Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 72
Nýtt og spennandi
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Rafdrifinn buggybíll
fyrir börnin
Sími 567 4151 &
567 4280
Heildverslun með
leikföng og gjafavörur
Læknissonurinn frá Hvolsvelli sem talinn var af í 12 ár:
Líftrygging
var greidd út
- tryggingafélög athuga hvort breyta þarf vinnureglum
Líftrygging Halldórs Heimis ísleifs-
sonar, læknissonarins frá Hvolsvelli
sem hvarf í Texas árið 1988 en birtist á
íslandi í síðustu viku, var samkvæmt
heimildum DV greidd út á sínum tíma.
Þetta kann að hafa þau áhrif að trygg-
, ^ingafélög hérlendis verði að breyta
™ vinnureglum sínum í þá veru að dán-
arbætur verði ekki greiddar nema lög-
formlegur úrskurður hggi fyrir.
Forsvarsmenn tryggingafélagsins
sem i hlut á vildu ekki tjá sig um mál-
ið þar sem það flokkaðist undir einka-
mál. Að maður sem er talinn látinn
snúi til baka sprelllifandi eftir að lif-
trygging hans hefúr verið greidd út er
einsdæmi í sögu íslensks tryggingafé-
lags og veldur forsvarsmönnum þess
miklum heilabrotum. DV er ekki
kunngt um hvort fjölskylda Halldórs
o ^hHeimis hyggst endurgreiða félaginu
fjárhæðina en hugsanlegt er að henni
beri engin skylda til þess og krafan sé
fymd. Liftryggingin var greidd út á
grundvelli þess að sýslumaður kvað
upp þann úrskurð að skipta mætti búi
hins unga manns. Aldrei féll úrskurð-
ur héraðsdóms sem lýsti hinn týnda
Látinn“ á Irfi
formlega látinn. Vegna fymingarlaga
kann að vera að félagið sem um ræðir
eigi engan rétt á endurgreiðslu. Eins
og áður segir kann þetta að leiða til
þess að tryggingafélög verði að breyta
vinnureglum. Þetta gæti komið itla við
aðstandendur sjómanna sem farast á
hafi úti og aðstandendur þeirra sem
haldið er á lifi í öndunarvél, án þess að
eiga von um að snúa aftur til lifs.
Búist er við því að Halldór Heimir
verði kallaður fyrir hjá yflrvöldum í
sínu heimahéraði og skýringa óskað á
fjarveru hans i 12 ár. Eftir því sem DV
kemst næst er óskað eftir því að Hall-
dór Heimir verði skráður tU heimilis á
Áiftanesi, hjá foreldrum sínum.
Að sögn Boga Hjálmtýssonar, stað-
gengils sýslumannsins í Hafnarfirði,
hefúr embættinu enn ekki borist er-
indi um að óska skýringa á hvarfi
mannsins. I þjóðskrá er Halldór Heim-
ir enn sagður látinn þann 14. mars
1988, þrátt fyrir að beiðni hafi verið
send fýrir miðja viku um að færa hann
aftur inn; á lífi.
„Við í íjölskyldunni erum enn að
gleðjast og ekki farin að ræða fjárhags-
hlið þessa máls,“ sagði Kristín Isleifs-
dóttir, systir Halldórs, í gærkvöldi.
„En við eigum að sjálfsögðu eftir að
fara að lögum í þessu efni.“ -rt
Blásið til orrustu gegn risunum á matvörumarkaðinum:
Stóraukið samstarf
- á teikniborðinu hjá Samkaupum og KEA
Kaupfélag Eyfirðinga og Samkaup
eiga nú í viðræðum um stóraukið
samstarf á matvörumarkaði. Um er
að ræða samstarf í innkaupum og
markaðsmálum. Samkaup rekur
' “%'erslanir á Suðurnesjum, í Hafnar-
firði, Reykjavík, ísafirði og Bolung-
arvík. Þar á meðal eru nokkrar
Sparkaupsverslanir, sem eru hverfa-
verslanir. Þá rekur fyrirtækið lág-
vöruverslunina Kaskó í Keflavik
svo og kjörvinnslu fyrir versl-
anir sínar.
Matbær ehf. rekur
KEA-verslanirnar Nettó,
Úrval og Strax-búðirnar. Úr-
val er með stærri verslanir en
Strax-búðirnar eru hverfaverslanir.
