Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Qupperneq 22
26 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 DV Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 95 ára______________________ Guörún S. Pétursdóttir, Víöimel 44, Reykjavík. 85 ára______________________ Bjarni Jörgensson, Vitastíg 17, Reykjavík. María Björnsdóttir, Kleppsvegi 62, Reykjavlk. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Rauðalæk 41, Reykjavik. 75 ára______________________ Eyjólfur Arthúrsson, Ásgarði 3, Reykjavík. Helga Sólveig Jensdóttir, Vanabyggð 7, Akureyri. Sverrir Jónatansson, Grænumýri 6, Seltjarnarnesi. 70 ára________________________ Sigurður Þorsteinsson, Bjarnahóli 2, Höfn. Þórhallur Þ. Jónsson, Kópavogsbraut 111, Kópavogi. 80 ára_________________________ Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Lundi, Varmahlíð. Gíslína Kristjánsdóttir, Birkihæð 10, Garðabæ. Marinus Schmitz, Vesturbergi 18, Reykjavík. Nanna Kristín Bjarnadóttir, Kringlumýri 27, Akureyri. Sigtryggur Björnsson, Héðinsbraut 7, Húsavík. Sigþór Koch Jóhannsson, Lundarbrekku 4, Kópavogi. /algeröur Eisa Pétursdóttir, Krókahrauni 4, Hafnarfirði. Fjóla Runólfsdóttir bóndi, Skarði, Holta- og Land- sveit. Hún tekur á móti gestum á Laugalandi laug- ardagskvöldið 3.3. frá kl. 20.00. Bjarni Sigurðsson, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Guölaug M. Jónsdóttir, Holtagerði 45, Kópavogi. Hallgrímur Guðmundsson, Helluhóli 7, Hellissandi. Hlíf Anna Dagfinnsdóttir, Hraunbæ 18, Reykjavík. Jevdokia Vitkovskaja, Langholti 6, Þórshöfn. Loftur Jóhannsson, Salthömrum 5, Reykjavík. Magnús R. Sigurðsson, Hnjúki, Blönduósi. Margrét Rannveig Jónsdóttir, Öldugranda 7, Reykjavík. Sævar Friðrik Sveinsson, Jakaseli 27, Reykjavík. Þórey Kristín Guöbjartsdóttir, Garðaflöt 7, Stykkishólmi. Ægir Jónsson, Klapparbergi 29, Reykjavík. 40 ára_______T__________________________ Ágúst Viðar Árnason, Öldugranda 3, Reykjavík. Áslaug Kristinsdóttir, Klukkurima 16, Reykjavík. Elín Huld Haildórsdóttir, Efstahjalla 13, Kópavogi. Elsa Gunnarsdóttir, Ásavegi 27, Vestmannaeyjum. Patricia Segura Valdes, Skipasundi 4, Reykjavík. Vilborg Guðnadóttir, Bæjargili 91, Garðabæ. Þóra Sigurðardóttir, Efstasundi 70, Reykjavík. Þórólfur Kristján Sverrisson, Hátúni 21, Eskifirði. Andlát Ingigerður Jónsdóttir, Vesturgötu 7, Reykjavík, andaöist á Landspítalanum í Fossvogi laugard. 3.2. Guðmunda Sigurlaug Pétursdóttir lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, 2.2. Sigríður Hulda Einarsdóttir, Árskógum 8, Reykjavík, andaðist á Landspítalan- um, Fossvogi, að kvöldi fimmtud. 1.2. Arne Friörik Kristensen frá Þormóðsstöð- um, Starhólma 4, Kópavogi, lést á líknar- deild Landspítalans, Kópavogi, 4.2. Hildur Bjarnadóttir, Árvegi 8, Selfossi, lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnud. 4.2. Ari Birgir Pálsson, Vestmannabraut 51b, Vestmannaeyjum, er látinn. Jóhanna Kristvinsdóttir, Gillastöðum, Dalasýslu, lést laugard. 3.2. Sjöfn Marta Haraldsdóttir, Eiöistorgi 15, Seltjarnarnesi, lést í Taílandi 3.2. 50 ara Fímmtugur / Hermann Oskarsson dósent við Háskólann á Akureyri Dr. Hermann Óskarsson, dósent í félagsfræði við HA, Höfðahlíð 8, Ak- ureyri, nú að 7, Robert Way, Wiven- hoe C07 9JG, Colchester, Essex á Englandi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Hermann fæddist á Húsavík en ólst upp á Laugum í Reykjadal og i Blönduhlið í Skagafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1972, Fil.kand.