Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Síða 42
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 DV i DV-Sport laun og boðsundssveitir félagsins settu sex Islandsmet. Vonbrigöi mánaöarins: Æfingaferð Stoke City til íslands. Stoke náði ekki að vinna leik, gerði þrjú jafntefli, þar af tvö gegn íslenskum 1. deild- arliðum. 1. deildarlið KA var aðeins tveim- ur mínútum frá því að leggja enska liðið. Jón Arnar Magnússon varð að hætta keppni í tugþrautarkeppninni í Talance í Frakklandi sökum tognunar í liðbandi eftir að hafa verið í 2. sæti eftir 7. grein. Athyglisveröar fréttir: Hernan Crespo og Luis Figo verða báð- ir dýrustu knattspyrnumenn heims, Crespo fer fyrst á fjóra milljarða frá Parma til Lazio en Luis Figo kostar Real Madrid 4,5 milljarða þegar þeir „ræna“ goðinu frá Barcelona. Meistarar í mánuðinum: Örn Arnason vann átta gull og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttirt vann fimm gull á Sundmeistaramóti íslands ... Ragnhildur Sigurðardóttir varð klúbbmeistari GR í 10. sinn ... Frakkar bættu Evrópumeistaratitl- inum við heimsmeistaratitilinn. Fleygustu oröin: „Ég finn að sjálfsögðu fyrir pressu en hún kemur ekki endilega frá félaginu sjálfu. Ég set pressu á sjáifan mig því ég vii vinna titla,“ sagði Pétur Pétursson í við- tali við DV-Sport eftir að KR-ingar höfðu aðeins náð í 3 stig af síðustu 12 mögulegum. Pétur kom sínum mönnum þó aftur af stað og KR vann titilinn. „Við erum í æfingaferð á íslandi og erum ekki að spila til úrslita hér,“ sagði Guðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Stoke, i framhaldi af döpru gengi liðsins i æfinga- leikjunum á Islandi. „Evrópukeppnin kom á besta tíma fyrir okkur KR-inga,“ sagði Andri Sigþórsson eftir að hafa skorað tvö mörk í 4-1 sigri KR á maltneska liðinu Birkirkasa í und- ankeppni meistaradeildar Evrópu. „Við vitum að við getum spilað knatt- spyrnu," sagði Guómundur Torfason, þjálfari Fram, eftir 3-1 sigur á Grindavík, þann þriðja í fjórum leikjum hjá Fram. Þvi miður fyrir Guðmund og Framara var þetta síðasti sigur ársins, liðið varð án sigurs í sjö síðustu leikjunum og Guðmundur fékk að fjúka þegar tveim leikjum var ólokið. íþróttamenn mánaöarins: Rakel Ögmundsdóttir, Breiðabliki, var valinn leikmað- ur fyrri hluta Landssímadeildar kvenna hjá DV-Sport og átti stór- an þátt í að Breiðablik lagði grunninn að sigri sínum á ís- landsmótinu í mánuðinum. Bjarki Birgisson, sundmað- ur frá íþróttafélagi fatlaðra, tvíbætti heimsmeti í 200 metra bringusundi á Sundmeistara- móti Islands í Kópavogi. Hann bætti heimsmetið sem breskur sundmaður átti áður. Liö mánaðarins: Breiðablik í kvennaknattspyrnunni vann alla leiki sína i júlí, þar á meðal 1-3 sigur á KR á KR-vellinum sem færði þeim draumastöðu í baráttunni um að endur- heimta titilinn i Kópavog eftir þriggja ára einokun KR á honum. SH varð sigur- sælasta félag Sund- meistaramóts Islands- í Kópavogi. SH vann 38 verðlaun á mótinu, þar af 16 gullverð- j ■ ■ * - Iþróttamaður mánaðarins: Gylfi Þór Einarsson, leikmaður Fylkis, var val- j: f inn besti leikmaður ann- ars hluta hjá DV-Sport. Gylfi var í lykilhlutverki hjá nýliðunum. Gylfi samdi líka við Fylki í mánuðinum til þess að tryggja að hans uppeldisfélag fengi pening fyrir hann því áhugi er- lendra liða var orðinn mikill á þess- um snjalla leikmanni. Liö mánaðarins: íslenska körfuknattleikslands- liðið rak af sér slyðruorðið og stóð sig mjög vel á Norðurlandamótinu í Keflavík. Liðið endaði í þriðja sæti og var mjög nálægt sigri í einu töpunum gegn Finnum og Svíum. íslenska knattspyrnulandsliðió vann sinn 4.