Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Side 26
«. 42 MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000 x>v Ættfræði__________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 95 ára__________________________________ Ástrós Sigurðardóttir, Furugeröi 1, Reykjavík. Sigrún Gunnlaugsdóttir, Víðilundi 14e, Akureyri. 90 ára__________________________________ Kristinn Sigmundsson, Þingvallastræti 29, Akureyri. 85 ára__________________________________ Ólafur Guömundsson, Hringbraut 80, Keflavík. 80 ára__________________________________ Guörún Eyjólfsdóttir, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. Sæmundur Gíslason, Safamýri 46, Reykjavík. ' 75 ára___________________________________ Hulda Ragnarsdóttir, Rjúpufelli 1, Reykjavík. Sigtryggur Þorbjörnsson, Funalind 7, Kópavogi. 70 ára__________________________________ Erla Jóhannsdóttir, Kleifarvegi 8, Reykjavlk. 60 ára__________________________________ Sigríður Óskarsdóttir, hand- og myndmenntakennari, Móabarði 12b, Hafnarfiröi. Eiginmaður hennar er Eiríkur Skarphéð- insson bókari. Sigríður verður ekki heima á afmælis- daginn en tekur á móti vinum og ætt- ingjum I Kiwanishúsinu, Helluhrauni 22, Hafnarfiröi, laugard. 18.11. nk. milli kl. 17.00 og 20.00. Hansína Einarsdóttir, Eyrargötu 3, ísafirði. Þráinn Pátsson, Heiöarbrún 67, Hveragerði. 50 ára__________________________________ Baldur Garöarsson, Álfhólsvegi 153, Kópavogi. Bryndís Magnúsdóttir, Austurvegi 5, Seyöisfirði. Eiín Rögnvaldsdóttir, Lindarseli 7, Reykjavík. Gunnar Halldórsson, Jöklalind 2, Kópavogi. Gunnar Þorsteinsson, Grandavegi 41, Reykjavík. Kristín Auðunsdóttir, Kleifarseli 31, Reykjavlk. Kristín Þóra Sverrisdóttir, Skipholti 53, Reykjavík. Rut Agnarsdóttir, Grettisgötu 3, Reykjavlk. Sara Guöfinna Jakobsdóttir, Heiömörk 9, Stöðvarfirði. Stefanía Eygló Aðalsteinsdóttir, Suðurengi 3, Selfossi. 40 ára__________________________________ Abigail Grover Snook, Huldulandi 26, Reykjavík. Arndís Helga Einarsdóttir, Hörgsholti 25, Hafnarfirði. Björg Guðmundsdóttir, Hlíðarhjalla 65, Kópavogi. Gísli Baldursson, 4 Vallarbaröi 11, Hafnarfirði. Guðrún Bryndís Einarsdóttir, Stekkjarhvammi 9, Hafnarfirði. Jón Loftur Árnason, Funafold 24, Reykjavík. Peter William Humphrey, Lambeyrarbraut 1, Eskifirði. Siguröur Andrés Ásgeirsson, Háageröi 41, Reykjavík. Sæmundur Kristjánsson, Lindarholti, Búðardal. Valdís Magnúsdóttir, Langholtskoti, Flúðum. Þórdís Hjálmarsdóttir, Mýrarbraut 37, Blönduósi. Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrír Olsen Baldur Fredriksen útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suíurhlíö35 • Sími 581 3300 allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Árni Þór Sigurðsson formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar Árni Þór Sigurðsson, borgarfull- trúi og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, gat þess í DV-frétt um helgina að gert yrði ráð fyrir lóðum undir lúxusíbúðir á uppfyllingu út af Ánanaustum í vesturbænum í Reykjavík. Starfsferill Árni Þör fæddist í Reykjavík 30.7. 1960. Hann lauk stúdentsprófl frá MH 1979, cand.mag.