Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Page 8
8
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
Utlönd
Leitað skjóls
Glóbrystingurinn litli leitaói sér
skjóls í bylnum í Glasgow. Bretar
voru hvattir til aó halda sig heima
viö vegna óveöurs í gær.
Bylur og óveður
víða í Evrópu
Samgöngur fóru úr skoröum í
Svíþjóð, Bretlandi, Spáni og Sviss í
gær vegna snjókomu. Þúsundir öku-
manna festu bíla sína í snjó á Bret-
landi og á Spáni feykti vindhviða
rútu með eldri borgurum út af. í
Svartfjalialandi varö mesta úrhelli í
landinu síðan 1986 og urðu flóð í
mörgum miðaldaborgum. í Frakk-
landi og Rússlandi var greint frá
dauðsfollum af völdum vetrarkuld-
ans. í suðurhluta Spánar barðist
slökkvilið við skógarelda og varð að
rýma ferðamannabæ i Alicante.
Spáð var áframhaldandi kulda á
Bretlandi fram yfir áramótin.
Frjáls eftir 13 ár
í dauðaklefa
Michael Roy Graham gekk á
fimmtudaginn út úr ríkisfangelsinu
í Louisiana i Bandaríkjunum sem
frjáls maður eftir að hafa beðið af-
töku í dauðaklefa í 13 ár. Graham,
sem er 37 ára, og Albert Ronnie
Burrell, 44 ára, voru dæmdir fyrir
að hafa myrt öldruð hjón árið 1986.
Þegar saksóknaraembættið rann-
sakaði mál þeirra á ný nægðu sönn-
unargögnin ekki til þess að réttað
yrði á ný í málinu. Dómurinn
byggði á vitnisburöi manns sem átti
viö geðræn vandamál að stríða.
Hann fékk mildari refsingu í öðru
máli fyrir að vitna gegn Graham og
Burrell. DNA-rannsókn á blóöi, sem
fannst á morðstaðnum, var úr hvor-
ugum þeirra.
Þreyttur á uppreisnarmönnum
Djindjic vill aö friöargæsluliöar komi
í veg fyrir skærur uppreisnarmanna.
Zoran Djindic
veitir NATO 20
daga frest
Tilnefndur forsætisráðherra
Serbíu, Zoran Djindjic, sagði í gær
aö stjóm sín myndi veita friðar-
gæsluliðunum undir stjóm NATO í
Kosovo 20 daga frest til að koma á
stöðugleika á landamærunum við
Serbíu. í viðtali, sem birtist í tíma-
ritinu Der Spiegel, gat Djindjic þess
þó ekki til hvaða aðgerða Serbar
kynnu að taka tækist friöargæslu-
liðunum ekki aö koma í veg fyrir
skærur albanskra uppreisnar-
manna á landamærunum. Djindjic
gerði það þó Ijóst að serbneska lög-
reglan væri reiðubúin að láta til
skarar skríöa ráðgerðu uppreisnar-
menn nýja árás. Fjórir serbneskir
lögreglumenn létust í átökum á
svæðinu í siðasta mánuði.
DV
Geðveikur maður gekk berserksgang í Boeing-þotu:
Slóst við áhófn í
stjórnklefanum
Skelfingu lostnir farþegar köstuðust
til og frá og farangur fór á fleygiferð
þegar vélin tók stórar dýfur. „Þetta
var eins og í rússíbana. Allir voru
dauðhræddir, fólk grét og æpti,“
sagði einn farþeganna.
Atburðurinn gerðist tveimur
klukkustundum áður en farþegaþot-
an átti að lenda í Keníu. Samkvæmt
lögreglunni í Nairobi er árásarmað-
urinn, sem er Keníumaður, geðveik-
ur. Hann var fluttur á sjúkrahús eft-
ir lendinguna þar sem honum voru
strax gefin lyf. Fjórir farþeganna
slösuðust lítils háttar er þeir köst-
uðust til.
Fregnir hermdu í gær að rokk-
stjarnan Bryan Ferry og Jemima
Khan, eiginkona pakistönsku
krikkethetjunnar Imrans Khans,
hefðu verið um borð í farþegaþot-
unni.
Farþegaþota breska flugfélagsins
British Airways af gerðinni Boeing
747-400, með 398 farþega um borð,
hafði nær hrapað í gær þegar of-
beldisfullur farþegi æddi inn í flug-
stjómarklefann og gekk þar ber-
serksgang. „Það ríkti algert öng-
þveiti um borð. Við vorum um borö
í flugvél sem var í þann veginn að
hrapa. Fullorðnir karlmenn æptu af
skelfingu," sagði einn farþeganna í
viðtali við bresku sjónvarpsstöðina
Sky. „Flugmaðurinn sagði að hefðu
slagsmálin varað nokkrum sekúnd-
um lengur hefði orðið hræðilegt
slys,“ greindi farþeginn frá.
Farþegaþotan var á leiðinni frá
London til Nairobi í Keniu þegar of-
beldismaðurinn réðst inn í flug-
stjómarklefann og reyndi að kom-
ast að stjórntækjunum. Áhöfnin
streittist á móti og í átökunum fór
sjálfvirka stýringin úr sambandi.
Yfirbugaöur
Flugliöar bera árásarmanninn sem
þeir yfirbuguöu í stjórnklefanum.
