Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritsfjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Deilt um erlenda fjárfestingu Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, LÍÚ, er andvígur beinni þátttöku erlendra fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. í ræðu á aðal- fundi LÍÚ í liðinni viku sagði Kristján Ragnarsson enga ástæðu til að heimila slíkar fjárfestingar. „Aðalatriðið er að við höfum ekki þörf fyrir erlendar fjárfestingar i ís- lenskum sjávarútvegi.“ Þessi skoðun formanns LÍÚ er ekki aðeins röng heldur hættuleg. Hún byggir á úreltum hugmyndum forræðis- hyggjunnar - sósíalisma sem Kristján Ragnarsson hefur yfirleitt reynt að forðast. Kristján Ragnarsson er þess ekki umkominn, frekar en aðrir, að ákveða i eitt skipti fyrir öll, og það fyrir öll fyrirtæki í sjávarútvegi, að þau þurfi ekki á erlendu áhættufjármagni að halda. Þetta vita marg- ir félagar Kristjáns enda ljóst að ekki taka allir útgerðar- menn undir skoðanir hans. Forráðamenn margra stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins hafa ítrekað rætt um nauðsyn þess að heimila útlendingum að fjárfesta í veið- um og vinnslu hér á landi. Dregið skal í efa réttmæti staðhæfingar Kristjáns Ragn- arssonar um að ekki sé þörf á erlendri fjárfestingu í sjáv- arútvegi. En það er ekki aðalatriðið. Mestu skiptir að sanngimis- og jafnræöissjónarmið fái að ráða hér ferð- inni. Á meðan fyrirtæki í öðrum starfsgreinum geta leit- að eftir erlendum fjárfestum er út í hött að meina íslensk- um sjávarútvegi að njóta sama réttar. Furðu sætir að formaður Landssambands íslenskra út- vegsmanna vilji skerða frjálsræði umbjóðenda sinna og verja núverandi lög um fjárfestingar erlendra aðila - lög sem eru í andstöðu við þær hugsjónir sem ráðið hafa ferð- inni innan LÍÚ. Góðœrið talað niður Ein mesta hætta, sem steðjar að íslensku efnahagslífi, er vaxandi svartsýni um framtíðina. Bjartsýni og góðar væntingar um það sem koma skal er drifkraftur efnahags- legra framfara. Að sama skapi er bölmóður og svartsýni ávísun á þrengingar og óáran. Á undanförnum vikum og mánuðum hefur hver sérfræð- ingurinn á fætur öðrum komið fram á sviðið til að vara við hættumerkjum sem þeir telja sig sjá í íslensku efnahagslífi. Fyrir suma stjórnmálamenn er slíkt svartsýnishjal kærkom- ið enda málefnin, sem þeir berjast fyrir, mismerkileg. Góðær- ið, sem íslendingar hafa notið undanfarin ár, er sagt á enda og efnahagslegar þrengingar fram undan. Ekkert er fjær sannleikanum þó vissulega muni íslend- ingar ekki njóta sama hagvaxtar á komandi misserum og undanfarin ár. Slíkt er enda heilbrigt og eðlilegt. En það er enginn vandi að tala þjóðfélagið niður í efnahagslega kreppu - að drepa allt í dróma og draga skipulega kjarkinn úr mönnum kann að þjóna pólitískum markmið- um, en gengur gegn hagsmunum almennings og íslenskra fyrirtækja. Staðreyndin er sú að íslenskt þjóðarbú hefur aldrei staðið betur en einmitt nú og hefur aldrei verið bet- ur í stakk búið til að takast á við þrengingar. En mikil- vægast er að átta sig á því að ef rétt er á málum haldið í ríkisfjármálum og við stjórmm peningamála, samhliða því sem byggt er undir bjartsýni, eiga íslendingar alla möguleika á að njóta góðs hagvaxtar um ókomin ár. Óli Björn Kárason MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000 MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000 DV 33 * Skoðun Evrópusambandið ekki tímabært Umræðan er að aukast um hugsanlega þátttöku íslendinga í Evrópusambandinu. Eðlilegt og nauðsynlegt er að menn ræði málið og kristalli helstu rök með og á móti. í fljótu bragði koma í hugann mörg atriði sem mæla gegn aðild. Hin sem mæla með