Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 66
j74 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 Tilvera I>V lífift IwWwWBSfóÍs. IMkæJ Sýning á verk- um Jóns Axels í dag, kl. 16, opnar Jón Axel Bjömsson sýningu á nýjum verkum sínum 1 Listasafni ASÍ - Ásmundarsal við Freyjugötu. Jón Axel á að baki fjölda einka- og samsýninga frá árinu 1980. Sýningin stendur til 12. nóvem- ber og er opin daglega nema mánudaga frá kl. 14-18. Klassik ■ ART-2000 Alþjóöleg raf- ogtölvu- tónlistarhátíö í fyrsta skipti á Islandi í Salnum í Kópavogi. Allar nánari upplýsingar má finna á www.salur- Inn.ls. Leikhús ■ DRAUMUW A JONSMESSUNOTT Draumur á Jónsmessunótt veröur sýndur í Þjóólelkhúsinu í kvöld. Tak- markaöur sýningafjöldi. ■ HÁALOFT Háaloft er einleikur um konu meö geöhvarfasýki eftir Völu Þórsdóttur. Sýningin hefst kl. 21.00 í kvöld í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarp- anum. Borgarlelkhúsiiui í kvöld kl. 19X)0. Leikstjóri Guöjón Pedersen. ■ STORMUR OG ORMUR í dag veröur sýndur í Kaffileikhúsinu hinn stórskemmtilegi barnaeinleikur Stormur og Ormur sem hefur hlotiö einróma lof gagnrýnenda. Sýningin hefst kl. 15.00. ■ HELUSBÚINN Bjarni Haukur er Hellisbúinn í Islensku óperunni. Sýn- ingin gengur enn fyrir fullu húsi. Holl lexía fyrir bæöi kynin. Leikstjóri er Siguröur Sigurjónsson. Sýning í -^kvóld kl. 19. Síðasta sýning. ■ LÉR KONUNGUR Í BORGAR- LEIKHUSI Lér konungur er sýndur klukkan 19 í kvöld í Borgarleikhús- inu. ■ MEÐ FULLRI REISN í TJARNAR- BIOI Meö fullri reisn veröur sýnt í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 20.30. Miöapantanir T 561-0280. ■ VITLEYSINGAR í HAFNARFIRÐI Hafnarfjaröarleikhúsiö sýnir í kvöld Vitleysingana eftir Ólaf Hauk Sím- onarson. Sýningin hefst klukkan 20. ■ Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI í LOFTAKASTALANUM Það er síö- asta sýningin á verkinu Á sama tíma aö ári í Loftkastalanum kl. 20. Miöapantanir í 552-3000. "1 Kabarett ■ ART 2000 I dag t Salnum á veg- um ART 2000 heldur Konrad Boem- er fyrirlestur. Opnanir ■ JYRKI PARANTAINEN I tilefni af hátiöinni Ljósin í noröri opnar finnski listamaöurinn Jyrki Parantalnen tvær sýningar hér á landi. Sú fyrri opnaöi T i8 gallerí fimmtudaginn 26. október og sú seinni opnar í Norræna húsinu í dag kl. 15. DÖNSK HÖNNUN í STÖÐLAKOTI I dag kl. 14 verður opnuö sýning á danskri hönnun T Stöðlakoti við Bókhlööustíg. Á sýningunni gefur að líta þaö nýjasta T dúkaframleiöslu Georg Jensen Damask, sem er eitt virtasta vefnaöarfyrirtæki heims og hefur starfaö í 500 ár. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is María Reyndal, leikstjóri Trúðleiks: Breytti leikritinu tveim mínútum fyrir sýningu - ákvað níu ára að verða leikkona „Ég ákvað að verða leik- kona þegar ég var níu ára gömul í Æfingaskóla Kenn- araháskólans. Ég tók þátt í leikriti sem einhverjir samviskusamir kennara- nemar höfðu samið en mér fannst það svo leiðinlegt að tveimur mínútum áður en tjaldið var dregið frá ákvað ég að breyta leikritinu. Ég sagði hinum krökkunum bara að fylgja mér eftir en ákvað að leika frekan og groddalegan verkstjóra með stóran vindil, ekki ólíkan forstjóranum sem Skúli trúður leikur í Trúð- leik. Þetta fékk alveg glimr- andi viðtökur, fólk hló og skemmti sér, að frátöldum kennaranemumnn sem höfðu samið leikritið. Þama ákvað ég að verða leikkona." Þannig lýsir Maria Reyndal, leikkona og leik- stjóri, minningunni um þegar hún ákvað að verða leikkona. María fylgdi þessari ákvörðun sinni eft- ir því hún var á kafi í leik- listarstarfí allan sinn skólaferil, bæði í grunn- skóla og síðar í MH. Hún hóf leiklistamám sitt með þriggja mánaða námskeiði á Ítalíu undir handleiðslu Antonio Fava þar sem sérstaklega var farið í hinn hefðbundna ítalska leikstíl sem kenndur er við Comedia d’ell Arte. Trúðslæti á skólabekk Næsta skref Maríu á menntavegi trúða og trúðleiks fólst í þremur námskeiðum í sérstökum trúðaskóla í London sem kenndur er við Phil- ippe Goulier og þar em alfarið og eingöngu kennd trúðslæti og dára- skapur. Síðan settist María á skóla- bekk í afskaplega virðulegum leik- listarskóla í London sem heitir Central School of Speech and Drama og tekur aðeins inn 32 nemendur af um 3000 umsækjendum hvert sinn. Þar lærðu stórkanónur á borð við Rúrik Haraldsson og Guðrúnu Ás- mundsdóttur leik á sínum tíma. Að loknu námi fékkst María við leiklist í London um tveggja ára skeið en sneri aftur heim í heiðar- dalinn fyrir einu og hálfu ári og fékk fljótlega starf sem listrænn stjóm- DV-MYND HILMARWR María Reyndal