Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 Fréttir X>V Einstæður atburður við dómsuppkvaðningu í máli Eggerts Haukdals á Selfossi í gær: Eggert fór meö Passíu- sálm fyrir dómarana - sakfelldur af 1/3 ákæru - áfrýjar og segist hafa endurgreitt margfalt úr eigin vasa „Kjarni málsins er að ég stóð frammi fyrir þessum sama dómi, Hér- aðsdómi Suðurlands, fyrir örfáum mánuðum. Þá var málsókn ákæru- valdsins byggð á óvandaðri rannsókn, unninni af Endurskoðun KPMG. Þá var líka óvönduð rannsókn lögreglu. Svo var ég dæmdur þungum dómi og dómarinn sem dæmdi var nátengdur KPMG. Hæstiréttur vísaði málinu svo aftur heim í hérað. Síðan liggja fyrir ný gögn í málinu og nýjar rannsóknir þar sem farið var ofan í hina óvönd- uðu rannsókn og henni er bókstaflega hnekkt. Þrátt fyrir það fæ ég enn þá þennan dóm,“ sagði Eggert. Framsóknarmenn kæröu mig Eggert kveðst vera búinn að greiða margfaldlega úr eigin vasa. „Hvað varðar fyrsta ákæruatriðið, sem ég var þó sýknaður af, er ég búinn að greiða hátt í þrefalt til baka úr eigin vasa, samtals tæpar 3 milljónir króna. Það er nú allur fjárdrátturinn. Það sem ég er sakfelldur fyrir nú er verk löggilts endurskoðanda sem ég réð til starfa og var í góðri trú að kynni til verka. Hann átti svo eftir að lýsa því yfir fyrir lögreglu og dómi að hann hefði ekki kunnað lög og reglur sem hann átti að vinna eftir. Þetta gat ég ekki um vit- að og var í góðri trú. Hvernig stendur á að dómaramir dæma mig nú fyrir verk endurskoðanda?" Eggert segir að hann hafl sætt of- sóknum. Níu sveitungar hans í Vestur- Landeyjum, allt framsóknarmenn, hefðu kært sig upphaflega í þessu sakamáli. Eggert er alfarið sýknaður af ákæru um fjársvik og umboðssvik í opinberu starfi, sem oddviti V-Landeyjahrepps, fyrir tvö mál er vörðuðu bæinn Eystra- Fíflholt sem hreppurinn hafði for- kaupsrétt að. Hann var hins vegar sakfelldur af ákæm um að hafa látið færa 500 þús- und krónur til inneignar á viðskipta- reikning sinn árið 1996, fjármuni sem höfðu veriö gjaldfærðir hjá sveitar- sjóðnum sem kostnaður vegna vega- gerðar í hreppnum án reikninga að baki færslunni. Svokölluðu mótfærsla var í fyrstu færð á Ræktunarsamband Vestur-Landeyja en síðan millifærð sem inneign Eggerts á viðskiptareikn- ing hans. DV-MYNDIR ÞÖK Eggert Haukdal ávarpaði dóminn Einsdæmi er aö sakborningar fari meö sálm fyrir fjölskipaöan dóm viö uppkvaöningu dóms. Þetta geröi Eggert í gær og mörg önnur orö féllu í dómsalnum, bæöi fyrir og eftir uppkvaöningu. Sá einstæði atburður gerðist við dómsuppkvaðningu í gær að ákærður maður í sakamáli, Eggert Haukdal, fór með Passíusálm eftir Hallgrím Péturs- son fyrir þriggja manna dóm þegar dómsformaðurinn hafði lesið upp dóms- orð sem hljóðar upp á 2ja mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi: Vei þeim dómarn er veit og sér víst hvaö um múlid réttast er vinnur það þó fyrir virtskap manns afl víkja af götu sannleikans. Ólafur Börkur Þorvaldsson dómsfor- maður spurði Eggert hvort hann hygð- ist áfrýja dóminum, una honum eða taka sér lögbundinn 4ra vikna frest til að taka ákvörðun um hina tvo kostina, ekki síst í ljósi þess að Ragnar Aðal- steinsson, verjandi Eggerts, átti þess ekki kost að vera viðstaddur dómsupp- kvaðninguna. „Ég hyggst áfrýja þessum dómi hér og nú,“ svaraði Eggert að bragði, harð- ákveðinn. Dómsformaðurinn spurði Eggert hvort hann vildi ekki lesa dóminn yflr fyrst og kanna málið með verjanda sinum. Ólaf- ur Börkur vakti at- hygli Eggerts á að hann væri sýknaður af 2/3 hlutum sakar- giftanna i ákæru ríkis- saksóknara. Eggert sagði að það breytti engu, hann lýsti yfir áfrýjun og óskaði eftir flýtimeðferð. „Óvandaöri rannsókn" hnekkt en... Þegar DV ræddi við Eggert þegar rétti hafði verið slitið sagði hann: „Ég var hér í þessum sama dómi á síðasta ári dæmdur í 6 mánaða fang- elsi skilorð, núna eru 2 mánuðir og eins árs skilorð. Þetta er slíkur dómur fyrir saklausan mann, heldur þú að mér detti í hug að una þessu?