Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Page 58

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Page 58
J 66_______ Tilvera LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 I>V Sá siöur að fagna nýju ári er góður og flestir láta hugann reika aftur til liðins árs og gera það upp með einum eða öðrum hætti. Al- gengt er að skoða hvað má betur fara og gera áramótaheitin sem oft ganga út á að breyta til hins betra einhverju í sínu eigin fari. Skuggi á gieði Því miður vill það brenna við að skugga sé varpað á áramótagleðina og getur minningin um hann orðið sterkari minning en gleðin sjálf þegar upp er staðið. „Enginn legg- ur upp með það um áramót að ætla aö eyðileggja þau eða minninguna fyrir einum eða neinum og allra síst börnum sínum eða fjölskyldu," segir Stefania Sörheller á þróunar- sviði Félagsþjónustunnar í Reykja- vík. „Foreldrar eru bestir í for- vömum, ákveðnir og elskulegir, með það að leiöarljósi að „nei“ sé jákvætt þegar vímuefni eru annars vegar. Við vitum að það sem við fullorðnir gerum hefur margfalt meira vægi en orðaflaumur um það sem má og ekki má. Foreldrar eru og verða fyrirmyndir barna sinna hvort sem þeim líkar betur eða verr,“ segir Stefanía. Abyrgð að vera fyrir- mynd Foreldrar sæta oft gagnrýni frá bömum sínum fyrir að banna þeim að gera hluti sem þeir gera sjálfir. Sú gagnrýni á mismikinn rétt á sér því sumt er vissulega leyfilegt fullorðnum þótt það leyfist ekki bömum. „Böm em næm og skynsöm og sjá oft í gegn- um bullið í fullorðna fólkinu. Fullorðnir verða að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylg- ir því að vera fyrirmynd bama, bæöi sinna eigin og annarra." Margar stofnanir og samtök hafa sameinast í átaki þar sem leiðar- ljósið er: Fjölskyldan saman á tímamót- um. Þetta átak er ekki sprottið af engu. Gamlárskvöld er fjölskyldu- kvöld en svo kemur nóttin og þá hefur stimdum brannið við að ung- lingamir fara sínar eigin leiðir og foreldramir sínar. Iðulega birtast fréttir í fjölmiölum eftir áramót um ólæti, og í verstu tilvikum slysum, þar sem eftir- litslausir og jafnvel drukknir ung- lingar eiga hlut að máli. Allir helma á nýársnótt „Getur verið að foreldrar þeirra Bíógagnrýni bama hafi einfaldlega látið undan þrýstingi, þeirri alkunnu setningu sem hefur verið notuð i áraraðir, „allir hinir mega“? Lögmálin breytast ekki þótt það sé nýársnótt, hættumar eru til staðar og síst minni, segir Stefanía. „Hvaö fær foreldra til að gefa eftir oft langt umfram það sem þeir vilja sjálflr og sitja svo heima með hnút í maga, krossa frngur og vona að bamið skOi sér heilu heim? Margir foreldrar yrðu áreiðan- lega rólegri og sælli imi áramótin, að mati Stefaníu, ef þeir stæðu saman og segðu nei. Unglingamir fengju þannig nauðsynlegt öryggi og væm ekki heldur aö missa af neinu því „allir hinir“ væm heima. „Ég vona að þessi áramót sem fram undan eru geti orðið aö tíma- mótum í sem víðtækustum skiln- ingi hjá sem flestum fjölskyldum sem kjósa að fagna komandi ári saman." Góði sonur Satans Laugarásbíó/Stjörnubíó/Regnboginn - Littie Nicky: ★ Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Stríð og friður á Sjallanum Kóngurinn sjálfur, Bubbi j Morthens, leiðir sveit sína Stríð og frið fram á þann vígvöll sem dansiböll eru meö rokki og rosa í Sjallanum, Akureyri. Bara j Bubbi getur verið Bubbi. Box- hanskar vinsamlegast afþakkað- ir en ást og hamingju skal beint að næsta náunga. Klúbbar ; ■ ÍRAFÁR Á GAUKNUM Birgitta Og . strákarnir hennar í stuöhljómsveit- i inni írafár taka forskot á gamlárs- : kvöld á Gauki á Stöng í kvöld. Ekki . missa af þessu. í Böll ■ GREiFARNIR A BROADWAY Greifarnir keyra um þverbak í rokki I og róli og Ijúfu poppi á Broadway. Skyldumæting fyrir hinn almenna stuöbolta. ■ HARMONIKKUBALL í ASGARÐI 1 Það er alltaf jafnmikið stuö í As- garði, Glæsibæ, og I kvöld verður þar haldiö ekta harmonikkuball. Um aö gera aö skella á sig axlaböndun- 1 um og hnébuxunum og dansa eins og vitlaus. Það eru félagarnir í Harmónikkufélagi Reykjavíkur sem sjá um klassatónlist og Ragnheiöur Hauksdóttir syngur og gamanið hefst klukkan 22. Klassík ■ STJORNUKORINN I dag veröa tónleikar á vegum menningaborgar- innar haldnir á Ingólfstorgi. Stjörnu- kórinn samanstendur af 17 kórum barna og fulloröinna. Þessi uppá- koma er liöur í Stjörnuhátíö Menn- Ingarborgarinnar. Tónleikarnir hefj- ast kl. 14.00 og syngur hver kór tvö til þrjú lög. Klukkan 15.45 samein- ast kórarnir í