Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Blaðsíða 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000 I>V Karíus og Baktus fara ekki í jólafrí. Foreldrar og börn, athugið að tennurnar eru jafnviðkvæmar í desember og aðra mánuði. Byrjum ekki daginn á neyslu súkkulaðis eða annarra sætinda - það er slæmur siður á öllum árstímum ! Atkvæði talin í höndunum í fjórum sýslum Flórída: Loftslagsráðstefnan í Haag: Búist við deilum um kaup á mengunarkvóta Leah Rabin Ekkja Yitzhaks Rabins lést í gær. Friðflytjandinn Leah Rabin lést úr krabbameini Leah Rabin, ekkja Yitzhaks Rabins, fyrrum forsætisráöherra ísraels sem var myrtur fyrir flmm árum, lést úr krabbameini í gær. Leah tók upp merki eiginmanns síns að honum látnum og barðist öt- ullega fyrir friði í Mið-Austurlönd- um fram til hinstu stundar. „Ríkisstjóm ísraels, ísraelska þjóðin og gyðingar almennt, svo og milljónir um heim allan syrgja í dag fráfall Leuh Rabin,“ sagði Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, á leið til Washington þar sem hann ræðir ófriðarástandiö fyrir botni Miðjarðarhafsins við Bill Clinton Bandarikjaforseta. Það var fyrir þrábeiðni Leuh Rabin, sem var orðin fárveik, að Barak féllst á að þeir Shimon Peres, fyrrum forsætisráðherra, og Yasser Arafat, forseti Palestínumanna, hitt- ust fyrir tíu dögum. Á þeim fundi var samið um vopnahlé sem ekki hefur tekist að framfylgja. Arafat sagðist í gær harma fráfall Leuh Rabin, sem var 72 ára. Þeir Arafat og Yitzhak Rabin deildu frið- arverölaunum Nóbels árið 1994 fyr- ir friðarsamningana í Ósló 1993. fctercedes Pcn* árger6l994, ekion 90 þús siliurgrár, ssk, ral í rúdum, saml, toppl, ledur átfelgur og allt heila galieríid.. Stadgreiösluverd I.ÚOflLOOft, 100% |áu Allar nánari upplýsingar veitir hin geðþekki bílasali Ástmar Ingvarsson á BÍLL.IS í síma 5773777 Búist er við töluveröum ágrein- ingi þegar fulltrúar 180 þjóða koma saman í borginni Haag í Hollandi til aö ræða loftslagsbreytingar af völd- um svokallaðra gróðurhúsaloftteg- unda. Ráðstefnan stendur í tvær vikur og tilgangurinn er að reyna að leggja lokahönd á samning um að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda. Meðal þess sem deilt verður um á ráðstefnunni er hvort þjóðir sem ekki geta staðið við fyrirheit um takmörkun á losun gróðurhúsaloft- tegunda geti gert samninga við ríki sem geta dregiö meira úr losuninni en þeim ber. ' Flestir vísindamenn eru nú sam- mála um að bílar okkar, verksmiðj- ur og orkuver losi svo mikið af gróðurhúsalofttegundum út í and- rúmsloftið að breytingar séu aö verða á loftslagi í heiminum. Tíundi áratugurinn var sá heit- asti í þúsund ár og árið 1998 var hið hlýjasta síðan mælingar hófust. Leiðin til Haag hófst á mikilli ráðstefnu í Rio de Janeiro í Brasilíu á árinu 1992 þegar þjóðarleiðtogar hétu því að berjast gegn gróöur- húsaáhrifunum. Fimm árum síðar hittust samn- ingamenn í Kyoto í Japan og urðu sammála um að draga þyrfti úr los- un gróðurhúsalofttegunda út í and- rúmsloftið um 5,2 prósent miðað við það sem var árið 1990. Stefnt var að því að ná þessu fram áriö 2012. Enn hefur ekkert iönríki staðfest sam- komulagiö frá Kyoto. Repúblikanar vilja stöðva talninguna Vonir manna um að úrslit for- setakosninganna í Bandaríkjunum myndu liggja fyrir einhvem tímann á næstunni dofnuöu mjög í gær þeg- ar ákveðið var að telja atkvæðin í fjórum sýslum í höndunum. Á sama tíma voru þeir George W. Bush og A1 Gore að búa sig af kappi undir að heyja baráttu í dómsölunum. Kjörstjóm í Palm Beach-sýslu ákvað snemma í gærmorgun að öll atkvæði, sem greidd voru í sýsl- unni, skyldu endurtalin í höndun- um eftir að Gore bætti við sig nítján atkvæðum við endurtalningu eins prósents atkvæða. Það þýðir að forskot Bush í Flór- ída er nú minna en þrjú hundruð at- kvæði, að þvi er fram kom í fréttum vestra. í röðum repúblikana kom upp ótti um að Gore gæti siglt fram úr Bush og þar með sigrað i forseta- kosningunum ef endurtalningin fengi að halda áfram. Kjörstjórn í Palm Beach sagði að ef Gore bætti við sig nítján atkvæð- um þegar eitt prósent atkvæðanna væm endurtalin þýddi það að úr- slitin gætu gjörbreyst. í þremur öðrum sýslum, þar sem demókratar eru í meirihluta, er endurtalning í höndunum ýmist hafin eða í undirbúningi. í húfi eru 25 kjörmenn Flórída. Sá frambjóðandi sem fær þá verður næsti forseti Bandaríkjanna. James Baker, fyrrum