Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Blaðsíða 51
+ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000__________________________________ DV Helgarblað Kvikmyndaárið: Best og verst arímur Sverrisson Being John Malkovich Hver kostulega uppákoman rekur aðra. Darraðardans af uppfinningasemi, sprelli og frumspekilegum pælingum að það hálfa væri nóg. Dancer in the Dark Hvemig er hægt að aihjúpa loddarann þegar hann er búinn að þvi sjálfur og að auki með þvílíkum tilþrilúm að úr verður stórbrotið listaverk? High Fidelity Þetta er sérlega skondin mynd um ofúr venjulegt nútímafólk og ofur venjulegar raunir þess, þannig gerð að manni stendur ekki á sama um fólkið í henni og vill því allt hið besta. The Limey Angurvær dökkmynd (fihn noir) sem ger- ir sér leik að minningum okkar úr kvik- myndasögunni. Magnolia Hér er áherslan á þau skemmdarverk sem unnin eru í skjóli fjölskyldunnar, van- ræksla, misnotkun og skeytingarleysi. Fal- legur samhljómur og hjartnæm lýsing á eðli mannlegra samskipta. The Beach Það verður að segjast eins og er, bæði Trainspotting-gengið og Leonardo skella harkalega til jarðar með þessu verki sem er sérlega óspennandi og skelfilega leiðinleg della klædd í íðilfagrar mnbúðir. Björn Ægir Noröf jörö Amerícan Psycho Það tókst í þessari mynd það sem margir höfðu talið ógerlegt: Að laga hina hrottalegu en áleitnu bók að kvikmyndatjaldinu. Það er ekki síst Christian Bale að þakka hversu vel tekst til. Being John Malkovich Nýstárleg flétta krydduð knýjandi heim- spekilegum vangaveltum, stórgóður leikur skreyttur magnaðri sviðsumgjörð, og skeyt- ingarlaus sambræðsla á hálist og afþrey- ingu. Boys Don’t Cry Þetta er saga um æskumissi sem á fáa sína líka - hvað varðar bæði hrikalega at- burðarás og listrænt inntak. Brínging Out the Dead Gamla brýnið Martin Scorsese sýnir að hann hefur engu gleymt - eins og sagt er á boltamáli. Hugur hans er jafn ferskur og ögrandi sem fyrr. Snatch Góð mynd Skotans Guy Ritchie, Snatch þar sem mörgum furðum kvikmyndagerðar samtímans ægir saman svo úr verður af- bragðs kokkteill. Kevin and Perry Go Large Engin mynd á árinu var verri en Íbísa- þvælan Kevin and Perry Go Large. Frekari lýsing á þeirri viðurstyggð yrði með öllu óhæf til prentunar og fylgir því ekki. Hilmar Karlsson American Beauty Stórgóð frumraun Bretans Sam Mendes. Djörf og áreitin lýsing á gölskyldulífi mið- stéttarfólks sem kemur við kaunin á okkur. Kevin Spacey er fullkominn í hlutverki sínu. Being John Malkovich Ótrúlega gefandi ferðalag um lendur hug- ans, hver mannskepnan er og hvort við vilj- um breyta okkur. Myndin er stundum á mörkum þess að vera fáránleg í hugvitssemi sinni en alltaf trú sjálfri sér. Crouching Tiger, Hkkten Dragon Ang Lee sendir frá sér mikið augna- konfekt þar sem honum tekst að sameina bardagahst og rómantík. Leikarar njóta sín sem og stórfengleg bardagaatriði. Gladiator Ridley Scott er kominn á blað á ný. Mik- il epísk kvikmynd þar sem sagan er á þunn- um ís en