Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 12
12
_______MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
Skoðun x>v
Allt flug til Kefla-
víkurflugvallar
- hugljómun samgönguráðherra
Séö yfir Vatnsmýrina.
- Áfram verður að þrýsta á um brotthvarf flugvallarins.
Spurning dagsins
Kanntu hjáip í viðlögum?
Sigurgeir Þór Helgason nemi:
Nei, en ég er nokkuð viss hvernig
bregöast á viö þegar slys ber
aö höndum.
Valdimar Guömundsson:
Já, eitthvaö, en aldrei nógu vel.
Ingólfur Kjartansson skólastjóri:
Já, ég hef sótt námskeiö.
Helga Karlsdóttir verslunarstjóri:
Já og nei, ég læröi þaö einhvern
tíma. Svo veit maöur aldrei hvernig
maður bregst viö þegar á reynir.
Elín Rut Kristinsdóttir, starfsm.
World Class:
Já, einhvern tíma fór ég á Rauða
kross-námskeiö.
Páll Jónsson nemi:
Nei, reyndar læröi ég þaö
aöeins í skóla.
Guöjón Einarsson
skrifar:
Það var í hádegisfréttum útvarps-
stöðvanna sl. mánudag að sagt var
frá þeirri hugljómun samgönguráð-
herrans að allt flug myndi flytjast
til Keflavíkurflugvallar ef kosning
um Reykjavíkurflugvöll færi þannig
að fólk vildi flugvöllinn burt úr
Vatnsmýrinni. Ekki kæmi til greina
að byggja neinn nýjan flugvöll ann-
ars staðar. Þetta er sannkölluð hug-
ljómun ráðherrans sem ekki hefur
verið neitt sérstaklega hrifxnn af þvi
að Reykjavíkurflugvöllur verði
lagður af.
Þetta er allt af hinu góða og nú
sjá Reykvíkingar fram á bjarta daga
hvað brottflutning flugvallarins í
Vatnsmýrinni áhrærir. Það eru
samt til þeir menn sem vilja halda
okkur Reykvíkingum í óttanum og
menguninni frá Reykjavíkurflug-
velli, jafnvel menn í stjórnunarstöð-
um, svo sem hjá Flugmálastjórn,
a.m.k. að einhverju leyti, svo og
þingmenn og borgarfulltrúar sem
ekki þora að koma fram í dagsljósið
og tjá sig opinberlega. - Nema Árni
Johnsen sem skelfilegt var á að
hlýða í Silfri Egils sl. sunnudag á
móti hinni hressilegu, nýju baráttu-
konu og besta vini höfuðborgarinn-
ar þessa dagana, Bryndísar Lofts-
dóttur, sem tíndi fram þau einu og
réttu rök fyrir brotthvarfi flugvall-
arins í Vatnsmýrinni.
Sumir bregðast þannig við að
telja einhver „störf ‘ fara forgörðum
og skapa jafnvel atvinnuleysi, fari
innanlandsflug til Keflavíkur. En
svo er auðvitað alls ekki. Hótel Loft-
leiðir verður áfram þar sem það er.
Flugturninn verður áfram þar sem
Svava
skrifar:
Þegar dómarar hækkuðu laun sín
um 100 þús. kr. á einu bretti og al-
þjóð hnykkti við kom hæstvirtur
forsætisráðherra léttur á brún fram
í fjölmiðlum og kvaðst ekki deila
við dómara, og þar með var málið
búið, og síðan greitt refjalaust úr
okkar sameiginlega sjóði, títtnefnd-
um ríkiskassa.
Hvað gerist nú þegar Öryrkja-
bandalagið, eftir áralanga þrauta-
göngu, reynir að leiðrétta það sem
það telur ranglega haft af sambúðar-
fólki innan þeirra raða og hæstirétt-
ur dæmir rétt vera, að ekki megi
skerða grunnrétt þeirrs, svonefnda
tekjutryggingu, 51 þús. krónur?
„Sumir bregðast þannig við
að telja einhver „störf“ fara
forgörðum og skapa jafnvel
atvinnuleysi fari innan-
landsflug til Keflavíkur. En
svo er auðvitað alls ekki. “
hann er með öllum sínum stöðugild-
um (nema kannski upplýsingafull-
trúanum nýja, sem þá verður óþarf-
ur), einnig einstaklingar sem
stunda viðhald flugvélamótora og
halda sínu striki. - Aðeins af-
greiöslufólk Flugfélagins kann að
þurfa að breyta um vinnustað en
ekki yfirgefa störf sín, því auðvitað
verður sóst eftir því fólki sem
„Hvort maður á að hlæja
eða gráta veit ég ekki þegar
maður sér viðbrögð forsœt-
isráðherra í þessu máli, og
ber saman viðbrögð hans
við þeim sterka, dómurum,
og þeim veika, örykjum...“
Þá virðist sami hæstvirtur for-
sætisráðherra fá heilagan anda
ábyrgðar til varnar okkar sameigin-
lega sjóði yfir þeim ósköpum sem á
að færa þessu fatlaða fóli, sem er
þvílíkt „hátekjufólk" sem af súlurit-
um á forsíðu Morgunblaðsins má
sjá, að slíkt og þvilíkt skulu skatt-
reynsluna hefur fengið við að inn-
rita farþega og annað sem viðkemur
innanlandsfluginu. Það myndi bara
vinna þau störf í Leifsstöð.