“ sagði Eggert og hann hélt áfram: í DOMSALNUM aifaJ Ottar Sveinsson Haröákveöinn í aö áfrýja Þegar Eggert Haukdal var spuröur aö því hvort hahn vildi ekki ráöfæra sig við verjanda sinn, Ragnar Aðal- steinsson, um áfrýjun kvaðst hann ákveöinn i aö áfrýja. Formannsslagur: Sóttað Hervari DV, AKRANESI:_ Kosningu til for- manns í Verkalýðsfé- lagi Akraness lýkur á fimmtudag. Kosið er milli Hervars Gunnarssonar, nú- verandi formanns, og Georgs Þorvaldsson- ar. Kosið er í póstat- Gunnarsson. kvæðagreiðslu sem lýkur kl. 17 á morg- un. Stefnt er að því að telja samdæg- urs. Þeir sem DV hefur rætt við telja að Hervar standi tæpt og fullyrða að hann hafi ekki mikinn stuðning í ál- veri Norðuráls á Grundartanga og lít- inn meðal starfsmanna íslenska Járn- blendifélagsins og í frystihúsi Harald- ar Böðvarssonar. Yngri félagar muni flestir kjósa Georg. Úrslitin geta hins vegar ráöist á atkvæðum eldri félags- manna. Georg, sem verið hefur formaður sjómannadeildar Verkalýðsfélags Akraness, er einn þeirra sem gagnrýnt hafa Hervar fyrir fjármálastjórn og gerð lélegra samninga. Það sem gæti þó riðið baggamuninn í kosningunni er að Hervar er með meiri reynslu heldur en Georg. -DVÓ Stykkishólmur: Heilsuvatnið nýtt til hins ýtrasta DVr STYKKISHÓLMI: I fundargerð bæjarstjórnar frá 11. janúar er greint frá stofnun fyrir- tækis um notkun heilsuvatns í Stykkishólmi. Þar segir að bæjarráð samþykki að ganga til samninga við 3P-Fjárhús um stofnun félags um notkun heilsuvatnsins í Stykkis- hólmi. DV hafði samband við Ásthildi Sturludóttur, starfsmann félagsins. Hún sagði að fjárfestingarfyrirtæk- ið 3-P Fjárhús muni í samstarfi við Stykkishólmsbæ halda áfram að vinna að því að nýta heita vatnið til heilsutengdrar þjónustu. Sagði Ást- hildur verkefnið vera komið eins vel af stað og bjartsýnustu menn þyrðu að vona í upphafi og væri hún vongóð um framhaldið. Hún starfar nú að þessu verkefni í fullu starfi og er jafnframt að vinna að BA-ritgerð sem mun m.a. fjalla um þetta verkefni. Ásthildur útskrifast sem stjómmálafræðingur væntan- lega i júní nk. -DVÓ/ÓJ Léttskýjað sunnanlands Norðan 8 til 13 m/s, en 13 til 18 veröa við austurströndina. Él norðan- og austanlands, en léttskýjaö sunnan- og suövestanlands. Norðan 8 til 13 m/s á Austfjörðum í kvöld, en hæg noröanátt veröur annars staöar. Frost 5 til 10 stig. Sólarlag i kvöld 17.36 18.08 Sólarupprás á morgun 09.45 08.42 Síftdegisflóft 18.03 22.36 Árdegisflóö á morgun 06.23 10.56 SUýiáaáBF á veöut'táítóiswi . VINDÁTT 10°,----------HITI ^ -10° Nv VINDSTYRKUR \ron„ í metrum á wkúndu x 1 HQÐSKÍRT 3D O LETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAO w Ö Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA "ír = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Færöin á landinu Samkvæmt upplýsingum frá Vegageröinni er búiö aö hreinsa vegi í Þingeyjarsýslum og með noröur- ströndinni, einnig um Möörudalsöræfi, Vopnafjaröarheiöi og vegi á Austurlandi. Annars eru allir helstu þjóövegir landsins færir. GREIDFÆRT KÁLT ■ÞUNGFÆRT , ÓFÆRT Hæg breytileg átt Fremur hæg breytileg átt. Skýjað meö köflum og úrkomulítiö noröan- og austanlands en annars léttskýjaö, Frost 4 til 10 stig. Fcsiiítla ______m Vindur:^^ 3-8 m/s Vindur: 8-13 irv's Hiti 3- til -10* Fiemur hæg breytileg átt. Él suóaustan tll, en víóa léttskýjab annars staöar. Frost 3 til 10 stlg. Hiti 0° til ' Austlæg átt 8-13 m/s viéast hvar. Rlgning efta slydda og hlti 0 tll 5 stig sunnan- og austanlands, en annars skýjaft meft köflum. S«ft!tt!!Ía Vindur: 3-8 Hiti 40 til _2" j Suftvestlæg efta breytlleg átt, 3-8 m/s. Rlgnlng efta slydda norfian- og austanlands, en skýjaft meft köflum í öftrum landshlutum. mmm, í AKUREYRI snjókoma -3 BERGSSTAÐIR alskýjaö -3 B0LUNGARVÍK heiöskírt -2 EGILSSTAÐIR -3 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -3 KEFLAVÍK hálfskýjaö -1 RAUFARHÖFN alskýjaö -3 REYKJAVÍK léttskýjaö -2 STÓRHÖFÐI rykmistur -2 BERGEN rigning 3 HELSINKI sóld 2 KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 4 ÓSLÓ alskýjaö -8 STOKKHÓLMUR þokumóöa 3 ÞÓRSHÖFN snjóél -1 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -5 ALGARVE rigning 13 AMSTERDAM skýjaö 10 BARCELONA þokumóöa 10 BERLÍN rigning 9 CHICAGO þokumóöa -7 DUBLIN skýjaö 7 HALIFAX snjóél -2 FRANKFURT skýjaö 10 HAMBORG skýjaö 10 JAN MAYEN snjóél -6 L0ND0N léttskýjaö 8 LÚXEMBORG MALLORCA hálfskýjað 3 MONTREAL léttskýjað -3 NARSSARSSUAQ skýjað -10 NEW YORK léttskýjaö 4 ORLANDO heiöskírt 11 PARÍS skjjaö 9 VÍN léttskýjað 3 WASHINGTON heiöskírt 6 WINNIPEG alskýjaö -17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.