Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Side 36
36
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
Helgarblað
DV
Laus úr viðjurr
Ragnheiður Elín Clausen, vinsælasta þula RÚV, farin til Stöðvar 2 - sagan af því sem raunverulega gerðis
hætta í einlægu, fáguöu fasi hennar
verður einhvern veginn enn nálæg-
ara. Hún er opinská og tjáir sig
frjálslega enda sviðsvön en það er
auðvelt að skynja að þessi kona er
sennilega feimin að eðlisfari.
„Ég hef síðan ég var bam verið
afskaplega upptekin af því að gera
eins vel og ég get. Ég held að það
megi kalla það fullkomnunaráráttu.
Ég held að ég sé að læra að það er í
lagi að vera mannlegur og gera mis-
tök stöku sinnum án þess að líða
illa.“
Hrafn réð hana
Ragnheiður Elín byrjaði sem þula
hjá Ríkissjónvarpinu 17. mars 1994
þegar hinn umdeildi Hrafn Gunn-
laugsson bað hana að taka nokkrar
vaktir. Það teygðist úr vöktunum og
þeim lauk fyrir fáum vikum. Ragn-
heiður hafði alltaf haft áhuga á
þessu starfl og þegar hún var barn
lék hún sér stundum í „þululeik" og
las upp dagskrá sjónvarpsins eins
og hún væri að kynna hana.
Það er engin ofrausn að segja að
með einlægri framkomu sinni og
dularfullu brosi hafl hún heillað
landsmenn upp úr skónum og skap-
að sér sinn eigin stíl i þessu starfi
sem fólk elskar að hata og allir hafa
skoðun á.
„Mér leið vel í þessu starfi frá
fyrsta degi og var aldrei stressuð
nema tvisvar sem ég man eftir.
Annað skiptið var á gamlárskvöld
þegar ég fór skyndilega að hugsa
um hve margir væm að horfa og
það stuðaði mig eitthvað en í hitt
skiptið fór ég allt i einu að hugsa
um einhvem karlmann sem ég var
hrifin af.“
Nú, þú ert þá ágæt
„Ég geri mér vel grein fyrir því
að maður er í þessu starfi settur á
stall eða rifinn niður. Sumum flnnst
ég vera of elskuleg og fólki finnst
þetta og hitt. Ég hef oft hitt fólk sem
segir við mig: „Nú, þú ert þá bara
ágæt.“
Sumir halda að maður svífi um á
rósrauðu skýi en það er alls ekki
rétt. Ég hef gengið í gegnum mjög
erflða hluti undanfarin ár. Faðir
minn veiktist alvarlega og lá lengi á
sjúkrahúsi milli heims og helju. Tíu
dögum eftir þetta áfall var ég mætt
á skjáinn eftir að hafa verið nær
samfleytt við hliö hans á sjúkrahús-
inu og þá spurði fólk mig hvort ég
væri ástfangin. Þá hef ég sennilega
lagt mig svona mikið fram um að
láta það ekki sjást hvernig mér
leið.“
„Það er alltaf erfitt að byrja á
nýjum vinnustað, nýtt álag og
framandi aðstæður. Ég hef alltaf
reynt að koma fram við aðra eins
og ég vil að þeir komi fram við
mig og reyni bara að brosa og
gera eins vel og ég get. Ef einhver
er óánægður þá tek ég það bara á
mitt breiða bak, ég er orðin vön
því,“ segir Ragnheiður Elín
Clausen, fyrrverandi sjónvarps-
þula hjá Ríkissjónvarpinu en nú-
verandi dagskrárgerðarkona hjá
Stöð 2, einn liðsmanna 19-20, um
tilfinningar sínar gagnvart nýju
starfi en hún hefur tekið við
starfi dagskrárgerðarmanns á
Stöð 2.
Fullkomnunaráráttan
Það er kyrrt andrúmsloft á Hótel
Borg undir pálmatrjám og hásri
rödd Billie Holiday í fjarska. Á
næsta borði sitja miðaldra vinkon-
ur og bera saman börnin sín en úti
í horni safna svalir viðskiptamenn
hlutafé í næsta ævintýri. Ragnheið-
ur Elín var þrjú ár í röð kosin kyn-
þokkafyllsta kona landsins af hlust-
endum Rásar 2 og hún kemur hreyf-
ingu á virðulegt umhverfið þegar
hún kemur 20 mínútum of seint inn
úr haustgrámanum og biður þjón-
inn um Kristal.
Hún er minni en hún sýnist vera
á sjónvarpsskjánum og það brot-
„Ég er leiðinlega reglu-
söm, fer sjaldan eða
aldrei á skemmtistaði og
líður best heima með
góða bók eða útsaum og
hannyrðir. Ég lifi mínu
lífi eins og klassísk
nunna. Ég er alltaf að
leita að ró og jafnvœgi en
ég vil ekki alltaf vera
ein. Ég held að þegar sá
tími kemur þá verði ég
tilbúin. “
Ragnhei&ur Elín Clausen var þrisvar sinnum kosin kynþokkafyllsta kona landslns af hlustendum Rásar 2 UVMVNU E-ÓL
„Ég geri mér vel grein fyrir því að maöur er í þessu starfi settur á stall eöa rifinn niöur. Sumum finnst ég vera of elskuieg og fólki finnst þetta og hitt.
Ég hef oft hitt fólk sem segir viö mig: „Nú, þú ert þé bara égæt. “
í leit a& réttu starfl
Ragnheiður hætti hjá Ríkissjón-
varpinu fyrir nokkrum vikum og
réð sig til Stöðvar 2 þar sem hún er
einn liðsmanna þáttarins ísland í
dag og sér um dagskrárgerð. Þetta
er stórt stökk fyrir hana en Ragn-