eru ekki eins augljós og þeir sem vilja styðja aðild hafa ekki sett rök sín skýrt fram. Óheft erlend fjárfesting Við hljótum að spyma fótum gegn því að formleg yfirráð fiskimiðanna við ísland verði í Brus- sel. Frá því er tæpast unnt að semja sig þó menn telji sig geta samið um undanþágur. Annað atriði af sama meiði er erlend fjárfesting í sjávarút- vegi okkar. Útilokað er að ræða er- lenda fjárfestingu í okkar sjávarút- vegi með núverandi fiskveiðistjórn- unarkerfl nema þá með miklum tak- mörkunum. Óheft erlend fjárfesting í sjávarút- vegi getur hæglega leitt til þess að við glötum yfirráðum okkar yfir mið- unum við landið. Meðan útgerðarað- ilar eiga kvótann í reynd er ljóst hvaða þýðingu það hefur að erlendir aðilar kaupi útgerðina. Guðmundur G. Þórarinsson verkfræöingur Auðveldlega má veiða fiskinn frá t.d. Bretlandi, landa honum öllum þar og ísland yrði þá stækkuð mynd af Ólafsfirði, staður með engan kvóta. Erlendir aðilar í útgerð við ís- land myndu líta á það sem lítt arðbæra byggðastefnu að landa hér til þess að halda uppi atvinnu og tekjum. Reykjavík mun ekki ....... keppa við Bolungavík í framtíðinni um unga fólkið, borgin mun keppa við New York, London og Kaupmannahöfn. Kvótasalan á milli landshluta hér sýnir ljóslega hvers væri að vænta og reynslan er ekki uppörvandi. Þeir sem vilja ræða er- lenda þátttöku í íslenskri útgerð, eitthvað annað en málamyndaþátt- töku undir sterkum hámarksskilyrð- um, hljóta að gera ráð fyrir grund- vallarbreytingum á stjórn fiskveiða. Ella er þeim ekki sjálfrátt. Stjórn frá Brussel Við erum þátttakendur í Evrópska efnahagssvæðinu með frjálsu flæði fjármagns, vinnuafls, þjónustu og ,4 í „Hygg ég að mörgum íslendingum muni þykja þröngt fyrir dyrum þegar ákvörðunar verður að bíða eftir Brussel í slíkum málum. Og til hvers? Innri vandamál Evrópusambandsins munu taka mikið af tíma þess á nœstu árum ..." vöru. Það veitir okkur að ýmsu leyti kjöraðstæður. Ekki er ólíklegt að sá samningur þurfi aðlögun að breytt- um aðstæðum og tíma og ekkert er Glutrum ekki sáttatækifæri Tillögur Auðlindanefnd- ar eru um margt athyglis- verðar, og i þeim er fólgið tækifæri til sáttagerðar um eitthvert umdeildasta mál síðari tíma í íslensku þjóð- félagi. Eftir að þær voru gerðar kunnar lýsti sjávar- útvegsráðherra því yfir aö tillögur um breytingar á lögunum um stjórn fisk- veiða yrðu fram komnar fyrir áramót. Verkefni þeirrar nefndar sem á að undirbúa tiilögurnar er ný- lega hafið og tími hennar til að vinna að lausn þessara þess vegna mjög knappur. Afar miklu skiptir að úr þessu tilefhi verði alvöru tilraun til að leysa aðal- ágreininginn um nýtingu auðlindarinnar. En hann snýst um það ígildi eignar- halds sem útgerðarmenn hafa nú á fiskinum í sjónum og það einokunarumhverfi sem þróast hefur í skjóli þess. En þessi ágreiningur verður ekki leystur nema stjómmálamenn hugsi fram aiþingismaöur Samfyik- í tímann og leggi niður fyr- ingarinnar á Vesturlandi ^ sér hvaða grunnforsend. ur eigi að vera fyrir því ,Jóhann Ársælsson mála er með hvaða hætti útgerðarmenn framtíðarinnar eigi að fá tækifæri til að taka þátt í atvinnugreininni. Ætli menn að halda sáttaleið er full- ljóst að hún liggur ekki í því að nýt- ing auðlindarinnar verði áfram sér- réttindi útgerðarmanna sem hafi síðan leyfi til að selja öðrum aðgang að henni. Tillögur Samfylkingarinnar um leigu veiðiheimilda Það er almennt ekki deilt um þann skilning að til þess að atvinnu- grein geti blómstrað þurfi þeir sem sjá sóknarfæri í því að hefja at- vinnurekstur í henni að eiga kost á því að keppa á jafnræðisgrundvelli við þá sem fyrir eru. Þess er enginn kostur undir því eignarhaldsfyrir- „Leiga veiðiheimilda