myndmálið á sterku svelli. Sweet and Lowdown Besta kvikmynd Woody Allens í nokkur ár. Einstaklega lifandi og gráglettin kvik- mynd um mann sem öðrum þræði er snilling- ur en á hinn bóginn sjálfselskur drykkjubolti. Sean Penn er frábær í aðalhlutverkinu. Chariie's Angeis Englar Charlies er afar vond kvikmynd og er hún valin hér sem samnefnari fýrir margar lélegar og dýrar Hollywood-myndir sem voru í fokdýrum umbúðum sem hefðu lyktað strax á fyrsta degi hefðu þær lent í jólapóstinum hjá íslandspósti. Af heimsmeisturum Fyrsti heimsmeistarinn i skák, Wilhelm Steinitz, var sérkennileg persóna. Hann, eftir áratugayfir- buröi í skáklistinni, lýsti því yfir aö hann væri heimsmeistari í skák 1886, þá um fimmtugt! Fáir mót- mæltu og þeir sem gerðu e.t.v. til- kall til titilsins gátu skorað á karl- inn. Það voru aðailega skák- og skylmingarmeistarinn Jóhannes Zukertort og faðir rússneska skák- skólans, Mikael Chigorin (svo segja sovéskar heimildir!), sem höfðu eitt- hvaö erindi við Steinitz. Steinitz var sá fyrsti sem nefndi sig heimsmeistara í skák en það voru nokkrir á undan honum sem hefðu svo sem getað gert það líka. Stuttur skákferiU Bandaríkja- mannsins Paul Morphys, sem var reyndar aðeins 2 ár, 1858 og 1859, var glæsilegur en síðan dró Morphy sig inn í skel sína í New Orleans. Þrælastríðið hófst skömmu síðar, ætli það hafi haft einhver áhrif? Alla vega hefur verið smá umræða um Steinitz í hinum íslenska skák- heimi nýlega sem endurvakti áhuga minn á meistaranum. Steinitz varði titil sinn m.a. tvisvar í Havanna, Kúbu, gegn Chigorin. Það var á árunum 1889 og 1892 og hefur ugglaust haft áhrif á að þar kom fram síðar þriðji heims- meistarinn í skák, José Raoul Capa- blanca. Hann vann titilinn 1921 í Havanna eftir sigur á Emanuel Lasker, sem var heimsmeistari á eftir Steinitz og sigraði hann í ein- vígi 1894 þá 27 ára en Steinitz var 58 ára (!) það ár. En það eru þessi ein- vígi i Havanna, afskaplega glanna- lega tefld, sérstaklega af Chigorin. Steinitz lagði drögin að vamartafl- mennskunni, að halda fengnum hlut og brjóta á bak aftur æðisgengnar sóknir andstæðingsins. Fyrra ein- vígið fór 10,5-7,5 og það seinna 12,5-10,5. Seinna einvígið var mjög jafnt og Steinitz vann eftir sigur í 2 síðustu skákunum. í síðustu skákinni lék Chigorin sig í mát í gjörunninni stöðu en jafntefli í einvíginu hefði engu að síður þýtt að Steinitz hefði haldiö titlinum. Lítum nú á eina glæsilega vinningsskák Chigorins gegn Steinitz, en flestar vinnings- skákir Steinitz eru og voru lítið fyr- ir augað. Hvítt: Mikael Chigorin Svart: Wilhelm Steinitz Evans-bragð. Havanna (7), 1889 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5. Næsti leikur hvíts er kenndur við enskan skipstjóra, Evans að nafni. Leikurinn þykir hraustlegur og peð- inu er fórnað fyrir skjóta liðskipan. 4. b4 Bxb4 5. c3 Ba5 6. 