Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Page 7
„Sonur minn greindist með sykursýki og þarf að fá insúlín daglega um ókomna framtíð. Segja má aö insúlínið hafi gefið honum annað líf. Ég get ekki hugsaö þá hugsun til enda hvemig væri komið fyrir okkur, ef þessi lyf væru ekki til.“ „Lyf til ferðafreIsis M}: ■ - „Ég hef alltaf átt þann draum að feröast til regnskóga Suður-Ameríku. Nýverið rættist þessi draumur og ég undirbjó mig af kostgæfni. Þegar ég lót bólusetja mig fyrir ferðina, varð mér Ijóst hve ríkan þátt lyf eiga í að veita manni ferðafrelsi. Ég get feröast frjáls án þess að eiga á hættu að sýkjast af hitabeltissjúkdómum.“ „Afi missti sjónina vegna gláku. Pabbi greindist með gláku en fókk lyf og gat haldið henni niðri alla sína ævi. Gláka er ættlæg og ég greindist nýveriö með hana sjálfur. Ef þessi lyf væru ekki til yrði óg sennilega blindur.“ „Ég kvíöi alltaf fyrir að fara til tannlæknis. Þess vegna læt ég deyfa mig í hvert sinn sem eitthvaö þarf að gera. Hvemig fór fólk eiginlega að áöur fyrr? Þegar tennur voru dregnar úr þvf? Þegar það var skorið upp. Og jafnvel aflimað? Og engin deyfing? Úff, eins gott að óg er nútímakona!- Fyrir 100 árum komust ekki eins mörg böm á legg og nú. Þar áttu bamasjúkdómar stóran hlut aö máli. Þótt þeir sóu ekki allir lífshættulegir, geta þeir orðið mjög alvariegir. Þvf er vissara að bólusetja bömin. Ðólusetning eykur lífslfkur þeirra - það er alveg Ijóst. „Sonur minn var að fara í skurðaðgerð og óg er f öngum mínum. Ég get huggað mig við aö svæfingartyfin verka strax og að hann finnur ekki til á meöan aðgeröin fer fram. En sú blessun að hann getur sofið á meöan.“ „Létt á þrýstingnum” „Ég var komin með of háan blóðþiýsting upp úr fertugu og þurfti að vera lengi á sjúkrahúsi. Síöastliðin 18 ár hef óg náö mun eölilegri blóöþrýstingi, þðkk só daglegum skömmtum af blóöþrýstingslækkandi lyflum. Ef þeirra nyti ekki við gæti ég átt á hættu aö fá hjartaáfall, heilablóöfall eöa nýmasjúkdóma. Lyfin gefa mór kost á að lifa eðlilegu og heilbrigðu lífi um ókomna framtíð. Ég ætla svo sannarlega að njóta þess!“ „Það er skrýtiö að hugsa til þess aö hefðu foreldrar mínir tilheyrt aldamótakynslóöinni, hefði óg hugsanlega ekki eignast systkini. Pabbi greindist með hjartasjúkdóm skömmu eftir að óg fæddist og heföi hann ekki fengiö róttu lyfin er ekki víst að hann væri á lífi - og alls óvíst að óg hefði eignast bróður og systur “ Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910 Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf. • Lyfjaverslun íslands hf. • Medico ehf. NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.