Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001
DV
11
Útlönd
Flestir strokufangarnir frá Texas aftur á bak viö lás og slá:
Einn framdi sjálfsmorð
og tveir eru enn á flótta
Lögregla handsamaði fjóra af sjö
strokuíongunum frá Texas í hjól-
hýsabyggð við rætur Klettafjallanna
í Kóloradó í gær, eftir einhverja um-
fangsmestu leit síðan á fjórða ára-
tugnum. Fimmti maðurinn svipti
sig lífi en tveir eru enn á flótta, vel
vopnaðir og stórhættulegir, að sögn
lögreglu. Þeir eru hugsanlega á leið
til Mexíkós.
Sjömenningamir struku úr fang-
elsi í suðurhluta Texas þann 13. des-
ember. Þeir eru grunaðir um að
hafa skotið lögregluþjón til bana
nærri Dallas á aðfangadag jóla.
Talið er að þeir hafi komið til
Kóloradó í janúarbyrjun.
Sjömenningamir héldu hópinn og
létu fara lítið fyrir sér í hjólhýsa-
byggðinni í bænum Woodland Park.
Þeir höfðu breytt útliti sínu svo þeir
vom vart þekkjanlegir af myndun-
um sem hafði verið dreift um allt
land í kjölfar flóttans.
„Þeir virtust vera eins og ósköp
Logreglan gætir hjolhýsabyggðar
Lögregla frá Kóloradó og Texas gætir innkeyrslunnar að hjólhýsabyggðinni
þar sem fjórír af strokuföngunum sjö frá Texas voru handsamaðir í gær. Hinn
fimmti svipti sig lífi en tveir eru enn á flótta undan réttvísinni.
venjulegt fólk og einn þeirra tók
þátt i Biblíuleshring í hjólhýsa-
byggðinni," segir einn íbúanna,
Betty Denn.
Lögreglan lét til skarar skriða
gegn strokufongunum eftir ábend-
ingar frá almenningi um að þeir
væru i Woodland Park.
Þrír fanganna voru handteknir
þegar þeir stigu út úr jeppa sínum
við verslunina í bænum, þeirra á
meðal foringi hópsins, George
Rivas. Þeir veittu enga mótspymu
og hafa verið samvinnuþýðir við
lögreglu í yflrheyrslum. Fjórði mað-
urinn hafði lokað sig inni í einu
hjólhýsanna en gafst fljótlega upp.
Sá fimmti neitaði að gefast upp og
skaut sig í brjóstið.
Tveir strokufanganna eru enn á
flótta undan réttvísinni. Yfirvöld í
Texas telja að þeir kunni að vera á
leið til Mexíkós.
Vopn fundust bæði í bíl stroku-
fanganna og í hjólhýsunum.
William Hague
Kristilegir innan breska ihaldsflokks-
ins biðja guð um að halda hendi
sinni yfir Hague.
íhaldsmenn biðja
um íhlutun guðs
Breski íhaldsflokkurinn, sem hef-
ur haft lítið fylgi í nýlegum könnun-
um, leitar nú á náðir bænarinnar.
Kristilegur félagsskapur innan
flokksins hefur birt lista með
pólitískum bænum, að þvi er bresk
dagblöð greindu frá í morgun. Beð-
ið er meðal annars um guðlega
íhlutun við rekstur höfuðstöðva
flokksins og guð er beðinn um að
halda hendi sinni yfir WiUiam
Hague leiðtoga og öðrum forystu-
mönnum. Kristilegi félagsskapurinn
hefur einnig verið beðinn um að
biðja til guðs um að mönnum komi
vel saman innan skuggaráðuneytis-
ins og að skýr framtíðarstefna komi
fram á fundum þess. Tony Blair for-
sætisráðherra og fjölskylda hans
eru einnig á bænalistanum. Er beð-
ið um styrk honum til handa.
Vaxtarhormón
geta valdið
kúariðusmiti
í bandarískri skýrslu er greint frá
139 tilfellum af Creutzfeldt-Jakob
veikinni frá 1985 vegna töku vaxtar-
hormóna. Sænskur prófessor, Per
Olov Lundberg, varar við smygluð-
um vaxtarhormónum og hormónum
keyptum á Netinu sem kunna að
vera framleidd á ólöglegan hátt. í
sumum löndum eru heiladingull úr
nautgripum notaður við framleiðsl-
una. Lundberg bendir á hættuna í
sex síðna grein í sænska læknablað-
inu. Talið er að tugir þúsunda
sænskra íþróttamanna og vaxtar-
ræktarmanna hafi sprautað smygl-
uðum hormónum í sig undanfama
tvo áratugi.
Fækkaði fötum tll stuðnlngs furutrjám
Briony Penn brá sér i hlutverk hinnar nöktu lafði Godivu og reið á hesti sínum um götur Vancouver i Kanada i gær.
Það gerði hún til að mótmæla áformum fyrirtækis um að höggva furuskóg í Salt Spring i Bresku-Kólumbíu.
