Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Side 2
2 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Fréttir X>V Harkaleg átök milli Félags nuddara og skólastjóra Nuddskóla íslands: Skólastjóri læstur úti - skipt um skrár í hurðum. Stjórnin sagði af sér á átakafundi í gær Ágreiningur er risinn milli stjómar Félags íslenskra nuddara og Guðmundar Skúla Stefánssonar en hann hefur verið hefur skóla- stjóri Nuddskóla íslands sem rek- inn er af félaginu. Guðmundur Skúli var skólastjóri Nuddskólans samkvæmt samningi sem átti að gilda fram til vors 2002 og mun hafa verið óuppsegjanlegur. Guð- mundi Skúla var hins vegar vísað á dyr í skólanum í febrúarbyrjun. Hann gerði tilraun til að mæta áfram til vinnu en þá var búið að skipta um skrár í hurðum skólans. Ástæða uppsagnarinnar munu vera samstarfsörðugleikar milli skólastjóra og stjórnar. Átakafund- ur var haldinn á Hótel Lind í gær þar sem sú niðurstaða varð að stjómin sagði öll af sér. Guðmundur Skúli Stefánsson staðfesti aö honum hefði verið sagt upp vegna samstarfsörðugleika en vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið að öðru leyti. „Þetta er ekk- Skólastjóranum vísaö frá Þegar Guðmundur Skúli Stefánsson, skólastjóri Nuddskólans, mætti til vinnu í byrjun febrúar kom hann að luktum dyrum. ert til að tjá sig um. Málið verður í byrjun næsta mánaðar," sagði tekiö fyrir á aðalfundi seem verður hann. Jóhanna Haralds formaður Fé- lags íslenska nuddará neitaði að upplýsa um hvað ágreiningurinn snérist en eftirfarandi yflrlýsing barst DV frá stjórn félagsins skömmu eftir samtalið: “Vegna óánægju stjórnar Félags íslenskra nuddara með störf skóla- stjóra Nuddskóla íslands var grip- ið til þeirra aðgerða að víkja hon- um frá störfum. Félagsfundur var haldinn þann 25.2. 2001 þar sem hreinskiptar umræður fóru fram. Þessi ákvörðun stjórnar stendur, en vegna ásakana um að eiginhags- munir hafi að einhverju leyti stað- iö á bak við hana tók stjórn þeirri áskorun fundarins að segja af sér og verður boðað til aöalfundar fljótlega þar sem ný stjórn verður kosin.“ Aðspurð um ágreiningsefnið sagði Jóhanna: “Þetta er innanhússmál sem tek- ið veröur á hér.“ -ss Norðmenn vilja íslenskt kvótaár Terje Martinussen, framkvæmda- stjóri samtaka norskra fiskvinnslu- stöðva, hefur lagt til að Norðmenn fari að fordæmi íslendinga og heíji kvótaárið 1. september ár hvert. Martinussen segir að með því að enda kvótaárið á sumarleyfum líkt og gert sé á íslandi sé hægt að auka framleiðni í norskum fiskvinnslu- fyrirtækjum og ná fram jafnari framleiðslu án þess að þurfa að senda starfsfólkið heim utan sumar- leyfistímans. Þá geti sjómenn tekið sumarfri á sama tíma og aðrir starfsmenn í sjávarútvegi. Þessi skoðun Martinussen kemur fram í viötali við norska ríkisút- varpið í Finnmörku en greint er frá málinu á fréttavef IntraFish. Hann segir að reyndar geti það reynst Norðmönnum erfiðara að hefja kvótaárið 1. september en íslending- um vegna þess að Noregur stjórni veiöum á ýmsum stofnum í félagi við aðrar þjóðir._____-DVÓ Stolnir veglyklar koma í leitirnar Nokkuð hefur verið um það að fólk hafi stolið veglyklum úr bílum og ætlað að notfæra sér að komast frítt í gegnum Hvalfjarðargöng. Engin hætta er á því aö þjófar kom- ist frítt í gegn aö sögn Marinós Tryggvasonar, starfsmanns Spalar, sem á og rekur Hvalíjarðargöng. Bróðurparturinn af þeim 30-40 lykl- um sem stolið hefur verið hafa kom- ið í leitirnar. Um síðustu helgi var stolið lykli úr bíl sem var opinn en sá ökumaður hefur ekki þorað að vera á ferðinni enda auglýsti eig- andinn rániö í útvarpinu á þriðju- dag. „Þeir sem stela veglyklum komast ekki í gegn því við myndum bifreiðar um leið og þær koma aö gjaldsskýli," segir Marinó. Hann segir að í dag séu um 11.700 veglykl- ar í umferö. Hann segir mikla aukn- ingu vera í sölu á veglyklum. í jan- úar voru seldir 160 veglyklar og sal- an er talin þekk í febrúar. -DVÓ Jeppa- og vélsleða- fólk aðstoðað Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu jeppa- og vélsleðamenn sem höföu verið á ferð á Hellisheiði og utan Gjá- bakkavegar inn að Skjaldbreið í gær- kvöld. Þá hafði brostið á með byl og slæmu skyggni. Ekkert amaði að ferðalöngunum en þeir þurftu aðstoð til aö komast. „Það var vitað hvar þetta fólk var,“ sagði lögreglumaður á Selfossi. -Ótt DV-MYND PJETUR Blóm handa Merði Mörður og Evróvisjónfararnir voru kampakátir við afhendingu blómvandarins í gærkvöld. Sátt