Og hvaö er þá annað eftir en að
þrýsta áfram á um flutning innan-
landsflugs til Keflavíkur og það
löngu fyrr en árið 2016? Úrslit kosn-
inganna um brotthvarf vallarins
verða að liggja fyrir því landsbyggð-
arþingmenn, huldumenn í borgar-
stjórn sem ekki þora að gera upp
hug sinn opinberlega og einhverjir
til viðbótar (í sendiferðum á vegum
fyrirtækja) í innanlandsfluginu
munu leita afbrigða í stjórnsýslunni
til að ná með frekjunni fram óska-
draumi sínum; að halda Reykjavik í
viðjum vanans og vætunnar í
Vatnsmýrinni.
borgarar þessa lands ekki þurfa að
greiða, hvað svo sem dómarar
dæma. Hann ætlar svo sannarlega
að sjá til þess, ásamt ráðherrum
framsóknarmanna, að skattborgar-
ar landsins þurfi ekki að blæða
nema 43 þúsundum króna í þetta
„hátekjufólk“ sem sannur sjálfstæð-
ismaður, Pétur Blöndal, oft nefnir
svo.
Hvort maður á að hlæja eða gráta
veit ég ekki þegar maður sér við-
brögð forsætisráðherra í þessu
máli, og ber saman viðbrögð hans
við þeim sterka, dómurum, og þeim
veika, örykjum, þegar greiða á úr
okkar sameiginlega sjóði. - Mér fall-
ast hendur en lítið finnst mér leggj-
ast fyrir kappann.
Grátbrosleg viðbrögð ríkisstjórnar
Dagfari
Heiðra skaltu séra Baldur...
Dagfara rak í rogastans þegar hann sá í blað-
inu að til stæði að flæma séra Baldur Vilhelms-
son úr Vatnsfirði vestra þar sem hann hefur búið
og þjónað sínu fólki svo áratugum skiptir. Reynd-
ar er séra Baldur kominn á aldur eins og það
heitir og hættur að þjóna, auk þess sem búið er
að leggja niður prestakallið hans. En Dagfara er
sama. Prestur sem svo lengi hefur setið keikur
við ysta haf í nafni Drottins á betra skilið en að
vera úthýst þegar aldurinn færist yfir. Hver vill
svo sem vera í Vatnsfirði nema séra Baldur? Dag-
fari veit ekki betur en sóknarbörnin séu farin og
fátt annað eftir en gamli presturinn, fuglarnir og
selurinn í fjöruborðinu,
Séra Baldur situr nú og skrifar biskupnum bréf
þar sem hann fer fram á að fá að vera áfram í
Vatnsfirði. Stjórnarformaðurinn í Prestssetrasjóði
stendur hins vegar klár á öllum reglum og og
prinsippum kirkjunnar: Þegar prestar hætta að
þjóna hætta þeir einnig að sitja jarðir kirkjunnar.
Ekki svo að skilja að séra Baldur þurfi að rýma
fyrir nýjum presti. Það kemur enginn í hans stað.
Prestakallið er farið og sóknarbömin líka. En séra
Baldur vill vera áfram.
Kirkjan vill selja Vatnsfjörðinn en eftirspurnin
er víst ekki mikil. Aftur á móti fengist gott verð
fyrir jörðina ef séra Baldur fylgdi. Nýríkir sportist-
Og hver myndi slá hendinni á móti
hempuklœddum presti í túnfætinum
sem messaði alla sunnudaga á þann
hátt sem séra Baldri er einum lagið?
Vatnsfjörðurinn myndi hækka margfalt
í verði ef séra Baldur vœri innifalinn.
ar úr Reykjavík vilja gjaman nálgast náttúruna
með jarðakaupum og hafa þá hunda og önnur dýr
nærri sér. Og hver myndi slá hendinni á móti
hempuklæddum presti í túnfætinum sem messaði
alla sunnudaga á þann hátt sem séra Baldri er ein-
um lagið? Vatnsfjörðurinn myndi hækka margfalt í
verði ef séra Baldur væri innifalinn. Þetta þyrfti
stjóm Prestssetrasjóðs að taka til athugunar. En
ef allt um þrýtur þarf biskup að grípa í taumana.
Það er ekki nóg að heiðra fóður sinn og móður.
Kirkjan ætti að sjá sóma sinn í því að heiðra
einnig sína bestu þjóna og þá sérstaklega þegar
þeir fara ekki fram á mikið.