-prófi í félagsfræði við Há- skólann í Gautaborg 1980, prófum í uppeldis- og kennslufræði við KHÍ 1989 og doktorspróf í félagsfræði við Háskólann í Gautaborg 1996. Hann var í rannsóknarleyfí við Háskólann í Gautaborg 1994, var Fulbright gistifræðimaður við Wisconsinháskóla í Madison 1997 og er nú gistifræðimaður í boði Há- skólans í Essex á Englandi til 2001. Hermann stundaði sveitastörf á unglingsárunum, var bygginga- verkamaður á Laugum í nokkur sumur og í New York 1969, starfs- maður við Kísiliðjuna við Mývatn þrjú sumur, var gjaldkeri Norður- verks við Laxárvirkjun og veiði- vörður víð Laxá 1972, starfsmaður við Kleppsspítala 1974-1975, starfs- maður við Sumarhótelið á Laugum 1976 og starfsmaður á stofnunum fyrir þroskahefta í nágrenni Gauta- borgar 1977 og 1978. Hermann var forfallakennari við Héraðsskólann á Laugum 1976, stundakennari við MA 1988, kenndi við VMA 1986-95, lektor í félags- fræði við HA 1987-97 og er dósent þar frá ársbyrjun 1997. Hann sinnti námsráðgjöf við MA 1986-88, við VMA 1986-88 og kenndi á vegum verkalýðsfélagsins Einingar og Ak- ureyrarbæjar 1990-93. Hermann sat í Rannsóknarnáms- ráði félagsfræðideildar Háskólans i Gautaborg 1981-84, var formaður Félags starfsfólks við HA 1991—92, sat í kennslumálanefnd HA 1992-93, var formaður samninganefndar Fé- lags háskólakennara á Akureyri 1992-93, formaður tölvunefndar HA 1997-2000, hefur verið formaður dómnefndar um lektorshæfi og dós- enthæfni, fulltrúi kennara í Há- skólaráði HA frá 1999, varaforseti háskólaráðs HA og staðgengill rekt- ors frá 1999 auk þess sem hann hef- ur gegnt fjölda annarra stjórnunar- og trúnaðarstarfa fyrir HA. Hermann sat i stjórn Félags ís- lenskra námsmanna í Gautaborg og nágrenni 1977-78, var fulltrúi SÍNE í Gautaborg 1977-78, sat í trúnaðar- ráði stúdentagarðsins í Gautaborg frá 1977-78, sat í stjórn Félag félags- fræðinga í Gautaborg 1986-87, sat i framkvæmdaráði Samfylkingarinn- ar á Norðurlandi eystra 1999-2000, og var varafor- maður Samfylk- ingarinnar á Norðurlandi eystra 2000 Fjölskylda Kona Her- manns frá 1992 er Karín María Sveinbjörnsdótt- ir, f. 12.10. 1951, framhaldsskóla- kennari. Hún er dóttir Svein- björns Kristjáns- sonar, f. 23.11. 1923, búsettur í Garðabæ, og Sylvíu Kristjáns- son, f. 25.3. 1924, d. 27.10. 2000. Dóttir Her- manns og Karín- ar er Sylvía Ósk Hermannsdóttir, 24.10. 1994, nemi. Kjörsonur Hermanns frá fyrra hjónabandi er Arnar Freyr S. Her- mannsson, f. 28.4.1985, nemi. Börn Karínar frá fyrra hjóna- bandi eru Árni Þór Erlendsson, f. 15.5. 1976, starfar við tölvunar- og kerfisþjónustu, en unnusta hans er Hildur Elísabet Ingadóttir, f. 8.8. 1975, bankastarfsmaður; Harpa Ýr Erlendsdóttir, f. 9.2. 1978, aðstoðar- maður iðjuþjálfa, en sambýlismaður hennar er Halldór Víglundsson, f. 30.8. 1975, sjúkraþjálfari. Systkini Hermanns: Friðrik Ágúst Óskarsson, f. 13.5. 1949, stór- kaupmaður, búsettur í Mosfellsbæ; Knútur Óskarsson, f. 23.2. 1952, framkvæmdastjóri, búsettur í Mos- fellsbæ; Una María Óskarsdóttir, f. 19.9. 1962, búsett í Kópavogi. Foreldrar Hermanns eru Óskar Ágústsson, f. 8.11.1920, íþróttakenn- ari, og k.h., Elin Friðriksdóttir, f. 8.8. 