á markaði, sem allir sem vilja stunda útgerð hafa jafnan að- gang að, er eina leiðin sem bent hefur verið á í þessari umrœðu sem óumdeilanlega tryggir þjóðareign á auðlindinni, án þess að raska forsendum fiskveiðistjómarinn- - Kvótafundur á Hótel Sögu í janúar sl. ar. komulagi sem nú ríkir í útgerð á ís- landi. Samfylkingin hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um leigumarkað á veiðiheimildum sem leysir þennan vanda. Þessar tillögur Samfylkingar- innar er í fullu samræmi við aðaltil- lögu Auðlindanefndar um meðferð auðlinda i þjóðareign. I tillögu Auðlindanefndarinnar er fólgin grunnstefna sem ekki er út- færð nánar, en frumvarp Samfylk- ingarinnar er hins vegar útfærð stefna þar sem gerðar eru tillögur um allar þær breytingar sem Sam- fylkingin telur að þurfi að gera á lögum til að þessi stefna náist fram. Leiga veiðiheimilda á markaði, sem allir sem vilja stunda útgerð hafa jafnan aðgang að, er eina leiðin sem bent hefur verið á í þessari umræðu sem óumdeilanlega tryggir þjóðar- eign á auðlindinni, án þess að raska forsendum fiskveiðistjómarinnar. Aðferðin tryggir jafnræði og jafn- rétti til starfa í greininni. En hún tryggir líka hámörkun fiskveiðiarðs- ins. Þeir sem verja óbreytt kerfi halda því fram að í tillögum Sam- fylkingarinnar sé fólgin skattlagn- ing á landsbyggðina. Það er auðvitað fráleitt í ljósi þess að útgerðarmenn innheimta nú auð- lindagjald sem er margfalt hærra en hugsanlegt leigugjald sem skapast mundi á opnum markaði og engin sem stofnar til útgerðar á íslandi í dag sleppur við þá skattheimtu. Það er mjög mikilvægt að þeim mögu- leikum til sátta sem eru fólgnir í leiðsögn Auðlindanefnar, hvað varð- ar auðlindir í þjóðareign, verði ekki glutrað niður vegna pólitískra áhrifa öflugra hagsmunahópa. Jóhann Ársælsson Með og á móti ólympíska hnefaleika á íslandi? Enga forræðishyggju i „Ég tel það JgL vera jafnréttis- I mál að ólympísk- ■pT ir hnefaleikar verði leyfðir hér. Rannsóknir sýna að meiðsli í íþróttinni eru ekki meiri en í öðrum íþróttum og við sem flytjum þessa tillögu erum einfaldlega fylgjandi því að fólk fái að velja, við viljum enga forræðishyggju í þessu sambandi. Þetta eru áhugamannahnefaleikar, menn eru með hlífar yfir höfuðið og nota Gunnar Birgisson alþingismaöur þar til öðruvísi hanska. Þetta eru þrjár lotur, sem er styttra en í venjulegum hnefaleik- um, og menn skora stig, það er ekkert gefið fyrir að slá menn í gólfið eða gefa þeim rothögg. Við teljum þetta jafngilda öðrum íþróttum, þetta er ólympísk íþrótt, við erum aðilar að Alþjóða Ólympíusambandinu og ég get ekki séð af hverju við eigum að vera eina þjóðin að banna þetta.“ Ekki til góðs „Ég er fyrst og I fremst á móti því aö ólympískir f hnefaleikar verði teknir upp hér- lendis vegna þess að þetta er árásaríþrótt sem er stunduð í þeim tilgangi að meiða andstæðinginn. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem stunda hnefaleika eiga oft við alvarleg og erfið meiðsli að stríða, aðallega á höfði. Það var farið í gegnum þetta allt á þinginu síðast og ég tel að Arni Steinar Jöhannsson alþingismaöur það séu óyggjandi vísinda- legar sannanir fyrir því að þetta sé ekki til góðs. En að- alpunkturinn er sá að íþróttin gengur út á að gera árás á andstæðinginn til að meiða hann og ég sé enga ástæðu tfl að taka upp slíka íþrótt hér á landi.