-prófl í hagfræði og málvísindum frá Óslóarháskóla 1986 og stundaði framhaldsnám við háskólana í Stokkhólmi og Moskvu 1986-88. Árni var fréttaritari ríkisútvarps- ins i Moskvu 1988 og starfaði um tíma sem fréttamaður á útvarpinu. Hann var deildarstjóri í samgöngu- ráðuneytinu 1989-91, ritstjómarfull- trúi og ritstjóri Þjóðviljans og Helg- arblaðsins 1991-92, starfaði hjá Kennarasambandi íslands 1992-97, var framkvæmdastjóri þingflokks Alþýðubandalagsins 1998 og var að- stoðarmaður borgarstjóra 1998-99. Árni Þór var kjörinn í borgar- stjóm 1994, var formaður stjómar Dagvistar bama 1994-98, varafor- maður fræðsluráðs 1994-96, formað- ur stjómar SVR 1996-98, formaður hafnarstjómar frá 1994, tók við for- mennsku í skipulags- og umferðar- nefnd haustið 1999 og var um tíma formaður hverfisnefndar Grafar- vogs. Þá hefur hann átt sæti í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga frá 1994, þar af sem formaður frá 1997. Árni átti sæti í æskulýðsnefnd Al- þýðubandalagsins 1978-80, í mið- stjórn og framkvæmdastjóm flokks- ins 1991-99, var formaður kjördæm- isráðs flokksins í Reykjavik 1992-94 og hefur átt sæti í ýmsum stjórnum og nefndum á vegum Alþýðubanda- lagsins. Þá var hann varaformaður Ferðamálaráðs Islands 1989-93. Fjölskylda Kona Árna Þórs er dr. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, f. 24.9. 1955, ónæm- isfræðingur á Tilraunastöð HÍ i meinafræði að Keldum. Hún er dótt- ir Sofflu G. Jónsdóttur, hússtjómar- kennara frá Deildartungu í Reyk- holtsdal, og Þorsteins Þórðarsonar, bónda á Brekku í Norðurárdal. Börn Árna Þórs og Sigurbjargar eru Sigurður Kári, f. 9.11.1986; Arn- björg Soffia, f. 4.8.1990; Ragpar Auð- un, f. 26.12. 1994. Bræður Áma Þórs eru Friðrik, f. 22.5. 1957, framkvæmdastjóri, bú- settur á Seltjamamesi; Steinar, f. 13.9. 1958, arkitekt, búsettur í Reykjavík; Þórhallur, f. 7.8. 1964, arkitekt, búsettur í Kaupmanna- höfn; Sigurður Páll, f. 10.9.1968, ljós- myndari, búsettur í Kaupmanna- höfn. Foreldrar Áma Þórs: Sigurður Kristófer Árnason, f. 7.2. 1925, skip- stjóri í Reykjavík, á Hrafnistu í Hafnarfirði, og k.h., Þorbjörg Frið- riksdóttir, f. 25.10. 1933, d. 12.4. 1983, hjúkrunarframkvæmdastjóri Land- spítalans. Ætt Sigurður Kristófer er sonur Áma, sjómanns í Ólafsvík og Reykjavík, bróður Friðriks, fóður Arnar, fyrrv. varaforseta ASÍ. Ámi var sonur Sig- urðar, sjómanns í Hellnum, Vigfús- sonar, útvegsb. í Pétursbúð, Sig- urðssonar. Móðir Árna var Guðríð- ur Ámadóttir frá Stapabæ. Móðir Sigurðar Kristófers var Sigurborg Þorkatla Jóhannesdóttir, b. á Brimilsvöllum, Bjarnasonar, b. í Bakkabæ, Hallssonar. Móðir Sig- urborgar var Anna Sigurðardóttir, b. i Klettakoti i Fróðárhreppi. Móð- ir Önnu var Þorkatla Jóhannsdótt- ir, móðir Sigurðar Kristófers Pét- urssonar rithöfundar og amma Hall- dórs E. Sigurðssonar, fyrrv. ráð- herra. Þorbjörg var dóttir Friðriks, b. á Hömram i Skagafirði, Jónssonar, b. á Hömrum, Guðmundssonar, b. á Hömram, Hannessonar, bróður Jór- unnar í Valadal, ömmu Pálma Hannessonar rektors, Þorsteins Briem, ráðherra og prófasts, og Helga Hálfdánarsonar skálds. Jór- unn var einnig langamma Hannesar Péturssonar