Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Qupperneq 14
14
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
Helgarblað
DV
Grjóti kastað að drottnurunum
Palestínsk kona kastar grjóti aö ísraelskum hermönnum í borginni Hebron á Vesturbakkanum á tíunda degi átakanna sem hófust er ísraelski stjórnmálamaöurinn Aríel Sharon heimsótti
Musterishæöina í Jerúsatem.
Árið 2000 gert upp:
Ar uppreisna og
kosningaöngþveitis
Elian frelsaður
Lögregla réöst tii inngöngu i hús ættingja kúbverska
drengsins Elians Gonzalez í Miami á Flórída í apríl. Tók
lögregian drenginn á brott með sér og færöi hann fööur
sínum sem kominn var til Bandaríkjanna.
Fórnarlömb Kúrskslyssins
Móöir rússneska sjóliöans Victors Kuznetsovs lést
nokkrum klukkustundum áöur en fregnir bárust af því aö
líkamsleifum sonar hennar haföi veriö bjargaö úr
kafbátnum Kúrsk sem sökk i ágúst.
Nýju árþúsundi var fagnað um alla
heimsbyggðina með ósk um frið en of-
beldi einkenndi síðustu mánuði ársins.
í Miðausturlöndum létu á fjórða
hundrað manns, flestir Palestínu-
menn, lífið i átökum í kjölfar heim-
sóknar ísraelska stjórnmálamannsins
Ariels Sharons á Musterishæðina.
Öngþveiti ríkti í Bandaríkjunum í
kjölfar forsetakosninganna en eftir
margar umferðir í dómskerfinu var
George W. Bush loks lýstur sigurveg-
ari. Og í Júgóslavíu var Slobodan
Milosevic forseta bolað frá eftir 13 ár
á valdastóli í kjölfar tilrauna hans til
að falsa úrslit forsetakosninganna.
Tvöþúsundvandinn gerði ekki þann
usla sem margir höfðu óttast þegar ár-
ið 2000 gekk loks í garð.
í upphafi ársins sem er að líða voru
menn enn að melta óvænta afsögn
Borís Jeltsíns Rússlandsforseta þegar
settur forseti Rússlands, Vladimir
Pútín, hélt til vlglínunnar í Tsjetsjen-
íu til að veita rússneskum hermönn-
um viðurkenningu fyrir baráttu
þeirra gegn uppreisnarmönnum. Eitt
af fyrstu verkum Pútíns var einnig að
láta reka dóttur Jeltsíns, Tatjönu
Djatsjenkó, úr embætti ímyndarsmiðs
forsetaembættisins. Samtímis hófst
formleg rannsókn á meintu glæpsam-
legu atferli Helmuts Kohls, fyrrver-
andi kanslara Þýskalands. Honum var
gefið að sök að hafa tekið við leynileg-
um fjárframlögum til Kristilega
demókrataflokksins á árunum 1993 til
1998. Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, tók upp úr flutninga-
kössunum á nýju heimili sínu í New
York i janúarbyrjun.
Hillary Clinton flytur og
Cherie Blalr sektuö
Þegar Hillary var að taka upp úr
kössunum var Cherie Blair, forsætis-
ráðherrafrú Bretlands, sektuð fyrir að
hafa ferðast í lest án lestarmiða. Hún
hafði ekki fundið opna miðasölu og
hún hafði ekki heldur reiðufé til að
kaupa miða í sjálfsala. Þurfti Cherie
að greiða 10 pund í sekt ofan á far-
miðaverðið. Hillary tilkynnti í janúar-
lok að hún ætlaði að vera við hlið eig-
inmanns síns þegar kjörtímabili hans
lyki. Þar með sáu menn fram á að
ekkert yrði af skilnaðinum sem marg-
ir höfðu gert ráð fyrir.
Um miðjan janúar var serbneski
stríðsherrann Zeljko „Arkan"
Raznatovic skotinn til bana í anddyri
hótels í Belgrad. í byrjun febrúar tók
samsteypustjóm íhaldsmanna og
Frelsisflokks Jörgs Haiders við völd-
um. Efnt var til mótmæla bæði í Aust-
urriki og erlendis. ísraelar kölluðu
heim sendiherra sinn og og Evrópu-
sambandslöndin frystu Austurríki.
