Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 .56 Helgarblað DV Samstaða um andóf Runólfur Ólafsson. „Þetta síðasta ár 20. aldarinnar >?ar viðburðaríkt fyrir bifreiðaeig- endur. Hið jákvæða var að ríkis- valdið dró veru- lega í land með að stýra því hvers lags bíla almenn- ingur skuli eignast og fækkaði vöru- gjaldsflokkum úr sex í tvo. Von- brigði ársins voru hins vegar stór- aukinn kostnaður vegna dýrara eldsneytis og dýrari vátrygginga. FÍB og samtök atvinnu- oílstjóra náðu samstöðu um andóf gegn sífellt stærri hlut ríkisins og seljenda eldsneytis og trygginga á is- lenskum fákeppnismarkaði. FÍB mun áfram berjast fyrir því að á Islandi verði virk samkeppni sem tryggir best hagsmuni félagsmanna FÍB og allra landsmanna," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Lifandi og skemmtileg samkeppni „Á árinu voru opnaðar 12 nýjar matvöruverslanir og það er spurn- ing hvort markaður er fyrir þær all- ar. Næsta ár gætu því orðið einhverj- ar umbreytingar i hina áttina. En al- mennt séð stendur greinin sem slík sig mjög vel í rekstri og um leið fyrir neytendur. Jón Ásgelr Jó- Samkeppnin á hannesson matvörumarkaðn- um er alltaf mjög lifandi og ‘ ikemmtileg en þetta var með líf- legra móti á árinu. Það sem stóð upp úr hjá Baugi var átakið „Viðnám gegn verðbólgu" sem hófst í mars þar sem fyrirtækið ein- setti sér að einfalda aðföng að starf- seminni með því að flytja vörur milliliðalaust inn til landsins. Árang- urinn af þessu verkefni hefur verið ,'óöur því fyrstu níu mánuði þess iiækkaði matvöruverð aðeins um 1% i meðan almennt verðlag hækkaði un 4%. Augljós árangur átaksins er pví að koma í ljós.“ Einokun Lands- símans lokið „Það var mikið að gerast í fjar- skiptamálum á árinu í kjölfar loreyttrar fjarskiptalöggjafar. Lands- síminn hefur haft einokunarstöðu í næstum hundrað ár en nú er orðin breyting á því. í dag hafa neytend- ur val þegar þeir velja sér þjónustu- aðila i símageiran- Eyþór Arnalds. Um, ekki bara í hluta þjónustunnar, eins og GSM, heldur allri. Síðasta haust fór Íslandssími að bjóða upp á heimilissima og voru viðtökumar frábærar og greinilegt að heimilin eru spennt fyrir val- 1 kostum í fastlínukerfinu. GSM-símar voru einnig mjög áberandi og er fjöldi farsíma að verða jafn, eða meiri, en fastlínur í landinu og á því sviði er mikil og ör þróun. Áramótaheit ís- landssíma er að hefja rekstur farsímakerfis á nýju ári og því mun færast fjör í leikinn á þeim hluta fjar- skiptamarkaðar- ins“. Stríð og friður Árið sem var að líða var nokkuð viðburðaríkt fyrir okkur neytend- ur. Við náðum, sem aldrei fyrr, aö sýna samstöðu í því að sýna enga samstöðu. Fyrir vikið dundu á okkur miklar hækkanir og litlar lækkanir, lélegri þjónusta á mörg- um sviðum og betri þjónusta á fáum sviðum. Það sem upp úr stendur eftir árið er að mjög greinilega kom fram að virk sam- keppni er til góða fyrir neytendur því á þeim sviðum sem hún er hörðust var mun minna um hækk- anir en annars staðar. Bestu dæm- in um þetta eru auðvitað olíufélög- in sem alitaf eru með sama verðið og svo matvöruverslanirnar þar sem samkeppnin ríkir og verð hef- ur hækkað mun minna en vísitala neysluverðs. Bensín og tryggingar Bifreiðaeigendur urðu að opna budduna upp á