Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 28
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sóiarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 Bálköstur í kjallaranum Tilkynning frá öryggiskerfi veit- •ingastaðarins Ítalíu við Laugaveg 11 í Reykjavík um kl. 2 í nótt varð til þess að slökkvilið fór á vettvang. í ljós kom mikill reykur i veitingasalnum, mest- ur við bar og þar við ísvél. Reykkafarar sem fóru inn uppgötv- uðu þó að reykurinn kom frá kjallara með affallsröri. Þegar farið var í kjall- arann bakdyramegin blasti við bál- köstur sem hlaðinn hafði verið þar á miðju gólfi og því ljóst að um íkveikju hefur verið að ræða. Skemmdir á veit- ingastaðnum urðu ekki miklar vegna elds þar sem hann hafði skort súrefni en talsverðar vegna reyks og sóts sem barst um húsnæðið. -gk ^Kriiger kemur Howard Krúger er væntanlegur i stutta heimsókn til íslands í vik- unni, samkvæmt upplýsingum DV, til að fara yfir stöðuna á milli hans og Jóns Ragnarssonar, eiganda Hót- el Valhallar. Eins og fram hefur komið í DV er tilboð Bretans út- runnið en Krúger féllst á það í gær að koma til stuttra viðræðna við Jón. Krúger hefur marglýst því yfir að hann hvorki geti né vilji kaupa Valhöll fyrr en seljandi hefur geng- ið frá vafaatriðum gagnvart íslensk- 'filtm stjórnvöldum. Þau atriði hafa ekki verið leyst. Jón hefur engu að síður sagt að hann ætli að halda áfram að vinna að því að leysa um- rædd mál ef vera kynni að einhver vilji kaupa Valhöll. í síðustu viku stóð til að tilkynna Jóni það hér á landi að frekari grundvöllur til viðræðna við Krúger væri brostinn, tilboðið út- runnið og skilyrði heldur ekki upp- fyllt. Það náðist ekki þar sem ekki tókst að koma á fundi með Jóni. -Ótt Grafarvogur: Landi seldur ' ungmennum Lögreglan í Reykjavík uppgötvaði umtalsverða landaframleiðslu í hús- næði í Grafarvoginum um helgina. í framhaldi þess að upplýsingar bár- ust lögrelgunni um hugsanlega landaframleiðslu í umræddu hús- næði fóru laganna verðir á staðinn með húsleitarheimild frá Héraðs- dómi Reykjavíkur. Við leit fundust um 220 iítrar af gambra og um 20 lítrar af landa, auk framleiðslu- tækja. Grafarvogslögreglan hefur tæplega fertugan karlmann grunað- an um framleiðsluna, sem og að hafa selt ungmennum í Grafarvogi áfengið. Lögreglan er með málið í t %Cannsókn- -SMK UNGURNEMUR GAMALL SEMUR! Spennandi talning Atkvæði um samning grunnskólakennara viö launanefnd sveitarfélaga voru talin í gær i Kennarahúsinu. Mikil spenna ríkti í talningunni vegna þess aö margir töldu tvísýnt um úrslitin. Grunnskólakennarar: Samning- urinn í höfn Talningu í tví- sýnni atkvæða- greiðslu grunn- skólakennara um kjarasamning Fé- lags grunnskóla- kennara og Skóla- stjórafélagsins við launanefnd sveitar- félaga lauk um kvöldmatarleytið í gær. Liðlega 92% fé- lagsmanna greiddu atkvæði og sam- þykktu 59,5% þeirra samninginn en tæplega 37% sögðu nei. Tæplega 4% atkvæða voru auð eða ógild. Mikil spenna hafði ríkt um niður- stöðu atkvæðagreiðslunnar vegna þess að talsvert andóf fór af stað meðal kennara meðan á atkvæða- greiðslunni stóð í síðustu viku. Því óttaðist forysta Félags grunnskóla- kennara að félagsmenn þeirra kynnu að fella samninginn. í samningnum felst, auk launa- hækkunar, meðal annars fjölgun kennsludaga um 10 á skólaári og jafnari laun kennara yfir árið. -ss Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Ánægð meö samninginn Ofbeldisrán í söluturni á Háaleitisbraut í gærkvöld gaf 70-85 þúsund krónur: Peningana eða lífið