“ Mikll umræða hefur verið um það undanfarin ár hvort lögleiða eigi ólympiska hnefaleika hér á landi. A síðasta þingi var tillaga um það felld en flutnings- menn hennar hafa ekki gefist upp og gera á næstunni aðra tilraun. eðlilegra en að endumýja samninga og ótrúlegt að Evrópusambandið muni ekki taka það mál á dagskrá þegar þörf er á. Hitt er ljóst að sam- runaferli Evrópuþjóða stefnir mark- visst að Bandaríkjum Evrópu með Þjóðverja og Frakka i forystu. Þörf Evrópuþjóða fyrir sameiginlega stefnumótun í ýmsum pólitískum málum er skiljanleg í sögulegu ljósi. Við höfum enga þörf fyrir sameigin- lega stefnu með Evrópusambandinu í landbúnaðarmálum, öryggismálum, sjávarútvegsmálum eða félagsmálum svo nokkuð sé nefnt. Hygg ég að mörgum íslendingu muni þykja þröngt fyrir dyrum þegar ákvörðunar verður að bíða eftir Brussel í slíkum málum. Og tfl hvers? Innri vandamál Evrópusambandsins munu taka mikið af tíma þess á næstu árum, ólíkar þjóðir eftir stækk- un, ólík viðhorf, ólíkir hagsmunir. Við hljótum líka að leggja áherslu á tengsl okkar við Bandaríkin og þá gríðarlegu hagsmuni sem við eigum á því markaðssvæði. Fylgjendur aðildar að Evrópusambandinu verða að skýra miklu betur hvaða ávinning þeir telja af aðild. Ekki dugar bara að vilja vera með, hajttumar eru líka miklar. Guðmundur G. Þórarinsson Ummælj Pólitískar ráðningar á RÚV? „í könnun fjár- málaráðherra með- al ríkisstarfs- manna nýverið kom í ljós að eig- inlega aflir starfs- mennimir telja að hér sé um pólitísk- ar ráðningar að ræða og það er óþolandi. Við skerum okkur algjörlega frá öðrum hópum ríkisstarfsmanna hvað varðar þessi viöhorf. 80% starfsmanna okkar telja þetta ástand sérlega slæmt hjá Ríkis- útvarpinu...Á hinum Norðurlönd- unum eru menn hreinlega gáttaðir út af ástandinu héma.“ Jón Ásgeir Sigurösson, form. Starfs- mannafélags RÚV, í Degi 10. nóv. LÍÚ-landið í aldarlok „Getur mér ekki alveg staðið á sama hver hér stjórnar? Getur mér ekki verið al- veg sama hver á sj ávarútvegsfyr ir- tækin sem eiga þessi fiskimið? Ég eignast þau aldrei. Það eru einhverj- ir flokkar manna sem hafa ráðstafað þessum náttúruauðlindum íslands til vina sinna og ætla svo að telja mér trú um að ég eigi þau! Ekki fékk Valdimar mikið út úr þeim skilningi sinum í Hæstarétti... Eftir þátt Páls sé ég nýtt ljós. Það er nauðsynlegt að vera sáttur við kerfið því það er rétt. Alveg eins og sagt var í Austur- Þýskalandi í mínu ungdæmi. Ég skal því reyna að vera sáttur við yfirvöld- in, öll kvótakerfi og sérréttindi svo að mér líði að minnsta kosti betur í ellinni." Halldór Jónsson verkfr. í Mbl. 10. nóvember. Enginn þver- girðingsháttur „Hvorki ráð- herrar né ríkis- stjóm hafa verið með þvergirðings- hátt gagnvart RÚV. Menn eru ráðnir til starfa á RÚV af mismun- andi aðilum. Þannig stendur menntamálaráðherra að ráðningu framkvæmdastjóra en útvarpsstjóri ræður aðra. Ef það er niðurstaða þeirra sem starfa hjá RÚV að það séu ekki mannkostir sem ráða því hverjir starfa þar hlýt- ur hún að koma mörgum í opna skjöldu." Björn Bjarnason menntamálaráöherra I Degi 10. nóvember. Útkjálkanagg Sú var tíð að ýmsir gegnir Islend- ingar voru svo þrúgaðir af vanmeta- kennd, að þeir töldu vænlegast að landsmenn legðu niður tungu sína af hagkvæmnisástæðum. Einn þeirra var Bjami Jónsson skólameistari í Skálholti, æðstu menntastofnun í landinu. Hann skrifaði landsnefnd- inni fyrri árið 1771 meðal annars: „Jeg anseer det ikke alene unyttigt men og meget skadeligt, at man skal beholde det islandske Sprog.“ Hann hélt því fram að tunga, sem enginn skfldi, einangraði íslendinga frá um- heiminum og torveldaði þeim sam- skipti við aðrar þjóðir: „Hvorfor skulde man da være saa fastholdende der ved? Lader os da folge Norges og Færoernes Exempel, eftersom vi sta- ar under den danske Regering og i Communication med danske Folk.