skálds, Þórðar Bjöms- sonar ríkissaksóknara, Elínar Pálmadóttur blaðamanns, Pálma Jónssonar i Hagkaupi og Solveigar, móður Jóns Ásbergssonar, forstjóra Útflutningsráðs. Móðir Friðriks var Katrín Friðriksdóttir, b. í Borgar- gerði, Sveinssonar. Móðir Þorbjargar var Soffia, syst- ir Tryggva á Skrauthólum á Kjalar- nesi, föður Ragnheiðar leikkonu og afa Tryggva Gunnarssonar, um- boðsmanns Alþingis. Soffia var dótt- ir Stefáns, b. í Víðidal, Þorsteins- sonar, b. á Tindum, Pálssonar. Móð- ir Stefáns var Guðrún Jónasdóttir, b. á Auðunnarstöðum, Jónssonar. Móðir Guðrúnar var Soffla, systir Guðrúnar, ömmu Guðmundar Björnssonar landlæknis. Guðrún var einnig langamma Torfa á Torfa- stöðum, Jónasar fræðslustjóra, föð- ur Ögmundar, alþm. og formanns BSRB, Guðmundar, fyrrv. skóla- stjóra á Hvanneyri, föður Ásgeirs námgagnastjóra, og langamma Bjöms yfirlæknis á NLFÍ, fóður Guðmundar verkfræðings. Soffía var dóttir Sigfúsar, ættfóður Berg- mannsættar. Móðir Soffíu Stefáns- dóttur var Ásta Margrét, systir Ingi- bjargar, móður Sigfúsar í Heklu, föður Sigfúsar forstjóra og Ingi- mundar sendiherra. Ásta var dóttir Jóns Levís, sonar skáldanna Egg- erts Leví Jónssonar og Margrétar Guðmundsdóttur. Móðir Ástu Mar- grétar var Margrét, systir Sigurðar, fóður Sigurðar Norlands, pr. i Hindisvík. Fimmtugur Árni B. Pétursson mm. 'mmm rafvirki á Akureyri Árni Bergmann Pétursson raf- virkjameistari, Tjarnarlundi 15H, Akureyri, er flmmtugur í dag. Starfsferill Ámi fæddist á Skeggjastöðum í Norður-Múlasýslu og ólst upp þar og á Bakkafirði. Hann stundaði raf- virkjanám við Iðnskólann á Akur- eyri og lauk þaðan prófum 1971. Ámi hefur verið búsettur á Akur- eyri frá 1968 að undanskildum árun- um 1973 og 1974 er hann bjó á Þórs- höfn. Hann vann við rafmagnseftir- lit og mælaskráningu á vegum RARIK á Norðurlandi eystra 1973-75 og hefur starfað við eigið fyrirtæki, Raf, frá 1980. Þá hefur hann verið formaður Félags raf- verktaka á Norðurlandi frá 1987. Fjölskylda Ámi kvæntist 25.8. 1973 Oddnýju Hjaltadóttur, f. 26.5.1952, húsmóður, dóttur Hjalta Sigurðssonar og Ingi- bjargar Kristjánsdóttur, fyrrv. bændahjóna að Hjalla í Blönduhlíð í Skagafirði. Böm Áma og Oddnýjar eru Hug- rún, f. 23.7. 1973, nemi í hjúkranar- fræði við HA; Inga Sigríður, f. 3.11. 1981, nemi við MA; Pétur Bergmann Ámason, f. 27.4. 1983, nemi í raf- virkjun við VMA. Bræður Áma: Kristinn, f. 12.3. 1952, fyrrv. alþm og starfrækir fisk- verkun á Bakkafirði; Bjartmar, f. 14.12. 1954, framkvæmdastjóri í Hafnarfirði; Baldur, f. 11.1. 1958, bú- settur í Þýskalandi; Brynjar, f. 3.3. 1961, búsettur í Reykjavík; Ómar, f. 9.4. 1969, markaðsstjóri Sæplasts á Dalvík. Foreldrar Áma: Pétur Bergmann Ámason, f. 8.5. 1924, rafveitustjóri á Bakkafirði, og k.h., Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 24.7. 1929, d. 29.11. 