öskruðu ræningjarnir - vopnaðir stórum hnífum. Óhugnanlegt, segir eigandinn „Þetta var óhugnanlegt. Mennirnir ruddust hér inn með látum, báðir vopnaðir hnífum, og annar þeirra greip dóttur mína, sem var að hjálpa mér ásamt vinkonu sinni, fyrir fram- an afgreiðsluborðið. Hann reif í hár hennar og keyrði hana upp að lottó- kassa en hinn maðurinn stökk yfir af- greiðsluborðið sem er þó í brjósthæð og greip til vinkonu dóttur minnar. Sjálfur var ég að koma í búðina innan úr eldhúsi og ég nam staðar og gerði nákvæmlega ekkert," segir Þórhallur Steingrímsson, eigandi Söluturnsins Bláa turnsins við Háaleitisbraut þar sem framið var vopnað rán um klukk- an 11 í gærkvöld. Þórhallur segir að annar mann- anna hafl kallað „peningana eða líf- ið!“ og Þórhallur sagði dóttur sinni að opna peningakassa söluturnsins og lottókassans umsvifalaust. Mennirnir Blái turninn Ræningjarnir höföu um 80 þúsund krónur upp úr krafsinu. Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaöarbankans: Neikvætt að lenda í umræðunni „Það er mjög neikvætt að lenda í svona umræðu,“ sagði Stefán Páls- son, aðalbanka- stjóri Búnaðar- banka íslands, um þann gjörning Samkeppnisstofn- Stefán unar að kæra Bún- Pálsson. aðarbankann fyrir lögregluyfirvöldum þar sem bankinn hafi vísvitandi veitt rangar og villandi upplýsingar vegna yfirtöku Grænmetis ehf. á Ágæti hf. Stefán sagði að banka- ráð hefði verið upplýst um stöðu málefna bankans á hverjum tíma. Þau ummæli, sem höfð hefðu ver- ið eftir Pálma Jónssyni, formanni bankaráðs, í fréttum þess efnis að ráðið hefði kallað eftir skýring- um frá yfirstjórn bánkans, hefðu ekki verið rétt eftir honum höfð. „Bankaráð hefur verið látið fylgjast með þessu og lögfræðing- ur bankans er að taka saman upp- lýsingar um máið fyrir banka- stjórn og bankaráð,“ sagði Stefán og bætti við að sami lögfræðingur væri með bæði mál bankans sem til rannsóknar eru hjá lögregluyf- irvöldum, þ.e. ofangreint mál, svo og mál sem er til rannsóknar vegna gruns um innherjavið- skipti með bréf Pharmaco. „Svona mál verða að ganga sinn gang,“ sagði Stefán .“Vitan- lega er vonast til að niðurstaða fáist sem fyrst. Við teljum að viö höfum upplýst um þetta mál varð- andi Samkeppnisstofnun á hverj- um tíma eins og við vissum best.“ Aðspurður hvort komið hefði komið til tals að einhverjir yfir- manna bankans yrðu látnir vikja meðan tvö mál varðandi hann væru til lögreglurannsóknar kvaðst Sterfán ekki hafa heyrt um það. „Meðan rannsókn fer fram þá er ekki sök. Það þarf að sanna hana. Ég hef ekkert heyrt um það en það er heldur ekki mitt að svara því.“ -JSS hrifsuðu þar til sín peninga, 70-85 þúsund að sögn Þórhalls, og síðan hurfu þeir jafn snögglega og þeir höfðu komið. „Þetta voru ungir menn og grannir, sennilega undir tvítugu. Þeir voru með eins konar feluhúfur yfir andlit- inu þannig að ekki sást framan í þá. Það er mikil lífsreynsla að lenda i svona nokkru og hún er ekki skemmtileg. Mestar áhyggjur hafði ég af dóttur minni og vinkonu hennar sem voru að hjálpa mér í versluninni, mér var fyrir mestu að þeim yrði ekki unnið neitt tjón og ég þorði ekki að gera neitt sem gæti stuðlað að því að æsa mennina upp. Þetta er lífsreynsla sem maður gleymir ekki í bráð,“ sagði Þórhallur í morgun en hann var þá mættur til vinnu að nýju. Að sögn lög- reglu í morgun var mannanna enn leitað og málið í rannsókn.-gk Gæði og glæsileiki smoft Csólbaðstotá") Grensásvegi 7, sími 533 3350. Utsala Ármúla 24 • sími 585 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.