“ Þetta viðhorf mun flestum þjóð- hollum og sómakærum íslendingum þykja fiarstætt, enda hefur varð- veisla þjóðtungunnar reynst vera hérlendu menningarframtaki á öll- um sviðum öflugri lyftistöng en nokkuð annað sem landsmenn hafa tekið sér fyrir hendur. Framtíðar- sýnir skáldanna á 19du öld voru ímyndunarafli þjóðarinnar vissulega örvandi og frjóvgandi, og ekki síður lýsingar þeirra á harðbýlu ættland- inu, en það var meðferð móðurmáls- ins, endurnýjun þess og nýsköpun, sem var þeirra stórfelldasti og var- anlegasti skerfur til óborinna kyn- slóða. Af framtaki þeirra hefur leitt, að nútímabókmenntir okkar eru orðnar gjaldgengar um víða veröld. Nagg slúðrarans Samt væri synd að segja að nesja- mennskan og systir hennar vanmeta- kenndin séu úr sögunni hjá okkur Mörlendingum. Enn eimir eftir af þeim afdala- hugsunarhætti, að móður- málið sé ekki nógu fint fyrir stóra heiminn; við verðum endilega að nota enskuna til að ganga í augun á öðrum þjóðum. Lítið dæmi um þetta hlálega viðhorf vanmetakind- anna birtist í einum slúður- dálki þessa blaðs fyrir réttri viku. Þar sagði: „Útvarpsráð Ríkisútvarpsins er enn og aft- ur aðhlátursefni lands- manna. í þetta skiptið er það vegna samþykktar ráðsins um að við ís- lenska lagið sem sent verður í Evr- ópukeppni sjónvarpsstöðva skuli sunginn íslenskur texti en ekki texti á erlendu tungumáli. Það var sam- fylkingarmaðurinn Mörður Árnason sem fann sig knúinn til að leggja þetta til í útvarpsráði til að bjarga ís- lensku tungunni og væntanlega ís- lensku þjóðinni frá glötun. Félagar hans í ráðinu, sem yfirleitt eru sam- mála um það að vera ósammála, brugðust nú hins vegar vel við erindi Marðar og samþykktu einróma. Væri réttast að láta útvarpsráðsmenn sjálfa syngja í keppninni.“ Þráttfyrir yfirlætislegt yfirbragð klausunnar fær slúðrarinn ekki dulið djúpstæða minnimáttarkenndina sem oftlega þjakar þegna kotríkja. Margar miklu fiölmennari þjóðir en íslend- ingar láta sér sæma að syngja á eigin tungum, enda er væntanlega til keppninnar stofnað til að kynna inn- lend dægurlög hinna ýmsu þjóðríkja, en ekki alþjóðlega slagara, þó vissu- lega beri hún óþarflega sterkan svip af einsleitum og flatjárnuðum dægur- Sigurður A. Magnússon rithöfundur flugum. Aukþess er ensku- kunnátta íslenskra dægur- lagahöfunda satt að segja einatt næsta bágborin. Enskukennsla? Ég ferðaðist nýlega í vél- um frá flugfélaginu Atl- ' anta með hátt á fimmta hundrað íslendinga, ann- arsvegar til Ríó de Jan- eiro, hinsvegar til Aþenu. í hópunum var enginn sem ekki talaði og skildi íslensku. Samt fór það svo, að allt sem sagt var í hátalara við farþegana á íslensku var endurtekið orð fyrir orð á ensku. Fólkið henti gaman að þessu og spurði hvort blessuð flugfreyjan hefði tekist á hendur að kenna löndum sínum enskan framburð. Gallinn var bara sá að framburður- inn var hvorki enskur né amrískur, heldur sú tegund ensku sem Islending- um er töm, og ekkert við þvi að segja é - nema þetta enskuhjal var bæði ger- samlega þarflaust og frammúr hófi leiðigjarnt. Nú má vel vera að enskan sé talin alþjóðlegt „flugmál", en má ekki beita heilbrigðu hyggjuviti og hlífa mönnum við „íslensku ensk- unni“ þegar allir viðstaddir skilja ís- lensku, þó menguð sé fiólum einsog „að versla tollfrjálsan varning"? Á vissum sviðum virðist móður- málið vera á hröðu undanhaldi, eink- anlega í fiölmiðlum, og má vera landsmönnum íhugunarefni með hliösjón af því, að íslenskar bók- menntir hafa verið betur skrifaðar undanfarinn aldarfiórðung en nokkrusinni síðan á 13du og 14du öld. Sigurður A. Magnússon •« „Nú má vel vera að enskan sé talin alþjóðlegt „flugmál“, en má ekki beita heil- brigðu hyggjuviti og hlífa mönnum við „íslensku enskunni“ þegar allir viðstaddir skilja íslensku, þó menguð sé fjólum einsog „að versla tollfrjálsan vaming“?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.