leikstýröl Trúölelk eftlr Hallgrím H. Helgason í lönó á dögunum María sat á skólabekk í sérstökum trúöaskóla í London og_ Skúli trúöur heföi áreiöanlega sagt aö hún væri helsti trúðfræðingur á Islandi í dag. andi Kaffileikhússins þar sem hún leikstýrði Ævintýrinu um ástina eft- ir Þorvald Þorsteinsson. Oröspor hennar af þeirri sýningu varð síðan til þess að þegar Leikfélag íslands vantaði skyndiiega leikstjóra til þess að setja Trúðleik Hallgríms H. Helgasonar á svið varð María fyrir valinu. I fótspor Arnar María hafði reyndar sett upp eina sýningu áður en hún hvarf utan til náms, Dónalegu dúkkuna sem sam- anstóð af þremur einþáttungum eft- ir Daríó Fó sem Jóhanna Jónas lék í Loftkastalanum. Upphaflega var ætlun Leikfélags- manna að Örn Ámason stýrði upp- setningunni á Trúðleik en hann varð frá að hverfa vegna anna. „Það var því skemmtileg tilviljun hve nám mitt og sérstakur áhugi á trúðleik nýttist vel við uppsetning- una. Ég hafði aldrei séð verkið áður og las handritið i fyrsta sinn áður en ég mætti á fyrstu æfingu. Þetta var alveg dásamleg reynsla. Sam- starfið við leikarana og höfundinn var frábært en ekki síður alla aðra aðstandendur sýningarinnar sem reyndust óeigingjamir á góðar hug- myndir og jákvæðir. Leikritið tók miklum breytingum á æfingatímanum en Hallgrímur var samstarfsfús og við hefðum áreiðanlega getað þróað það lengra en raun varð á.“ Hvað er svona merkilegt við það? Leikritið fjallar um tvo trúða, Skúla og Spæla, og vangaveltur þeirra um að „þróa starfsferil sinn“. Spæli er alvörugefinn trúður sem telur að ef til vill sé líf eftir trúðs- læti en Skúli er gegnheill trúður sem trúir á mátt fíflalátanna til síð- asta hláturs. En hvaö er svona merkilegt við það að vera trúður? „Trúðurinn er frjáls í leik sinum. Honum leyfist nánast allt og má setja sig inn í allar aöstæður. Þegar trúðleikur er góður þá sjáum við markmið trúðsins og fylgjum hon- um eftir. Það er nánast engin trúðahefð á íslandi og við erum ekki eins gjörn á að sleppa fram af okkur beislinu og hrífast með trúðleiknum eins og þær suðrænu þjóðir þar sem trúðurinn er þekkt per- sóna í leiklistinni. Við erum, eins og margar nor- rænar þjóðir, frekar lokuð þjóð og það á eins við í leikhúsinu eins og annars staðar." Er þetta skot á Davíð? Nú má greina nokkurn pólitískan brodd í leikrit- inu. Það uppsker mikinn hlátur þegar Skúli segir: „Trúðar eru næstum aldrei forsætisráðherrar." Er verið að skjóta á Davíð? „Ég dró aðeins fram það sem höfundur skrifaði í handritið en ýtti ekkert undir það að tengja það við ákveðnar persónur. Áhorf- endur verða að túlka það hver fyrir sig. Höfundur er auðvitað að hæðast svolítið að virðu- leikanum og neyslukapp- hlaupinu í samfélaginu í kringum okkur. Ég held að hláturinn verði enn inni- legri ef við skynjum að grín- ið er ekki alveg innantómt heldur vís- ar í hluti sem við öll þekkjum." María stendur í samningaviðræð- um við Leikfélag íslands um næsta leikstjómarverkefni og hefur auk þess verið ráðin til að leikstýra 3. árs nemum í leiklistardeild Listahá- skóla íslands. Hún og dr. Orri Vé- steinsson fomleifafræðingur, eigin- maður hennar, eiga sjö mánaða gamla dóttur sem þarf sinn tíma. Vil fá aö sanna mig María segir að sér hafi alls ekki fundist erfitt að komast inn í ís- lenskt leiklistarlíf eftir heimkom- una en langar hana ekkert til þess að komast á svið og leika sjálf eins og hún menntaði sig til? „Ég var svolítinn tíma að sætta mig við að vera leikstjóri en ekki leikkona. Ég fékk oft mjög skemmti- leg verkefni í skólanum, þung og dramatísk hlutverk. Ég hef raunar ekkert leitað eftir þvi að komast á svið síðan ég komst heim en mig langar til þess að fá að sanna mig sem leikkona einhvem tímann." -PÁÁ Garðrækt á Tálknafirði: Fallegur álfagarður DV, TALKNAFIRDI:__________________ A Tálknafirði eru margir einstak- lega fallegir garðar. Dæmi um þetta er garður hjónanna Páls Guðlaugs- sonar og Ástu Torfadóttur. Þau hafa lagt mikla vinnu í 40 ár í að byggja upp fallegan og sérstakan garð, álfa- garð. „Við byrjuðum á garðinum um leið og við byrjuðum að byggja," segir Ásta. Páll og Ásta planta afklippunum af trjánum sem þau klippa í hlíðina fyrir ofan húsið þannig að þar er kominn góður vísir að skógi, álfa- skógi. Þegar ferðamenn koma til Tálknafjarðar á sumrin sést oft hvernig bílarnir hægja á sér þegar þeir fara fram hjá garði Ástu og Páls og fyrir kemur að þeir stöðva bílinn og ganga út til að skoða bet- ur og taka myndir. -Frank SnærAss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.