle Steel. Sheen var fórnarlamb Leikarinn Charlie Sheen komst á síður heimspressunnar fyrir nokkrum árum þegar hórumamman Heidi Fleiss var handtekin í Hollywood og starf- semi hennar upprætt. Frú Fleiss hafði sérhæft sig i að veita leikurum og frægu fólki þjónustu vændiskvenna af ýmsu tagi og við rannsókn á umsvifum hennar kom í ljós að Sheen var meðal hennar dyggustu viðskipta- vina. Sheen fór í framhaldinu í með- ferð og sneri bakinu við þeim lífs- háttum sem gerðu hann að góðum viðskiptavini frú Fleiss en þessir atburðir hafa loðað við hann eins og kusk æ siðan. Charlie Sheen Hann segir að þaö sé niöurdrepandi aö borga fyrir kynlífnema undir áhrifum. Nýlega tjáði Sheen sig um þessi mál í viðtall við bandarísk blöð og sagðist hafa verið notaður sem blóraböggull í réttarhöldunum yfir frú Fleiss því hann hefði alls ekki verið sá forkur meðal við- skiptavina hennar sem af var lát- ið. Hann hefði vissulega keypt sér þjónustu sem hún bauð en ekki skarað fram úr. Sheen lét þess getið við þetta tækifæri að síðan hann fór að lifa allsgáðu lífi hefði hann einu sinni prófað að kaupa sér kynlífsþjón- ustu og komist að því að án gleði- aukandi vímugjafa væri slik skemmtan ekki svipur hjá sjón og maður yrði þunglyndur af slíkum viðskiptum. ístraktor Íiílar Opið laugardag 13-17 Fiat Marea 1.6 ELX Auto 4/98 ek. 47 þús., 5d„ sj.sk., loftpúðar, ABS, rafm.rúður, fjarst.samlæs., álfelgur. Tilboðsverð kr. 1.140 þús. Fiat Brava 1.6 SX 10/97 ek. 34 þús., 5d„ 5 gíra, loftpúðar, ABS, rafm.rúður, samlæsingar, þokuljós. Tilboðsverð kr. 920 þús. Fiat Bravo 1.6 SX 3/98 ek.48 þús„ 3 d„ 5 g„ ABS hemlar, loftpúðar, þokuljós, hiti í sætum.. Tilboðsverð kr. 940 þús. Peugeot 3061.4 XN 3/96 ek. 61 þús„ 3 d„ 5 g„ útvarp, geislaspilari, spoiler, álfelgur, rafm.rúður. Tilboðsverð kr. 690 þús. Nissan Sunny 1.6 SLX 7/91 ek. 146 þús„ 4 d„ 5 g„ útvarp, segulband, rafm.rúður. Tilboðsverð kr. 370 þús. VWGOLF1.6CL 6/94 Ekinn. 133 þús„ 3 d„ 5 g„ framhjóladrif, útvarp, segulband, Tilboðsverð kr. 450 þús. Nissan Micra GX 10/96 Ekinn. 74 þús„ 5 d„ 5g.,fjarst, samlæs., spoiler, álfelgur, geislaspilari. Tilboðsverð kr. 590 þús^ Nissan Primera 2.0 11/96 ek. 59 þús„ 5 d„ 5 g„ þokuljós, álfelgur, samlæsingar, rafmagnsrúður o.fl. Tilboðsverð kr. 890 þús. Toyota Touring 4x4. '94 ek. 158 þús„ 5 d„ 5 g„ fjórhjóladrif, útvarp, segulband, sumar- og vetrardekk. Tilboðsverð kr. 650 þús. .**% ístraktor Smiðsbúð 2 Garðabæ Sími 5 400 800 www.istraktor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.