Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000 Fréttir I>V Kynbótasýning íslenskra hrossa í Tulsa í Oklahoma: Bandarískir eigendur hrossanna metnaðarfullir Hvalf j arðargöng: Bílateljari bættist við DV, HVALFIROI:________________ Starfsmenn 1 gjaldskýli Hvalfjarðar- ganganna vita hér eftir upp á hár hve margir bílar eru hverju sinni á leið gegnum Hvalfjarðargöng. Tæknibúnað- ur, sem gerir mögulegt að fylgjast með fjölda bíla, hefur verið settur upp. Það er m.a. ástæðan fyrir því að loka þurfti göngunum fyrir umferð þrjár nætur. Bílateljari við gangamunna telur bíl- ana sem fara inn og út og þannig má alltaf sjá hve margir eru á leiðinni und- ir fjöröinn. Þetta er að sjálfsögðu afar mikilvægt öryggisatriði ef eitthvað skyldi koma upp á í göngunum. Annar öryggisþáttur kemur til sög- unnar fljótlega, blikkljós gegn hraðakstri eins og greint hefúr verið frá. Blikkljósabúnaðurinn var settur upp að næturþeli en svo kom á daginn að tölvukubb vantar til að hann virki. Vonir standa til að bið eftir kubbnum verði stutt. Hraðakstursmenn ættu að láta sér segjast og hægja ferðina því lög- reglan ætlar hreint ekki að slá slöku við hraðamælingar þrátt fyrir að blikkljós- in komi til skjalanna. -DVÓ í PV, TULSA, OKLAHQMA:______________ Fyrsta kynbótasýning íslenskra ; hrossa í Bandaríkjunum var haldin j í Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjun- I um nýlega. Fulldæmd voru 32 hross, j auk þess sem mörg hross voru bygg- i: ingardæmd. Þrjú hross náðu yfir 8 í : aðaleinkunn og 18 voru milli 7,5 og I 8. | Ágúst Sigurðsson hrossaræktar- j ráðunautur og Jón Vilmundarson, I ráðunautur á Selfossi, dæmdu j hrossin. Ágúst sagði í samtali við DV að honum hefði komið á óvart I hversu mörg góð hross hefðu komið j á þessa sýningu og hefði hún í heild | verið mjög lík héraðssýningu heima j á íslandi. Var Ágúst viss um að sýn- j ing sem þessi hefði mikil áhrif á ‘ bandaríska eigendur íslenskra hrossa sem margir hverjir væru mjög metnaðarfullir og vildu eiga góð hross. Ritara þessarar fréttar fannst að- staða til sýningarhaldsins í Tulsa mjög góð hvað varðar allan aðbúnað hrossanna og þau voru dæmd inni í húsi. En brautin sem notuð var til sýningarinnar var svo slæm að ef upp á slíkt hefði verið boðið á ís- landi hefðu menn neitað að sýna hrossin. Eftir mikla rigningu nótt- ina fyrir sýninguna var brautin sem eitt drullusvað yfir að lita og aöeins harðviljug hross sýndu það sem i þeim bjó. Brautin var heldur betri á sunnudag, þegar yfirlitssýningin fór fram, þannig að mörg hossanna náðu að bæta einkunnir sinar. Eigendur hrossanna lögðu áherslu á að fá mjög góða knapa frá íslandi til þess að sýna hrossin og svo voru einnig nokkrir bandarísk- ir knapar sem riöu hrossum á sýn- ingunni. Hæst dæmdi stóðhesturinn var Þröstur frá Ytri-Skeljabrekku sem hlaut 8,35 í aðaleinkunn. Knapi var Guðmar Þór Pétursson. Hæst dæmda hryssan var Stikla frá Ási í Hegranesi sem hlaut 8,06. Knapi var Baldvin Ari Guðlaugsson. Hæst dæmda 5 vetra hryssan var Mær frá Grafarkoti. Knapi var Herdís Ein- arsdóttir. Daginn fyrir sýninguna voru Ágúst og Jón Vilmundarson með námskeið í hrossadómum og bentu mönnum á eftir hverju væri