Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Page 26
26 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________py -i* - _ Rosie O’Donnell Rosie hefur vakiö reiöi samtaka dýravina í Ameríku meö því aö fara í veiðitúr. O’Donnell reitir dýravini til reiði Rosie O’Donnell er vinsæll spjall- þáttastjórnandi í Ameríku og þáttur hennar nýtur svipaðra vinsælda og Oprah Winfrey, Jay Leno og fleiri stórmenna. Eins og kunnugt er geta stjórnendur þátta af þessu tagi vak- ið mikla athygli meö nánast hverju einu sem þeim dettur í hug að segja. Þetta fékk Rosie aö reyna á dög- unum þegar hún fór fögrum orðum um veiðitúr sem hún hafði farið í og rennt hafði verið fyrir flsk. Rosie lýsti því fjálglega hve gaman hefði verið í veiðitúrnum og hve gaman væri að veiða íisk á stöng. Skömmu síðar fékk hún harðort bréf frá samtökum í Ameríku sem kalla sig PETA sem er skammstöfun á People for the Etchical Treatment of Animals sem eru öfgafull dýra- vemdunarsamtök. Samtökin töldu þennan málflutning út í hött því fiskar liðu ólýsanlegar kvalir þegar þeir væru veiddir á stöng og ekki væri betra að sleppa þeim aftur því það væru hreinar pyntingar. Rosie tók málflutning þeirra ekki nær sér en það að hún gerði grín að samtökunum í næsta þætti og hvatti tfl þess að haldinn yrði hátíðlegur sérstakur leðurdagur en þá ætti öll þjóðin að klæðast leðri. Ekkert er sönnum dýravinum verr við en leð- urfatnað. „Púki er tveggja ára gamall gári sem ég gaf syni mínum í af- mælisgjöf þeg- ar hann var fjögurra ára. Hann langaði svo mik- ið í páfagauk. Fyrst vissum við ekki hvors kyns hann var og biðum spennt eftir því að sjá hvort goggur- inn yrði blár eða bleikur og skírð- um hann ekki fyrr en við vorum viss um að þetta væri kall. Hann reyndist vera mikill púki í sér svo hann skírði sig eiginlega sjálfur," segir Valdís Gunnarsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá útvarps- sviði Norðurljósa, þegar hún lýsir páfagauk heimilisins fyrir DV. Valdís er með 17 ára reynslu aö baki í íslensku útvarpi sem er um það bfl jafnlangur tími og útvarps- rekstur hefur verið frjáls á íslandi. Hún hefur löngum haft sinn per- sónulega stíl í útvarpi og margir minnast hennar eflaust fyrir stefnu- mót milli ókunnugs fólks sem hún kom oft á í þáttum sínum og vöktu mikla athygli. Valdís hefur oft verið á róman- tísku nótunum í sínum útvarpsþátt- um sem sést best á þvi aö hún ber eiginlega ábyrgð á því að íslending- ar fóru að halda hinn ameríska Val- entínusardag hátíðlegan og senda ástinni sinni gjafir eða blóm til að minna á heitar tilflnningar. Síminn hringir stöðugt Valdís og Hrafn sonur hennar eiga Púka saman en Púki er sannur nútímapáfagaukur sem sést best á því að hann er snillingur í að herma Páfagaukurinn Púki er tveggja ára og hefur sérhæft sig í að herma eftir símhringingum Það má sennilega kalla hann „páfagaukinn sem aldrei sefur". Hann hermir óaðfinnanlega eftir báöum GSM- símum húsmóöur sinnar, Valdísar Gunnarsdóttur. Páfagaukurinn Púki hringir og hringir: Hermir eftir símhringingum eftir símhringingum. „Það má segja að hér á heimilinu hringi síminn allan sólarhringinn og þá meina ég allan sólarhringinn. Ég hleyp oft á stað þegar ég held að síminn sé að hringja og leita eins og óð að símanum en þá reynist' það vera Púki páfagaukur sem hringir. Hann kann að herma eftir báðum símunum mínum og gerir það óspart." Margir páfagaukar af sömu teg- und og Púki geta sagt nokkur orð. Er Púki svo mikill nútímapáfagauk- ur að hann hermi aðeins eftir sím- um eða getur hann tjáð sig í töluðu máli? „Það kemur stundum fyrir þegar verið er að ræða lifið og tilveruna hérna kringum eldhúsborðið að ein- hver stoppar við og hlustar á Púka og telur að hann sé að segja eitthvað og vissulega tekur hann oft virkan þátt í umræðunum en ég hef samt aldrei heyrt hann segja neitt.“ Vil ekki að kvikni í páfa- gauknum Líf Púka er afmarkaö af búrinu sem hann býr í því enn sem komið er fær hann ekki oft að flúga laus. „Við sleppum honum afar sjaldan út úr búrinu því hér inni er fullt af allskyns gömlum munum og svo eru næstum alltaf logandi kerti hingað og þangað og ég hef hreinlega verið hrædd um að það gæti kviknað í Púka ef hann fengi að fljúga laus um húsið. Hann fær samt oft að fara í búr- inu sínu út á verönd og út i garð og honum finnst þaö óskaplega skemmtilegt að sitja þar og hlusta á hina fuglana og „mingla“ viö þá.