1989, húsmóðir á Bakkafirði. Ætt Pétur var sonur Áma, útvegsb. i Höfn í Bakkafirði, Friðrikssonar, b. á Hafursstöðum, Einarssonar. Móð- ir Friðriks var Ásta, systir Guðrún- ar, langömmu Kristjáns frá Djúpa- læk. Ásta var dóttir Benjamíns, b. í Koflavíkurseli, Ágústínussonar í Múla, Jónssonar, b. á Arndísarstöð- um, Halldórssonar, bróður Jóns, afa Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum. Móðir Árna var Guðrún Árnadóttir á Mel, Jónssonar og Rannveigar Gísladóttur í Höfn, Vilhjálmssonar. Móðir Péturs var Petrína Péturs- dóttir, b. í Dalshúsum, Sigurðsson- ar, bróður Hólmfríðar, ömmu Gunn- ars Gunnarssonar skálds. Móðursystir Áma er Guðríður, skólastjóri og oddviti á Bakkafirði. Sigríður var dóttir Guðmundar Kristins, b. í Kolsholtshefli í Flóa, Sigurjónssonar, b. í Moldartungu í Holtum, Daníelssonar, b. í Kaldár- holti, Jónssonar. Móðir Daníels var Sigþrúður Daníelsdóttir, systir Guð- rúnar, langömmu Guðmundar Dan- íelssonar rithöfundar. Móðir Sigríðar var Marta, systir Gísla, afa Ingibjargar Sólrúnar borgarstjóra. Marta var dóttir Brynjólfs, b. á Sóleyjarbakka, Ein- arssonar, b. þar, bróður Matthíasar, langafa Haralds Matthíassonar kennara, fóður Ólafs alþm. Einar var sonur Gísla, b. á Sóleyjarbakka, Jónssonar, b. á Spóastöðum, Guð- mundssonar, ættföður Kópsvatns- ættar, Þorsteinssonar. Merkir Islendingar Eysteinn Jónsson ráðherra fæddist á Hrauni á Djúpavogi 13. nóvember 1906. Hann var sonur Jóns Finnssonar, prests í Hofsþingum, og k.h., Sigríðar Hansdótt- ur Beck húsfreyju. Bróðir hans var dr. Jakob Jónsson, sóknarprestur í Hafl- grímskirkju og rithöfundur, faðir rit- höfundanna Jökuls og Svövu. Eysteinn stundaði nám hjá föður sínum, við Samvinnuskólann 1925-27 og við Pitman's College í London 1929. Hann gerði ungur bandalag við Her- mann Jónasson gegn Hriflu-Jónasi og hófst yngri til mannvirðinga í stjómmál um en dæmi eru um hér á landi, alþm. tuttugu og sex ára og ráðherra í Stjórn hinna vinnandi stétta 1934, aðeins tuttugu og Eysteinn Jónsson sjö ára. Hann var síðan ráðherra í öllum stjórnum Framsóknarflokksins fram að Viðreisn, lengst af fjármálaráðherra. Hann tók við Framsóknarflokknum af Hermanni og gegndi þar formennsku 1962-68. Þá var hann stjómarformaður SÍS 1975-78 og formaður Náttúruvemd- arráðs 1972-78. Eysteinn þótti með mælskustu þing- mönnum á sínum yngri árum en hafði óáheyrilega rödd sem minnti á nöldur. Hann var fremur ófríður, með ústæð eyru, en skarpgreindur, samvisku- og at- orkusamur og reglumaður í leik og starfi. Hann harst ekki á, var mikill útvistar- og ferðamaður og einlægur málsvari náttúru- vemdar. Eysteinn lést 11. ágúst 1993. Jarðarfarir Útför Jónínu Gunnlaugar Magnúsdóttur, fýrrum húsfreyju á Atlastöðum, fer fram frá Urðarkirkju, Svarfaðardal, þriðjud. 14.11. kl. 13.30. Elías Arnlaugsson, Bjargi, Stokkseyri, verðurjarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjud. 14.11. kl. 15.00. Þorgerður Ingibergsdóttir verður jarðsungin frá Aðventistakirkjunni I Reykjavlk þriðjud. 14.11. kl. 15.00. Halldór Kjartansson, Hlíðarási 5, Mosfellsbæ, veröur jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriöjud. 14.11. kl. 13.30. Benedikt Þórður Jakobsson, Meöalholti 19, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjud. 14.11. kl. 13.30. Arnbjörg Eysteinsdóttir, Vesturvallagötu 1, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjud. 14.11. kl. 10.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.