Biskupinn hefur átt undir högg að sækja að
undanfórnu og þarna gefst honum kjörið tækifæri
til að bæta ímynd sína og Þjóðkirkjunnar. Hann
gæti einfaldlega blessað áframhaldandi búsetu
séra Baldurs í Vatnsfirði með beinni skírskotun i
almættið og slegið í gegn aldrei þessu vant. Eng-
inn myndi mótmæla þeirri ráðstöfun á eignum
kirkjunnar. En það er næsta víst að hávær mót-
mæli myndu bergmála úr öllum landsfjórðungum
ef aðfórin að búsetu séra Baldurs í Vatnsfirði yrði
til þess að hann þyrfti að yfirgefa heimili sitt.
Séra Baldur er samgróinn Vatnsfirðinum og fyrir
löngu orðinn órjúfanlegur hluti af landslaginu þar.
Nær væri að láta Náttúruvemdarráð fjalla um
málið frekar en kirkjuna. Hún er hvort sem er
búin að afleggja prestakall hans en hún getur
aldrei slegið séra Baldur af. Hann á heima í
Vatnsfirðinum og hvergi annars staðar - svona
eins og Guð á himnum. _ n .
Strætó allan sólarhringinn.
- Og fóik hefði frjálsar hendur
í samgöngum.
Strætó í næturakstur
Þór Þorsteinsson hringdi:
Vilji fólk taka stætisvagn á aðfanga-
dagskvöld í jólamatinn kann það að
ganga upp, en það fær ekki strætó til
baka. Sama ástand er á gamalárs-
kvöld, einnig um páska, hygg ég. í
Kaupmannahöfn ganga lestar í út-
hverfm. Á hátíðum hætta lestar
snemma kvölds, en þá taka við stræt-
isvagnar, svo að fólk á þess kost að
komast fram og til baka fram eftir
nóttu. Hér þyrftu strætisvagnar að
aka næturlangt. Með því móti tæmd-
ist t.d. miðborgin mun fyrr um helgar,
og fólk hefði frjáslari hendur um ferð-
ir í borginni. - Það er eins gott að nú-
verandi forstjóri SVR er ekki þjálfari
fótboltaliðs...
Sleppum ekki Jónínu
Framsóknarmaöur skrifar:
Mér sýnist sem
línur hafi lítt
skýrst varðandi
varaformannsfram-
boð í Framsóknar-
flokknum á meðan
allt að átta manns
eru tilnefndir. Ég
er þeirrar skoðun-
ar, að aðeins einn
þeirra þingmanna
sem tilnefndir eru
til varaformanns sé
hæfastur, nefnilega
Jónína Bjartmarz,
lögfræðingur og
þingmaður flokksins. Ekki bara af því
að hún er kona, heldur vegna þess að
hún hefur komið einstaklega vel fyrir
sem talsmaður í hinum ýmsu málum
sem hún hefur komið að. Ekki síst í
málinu um öryrkjadóminn sem glögg-
ur málafylgjumaður og stjórnmála-
maður. Hún gæti vel orðið formaður í
beinu framhaldi siðar.
Sveitarstjórinn og
öryrkjarnir
J.M.G. skrifar:
Nú vill sveitarstjóri Dalabyggðar
láta öryrkja og ellilífeyrisþega í Reykja-
vík borga skattana fyrir forstjóra
Byggðastofnunar. Margt hefur nú
landsbyggðamönnum dottið í hug til að
halda fólki kyrru á þeim stöðum þar
sem enginn vill vera, en sjálfsagt slær
þetta allt út. Öll blöð eru full af viðtöl-
um við fólk sem flýr af landsbyggðinni
og auð húsin standa eftir. Fróðlegt
verður að sjá hvernig þingmenn
Reykjavíkur bregðast við þessu síðasta.
Enginn rakstur!
Gulli hringdi:
Hún var
skemmtileg
hugmynd
Torfa Geir-
mundsson-
ar rakara
og félaga
hans Har-
aldar Dav-
íðssonar að raka hátt á annað hund-
rað manns sl. laugardag. Og það
ókeypis!. En ósköp fannst mér þetta
eitthvað nútímalegur rakstur, að nota
ekki hnifmn. Hvergi er eins litið um
rakstur karla á rakarastofum og hér.
Um alla Evrópu og í Bandaríkjunum
eru rakarar uppteknir við rakstur.
Þar liggur mönnum líka ekki lífið á
eins og hér. Og þar raka allir með
hníf. Og það er gaman að sjá hnífinn
leika í höndum á vönum rökörum.
nvl Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.ls
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11,105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Torfi mundar græjurnar.
- Hnífurinner skemmtilegri.
Jónína Bjart-
marz alþm.
- Hefur hlotiö lof
fyrir framgöngu
sína sem giöggur
máiafyigiumaöur.