“ Valdís er enn með daglegan þátt á vegum Islenska útvarpsfélagsins en hefur um þessar mundir tekið að sér kynningarverkefni fyrir Leikfé- lag íslands sem snýst um að kynna leikritið Sýnd veiði þar sem fyndn- ustu konur landsins leiða saman leikhesta sína. „Ég á erfitt með að slíta mig úr útvarpinu en ég hef alltaf verið með mikinn leikhúsáhuga og flnnst þetta mjög skemmtilegt verkefni." -PÁÁ Heygarðshornið - ' - ■■ ■ ■■■:■ Skylduáskrift að kjaradeilum Gu&mundur Andri Thorsson skrífar í HelgarblaO DV. Sumir kvarta undan svokaflaðri skylduáskrift að Ríkisútvarpinu en það veröur þó að teljast hreinasta há- tíð hjá þeirri þungbæru skylduáskrift sem við megum búa við að kjaradeil- um kennara. Og auðvitað mjólkur- fræðinga sem sáu í blöðunum að kennarar hugsuðu sér til hreyfmgs og skelltu sér óðara í hressilega kjara- deilu í nokkurs konar pavlovísku við- bragði. Skylduáskriftin að kjaradeilum kennara felst í því að minnst árlega erum við þegnar þessa lands þvingað- ir til að fylgjast með langþregnum leikþætti þar sem allir leikarar flytja rullur sínar af mikifli innlifun og ann- aðhvort átta sig ekki á því eða hrein- lega hirða ekki um það að áhorfendur eru að ærast úr leiðindum. AUt and- rúmsloft í skólum landsins verður eitrað á meðan aUir aðUar leggjast á eitt um að einbeita sér að því hversu skítt það sé aö vera kennari. Kennarar hafa með markvissum hætti byggt upp þá stéttarlegu sjálfs- mynd sína að þar fari þrautpíndasta fólk landsins. Fyrir sjálfum sér og öðr- um hafa þeir árlega dregið upp mynd af píslarvottum sem með harmkvæl- um dragi fram lífið á sultarlaunum; hugsjónin ein haldi í þeim lífinu, ör- veik vonartíra um að ef tfl vifl auðn- ist þeim einhvern tímann æflunar- verk sitt, sem er ekki að koma ein- hverjum unglingi hugsanlega tU manns heldur hitt að komast í sama launaflokk og verkfræðingar eða tannlæknar eða einhverjir sem hafa hærra kaup en þeir. Og það eru aUtaf einhverjir sem hafa hærra kaup en þeir. Og einhvern veginn er eins og með öllum þessum gegndarlausa barlómi hafi kennurum mistekist ætlunarverk sitt: að vekja með þjóðinni virðingu og vitund um mikilvægi kennara- starfsins og hvað þá viðsemjendum sínum sektarkennd yfir hraklegri meðferð á merkri stétt. Þetta hefur vakið þveröfug viðbrögð: þetta eUifa væl vekur á endanum fyrirlitningu hjá samninganefnd ríkisins. Það sem enginn má segja upphátt er að íslendingar eru enn fuflir tor- tryggni í garð menntunar. Þeir Uta á menntun sem nokkurs konar vönun. Þeir eru hræddir um að menntunin dragi úr hinum bamslega bjartsýnis- þrótti íslenska uppfinningamannsins sem hefur ekki menntast nóg tU að sjá hversu hugmyndir hans eru fáránleg- ar. íslensku draumasögurnar fjaUa aUar um einhvern sem hætti í skóla og varð ríkur, varð á undan hinum sem létu skólakerfið og vanahugsun þess taka úr sér aUt frumkvæði. Þá gleymast öU hin ævintýrin um stór- kostlegt íjármagn sem fór í súginn sökum ónógrar þekkingar lukku- riddaranna á viðfangsefninu. íslend- Kennarar hafa meö markviss- um hœtti byggt upp þá stétt- arlegu sjálfsmynd sína að þar fari þrautpíndasta fólk lands- ins. Fyrir sjálfum sér og öðr- um hafa þeir árlega dregið upp mynd af píslarvottum sem með harmkvælum dragi fram lífið á sultarlaunum; hugsjónin ein haldi í þeim líf- inu, örveik vonartíra um að ef til vill auðnist þeim ein- hvem tímann œtlunarverk sitt, sem er ekki að koma ein- hverjum unglingi hugsanlega til manns heldur hitt að kom- ast í sama launaflokk og verkfræðingar eða tannlækn- ar eða einhverjir sem hafa hærra kaup en þeir. ingum fmnst að menntun sé hálfgert lottó: maður slampist á eitthvað. Rikisstjómin er að visu að fá eitt- hvert veður af því að hagvöxtur kunni að aukast með aukinni menntun. En það hvarflar ekki að ráðherrunum að sú menntun eigi að fara fram í þeim framhaldsskólum sem fyrir eru í land- inu. Þar eru bara fyrir þessir síkvein- andi kennarar. Einkaskólar er það sem koma skal. Kennarar eru innblásnir af mikilli umræðu um að menntun ungs fólks hraki ár frá ári og að íslensk ung- menni séu þau vonlausustu í heimi í reikningi og fara því fram á umtals- verðar launahækkanir. Þessu svara stjómvöld ekki beinlínis - en þau gera það óbeinlínis. Á meðan þau láta kjarabótakröfurnar sem vind um eyru þjóta og mæta á fundi með ,já góðu fariði í verkfaU“-viðhorfi búast þau tfl að fara að dæla ómældu fé í einka- skóla, nokkurs konar hraðbraut, þar sem skólagjöld bætast ofan á rausnar- legan styrk ríkisins. Þannig er ríkis- stjórnin þegjandi og hljóðalaust að reyna að brjóta niður skólakerfið í landinu tU þess að koma hér á stétt- skiptu skólakerfi í anda þeirra hug- sjóna að auka hér stéttaskiptingu eins og kostur er. Ríkið hyggst þannig beina fjármagni sínu að því að efla nám fyrir „aíburðanemendur" um leið og samningamenn á vegum þess neita svo mikið sem að ræða við kennara í „almenna kerfinu".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.