sóst hjá hrossunum. Þátttakendur virtust mjög áhugasamir og voru menn sammála um að þessi sýning væri stórt skref fram á við til þess að efla allt ræktunarstarf íslenskra hrossa í Bandaríkjunum og myndi hún veröa til þess að auka áhuga fólks á að kaupa góð hross frá íslandi. -Magnús Ólafsson DV-MYND DANlEL V. ÓLAFSSON Bundiö aflaskip Elliöi liggur bundinn viö bryggju á Akranesi og lítur glæsilega út en hefur engin verkefni. Nýkomin sending frá ELITA Microfiber, yndislegt viðkomu og andar eins og bómull. Tegtind 8825, 8826 og 8827 Litir: hvítur, húðlitur og svartur Stærðir: s, m, 1, xl QMsÍyj) Aflaskip við bryggju allt árið Verð 995 Nærtföt og skór Laugavegi 40 • Sími 551 3577 Spegilsónata ÞÓREY FRIÐBJÖRNSDÓTTIR Kemur út á morgun JJjO JPV FQRLAG DV, AKRANESI:___________________________ Nóta- og togveiðiskpið Elliði GK 445, sem smíðað var í Noregi árið 1979 og er í eigu útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækisins Haraldar Böðvarsson hf., hef- ur legið við bryggju á Akranesi nærri allt þetta ár og veriö á sölulista, en skipinu var lagt þegar Óli í Sandgerði var keyptur. Elliði var gerður út á loðnu og síld. Þegar búið verður að selja Elliða verður aðeins eitt skip eftir af þeim fjórum sem Sandgerðingar lögðu inn í sameiningu HB, en það er Jón Gunn- laugs GK 444, togbátur smíðaður 1972. Sturlaugur Haraldssson, sölustjóri hjá HB hf., segir að það sé ætlun þeirra að selja Elliða: „Það hafa komið nokkr- ar fyrirspumir og við munum fmna farveg fyrir Elliða, enda er skipið gott og í mjög góðu ástandi. Þetta er bara spuming um tima,“ sagði Sturlaugur. -DVÓ Meira veitt af tófu en áður - 307 tófur féllu í Skagafirði og 236 minkar ad^lbjörg DV, SKAGAFIRDI:________________________ Alls voru veiddar 307 tófur í sveit- arfélaginu Skagafirði á síðasta veiðitímabiii sem stóð frá 1. septem- ber 1999 til 31. ágúst síðastliðins. Þetta er 50 dýrum fleira en árið á undan og kostnaðurinn varð 4,7 milljónir króna, hækkaði um rúma milljón frá fyrra ári. í skýrslu sem Sigurður Haraldsson, þjónustufull- trúi í Varmahlíð, hefur tekið saman um minka- og refavinnslu kemur fram að alls voru unnin 39 greni í Mlnkurinn Færri dýr voru felld nú en veiöiériö undan. Tófan Þaö kostaöi 15 þúsund að fella hvert dýr. vor. Fullorðin dýr voru 142 en yrð- lingar 165. Kostnaður á hvert veitt dýr varð liðlega 15 þúsund krónur. Á sama tíma veiddust 238 minkar sem er 46 dýrum færra en árið á undan, þar nam heildarkostnaður tæplega 1,1 milljón króna. Kostnað- ur við veiðamar hjá sveitarfélaginu varð því tæpar 5,8 milljónir. Af því mun um ein milljón króna fást end- urgreidd úr ríkissjóði. Það sem sveitarstjómarmönnum hefur svið- ið hvað mest varðandi kostnað við þessar veiðar er að þegar ríkisvald- ið lækkaði endurgreiðsluhlutfallið fyrir nokkrum árum varð þessi vinna virðisaukaskattskyld. Þykir mönnum afleitt aö þau sveitarfélög sem reyni að halda þessum rándýr- um í skefjum skuli vera skattlögð af ríkinu. Hins vegar séu dæmi um sveitarfélög sem ekki sinni þessum veiðum sem skyldi og auki þar með kostnað hinna sem halda uppi skipulagðri leit og vinnslu á hverju ári. -ÖÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.