hefur náöst í Evróvisjóndeiiunni. Sættir takast í Evróvisjóndeilunni: Mörður meiri maður - eftir að hafa bakkað, segir Kristján Gíslason söngvari Popparamir Gunnar Ólason og Kristján Gíslason réttu fram sáttahönd í Evróvisjóndeilunni í gærkvöld þegar þeir færðu Merði Ámasyni blómvönd á heimili hans við Laugaveg. Sem kunnugt er hefur Möröur ákveðið að draga til baka tillögu sina um að framlag íslands til Evróvisjón- keppninnar í ár skyldi sungið á ís- lensku, eftir harða gagnrýni hljóm- listamanna. „Þú ert meiri maður fyrir vikið," sagði Kristján við Mörð að aflokinni af- hendingu veglegs blómvandar til að inn- sigla sögulegar sættir. Söngvaraparið lagði áherslu á að aldrei hefði verið um að ræða óvild í garð Marðar af þeirra hálfu á meðan umræða málsins stóð. Mörður tók poppurum með virktum og bauð heimabakaðar bollur fyrir blómvöndinn. Að því loknu viðmðu gestir og gestgjafinn það sem lá á bak viö skoðanir þeirra í Evróvisjónmál- inu. „Meiningin var aldrei að ganga gegn vilja tónlistarmanna heldur var hug- myndin að koma til móts við þann stóra hóp sem vill gera íslenskunni hærra undir höfði," sagði Mörður. Söngvaraparið lýsti erfiðleikunum sem fylgdu því að syngja á móðurmál- inu. „Þetta er mikið til spurning um pen- inga því það er erfitt að fá fjármagn í þessa ferð ef lagið er sungið á íslensku," segir Gunnar. Poppararnir sögðu nú aðeins eitt standa í vegi fyrir því að þeir kæmust til Kaupmannahafnar. „Við eigum bara eftir að velja okkur pils,“ segja Gunnar og Kristján Evró- visjónfarar. -jtr Dorg-meistari Styrmir Gíslason sigraði í dorgveiðikeppni á Arnarvatni á laugardaginn. Jeppadeild Útivistar og Arctic Trucks stóðu yrir keppninni.Styrmir sem veiddi stærsta fisk dagsins tekur við verðlaunum úr hendi Lofts Ágústssonar. Ungir vilja Björn Sigurður Kári Kristjánsson, for- maður Sambands ungra sjálfstæðis- manna hefur lýst því yfir að hann væri þeirrar skoðunar að best væri að Björn Bjarnason leiddi lista Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Siv vinsæl Samkvæmt niður- stöðu atkvæða- greiðslu lesenda stjórnmálavefs Vís- is.is nýtur Siv Frið- leifsdóttir mests stuðnings til emb- ættis varaformanns Framsóknarflokks- ins af þeim fimm einstaklingum sem spurt var um. Lesendur gátu gert upp á milli þeirra Sivjar, Guðna Ágústs- sonar, Jónínu Bjartmarz, Kristins H. Gunnarssonar og Ólafs Arnar Har- aldssonar, sem öll hafa ýmist þegar boðað framboð í varaformannsemb- ættið eða gefið í skyn að slíkt fram- boð sé vel hugsanlegt að þeirra hálfu. Skjálftavirkni Um helgina varð vart talsverðrar skjálftavirkni bæði á Suðurlandi og í norðanverðum Vatnajökli. Skjálftavirknin var á bilinu 2 til 3 á Richter en ekki er talið að ástæða sé til að óttast að sterkari skjálftar fylgi í kjölfarið. Stöð tvö sagði frá. Eldur undir sundlaug Eldur kviknaði undir sundlaug Breiðholts í Austurbergi klukkan 17 í gær. Þegar slökkvilið kom á staðinn reyndist hér vera um að ræða aðstöðu nemendafélags Fjölbrautaskólans í Breiðholti en hún er í kjallara sund- laugarinnar. Nokkrir nemendur skól- ans voru í húsinu þegar eldurinn kom upp. Ekki er vitað um upptök eldsins, en talið er að kviknað hafi í sófa. Rannsakar smygl Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra hyggst láta fara fram rannsókn á sögum um að mikið magn fíkniefna hafi komist til landsins í gegnum Vestmannaeyjar vegna þess að fjár- 1 skortur hamlaði rannsókn. Berrassaður Sjálfstæðisflokkur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar- stjóri í Reykjavík, sagði í viðtali við Dag að sér fyndist síendurtekin um- ræða sjálfstæðis- manna um hver eigi að leiða borgar- I stjórnarflokk þeirra grátbrosleg. Umræðan endurspeglaði algeran glundroða í þeirra röðum. Reykjavíkurlistinn í einu lagi í sama viðtali segir Ingibjörg Sól- rún að sér fyndist rangt hjá hverj- um þeim flokki sem stendur að Reykjavikurlistanum að kljúfa sig frá honum fyrir komandi kosning- ar. Sér fyndist það þá ekki bera vott um að hagsmunir borgarinnar og borgarbúa sætu í fyrirrúmi. Mikið brunatjón í fyrra Bunatjón í fyrra var margfalt miðað við tjón á ári undanfarin 20 ár eða nærri tveir og hálfur millj- arður króna. Að jafnaði valda 5 til 10 brunar á ári helmingnum af brunatjóninu. Ástæðan fyrir því að árið í fyrra sker sig svona úr hvað brunatjón varðar er stórbruninn hjá Isfélaginu í Vestmannaeyjum. ruv.is sagði frá. -jtr/ss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.