utanríkis- ráðherra og fulltrúi Bush, sagði aö landið væri komið út á hálan ís. Hann hét því að barist yrði af fullri hörku gegn endurtalningu fyrir dómstólunum. Sú barátta hefst eftir hádegi í dag þegar dómari i Miami tekur fyrir beiðni Bush og manna hans um að handtalningin verði stöðvuð. Hver svo sem niðurstaðan verður, þykir ljóst að henni verði áfrýjað. Og svo kynni að fara að málið færi alla leið upp í hæstarétt Bandaríkjanna. Kosningastjórar Bush hafa haft uppi hótanir um að krefjast endur- talningar í Iowa og Wisconsin, þar sem Gore vann naumlega, svo og í Nýja-Mexíkó og Oregon þar sem mjög mjótt er á mununum. Eftir síð- ustu talningu í Nýja-Mexíkó hefur Bush fjögurra atkvæða forskot. Skoðanakannanir benda til að meirihluti kjósenda sé reiðubúinn að bíða eftir nákvæmri talningu. í könnun timaritsins Newsweek voru 75 prósent aðspuröra á því að mikil- vægara væri að fá nákvæma niður- stöðu kosninganna i Flórída en að leysa úr flækjunni meö hraði. í könnun tímaritsins Time vildu aðeins 27 prósent aðspurðra á fostu- dag að Gore játaöi ósigur sinn áður en opinber úrslit í Flórida verða kunngerð. Baker sagði að Bush væri til í að hætta við að fara með endurtalning- una fyrir dómstóla ef Gore féllist á að stöðva handtalninguna og héti því aö virða niðurstöðuna sem yrði eftir talningu utankjörfundarat- kvæða á fostudag. Þjóðernissinnar spá góðu gengi Þjóðernissinnar í Bosníu segja að þeim hafi vegnað vel í kosningun- um sem þar fóru fram um helgina. Flokkur allra þjóðarbrotanna telur hins vegar að hann hafi fengið flest atkvæði í Bosníu allri. Úrslit munu liggja fyrir einhvern tímann í dag. Þjóðir heims, sem hafa 20 þúsund manna gæslulið í Bosníu, gera sér vonir um að herskáir þjóðernissinn- ar séu á undanhaldi í kjölfar lýö- ræðisþróunarinnar í bæði Króatíu og Júgóslavíu. Al og Tipper til kirkju Al Gore og eiginkona hans, Tipper, hlýddu á guösþjónustu í Mt Vernon baptistakirkjunni í Arlington í Virginíu, úthverfi höfuöborgarinnar Washington, í gær. Mikil átök eru fram undan viö aö reyna aö útkijá forsetakosningarnar. Stuttar fréttir_______ Skotið á bíl Robinson Skotið var á bíla- lest Mary Robinson, mannréttindastj óra Sameinuðu þjóð- anna, í bænum Hebron á Vestur- bakkanum í gær. Robinson var ekki í bílnum sem skotið hæfi, að sögn aðstoðarmanns henn- ar. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki. OPEC tekur ekki tiilit Samtök oliuútflutningsríkja (OPEC) höfnuðu því í gær að fara að beiðni þjóða heims um að auka framleiðsluna svo olíuverð geti lækkað. Danir á móti hörku Danska þjóðin er aldeilis ósam- mála stjómmálamönnum íhaldsins í Danmörku, sem vilja herða refs- ingar ungra afbrotamanna. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem birtist í Berlingske Tidende í gær. Flugræningi tekinn ísraelskar öryggissveitir hand- sömuðu í gær tsjetsjenskan mann sem hafði rænt rússneskri flugvél og beint henni til ísraels. Maðurinn, sem ekki er heill á geðsmunum, leyfði farþegum og áhöfn, 58 manns, að fara frá borði. Unglingur drepinn fsraelskir hermenn skutu palest- ínskan ungling til bana og særðu 25 aðra í átökum á heimastjómarsvæð- unum í gær. Þá hafa 206 fallið á tök- um síðustu sex vikna. Fresta að sækja um ESB Verkamanna- flokkur Jens Stol- tenbergs, forsætis- ráðherra Noregs, frestaði því til árs- ins 2005 að minnsta kosti að sækja um aðild að Evrópu- 'sambandinu. Leið- togar flokksins vildu halda mögu- leikanum opnum á næsta kjörtíma- bili, 2001 til 2005, en urðu að beygja sig fyrir andstæðingum ESB á flokksþingi. Áhyggjur af kúariðu Nicole Fontaine, forseti Evrópu- þingsins, sagði í gær að banna ætti kjöt- og beinamjöl sem dýrafóður í öllu Evrópusambandinu sem varúð- arráðstöfun gegn kúariðu. Estrada iíklega ákærður ' Næsta ömggt þykir að Joseph Estrada verði fyrst- ur forseta Filipps- eyja ákærður fyrir embættisafglöp þeg- ar þing landsins ræðir í dag ásakan- ir um að forsetinn hafi þegið mútur frá veðmálsfyrir- tækjum. Estrada segir að sér hafi verið boðið fé en að hann hafi ekki þegið það. Stjórnarandstæðingar vilja að hann segi af sér. Mótmæitu gjaldþroti Reiöir verkamenn í Suður-Kóreu lentu í átökum við óeirðalögreglu í miðborg Seoul í gær. Tugþúsundir verkamanna efndu til mótmælaað- gerða vegna ákvörðunar skuldu- nauta að gera Daewoo-bílaverk- smiðjumar gjaldþrota.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.