0-0 Df6. Á þeim 111 árum sem liðin eru síðan þessi skák var tefld hefur margt gerst. Síðustu leikir beggja eru ekki hátt skrifaðir í dag. Drottningarflan heitir þetta i kennslubókunum. Þró- unin hefur verið mikil í skákinni sem og öðru. Öllum til góðs? 7. d4 Rge7 8. Bg5 Dd6 9. d5 Rd8 10. Da4 Bb6 11. Ra3 Dg6. Svartur gefur eftir hrókunarrétt- inn til aö létta á stöðu sinni. En það eflir því miður aðeins sókn hvíts. 12. Bxe7 Kxe7 13. Rxe5 Df6 14. Rf3 Dxc3 15. e5 c6 16. d6+ KÍ8 17. Bd3?! h6. Eitthvað hafa þeir verið illa fyrirkallaðir skákmennimir. Eftir 17.-Dxd3 18. Dh4 Re6 19. De7+ Kg8 20. Rg5 Df5 rennur sókn hvíts út í sandinn. En sumir treysta and- stæðingnum um of, stundum. 18. Dh4 g5 19. Dh5 Dxd3. Þetta fannst honum betra, að veikja kóngsstöð- una fyrst og þyggja síöan manns- fómina. 20. Hadl Dh7 21. Rc2 Kg7 22. Rcd4 Dg6 23. Dg4 h5 24. RÍ5+ Kf8. Hvítur, sem er manni undir, skiptir upp í unnið endatafl. Ætli þessi skák hafi veriö tefld á gamlárskvöld 1889? 25. Dxg5 Dxg5 26. Rxg5 h4 27. Khl Hh5 28. f4! Re6 29. g4! Svartur situr eftir með herafla sinn í reiðuleysi. Það kann ekki góðri lukku að stýra. 29. -hxg3 30. Rxg3 Hh6 31. Rxf7 Kxf7 32. f5 Ke8. 33. fxe6 dxe6 34. Re4 1-0. Eftir 34. -Hh8 35. d7+ Bxd7 36. Rf6+ er fokið í flest skjól. Næsta staða er úr seinna einvíg- inu og sýnir að jafnvel i heims- meistaraeinvígjum geta skákmenn leikið af sér eins og byrjendur!? Ekki ætla ég að reyna að skýra þessa skák enda ekki prestlærður. Hvítt: Mikael Chigorin Svart: Wilhelm Steinitz Kóngsbragð. Havanna (23), 1892 1. e4 e5 2.f 4 exf4 3. Rf3 Rf6 4. e5 Rh5 5. Be2 g6 6. d4 Bg7 7. 0-0 d6 8. Rc3 0-0 9. Rel dxe5 10. Bxh5 gxh5 11. dxe5 Dxdl 12. Rxdl Rc6 13. Bxf4 Bf5 14. Re3 Be4 15. Rf3 Hfe8 16. Rg5 Bg6 17. Rd5 Bxe5 18. Rxc7 Bxc7 19. Bxc7 Hac8 20. Bg3 Rd4 21. c3 Re2+ 22. Kf2 h4 23. Bd6 Rd4 24. cxd4 Hc2+ 25. Kgl Hee2 26. Hael Hxg2+ 27. Khl Kg7 28. He8 f5 29. Re6+ KfB 30. He7 Hge2 31. d5 Hcd2. Hér er hvítur með unnið tafl. Eft- ir 32. Hxb7 Bh5! 33. Rg5! vinnur hvítur. 32. Bb4?? Hxh2+ 0-1. Það er mát eftir 33. Kgl Hdg2+ Hraðskákmót með 8 íslensk- um stórmeisturum! í dag í húsakynnum Skeljungs við Suðurlandsbraut verður haldiö hraðskákmót kl. 14. Allir stórmeist- aramir íslensku verða meðal þátt- takenda nema Guðmundur Sigur- jónsson. Áhorfendur eru velkomnir að fylgjast með þessu spennandi móti og ljóst er að fjörlega verður teflt en keppendur verða alls 16. Þú svífur með okkur Það er alltaf sérstök hátíðarstemning á Vínartónleikum Sinfóníunnar. Enda kemur sama fólkið ár eftir ár, allir í sínu fínasta pússi og skálar í kampavíni áður en ballið byrjar. Og Vínartónlistin ersannkölluð kampavínsveisla í tónum. Fyrir fullu húsi ár eftir ár. Tryggðu þér miða í tíma! Peter Guth Arndís Halla Ásgeirsdóttir Hljómsveitarstjóri: Peter Guth Einsöngvari: Arndís Halla Ásgeirsdóttir Kór íslensku óperunnar Kórstjóri: Garðar Cortes Fimmtudaginn 4. janúar kl. 19.30 örfá sæti laus Föstudaginn 5. janúar kl. 19.30 laus sæti Laugardaginn 6. janúar kl. 17.00 laus sæti Að þessu sinni verða Vínartónleikarnir í Laugardalshöll. Númeruð sæti SINFÓNÍAN í 5*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.