Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 15
15
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
PV______________________________________________________________________________________________________________Sviðsljós
Kjaftasögurnar um
Courtney og David:
Ekki að
skilja
Þótt Courtney Cox (Katrín Korts-
dóttir) og David Arquette (Davíð Ar-
inbjarnarson) hafi einungis verið gift
í örfáa mánuði eru strax komnar á
ílot kjaftasögur um að þau séu á
barmi skilnaðar. Hjónin þarf vart að
kynna en þau léku saman í Scream
(Öskrinu) og enduðu saman í rúmi og
síðar í hjónabandi. í síðustu viku
neyddist parið
til að senda
frá sér yfirlýs-
ingu vegna
fréttar í
breskum blöð-
um um að
hún væri
þunguð, kom-
in þrjá mán-
uði á leið.
Courtney og David hafa um tíma
reynt frjóvgun með eigin verkfærum
og hefur það vakið athygli manna að
Courtney er alveg þvengmjó - reynd-
ar svo mjó að vart getur eðlilegt
talist. Er það mat manna að hún
verði að bæta örlítið á sig.
Kjaftasögur um skilnað þeirra hafa
heldur ekki fallið í góðan jarðveg í
fjölskyldu þeirra. Nýlega kom þróðir
Davids í íjölmiðla til að slá þær sögur
í gröfina. Sagði hann að því færi
fjarri að þau stæðu í skilnaði. Hún
væri aftur byrjuð í Vinum og hann að
leika í bíómyndum þannig að ekki
gæfust mörg tækifæri til sameigin-
legra unaðsstunda. Sagði brói enn
fremur að David flygi um hverja helgi
til Bandarikjanna frá Bretlandi til að
hitta spúsu sína.
Brói sagði líka að ekki væri flugu-
fótur fyrir því að Courtney hefði Dav-
id undir hælnum: „Hún hefur verið
kölluð tík en hún segir bara það sem
henni finnst." Ætli hún segi að sér
finnist David eiga að gera eins og
honum er sagt?
Þaulsætnar
geimverur
David Duchovny (Davíð Dufþaks-
son) verður ekki í þriðja kafla
Stjömustríðs, svo mikið er víst.
Þetta hefur komið í ljós eftir nokkr-
ar rannsóknir. David eyðilagði allar
spár fólks um þetta þegar hann
svaraði spumingu varðandi mynd-
ina. Hann sagðist vera mikill aðdá-
andi en það væri svo svakalega mik-
ið að gera hjá honum. Þegar Ráð-
gátuupptökum líkur hrannast upp
verkefni hjá honum.
Það mætti halda að David yrði
feginn að sleppa frá geimspekúla-
sjónum en svo er ekki. Sagt er að
næsta mynd Davids sé Evolution
(Þróun) og þar muni hann leggja sig
í líma við að túlka mann sem þarf
að bjarga heiminum frá ofbeldis-
hneigðum geimverum. Mörgum
kann að þykja söguþráðurinn kunn-
uglegur en sjaldan er góð vísa of oft
kveðin.
Litlum sögum fer af því hvað hin
fingerða Gillian Anderson (Gyða
Andrésdóttir) hefur fyrir stafni
þessa dagana. Væntanlega mun þess
ekki verða langt að bíða að við fáum
að sjá hana á hvíta tjaldinu og
kannski verður hún þá í hlutverki
læknis sem á að bjarga heiminum
frá ofbeldishneigðum geimverum -
það er alla vega góð hugmynd.
Hreinsuð hreinskilni
Meg Ryan (Mar-
grét Rán) er lík-
lega með róman-
tískari leikkonum
hvíta tjaldsins.
Hvað eftir annað
hefur hún unnið
hug og hjörtu
heimsbyggðarinn-
ar með sakleysis-
legri og glettinni
framkomu sinni og
leik. Eins og marg-
ir vita er hún ný-
skilin við bónda
sinn. Þótti það
sæta nokkrum tíð-
indum þar sem hjónabandiið var
talið eitt af þeim traustari í
draumaborginni.
Meg hefur gefið út yfirlýsingar
varðandi skilnaðinn. Hún vill að
almenningur viti að hjónabandi
hennar og Dennis Quaid (Stein-
gríms Sighvatssonar) var lokið
áður en hún fór út með Russel
Crowe (Reyni Kárasyni). Hún vill
líka að almenningur viti að það er
allt sem hún mun segja um skiln-
aðinn við Dennis. Hún ætlar
aldrei að ræða skilnaðinn og
hjónabandið framar. í fyrsta og
síðasta skiptið sem hún ræddi
skilnaðinn var við W-tímaritið þar
sem hún sagði að fjölmiölar hefðu
komist að hjónabandsslitunum
löngu eftir að þau urðu staðreynd.
Hún sagði að þau hefðu bæði ver-
iö heiðarleg í hjónabandinu og að
þau hefðu ekki haldið fram hjá og
því síður að þriðji aðili hafi komið
þar nærri.
Þrátt fyrir þessar yflrlýsingar í
W má ekki halda að hún hafí ver-
ið algjörlega hreinskilin í viðtal-
inu. Áður en viðtalið hófst tók hún
það nefnilega skýrt fram að ef
minnst yrði á Russel myndi hún
fara samstundis.
Ert þú að tapa réttindum
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur á órinu 2000:
Lífeyrissjóður Austurlands
^ Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
4jpl Lífeyrissjóðurinn Framsýn
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
*»•- Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
Lífeyrissjóður Norðurlands
Jfj Lífeyrissjóður Rangæinga
Lífeyrissjóður sjómanna
c> Lífeyrissjóður Suðurlands
^ Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
^Sér'Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
Jfl Lífeyrissjóður Vesturlands
K> Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Fóir þú ekki yfirlit,
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber
ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en
1. nóvember n.k.
Við vanskil ó greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta ó að dýrmæt réttindi tapist. Þar ó meðal mó nefna:
Ellilíf eyri
Makatíf eyri
Barnalífeyri
Örorkulífeyri
Gættu réttar þíns
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota,
skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnu-
veitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu
tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum.
Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyríssjóður einungis ábyrgur
fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem (oau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.