1923, húsmæðrakennari. Þau voru lengst af búsett á Laugum en eru nú búsett í Reykjavík. Hermann er að heiman í dag. Sjötíu og fimm ára Jón Finnsson hæstaréttarlögmaður Þorvaldur Ásgeirsson verkamaður í Vestmannaeyjum Jón Finnsson hrl., Sunnuvegi 9, Hafnar- flrði, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Jón fæddist á ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1946, prófi í lög- fræði frá HÍ1951, stund- aði nám í sjórétti og flugrétti við háskólana í Hamborg og Frankfurt am Main 1957, öðlaðist hdl.-réttindi 1959 og hrl.-réttindi 1965. Jón var fulltrúi hjá bæjarfógetan- um í Hafnarfirði og sýslumanninum í Gullbringu-og Kjósarsýslu 1951-66, jafnframt lögreglustjóri á Keflavík- urflugvelli 1951-54 og sýslumaður og bæjarfógeti í forfóllum 1960-62. Jón starfrækti lögmannsstofur i Reykjavík, ásamt Birni Svein- björnssyni hrl., 1966-73, Skúla J. Pálmasyni hrl. 1966-93, Sveini Hauki Valdemarssyni hrl. 1966-99 og Kristni Hallgrímsson hrl. frá 1989. Hann var dómari í Félagsdómi 1966-67, varadómari í Kjaradómi 1971-77, aðalmaður í Kjaradómi og Kjaranefnd frá 1977 og formaður Kjaradóms 1988-93, varadómari í Hæstarétti 1977-79 í málum, kennd við Varið land, og setudómari í ýmsum málum i Hæstarétti. Jón sat i stjórn Orators 1947—18, í stjórn Stangaveiðifélags Hafnar- Qarðar og formaður þess 1970-74, formaður Landssambands Stanga- veiðifélaga 1970-73, í stjóm LMFÍ 1975-77, í jafnlaunaráði 1973, jafn- réttisráði 1976-77, var stj órnarformaður steypustöðvarinnar BM Vallá ehf. 1970-90 og hefur setið í opinberum nefndum. Fjölskylda Eiginkona Jóns: Kristbjörg Jakobsdóttir, f. 16.5. 1926, cand phil. og húsfreyja. Hún er dóttir Jakobs Karlsson- ar, f. 15.8. 1885, d. 22.6. 1957, skipaaf- greiðslumanns og bónda í Lundi á Akureyri, og k.h., Kristínar Sigurð- ardóttur, f. 1.11. 1881, d. 30.1. 1957, húsfreyju. Dóttir Jóns og Kristbjargar er Kristín, f. 30.12. 1961, BA og hús- freyja í Hafnarfirði, gift Ásbirni Sig- þóri Snorrasyni, bifreiðasmið og rafeindavirkja, og eru börn þeirra Kristbjörg Tinna, f. 1985, Jón, f. 1992, Tindur Orri, f. 1995, og Ylfa Hrönn, f. 1997. Systkini Jóns: Þuríður, f. 27.6. 1915, d. 25.10. 1993, húsmóðir í Reykjavík; Birgir, f. 19.5.1917, fyrrv. framkvæmdastjóri og alþm. í Reykjavík; Ásta, f. 10.9. 1919, hús- freyja í Reykjavík; Ingibjörg, f. 19.10. 1921, fyrrv. verslunarmaður; Finnur, f. 29.1. 1923, d. 23.10. 2000, skipasmiður og handíðakennari. Jón og kona hans eru erlendis. Foreldrar Jóns voru Finnur Jóns- son, f. 28.9. 1894, d. 30.12. 1951, fram- kvæmdastjóri, alþm. og ráðherra, og f.k.h., Auður Sigurgeirsdóttir, f. 2.4. 1888, d. 20.6. 1935, húsmóðir. Þorvaldur Ásgeirs- son, fyrrv. verkamað- ur, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, er áttræður í dag. Starfsferill Þorvaldur fæddist á Blönduósi og átti þar heima til 1971 að und- anskildum árunum 1938-40. Þá bjó hann hjá Hrefnu, systur sinni, og manni henn- ar, sr. Marinó Kristinssyni að Valla- nesi á Völlum. Hann var siðan í. Reykjavík, starfaði í efnalauginni Glæsi og var í Bretavinnu. Þá æfði hann hnefaleika hjá Guðmundi Ara- syni í Ármanni. Þorvaldur var á vetrarvertíðum suöur með sjó og i Vestmannaeyjum og á síld nokkur sumur. Á Blönduósi stundaði hann m.a. múr- verk, vann á vélaverkstæðum og var síðustu starfsárin þar verkstjóri hjá Blönduósbæ. Þorvaldur og fjölskylda hans fluttu í Hafnarfjörðinn 1971. Þar vann hann í skipasmíðastöðinni Dröfn, í Reykveri og við logsuðu og rafsuðu i Berki hf. í fimmtán ár. Hann og kona hans fluttu til Vest- mannaeyja 1997 og hafa átt þar heima síðan. Þorvaldur stundaði hesta- mennsku og söng með karlakórum og kvartett Jónasar Tryggvasonar. Fjölskylda Þorvaldur kvæntist 8.6. 