Valdamenn skjálfa vegna
réttarhaldanna yfir Dumas
Fyrrverandi utanrikisráðherra
Frakklands, Roland Dumas, sat í
gær á sakamannabekk í dómsal í
París ásamt fyrrverandi ástkonu
sinni, Christine Deviers-Joncour,
og nokkrum öðrum þegar réttarhöld
hófust í umtalaðasta spillingarmáli
Frakklands í marga áratugi. Dumas
og ástkonan eru sökuð um að hafa
dregið sér um 1 milljarð íslenskra
króna frá ríkisolíufyrirtækinu
Aquitane Elf.
Dumas hafði útvegað Christine
starf í Elf. Rannsókn hefur leitt i
ljós að Elf borgaði síðan ástkonunni
háar upphæðir til að hafa áhrif á
pólitískar ákvarðanir Dumas. Ráð-
herrann naut einnig góðs af öllum
milljónunum sem ástkonunni tókst
aö afla á þennan hátt. Hann neitar
þessum ásökunum.
Tveir fyrrverandi forsætisráð-
Ákærður
Dumas leit ekki á ástkonuna fyrrver-
andi við réttarhöldin.
herrar, Michel Rocard og Pierre
Mauroy, hafa verið kallaðir sem
vitni ásamt fyrrverandi herforingja
og íjölda sendiherra. Sagt er að
valdamenn i Frakklandi skjálfi nú
vegna þess sem mögulega kemur í
dagsljósið við réttarhöldin.
í bók, sem Christine gaf út fyrir
tveimur árum, Hóra ríkisins, kveðst
hún hafa tekið við um 800 milljón-
um íslenskra króna frá Elf sem not-
aðar voru til að smyrja Dumas.
Christine notaði hluta fjárins til að
kaupa íbúð handa þeim í París. Hún
keypti einnig gríska vasa fyrir rúm-
ar 3 milljónir og gaf honum og
einnig handsaumaða skó á rúmar
100 þúsund krónur.
Rannsóknardómaramir telja að
fé hafi einnig verið varið til ólög-
legrar fjármögnunar pólitísks starfs
í Frakklandi og Þýskalandi.
Breski forsætisráðherrann leitaði í
smiðju til Clintons um ráð um hvern-
ig best sé að tryggja endurkosningu.
Tony Blair þiggur
ráð frá ráðgjöf-
um Bills Clintons
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hefur fengið ráð frá
gömlum ráðgjöfum Bills Clintons,
fyrrum Bandaríkjaforseta, um leiðir
til að tryggja endurkjör sitt. Þetta
kemur fram í minnisblaði frá skrif-
stofu Blairs sem bresk blöð sögðu
frá í morgun.
Minnisblaðið þykir til marks um
þau nánu tengsl sem voru milli
þeirra Blairs og Clintons. Víst þyk-
ir að ekki verði jafnhlýtt með Blair
og nýja Bandarikjaforsetanum,
repúblikananum George W. Bush.
Einn ráðgjafa Blairs skrifaði
minnisblaðið eftir ferð vestur um
haf þar sem hann hitti fyrrum hátt-
settan ráðgjafa Clintons.
Ástkona njósna-
foringjans tekin
Ástkona Vladimiros Montesinos,
fyrrum yfirmanns leyniþjónustu
Perús sem er á flótta undan réttvís-
inni, var handtekin í gær og gefið
sök að hafa hagnast á ólöglegum
auðæfum hans. Mynd af ástkonunni
í fullri stærð prýddi vegg í baðher-
bergi og leikflmisal lúxusvillu
njósnaforingjans.
Jacquelin Beltran, sem jafnframt
var einkaritari Montesinos, hefur
lýst yfir sakleysi sínu. Hún var
handtekin með tilvísan í sérstök lög
gegn spillingu sem heimila lögreglu
að halda henni í fimmtán daga.
Undanfarna daga hefur lögreglan
í Perú handsamað nokkra nána
bandamenn Montesinos.
í biðröð til að skoða líkið
Stuðningsmenn Laurents Kabila
Kongóforseta bíða í langri röð eftir
aö fá að sjá lík hans á viðhafnarbör-
um í alþýðuhöllinni í Kinshasa.
Þúsundir votta
Kabila hinstu
virðingu sína
Þúsundir Kongóbúa gengu hjá
kistu Laurents Kabila forseta, sem
var myrtur í byrjun síðustu viku,
þar sem hún var á viðhafnarbörum
í alþýðuhöllinni í höfuðborginni
Kinshasa. Kabila verður borinn til
grafar í dag.
Sonur myrta forsetans, hinn 31
árs gamli Joseph, hefur tekið við
forsetaembættinu til bráðabirgða.
Hugsanlegt er að hann veröi form-
lega svarinn í embætti á miðviku-
dag.
Kabila komst til valda árið 1997
eftir átta mánaða hernað gegn þá-
verandi forseta, Mobutu Sese Seko.
Valdatíö Kabila einkenndist af
stríði og óáran.