Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 8
8
Viðskipti
Umsjón: Víðskiptablaðið
Samkeppnisráð setur skilyrði
fyrir samruna Lyfju og Lyfjabúða
- Lyfja þarf að selja fimm verslanir
Samkeppnisráð telur að fyrirhug-
aður samruni Lyfju hf. og Lyfjabúða
hf. myndi leiða til markaðsráðandi
stöðu Lyfju á höfuðborgarsvæðinu
sem hefði skaðleg áhrif á sam-
keppni og væri andstæð hagsmun-
um neytenda. Samkeppnisráð hefur
í viðræðum við Lyfju fallist á að
með sölu fimm af fjórtán starfandi
apótekum Lyfju á höfuðborgarsvæð-
inu verði skaðlegum áhrifum sam-
runans eytt.
Samrunanum sett skilyrði
Telji Samkeppnisráð að samruni
hindri virka samkeppni getur ráðið
ógilt samruna eða sett honum skil-
yrði. Þegar ljóst var hvert mat Sam-
keppnisráðs á fyrirhuguðum sam-
runa var var af hálfu forsvars-
manna Lyfju óskað eftir því við
samkeppnisyfirvöld að samrunan-
um yrðu sett skilyrði sem myndu
eyða hinum skaðlegu áhrifum á
samkeppnina á lyfsölumarkaðnum,
að því er fram kemur í frétt frá
Samkeppnisráði. Lögðu forsvars-
menn Lyiju fram tillögu þar að lút-
andi. Viðræður Lyfju og samkeppn-
isyfirvalda hafa leitt til þess að fyr-
irtækið fellst á að selja í einu lagi
fimm af fjórtán starfandi apótekum
þess á höfuðborgarsvæðinu. Að upp-
fylltum skilyrðunum telur Sam-
keppnisráð að skaðlegum áhrifum
samrunans verði eytt en salan hefur
í fór með sér að markaðshlutdeild
Lyfju, sem að óbreyttu hefði orðið
52-53%, mun lækka i 37-38%.
Forsaga málsins er sú að þann 4.
desember sl. var undirritaður samn-
ingur um sameiningu á rekstri
Lyfju hf. og Lyfjabúða hf. sem eru
apótek í eigu Baugs hf. og rekin
hafa verið undir heitinu „Apótek-
ið“. Fyrst um sinn mun hið samein-
aða félag, sem mun verða í meiri-
hlutaeigu Baugs, bera heitið Lyfja.
Samkeppnisráð telur að sá markað-
ur sem sameining fyrirtækjanna
hefur áhrif á sé smásala á lyíjum á
höfuðborgarsvæðinu. Flest apótek
hins sameinaða fyrirtækis starfa
þar, auk þess sem áhrifa samrunans
gætir eingöngu á því svæði. Hvort
um sig voru Lyfja og Apótekið með
26-27% markaðshlutdeild fyrir sam-
runann þannig að sameinuð eru fyr-
irtækin, að óbreyttu, með 52-53%
hlutdeild. Svo há markaðshlutdeild,
auk mats á öðrum þáttum, leiddi til
þeirrar niðurstöðu Samkeppnisráðs
Smáauglýsingar DV eru öflug og ódýr
, lausn fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Ef þú þarft að koma þaki yfir höfuðið,
| grisja geymsluna heima eða lagerinn í
| fyrirtækinu, vantar starfskraft eða félagsskap
| þá er smáauglýsing í DV góður kostur.
I Auglýsingin þín birtist ekki einungis í DV
l heldur einnig á smáauglýsingavef á
I Vísi.is Þar stendur auglýsingin í viku eftir
| að hún birtist í blaðinu. Pantaðu smá-
< auglýsinguna f síma 550 5000 eða á Vísi.is.
smáauglýsingar
vísir.is
að við samrunann yrði L\fja mark-
aðsráðandi í sölu á lyfjum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá var talið að aðr-
ir keppinautar myndu ekki geta
veitt Lyfju nægjanlegt samkeppnis-
legt aðhald en næststærsti keppi-
nauturinn, Lyf og heilsa, er meö
26-27% hlutdeild. Hlutur annarra
keppinauta er hins vegar á bilinu
1-3%. Samruninn hefði því, aö mati
Samkeppnisráðs, að óbreyttu haft í
for með sér óviðunandi samþjöppun
á markaðnum og mikla röskun á
samkeppni til tjóns fyrir neytendur.
Seld til óháðra aöila
Viðræður milli samkeppnisyfir-
valda og forsvarsmanna Lyfju
leiddu th þess að fyrirtækið féllst
á að selja eftirtalin fimm apótek:
Apótekið Mosfellsbæ, Þverholti
2, Mosfellsbæ, Apótekið Smiðju-
vegi 2, Kópavogi, Apótekið Suður-
strönd 2, Seltjarnarnesi, Apótekið
Firði, Fjaröargötu 13-15, Hafnar-
firði, og Lyfju, Hamraborg 11,
Kópavogi.
Markaðshlutdeild framan-
greindra apóteka er um 14-15% af
lyfsölu á höfuðborgarsvæðinu
þannig að hlutdeild Lyfju eftir
sölu apótekanna mun verða á bil-
inu 37-38%. Stefnt skal að því að
apótekin verði seld í einu lagi til
keppinautar sem er óháður Lyfju
eða félögum henni tengdum. Með
því er reynt að stuðla að því að
samkeppnisleg staða á markaðn-
um verði sem næst því sem hún
var áður en af samrunanum varð.