1946 Sig- urborgu Gísladóttur, f. 27.4. 1923, húsmóður. Foreldrar hennar voru Gísli Guðmundsson og Sigríður Guðmunds- dóttir. Sigurborg ólst upp á Svarthamri í Álftafirði hjá Ásgeiri Kristjánssyni og Hin- riku Sigurðardóttur. Börn Þorvalds og Sigurborgar eru Ás- geir Ingi Þorvaldsson, f. 16.7. 1948, kvæntur Guðfinnu Sveinsdóttur og eru börn þeirra Sveinn og Borgþór en börn Ásgeirs og Sigrúnar Pálsdóttur eru María og Þorvaldur; Hrefna Þor- valdsdóttir, f. 29.12. 1951, húsfreyja að Árnesi í Trékyllisvík, en maður hennar er Valgeir Benediktsson og eru börn þeirra Ingibjörg, Elísa Ösp og Rakel; Olgeir Þorvaldsson, f. 19.2. 1961, búsettur að Hauganesi við Dal- vík, en kona hans er Sigríður Ósk- arsdóttir og eru börn þeirra Helena Dögg, Einar Björgvin og Sigurborg Lilja. Systkini Þorvalds: Hrefna, nú lát- in; Sigríður, nú látin; Ása Sigur- björg, nú látin; Kristín Arndís; Soff- ía Ingibjörg; Olga, nú látin; Helga Maggý, nú látin; Zophonías; Val- garð, nú látinn. Systursonur og uppeldisbróðir Þorvalds var Hrafn, nú látinn. Foreldrar Þorvalds voru Ásgeir Þorvaldsson, f. 1881, d. 1961, múrari á'Blönduósi, og Hólmfríður Zophon- íasdóttir, f. 1889, d. 1955, húsmóðir. Merkir Islendingar Ragnar í Smára fæddist í Mundakoti á Eyrarbakka 7. febrúar 1904, sonur Jóns Einarssonar hreppstjóra og Guðrúnar Jó- hannsdóttur. Meðal barna hans er Jón Óttar, fyrsti sjónvarpssjóri Stöðvar 2. Ragnar flutti sextán ára til Reykja- víkur, lauk verslunarprófi 1922, stund- aði afurðarsölu fyrir bændur um skeið, varð forstjóri og annar aðaleig- enda smjörlikisgerðarinnar Smára, stór eignaraöili í smjörlíksgerðinni Sól, starfrækti Víkingsprent og Helga- fell, eitt stærsta bókaforlag landsins. Ævistarf og köllun Ragnars fólst í því að styrkja og hvetja unga rithöfunda og listamenn. Sú köllun gerði hann að áhrifa- mesta menningarfrömuði þjóðarinnar. Hann Ragnar í Smára kynntist Þórbergi og Halldóri Laxness hjá Er- lendi í Unuhúsi og gaf út verk þeirra, auk verka Gunnars Gunnarssonar, Tómasar, Steins og Davíðs. Þá var hann fyrsti út- gefandi flestra skálda af næstu kynslóð, styrkti fjölda íslenskra myndlistar- manna, var hvatamaður að stofnun Tónlistarskólans og stofnaði, ásamt Þorvaldi Thoroddsen, Tónlistarfélagið sem öðrum félögum fremur lagði grunninn að íslensku tónlistarlífi. Ragnar var upphaflega mjög vinstri sinnaður en umpólaðist og var sjálfstæð- ismaður upp frá þvi. Hann beitti sér mjög gegn bandaríska herstöðvarsjónvarpinu og stjórnaði kosningabaráttu og forsetakjöri Kristjáns Eldjárns 1968. Ragnar lést 1984. Útför Sigríðar Eyglóar Þórðardóttur, Vesturbergi 74, Reykjavík, fer fram frá Fella- og Hólakirkju 12.2. kl. 15.00. Útför Kjartans Jónssonar, týrrv. leigubif- reiðarstjóra, Kleppsvegi 46, fer fram frá Áskirkju föstud. 9.2. kl. 13.30. Gunnþór Guðjónsson frá Fáskrúösfiröi, Seljabraut 18, Reykjavík, veröurjarö- sunginn frá Seljakirkju 8.2. kl. 13.30. Óskar Sveinbjörn Ingvarsson, Brekku- byggö 83, Garðabæ, verðurjarðsunginn frá Vídalínskirkju, Garöabæ, miðvikud. 7.2. kl. 13.30. Björn Stefánsson, Grænuhllö 13, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Dóm- kirkjunni fimmtud. 8.2. kl. 13.30. Birgir G. Frímannsson verkfræöingur, Baröaströnd 27, Seltjarnarnesi, veröur jarðsunginn frá Seltjarnameskirkju miövikud. 7.2. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.