gátt því bensínið hélt áfram að hækka og um þessar mundir kostar lítrinn tæplega 100 kr. sem er með því hæsta sem gerist í heiminum. íslenskir neytendur létu ekki sitt eftir liggja í mótmæl- um og umluðu eitthvað út um ann- að munnvikið og héldu áfram að kaupa sitt bensín þar sem það var dýrast, á bensínstöðvum með fullri þjónustu. Fáum datt í hug að spara krónurnar og dæla sínu bensíni sjálfir. Olöf Snæhólm Baldursdóttir blaðamaður Um mitt árið tilkynntu svo tryggingafélögin stórfelldar hækk- anir bifreiðatrygginga og var það tryggingafélagið Sjóvá-Almennar sem fyrst kastaði sér í gin ljónsins með hækkanir í kringum 30%. Einnig voru gerðar breytingar í þá átt að nú var dýrara að tryggja bíla á sumum svæðum landsins en öðrum. Það mál flokkast væntan- lega undir byggðastefnu og á því ekki heima í pistli um neytenda- mál. Stríð á matvörumarkaði Mikil samkeppni var á matvöru- markaði og náði hún hámarki í desember þegar Kaupás opnaði fjórar lágvöruverðsverslanir undir nafninu Krónan. Fyrstu dagana eftir opnun Krónunnar braust út harkalegt verðstríð milli hennar og Bónuss og lækkaði verð sumra vörutegunda mikið. Sem dæmi - olíufélögin hönd í hönd á meðan verslanirnar berjast inu var 10-11 versluninni í Set- bergi í Hafnarfirði einnig breytt í sólahringsverslun þar sem nátt- hrafnar eru víst líka á ferð þar. Verðstríö á matvörumarkaði Neytendur nutu góðs af komu Krónunnar á markað og braust út verðstríð á milli hennar og Bónuss. fengust sumar tegundir grænmetis því sem næst gefins. Eins mátti finna aðrar vörutegundir, svo sem kex, á verði sem hefur ekki sést hér í nokkra áratugi. Viðskipta- vinir verslananna gengu út glaðir í bragði með hvítkáls- og rófu- birgðir sem dugað hefðu þeim í tvö ár. Leiöa má líkum að því að eitthvað af ódýra grænmetinu hafi endað í ruslafótum höfuðborgar- búa nokkrum dögum seinna. Eftir fyrstu vikuna róaðist ástandið og sýndu verðkannanir DV að Bónus hafði staðið við yfirlýsingar sínar um að vera með lægsta verðiö. Baugur hélt áfram útrás sinni og opnaði m.a. Bónusverslun á Ak- ureyri í annað sinn. Þegar þetta er ritað er ekki vitað hver afdrif hennar verða en sagt hefur verið um Akureyringa að þeir borgi frekar fleiri krónur til KEA heldur en að láta aurana sína renna tfi ut- anbæjarmanna. Vöruveltan opnaði i ágúst fyrstu sólarhringsmatvöruverslun lands- ins í 10-11 í Lágmúla. Versluninni er ætlað að sinna þörfum nætur- hrafna og ailra þeirra sem eru á ferli á nóttunni eins og atvinnubíl- stjóra, lögreglumanna, heilbrigðis- stétta, vaktavinnufólks og þeirra sem eru á djamminu. Síðar á ár- Símamarkaður Það var líflegt á símamarkaöi og Síminn fékk á sig harða sam- keppni úr öllum áttum. í byrjun árs hóf 1100-Netsíminn að bjóða ódýrari símtöl, í gegnum Netið, til útlanda, auk þess sem fyrirtækið Frjáls fjarskipti boðaði lækkandi símgjöld. Íslandssími reið síðan á vaðið í mars með miklum lækkun- um á hefðbundnum millilanda- símtölum og síðar sama dag til- kynntu Frjáls fjarskipti enn meiri lækkun á þessum sömu símtölum. Landssíminn kom svo í humátt á eftir og tilkynnti að breytingar á gjaldskrá Símans væru væntan- legar. Íslandssími hóf að bjóða upp á heimilssímaþjónustu í nóvember. Að sögn forsvarsmanna fyrirtæk- isins