-sigur í röð á árinu þeg- ar Ríkhaður Daðason og Helgi Sig- urðsson tryggja fyrsta sigurinn á Sví- um i 49 ár. íslenska landsliðið var taplaust í fyrstu fimm leikjunum undir stjórn Atla Eðvaldssonar. Vonbrigöi mánaöarins: Gengi ÍA og ÍBV í Evrópukeppn- inni. Bæði lið tapa heimaleikjum sín- um án þess að ná að skora og detta bæði út í fyrstu umferð. ÍA samtals 2-6 en ÍBV samtals 0-5. Athyglisverðar fréttir: Fjórir íslenskir körfuboltamenn eru efstir í tölfræðinni á NM i körfu- bolta. Hlynur Bæringsson, leikmaður elítuliðsins, tók flest fráköst (9,0), Jón Arnór Stefánsson hjá A-liðinu stal flestum boltum (3,2), Jakob Sigurðar- son hjá A-liðinu nýtti þriggja stiga skotin best (62,5%) og Jón N. Haf- steinsson hjá elítunni varði flest skot (3,2). íslenska kvennalandsliðið vinn- ur sinn fyrsta sigur á Danmörku sem landamóti frá upphafi. Erla Reynis- dóttir tryggir sigurinn tveimur sek- úndum fyrir leikslok. Meistarar í mánuðinum: Svíar urðu Norðurlandameistarar i körfubolta karla ... Finnar Norður- landameistarar í körfubolta kvenna. Silja Úlfarsdóttir varð Norðurlanda- meistari unglinga í 400 metra hlaupi. Fleygustu orðin: „Framtíðin er björt hjá KR. Liðið á marga unga og efnilega leikmenn og ég tel að þeir eigi efir að standa sig vel i þessari keppni í framtíðinni," sagði Áge Hareide, þjálfari Bröndby, eftir að liðið hafði slegið út KR. „Við vitum ekki hvenær við fáum svona demanta aftur svo við verðum að standa vel að baki þessara leik- manna,“ sagði Friðrik Ingi Rúnars- son, þjálfari karlalandsliðsins í körfubolta, eftir að ungu strákarnir i landsliðinu höfðu slegið í gegn á NM. „Það var eins og við hefðum engan áhuga á að skora,“ sagði Alexander Högnason, fyrirliði ÍA, eftir marka- laust jafntefli gegn Stjörnunni. Skagamenn höfðu þá aðeins gert 14 mörk í 15 leikjum tímabilsins. „Við spiluðum betur og betur með hverri mínútunni sem leið í seinni hálfleik," sagði Rúnar Kristinsson eftir 2-1 sigur á Svíum. „Ég fékk loksins boltann," sagði Andri Sigþórsson eftir að hann hafði tryggði KR mikilvægan sigur á Fylki i Árbæ, 2-1. September íþróttamaöur mánaöarins: Athyglisveröar fréttir: Örn Arnarson nær besta árangri íslensks sundmanns frá upphafi á ÓL þegar hann verð- ur fjórði í 200 m baksundi. §Vala Flosadóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að vinna til verðlauna á Ólympiuleikunum þegar hún varð þriðja í stangar- stökkskeppninni í Sydney. Liö mánaðarins: KR-ingar tryggðu sér annan titil sinn í röð í knattspyrnu karla og þann 22. í sögu félagsins með því að ná í 19 af síðustu 21 stiginu sem í boði voru. Vonbrigöi mánaöarins: Kristinn Björnsson skíðamaður meiddist og talið er að hann verði frá keppni fram í febrúar. Rúnar Alexandersson fimleika- maður komst ekki í úrslit og átti ekki sína bestu keppni á ÓL. Guðrún Arnardóttir verður fyrsti íslenski hlauparinn til að komast i úrslit á Ólympíuleikum. Maria Teresa Salisachs- Rowe, eiginkona Juans Antonio Sam- aranch, forseta Alþjóða Ólympíunefnd- arinnar, lést eftir langa baráttu við krabbamein. Eric Moussambani frá Miðbaugs- Gíneu vekur athygli þegar hann verð- ur langsíðastur í fyrsta riðli í 100 m skriðsundi á ÓL og er næstum drukkn- aður í lauginni. Mia Hundvin, landsliðskona Nor- egs í handbolta, og Camilla Andersen, landsliðskona Dana, verða fyrstu mak- arnir til aö mætast á Ólympíuleikum. Kári Marisson verður elsti leik- maðurinn til að spila í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, 48 ára og tæp- lega 10 mánaða, þegar hann spilar í tvær mínútur með Tindastóli gegn Njarðvík. Rakel Ögmundsdóttir og Hlynur Stefánsson verða fyrir valinu sem bestu leikmenn sumarsins í knatt- spymunni. Maria Björg Ágústsdóttir úr Stjörnunni og Helgi Valur Daniels- son voru valin efnilegustu leikmenn Landssímadeildanna. Kvennalandsliðið í knattspyrnu vinnur sinn stærsta sigur frá upphafi gegn Rúmeníu, 8-0, á Laugardalsvelli. Rakel Ögmundsdóttir verður aðeins önnur konan til að skora fiögur mörk í landsleik. Meistarar í mánuðinum: KR-ingar unnu sinn annan titil í röð í knattspyrnu karla, Breiðablik vann sinn 13. meistaratitil í knatt- spyrnu kvenna, auk þess að þær urðu bikarmeistarar, Grindavík deildabik- armeistarar í knattspyrnu karla og ÍA bikarmeistari í knattspyrnu karla. íí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.