ömmur Elians litla Gonzalez,
kúbverska drengsins sem bjargað var
úr sjávarháska undan strönd Flórída í
lok nóvember 1999, héldu til Banda-
ríkjanna í lok janúar til að þrýsta á að
hann fengi að fara heim.
Sex ára skaut bekkjarsystur
tll bana í Michigan
Tarja Halonen, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, var kjörin forseti Finn-
lands 6. febrúar. Þetta var í fyrsta
sinn sem kona settist í stól forseta í
Finnlandi. Vamarmálaráðherra
Júgóslavíu, Pavle Bulatovic, var skot-
inn til bana á veitingastað 1 Belgrad. í
þingkosningum í íran hlutu umbóta-
sinnar yfirburðasigur.
Sex ára drengur skaut til bana
bekkjarsystur sína i Mount Morris
Township í Michigan í Bandaríkjun-
um 29. febrúar. Börnin höfðu rifist á
leikvelli deginum áður. Drengurinn
bjó í eiturlyfjagreni með hlöðnum
byssum um ailt.
í byrjun mars tilkynnti Jack Straw,
utanríkisráðherra Bretlands, að
Augusto Pinochet, fyrrverandi ein-
ræðisherra Chile, yrði ekki framseld-
ur til Spánar. Pinochet var fagnað
sem hetju er hann sneri heim til
Chile.
Kjell Magne Bondevik, forsætisráö-
herra Noregs, baðst lausnar fyrir
stjórn sina 10. mars eftir aö stjómar-
andstaðan hafði fellt tillögu stjómar-
innar sem koma átti í veg fyrir breyt-
ingar á löggjöf um umhverfismál.
Jens Stoltenberg myndaði nýja stjórn
Noregs. Jóhannes Páll páfi baðst fyrir-
gefningar á syndum kaþólsku kirkj-
unnar.
Um 530 félagar í sértrúarsöfnuði í
Úganda brunnu til bana í kirkju.
Hundmð líka fundust til viðbótar og
voru fórnarlömb safnaðarleiðtoganna
alls yfir 900.
Elian frelsaöur frá
ættingjunum í Miami
Færeyingar urðu æfir í garð
danska forsætisráðherrans. Poul Nyr-
up Rasmussen lét færeysku land-
stjómina halda heim frá Kaupmanna-
höfn með þau óvæntu skilaboð að fjár-
styrkur Dana til Færeyja, 10 milljarð-
ar íslenskra króna á ári, yrði feúdur
niður eftir 3 til 4 ár vildu Færeyingar
sjálfstæði.
Vladimir Pútín var kjörinn forseti
Rússlands 26. mars með 52 prósentum
atkvæða.
Faðir Elians litla Gonzalez hélt til
Washington í aprílbyrjun ! fylgd eig-
inkonu sinnar og hálfbróður Elians.
Þann 22. apríl náðu bandarískir sér-
sveitarmenn Elian frá ættingjum
hans í Miami á Flórída og færðu
hann föðumum. Útlagar frá Kúbu
efndu til mótmæla í Miami. Fyrrver-
andi forsætisráðherra Pakistans,
Awaz Sharif, var dæmdur f lífstíðar-
fangelsi. Hann var fundinn sekur um
hryðjuverk og flugrán. Bandaríska
blaðið New York Post greindi frá því
að Monica Lewinsky, fyrrverandi lær-
lingur í Hvíta húsinu og ástkona Bills
Clintons, ætlaði að kjósa Hillary í
kosningum til öldungadeildarinnar.
Landtökumenn í Simbabve lögðu til
atlögu á nýjan leik hvíta bændur.
Forstjóri flugfélags Júgóslavíu var
myrtur í lok apríl. Dómsmálaráðherra
Serbíu sakaði Vesturlönd um morðið.
Vinur Arkans var skotinn til bana
nokkrum dögum síðar.
Rauöi Ken kjörlnn
borgarstjóri Lundúna
Ken Livingstone, eða Rauði Ken,
var kjörinn borgarstjóri Lundúna í
maíbyrjun. Hvalavinurinn Paul
Watson skipulagöi í maí nýja herferð