.. 1
Traðkað á lelðtogunum
Pok Leakreasey í Kambódíu hefur búiö til mottu meö myndum af Pol Pot, leiötoga rauöu khmeranna, og öörum
foringjum til aö fá útrás fyrir reiöi sína vegna þjáningar þjóöarinnar í stjórnartíö þeirra.
Arafat reiðubúinn að
ræða við Ehud Barak
Vonameisti kviknaði i gær í frið-
arferlinu í Miðausturlöndum þegar
Yasser Arafat Palestínuleiðtogi lét
allt í einu tilkynna að hann væri
reiðubúinn að hitta Ehud Barak,
forsætisráðherra ísraels. Samtímis
hélt ofbeldið áfram á herteknu
svæðunum. Aö minnsta kosti 15
Palestínumenn særðust i átökum
við ísraelska hermenn á Vestur-
bakkanum í gær. Og i ísrael sýndu
skoðanakannanir talsverða and-
stöðu við friðaráætlun Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta.
Samkvæmt háttsettum palest-
ínskum embættismönnum var Ara-
fat reiðubúinn aö hitta Barak til aö
ræða friöaráætlun Clintons. Arafat
setti þó það skilyrði að ræða þyrfti
þau atriði áætlunarinnar sem væru
óljós.
Arafat og Barak áttu að hittast í
Egyptalandi á fimmtudaginn til þess
Yasser Arafat
Palestínuleiötoginn eru reiöubúinn
aö ræöa friöaráætlun Clintons.
að ræða friðaráætlunina en fundin-
um var aflýst. Palestínumenn vildu
fyrst að ýmis atriði yröu skýrð nán-
ar. Barak hefur samþykkt áætlun
Clintons með vissum skilyrðum.
Aðeins 44 prósent ísraela eru
fylgjandi friðaráætluninni sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar sem
birt var í gær. í síðustu viku studdu
59 prósent áætlunina. Samtímis
sýndi önnur könnun í gær að Barak
myndi tapa fyrir Ariel Sharon,
keppinaut sínum í Likudflokknum,
með 35 prósentum atkvæða á móti
48 prósentum. Barak boðaði kosn-
ingar 6. febrúar næstkomandi.
Mörg þúsund Palestínumenn mót-
mæltu i gær lokun herteknu svæð-
anna í kjölfar sprengjuárásarinnar í
Tel Aviv á fimmtudag. í gær lét
palestínskur lögreglumaður lífiö í
skotbardaga nálægt landamærum
Gazasvæðisins og ísraels.
Ætlar í forsetaframboð
Fyrrverandi for-
sætisráðherra Perú,
Federico Salas,
kveðst ætla í fram-
boð fyrir forseta-
kosningarnar í apr-
íl þrátt fyrir ásak-
anir um spillingu
vegna starfsins fyr-
ir Alberto Fujimori.
Balkanskagaheilkenni
Varnarmálaráðherra Belgíu,
André Flahaut, vill að vamarmála-
ráðherrar Evrópusambandsins
ræði heilsuvandamál friðargæslu-
liða í fyrrverandi Júgóslavíu sem
kallað hefur verið Balkanskaga-
heilkennið.
Þingmaður skotinn
Forseti friðamefndar kólumbíska
þingsins lést ásamt fimm öðrum er
skotið var á bílalest þeirra í gær á
leið til bæjarins Puerto Rico.
Rekur sendiherra
Vojislav Kostunica, forseti
Júgóslavíu, kallaði í gær heim 17
sendiherra, þar á meðal Borislav
Milosevic, bróður Slobodans Milos-
evic, fyrrverandi forseta.
Fátækt í Noregi
Yfir 20 þúsund börn í Noregi alast
upp í fjölskyldum sem hafa haft
tekjur undir fátæktarmörkum í 10
ár.
Schröder bjartsýnn
Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands,
sagði í gær hagvöxt í
landinu góðan og á
uppleið. Hann hét
meiri áherslu á bar-
áttuna gegn atvinnu-
leysi á næsta ári.
Fékk veskið eftir 57 ár
Bandaríski sjóliðinn Chuck Herr-
ler fékk á dögunum seðlaveskið sem
hann týndi í sófa ungrar konu á
Nýja-Sjálandi fyrir 57 árum. Veskið
fannst ekki er Chuck kvaddi Louise
Alliston. Við flutning í nýja íbúð
fann Louise veskið i fellingu á armi
sófans. Hún hafði samband við
bandaríska sendiráðið sem hafði
upp á sjóliðanum er var 19 ára þeg-
ar hann týndi veskinu.
Dáðasta konan
Bandaríkjamenn
dá Hillary Clinton
mest allra kvenna
samkvæmt skoð-
anakönnun sem
birt var í gær. Öðru
sæti deila Oprah
Winfrey og Margar-
et Thatcher.
Tígur stöðvaði umferð
Tígrisdýr olli á fimmtudagskvöld
umferðaröngþveiti á hraöbraut í
Þýskalandi. Þyrla aðstoðaði við leit-
ina að tígrisdýrinu sem sloppið
hafði úr sirkus. Sex örvar með
deyfilyfi þurfti til að svæfa dýrið.
Nýir ráðherrar Bush
George Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, kynnti fjóra nýja
ráðherra stjórnar sinnar í gær.
Meðal þeirra er Gale Norton, fyrr-
verandi ríkissaksóknari í Colorado.
Hún verður innanríkisráöherra.