einum stærsta kór sem sungiö hefur í borginni. Stjörnukor Menningarborgarlnnar er samansettur úr rúmlega 600 rödd- um, sem kveöja áriö með fallegum áramóta- og nýárssöngvum. Yfirum- sjón tónleikanna er í höndum Þór- unnar Bjömsdóttur. Lítiö viö í hjarta miöborgarinnar, þiggiö léttar veiting- ar og hlustiö á fallega tónlist. Leikhús ■ ABIGAIL HELPUR PARTI Abigail heldur partí eftir Mlke Lelgh sýnt í kvöld kl. 20 á litla sviði Borgarleik- hússins. ■ MISSA SOLEMNIS í dag kl. 17.30 veröur sýndur 5. einleikurinn T * einleikjaröö Kaffileikhússins.,Sá nefnist Missa Solemnis eöa í öör- um helmi og er eftir finnsku leikkon- una og leikstjórann Kristilnu Hur- merlnta. ■ MÓGLÍ Leikritiö Móglí verður sýnt í Borgarleikhúslnu í dag kl. 14. Leik- gerö geröi lllugi Jökulsson og er hún byggö á skógarlífssögum Rudyards Kiplings. Aöalhlutverkiö er í hondum Friöriks Friðrikssonar og leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson. Orfá sæti laus. ■ SKÁLDANÓTT í kvöld kl. 20 verö- ur Skáldanótt eftir Hallgrím Helga- son sýnd á Stóra sviöi Borgarleik- hússlns. W ■ Á SAMA TÍMA SÍÐAR Á sama tíma síöar er framhald leikritsins A sama tíma að árf sem sýnt hefur veriö urri langt skeið viö miklar vin- sældir. í kvöld kl. 20 verður fram- haldiö sýnt í Loftkastalanum og eru þaö þau Tlnna Gunnlaugsdóttlr og Slgurður Slgurjónsson sem fara meö hlutverkin eins og áöur. SJá nánar: Líflö eftlr vinnu á Vísl.ls Sagt er aö ekkert sé leiðinlegra en misheppnaöur farsi og Little Nicky er misheppnaður farsi. Til aö farsar séu fyndnir þarf í raun allt að ganga upp, textinn þarf að vera fyndinn, söguþráðurinn fáránlegur og leikar- ar góðir. í Little Nicky höfum við að vísu fáránlegan söguþráð, það fá- ránlegan aö góður farsahöfundur myndi varla ganga svo langt í að láta aðalpersónuna vera son Skratt- ans og eiga sem móður engil á himnum. Góðir farsahöfundar hefðu kannski með aðstoð góðra leikara getað gert eitthvað fyrir hugmyndina, en handritshöfundar Little Nicky em ekki góöir farsahöf- undar. Sjálfsagt hefði mynd þessi aldrei verið gerð, með þeim gífurlega kostnaö sem greinilega hefur fylgt henni, ef ekki hefði verið búið að tryggja Adam Sandler i aðalhlut- verkið. Sandler, sem kominn er í 20 milljóna dollara flokkinn, hefur hingað til þótt góð fjárfesting, en víst er aö hlutabréfin í honum hafa lækkað mikið aö undanfomu. Sandler er Nicky, góði sonur Satans, sem er stanslaust strítt af tveimur eldri bræðrum, sem standa vel undir því að vera prinsar myrk- ursins. Þegar faöir þeirra tilkynnir sonum sínum að hann ætli að ríkja í 10000 ár í viöbót og bijóta þar meö sig í mannheimum. Hann fær hjálp til þess frá jarðarbúum og í lokin einnig frá móður sinni á himnum sem enn finnst dálítið varið í bams- foður sinn í neðra. Helsti gallinn við myndina er Adam Sandler sjálfur. Af hverju hann hefur kosið að túlka Nicky, út- litslega séð, sem einhvem fáráðling er það fyrsta og stærsta sem dregur myndina niður. Það er eins og hann sé að leika Hringjarann frá Notre Dame. Sandler er ófyndinn í gervi sínu. í þau fáu skipti sem hægt er að brosa, á hann engan þátt í því. Aðrir leikarar em lítið betri. Hvað stórleikarinn Harvey Keitel, sem þykir með vandfýsnari leikurum á hlutverk, er að gera í gervi Kölska er eitthvað sem aðeins peningar hafa gert að verkum. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem ég sé Keitel sýna virkilega vondan leik. Það er helst Rhys Ifans i hlutverki elsta sonarins sem nær að gera sér mat úr hlutverki sínu. Aðrir em eins og myndin, úti á þekju. Lelkstjóri: Steven Brill. Handrlt: Tim Her- lihy, Adam Sandler og Steven Brill. Kvik- myndataka: Theo Van Den Sande. Tón- list: Teddy Castelluci. A&alleikarar: Adam Sandler, Patricia Arquette, Harvey Keitel og Rhys Ifans. Nicky og kærastan Adam Sandler ásamt Patriciu Arquette í hlutverkum sínum. reglumar verða eldri bræðumir tveir brjálaðir af vonsku og skella sér upp á yflrborð jarðar þar sem þeir ætla að stofna eigið helvíti. Þetta raskar að stöðugleikanum auk þess sem Skrattinn byrjar aö eyðast í orðsins fyllstu merkingu. Bjarg- vætturinn Nicky fer upp á yfirborð- ið þar sem hann er eins og fiskur á þurra landi og á erfltt með að fóta Átakið Fjölskyldan saman á tímamótum: Foreldr- ar eru besta for- vörnin Fjölskyldan saman á ánægjulegum tímamótum Því miöur vill þaö gerast aö áramótagleöin fari úr böndunum, segir Stefanía Sörheller. - ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.