Að mati Samkeppnisráðs mun um-
rædd sala á apótekum, með þeim
skilmálum sem nánar eru til-
greindir í ákvörðun ráðsins,
nægja til að eyða þeim skaðlegu
áhrifum sem samruninn hefði
annars haft í för með sér.
Síldarvinnslan og
Skipaklettur
sameinast
Stjórnir Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstað og Skipakletts hf. á
Reyðarfirði hafa undirritað áætlun
um samruna félaganna undir nafni
Síldarvinnslunnar. Hluthafar Skipa-
kletts munu eignast 20% í samein-
uðu félagi.
í tilkynningu frá Síldarvinnsl-
unni kemur fram að samruninn
miðist við 1. mars næstkomandi.
Við samrunann hækkar hlutafé
Sildarvinnslunnar hf. úr 880 millj-
ónum króna í 1.100 milljónir.
„Markmiðið með sameiningu fé-
laganna er að efla sjávarútveg í
Fjarðabyggð og ná fram hagræðingu
í rekstri með betri nýtingu á fjár-
festingum í veiðum og vinnslu,"
segir í tilkynningunni.
Skipaklettur hf. hefur til þessa
rekið einn frystitogara en allmörg
ár eru síðan fiskvinnslu í landi var
hætt á vegum félagsins.
Sildarvinnslan hf. er stærsta sjáv-
arútvegsfyrirtækiö á Austurlandi
og rekur í dag einn frystitogara,
einn ísfisktogara og þrjú skip til
loðnu- og síldveiða. Auk þess starf-
rækir félagið öfluga landvinnslu á
bolfiski og uppsjávarfíski.
Ailaheimildir Síldarvinnslunnar
hf. eru nú 6.947 þorskígildistonn og
aflaheimildir Skipakletts hf. 2.138
þorskígildistonn. Aflaheimildir
sameinaðs félags verða þannig um
9.100 þorskígildistonn.
ÞRIDJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001
x>v
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 4055 m.kr.
- Hlutabréf 339 m.kr.
- Húsbréf 1566 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
O Hlutabréfasjóðurinn 65 m.kr.
© Íslandsbanki-FBA 43 m.kr.
©Opin kerfi 34 m.kr.
MESTA HÆKKUN
oBakkavör Group 4,9%
0 Flugleiðir 3,4%
©Íslandsbanki-FBA 2,8%
MESTA LÆKKUN
O Delta 4,6%
©Eimskip 2,1%
© MP-Bio 1,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1223 stig
- Breyting o 0,16%
Óvænt tap hjá
Commerzbank
Commerzbank hefur tilkynnt að
fyrirtækið hyggist endurskipuleggja
reksturinn í kjölfar óvænts taps á
fjórða ársfjórðungi ársins 2000.
Tap bankans var 98 milljónir evra
miðað við 361 milljón evra hagnað á
sama tímabili í fyrra og voru ástæð-
ur tapsins slæmar aðstæður á fjár-
málamörkuðum. Yfir allt árið jókst
hagnaðurinn um 1,34 milljónir evra
en hagnaðurinn árið 1999 var 911
milljónir og var minni en vænting-
ar vegna þess að áhættuþóknanir
höfðu aukist í 694 milljónir sem eru
um 100 milljónum meira en spáð
hafði verið.
Bertelsmann á
leið á markað?
Þýska ijölmiðlasamsteypan hefur
gert samning sem gerir félagið að
stærstu ókeypis sjónvarpsstöð Evr-
ópu og gæti leitt til skráningar
hlutabréfa Bertelsmanns á hluta-
bréfamarkað.
Bertelsmann hefur aukið hlut
sinn í RTL, sem er stærsta ókeypis
sjónvarpsstöð Evrópu, um 30%, eða
upp í 67%. Kaupin eru greidd með
25% hlut í Bertelsmann og hefur
kaupandinn, Groupe Bruxelles
Lambert, valrétt á að láta skrá þau
hlutabréf i Kauphöllinni í Frankfurt
eftir 3-4 ár.
Bertelsmann, sem er ein stærsta
fjölmiðlasamsteypa heims, hefur frá
upphafi verið lokað einkafyrirtæki
en í dag eru um 75% hlutafjár i eigu
fjölskyldu stofnanda félagsins. Fyr-
irtækið hefur sætt nokkurri gagn-
rýni fyrir að skrá ekki hlutabréf sin
á markað og hefur m.a. veriö bent á
að núverandi fyrirkomulag komi i
veg fyrir aö hlutabréf félagsins séu
notuð sem gjaldmiðill við kaup og
yfirtökur á öðrum fyrirtækjum.
Smáauglýsingar
550 5000
UENG’i 06.02.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
fedDollar 84,400 84,830
S^Pund 124,180 124,810
1*1 Kan. dollar 55,970 56,320
KSSpönsk kr. 10,5950 10,6540
IffejNorsk kr 9,6610 9,7140
SSsænsk kr. 8,8670 8,9160
99Fl. mark 13,2979 13,3778
1 E Fra. franki 12,0535 12,1259
1 llBelg. franki 1,9600 1,9718
E3 Sviss. franki 51,4400 51,7300
CShoII. gyllini 35,8785 36,0940
*Þýskt mark 40,4257 40,6686
Oít. líra 0,04083 0,04108
ŒAust. sch. 5,7459 5,7805
: Port. escudo 0,3944 0,3967
LTTjSná. peseti 0,4752 0,4780
1 ♦ ÍJap. yon 0,73660 0,74100
L írskt pund 100,392 100,996
SDR 110,0000 110,6600
Secu 79,0657 79,5408