„I framhaldi á sölu Kaupáss á sín-
um tíma kom fram í viðtölum við
eigendur fyrirtækisins að þeir
horfðu til víðara samstarfs," sagði
Guðjón Stefánsson, framkvæmda-
***stjóri Samkaupa. „Þeir tilgreindu
okkur og KEA í því sambandi. Það
hefur ekkert gerst frekar í þeim mál-
um. Hins vegar er hið aukna sam-
starf okkar við KEA orðið til í fram-
haldi af öllum þessum umræðum,
svo og framhaldi af þvi sem hefur
verið að breytast á markaðinum,
þegar tveir aðilar eru að verða ríkj-
andi, þ.e. Baugur og Kaupás. Þessir
tveir aðilar eru komnir með gifur-
lega stóran hluta af kökunni. Það
væri heimska ef þeir sem eftir eru
á markaðinum væru að berj-
ast hver í sínu homi. Þvl
hefur neyðin kennt
okkur það að við verð-
um að starfa meira saman til þess að
geta náð fram meiri hagkvæmni í
innkaupum."
Samkaup og Matbær ehf. kaupa
inn í gegnum BÚR ehf. Allt það sem
er utan þeirra innkaupa hyggjast
fyrirtækin hafa samstarf um. Kaup-
félag Héraðsbúa hefur þegar gert
samstarfsscunning við Samkaup.
Samstarfið hefur verið í þeim far-
vegi að fyrirtækin hafa slegið saman
magni sínu þegar samið hefur verið
um innkaup. Þá hafa þau unnið
saman að markaðsmálum.
„Út úr þessu höfum við talið
koma hagræði fyrir báða,“ sagði
Guðjón. „Það er á þessum nótum
sem við erum að ræða við fleiri af
minni aðilum, þar á meðal Matbæ.
Hvort þetta samstarf leiðir á seinni
stigum til einhvers verður
framtíðin að leiða i ljós. í
næstu framtið sýnist mér
stefnan vera sú að við,
þessir minni aðilar, mun-
um vinna þétt sarnan."
Guðjón sagði að engin áform
væru uppi um beina sameiningu
Samkaupa og matvörumarkaðar
KEA. -JSS
fEzznnnzi
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
DV-MYND E.ÓL.
Vala leggur lið
Fjölmargir leggja Rauöa krossinum liö vegna landssöfnunar til hjálpar atnæm-
issjúkum í Afríku sem fram fer um helgina. Stefnan er aö banka upp á hjá
sem flestum landsmönnum og æskja framlags til baráttunnar gegn þeirri
ógn sem alnæmisfaraldurinn er í Afríku. Vala Flosadóttir lætur ekki sitt eftir
liggja frekar en fyrri daginn og sést hér viö undirbúning söfnunarinnar í gær.
Foreldrar sækja ekki aurana sína:
29 milljónir í óinnleyst
um barnabótatékkum
í árslok 1999 lágu tæplega 29 millj-
ónir hjá ríkissjóði í óinnleystum
bamabótatékkum sem gefnir voru
út á árunum 1996 til 1998. Þetta
kemur fram í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar fyrir árið 1999.
„Þetta eru bamabótatékkar sem
fólk hefur átt rétt á en hefur ekki
innleyst," sagði Sigurður Þórðarson
ríkisendurskoðandi. Aðspurður
sagðist Sigurður ekki vita af hverju
fólk hefur ekki sótt þessa aura sína.
Á síðustu árum hefur dregið úr út-
gáfu tékka, þar sem ríkissjóður er
farinn að greiða vélrænt inn á
bankareikninga viðtakenda, og
kemur það í veg fyrir sams konar
uppsöfnun fjármuna.
Ávísanir fyrnast á einu ári en Sig-
urður sagði að ef fólk kæmi og gæti
sýnt fram á að það hefði átt rétt á
þessum greiðslum þrjú til fjögur ár
aftur í tímann þá fengi það greitt. Ef
fólk skuldaði ríkissjóði fengi það sent
ítrekanir um að greiða skuld sína en
ekki væm sendar út ítrekanir til þess
að minna fólk á að innheimta það sem
rikið skuldar því.
Auk 28.932 þúsund króna í óinn-
leystum barnabótatékkum liggja
einnig óinnleystir launatékkar að
fjárhæð 736 þúsund krónur hjá rík-
issjóði. -SMK
Tilboósveró kr. 4.444
bfOth©f P-touch 1250
Lítil en STÓRmerkileg merkivél
5 leturstæröir
9 leturstillingar
prentar í 2 linur
borði 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Gæði og glæsileiki
smort
(sólbaðstotal
Grensásvegi 7, sími 533 3350.