gekk skráning viðskiptavina vel enda buðu þeir, að eigin sögn, 5-11% lægra verð á almennum símtölum en Siminn og 20-60% lægra verð á internetsímtölum. Landssíminn tilkynnti í kjölfarið að breytingar á gjaldskrá Símans væru væntanlegar. Reyndar voru lækkimartölur Islandssíma vé- fengdar af Símanum og drógu bæði fyrirtækin upp úr pússi sínu útreikninga af ýmsu tagi sem sanna áttu að þau væru með lægri gjöld en keppinauturinn. Allir út- reikningamir gerðu það að verk- um að neytendur vissu ekki í hvorn fótinn þeir áttu að stíga og hættu að reyna að skilja út á hvað málið gekk. Með öllum þessum breytingum hvarf sá tími þegar símnotendur skildu símreikningana sína og hvað þeir voru að borga fyrir. Símgjaldafrumskógurinn hefur á árinu vaxið hinum almenna neyt- anda yfir höfuð og ísienskir neyt- endur, sem alltcif eru samir við sig, borga bara og bölva í hljóði. Samkeppnisstofnun Betri tíð er í vændum fyrir alla þá sem sjá mátt hafa á eftir pen- ingum sínum í aukinn kostnað á nær öllum sviðum lifsins og eiga því ekkert eftir til að eyða i versl- unarhöllum og -strætum landsins. í lok þessa árs var Samkeppnis- stofnun nefnilega gert kleift að sekta verslunareigendur sem ekki verðmerkja vöru sína skýrt og skilmerkilega. Því geta blankir neytendur staðið og skoðað í glugga verslana og látið sig dreyma um hluti sem þeir hafa ekki efni á en vita nákvæmlega hvað kosta. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna: Fjölmennustu neytenda- samtök í heiminum - miðað við höfðatölu „Það sem er minn- isstæðast frá árinu sem er að líða er að við héldum þing Neytenda- samtakanna þar sem mættir voru yfir hundrað fulltrúar tfi að ræða starf og stefnu samtakanna á næstu árum,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. „Þar var líka kosið á milli tveggja manna í formanns- stöðu. Það er eðlilegt í iýð- ræðissamtökum að hafa kosning- ar reglulega. Einnig erum við mjög ánægð hjá samtökunum yfir því að við fengum 3.500 nýja fé- lagsmenn og erum þvi fjölmenn- ustu neytendasamtök í heiminum miðað við íbúafjölda.“ Jóhannes segir enn fremur að matvöruverð hafi lækkað, m.a. í kjölfar þess að samtökin gerðu og birtu könnun sem sýndi hvað mat- vöruverð væri miklu hærra hér en í nágrannalöndum okkar. Breyting sem gerð var á sam- keppnislögum, og tók gildi í byrj- un desember, á eftir að hafa já- kvæð áhrif fyrir neytendur að sögn Jóhannesar. Þar er m.a. að finna mikilvæg ákvæði um heim- ildir samkeppnisyfirvalda til að grípa inn í þar sem samkeppni er ekki næg og þá einkum varðandi samruna fyrirtækja. „Samkeppn- isyfirvöld hafa verið vandanum vaxin að mínu mati og hafa tekið mjög hart á samrunaþróun en það er mikilvægt á svo litlum markaði sem hér.“ Einnig má minnast á að búið er að leggja fram frumvarp um lög um inn- heimtustarfsemi en Alþingi hefur ekki enn samþykkt það. „Með frum- varpinu er verið að verja hagsmuni þeirra sem minnst mega sín í samfé- laginu og geta ekki risið undir sínum skuldum. Því miöur hafa stjórnvöld og Alþingi gefið út skotleyfi á þetta fólk með því að samþykkja ekki frumvarpið. Þarna ræður þröng klíka innheimtumanna ferðinni en ekki breiður fjöldi neytenda," segir Jóhannes að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.