Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 13
13 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Útlönd Colin Powell átti fundi með Arafat og Sharon í gær: Leggur áherslu á frekari íhlutun Bandaríkjamanna Utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Colin Powell, hvatti i gær ísraela og Palestínumenn til að binda enda á ofbeldi þjóðanna og leita sátta eftir átök undan- farna fimm mánuði sem kostað hafa 400 manns lífið. Powell, sem er nú í fór um Miðaustur- lönd, átti í gær fund með Ariel Sharon, forsætisráðherraefni ísraels, og Yasser Arafat, forseta Palestínu. Að loknum fundinum með Arafat, sem fram fór í bæn- um Ramallah á Vesturbakkan- um, sagði Powell í ávarpi að Bandaríkin myndu halda fast við þá stefnu að leiða friðarferl- ið í Miðausturlöndum undir stjórn George W. Bush forseta. Powell, sem hóf fór sína í Eg- yptalandi, átti einnig fund með Ariel Sharon í Jerúsalem en hélt að því búnu til Jórdaníu. Powell mun einnig heimsækja leiðtoga Sýrlands, Kúveits og Sádi-Arabíu. Hundruð mótmælenda þustu út á götur þegar Powell og Ara- fat ræddust við í Ramallah og sögðu utanríkisráðherranum „að fara heim“. Talið er að aílt að 2500 mótmælendur hafi verið þar samankomnir. Brugðu þeir m.a. á það ráð að hrópa vígorð að Powell i gegnum hljóðnema. Þá brenndu mótmælendur ísraelska þjóðfána og myndir af Powell. Á sameiginlegum fréttamanna- Colin Powell og Arafat í Ramallah Powell og Arafat takast I hendur á fundi þeirra í gær. fundi sem Powell og Arafat héldu að loknum viðræðum þeirra kvartaði Arafat m.a. undan því að af fundi þeirra hefði ekki getað orðið nema með hjálp Abdullah Jórdaníukon- ungs. Lét Arafat í það skína að ísra- elsk yfirvöld hefðu bannað honum að ferðast á þyrlu sinni frá Gaza að Vesturbakkanum. Sagði Arafat að málið hefði verið i hnút og engin lausn fundist fyrr en Abdullah hefði lánað Arafat einkaþyrlu sína. Skrif- stofa ísraelska forsætisráðuneytis- ins vísaði ásökunum Arafats á bug. Nokkrir Palestínumenn skutu og særðu tvo ísraela í Jerúsalem í gær meðan heimsókn Powells stóð yfir. ísraelskur ökumaður særðist á höfði er nokkrir Palestínumenn skutu að bifreið hans. Þá særðist kona á höndum og fótum nærri Ofra á Vestur- bakkanum eftir skotárás frá nokkrum Palestínumönnum. Einn Palestínumaður a.m.k. særðist einnig þegar til átaka kom í borginni Hebron. Ariel Sharon, forsætisráð- herraefni ísraels, sagði í gær að loknum fundi hans og Powells að ísraelar gerðu kröfu um að Palestínumenn létu af frekara ofbeldi ef friðarviðræður ísraela og Palestínumanna ættu að halda áfram. Sagði Sharon að þá fyrst væri unnt að taka upp þráðinn i friðarviðræðunum að nýju. Powell tók undir orð Sharons í sameiginlegu ávarpi þeirra að loknum fundinum í Jerúsalem. Sagðist Powell þess fullviss að Sharon myndi vinna af heilind- um að því að koma á friði milli þjóðanna. Að loknum viðræðunum við Sharon og Arafat hélt Powell á fund Abdullah Jórdaníukonungs í Amm- an. Ræddu þeir m.a. viðskiptabann- ið á trak og loftárásir Breta og Bandaríkjamanna á írak fyrr í mánuðinum. George og Barbara Bush Voru meöal gesta I Kúveit. Tíu ár frá því sigur vannst á írökum Stjórnmálamenn og herforingjar sem komu að Persaflóadeilunni hitt- ust í Kúveit í gær til að minnast þess að 10 ár eru liðin frá því að sig- ur vannst á írökum og hemám þeirra á Kúveit var brotið á bak aft- ur. Krónprinsinn af Kúveit og for- sætisráðherra, Sheikh Saad al-A- bdulla al-Sabah, stýrði athöfninni en þar voru stjórnarerindrekar fjöl- margra ríkja sem voru í lykilstöð- um í Persaflóadeilunni. Á meðal gesta voru George Bush, fyrr- verandi forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans. Einnig voru þar Carlos Menem, fyrrum forseti Argentínu, ásamt John Major, fyrr- um forsætisráðherra Bretlands, og Margaret Thatcher, forvera hans. Þetta eru fyrstu hátíðarhöld í Kúveit í 10 ár en hingað til hefur verið talið óviðeigandi að halda upp á trúar- og hátíðisdaga vegna þeirra sem enn er saknað frá því í stríðinu. Á útimarkaöi Kommúnistar vilja m.a. bæta kjör aldraöra. Mikflar vonir bundnar við þingkosningar í Moldavíu Moldóvar gengu að kjörborðinu í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær. Er almennt litið svo á að úrslitin muni skipta sköpum fyrir stöðugleika í Moldavíu. Stjórnmálasérfræðingar voru á einu máli um að kommúnistar myndu ná meirihluta á þingi að nýju en mikil óánægja hefur ríkt með stefnu stjórnvalda í markaðs- málum. Endanleg úrslit kosning- anna verða kunngjörð síðar í dag. Kommúnistar hafa sett velferðar- mál ofarlega á stefnuskrá sína. Segjast þeir m.a. vilja hækka ellilíf- eyri, auk þess sem þeir ætla að beita sér fyrir almennum launahækkun- um. Leiðtogi Kommúnistaflokksins, V. Voronin, sagði við fréttamenn á kjörstað í gær að flokkur hans bygg- ist við að fá rúmlega 50% atkvæða. „Þrjátíu prósent studdu okkur í síðustu kosningum. Við vonum að sá stuðningur muni aukast um 20- 30% nú,“ sagði hann. Kommúnistar eru nú með fjöru- tíu þingsæti af 101 en enginn þing- flokkur er með hreinan meirihluta þingsæta. ••af liverju að láta jeppling duga þegar þú færð alvöru JEPPA á sama eða enn betra verði? 1 Berðu saman getu, aksturseiginleika, búnað, þægindi og rekstrartiagkvæmni jepplinga við það sem þú færð í Suzuki Grand Vrtara: grindarbyggðum jeppa með tengjanlegt framhjóladrif og hátt og lágt drif um millikassa. 3 dyra frá 1.840.000 kr. 5 dyrafrá 2.190.000 Byggður á grind SUZUKl GRAND VITARA Á meðal nýsbúnaðar eru ABS-hemlar með rafeindastýrðri hemlajöfnun (EBD), rafhitaðir útispeglar, fjarlæsing og tvístillt samlæsing. Hægt er að stilla hæð ökumannssætis og stuðning við mjóbak auk þess sem fótarými aftursæta hefur verið aukið. SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Hátt og lágt drif SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Borgarnes: Bílasala Vesturlands, sími 437 15 77. ísafjörður: Bllagarður ehf., Grænagarði, simi 456 30 95. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 22 30. Sauðárkrókur: Blla- og búvélasalan, Borgarröst 5, sími 453 66 70. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bílasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, simi 471 30 05.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.