Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Page 4
4
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
Fréttir DV
Stofnfundir samtaka til verndunar íslensku kúakyni um helgina:
Búkollu stefnt gegn
norskum fósturvísum
- undirbúningshópur stofnaöur með innflutningi
DV-MYND NJORÐUR
Baulaðu nú...
Um helgina voru stofnuö samtök bænda gegn innflutningi fósturvísa úr
norskum kúm. Alls voru samtökin stofnuö á þremur stööum en þessi
mynd var tekin í Vík í Mýrdal.
DV, SUÐURLANDI_______________________
„Eg er búinn að standa persónu-
lega í þessari baráttu í nokkur ár og
hef ekki haft það á hreinu fyrr en nú
að ég tali fyrir meirihluta bænda,“ seg-
ir Ágúst Dalkvist, bóndi í Eystra-
Hrauni í Skaftárhreppi, sem var kos-
inn í stjóm Búkollu, samtaka til vernd-
ar íslensku kúnni, á stofnfundi félags-
ins sem haldinn var í Vík i Mýrdal á
laugardaginn. Samtímis vom haldnir
stofnfúndir á þrem stöðum á landinu.
Þeir fulltrúar sem kosnir voru á þess-
um fundum í stjóm félagsins munu
síðan skipta með sér verkum í endan-
legri stjóm félagsins.
„Ég er í félagsráði félags kúabænda
á Suðurlandi. Okkur hefur ekki miðað
vel þar inni. Við, þessi fáu sem höfum
verið að rifa kjaft, höfum þó haft það á
tilfinningunni að meirihluti bænda
væri hlynntur okkar málflutningi og
andvígur innflutningi á fósturvísum.
Við ákváðum því að stofna félag þar
sem þessi hópur kæmi saman svo það
kæmi fram svart á hvítu hvaða fjöldi
þetta væri,“ sagði Ágúst
í lögum félagsins em markmið þess
sett. Þau eru að halda í heiðri sögu og
menningu, tengdri íslensku kúnni,
standa vörð um íslenska kúakynið og
verja það blöndun við önnur mjólkur-
kúakyn, efla kúabúskap, ræktun kýr-
innar og treysta hagsmuni kúabænda
og tryggja velferð kýrinnar og hollustu
afurða.
Máiflutningur á villigötum?
í máli þeirra sem hallast að innflutn-
ingnum hefur því verið haldið fram að
málflutningur Búkollufélaga sé ekki í
samræmi við það sem lagt hefur verið
upp með, þeir séu að fara villir vegar í
málflutningi sínum um innflutning
norskra fósturvísa; þeirra innflutningur
hafi ekki miðast við að skipta á kúa-
kyni, aðeins að gera í upphafi tilraun til
samanburðar á framleiðslunni. Er
Búkofla á villigötum?
„Ég vil ekki meina það, þeir segja að
þama sé verið að tala um eina afmark-
aða tilraun. Hvers vegna ættum við þá
að fara að eyða tuttugu milljónum
króna í það? Við höfum fuflnægjandi
stofn hér á landi. Og með innflutningi
skemmum við okkar hreinleikaímynd
varðandi mjólkur- og kjötframleiðsluna
hér á landi,“ sagði Ágúst.
Á síðastliðinni öld voru flutt til lands-
ins holdanaut til að reyna að auka kjöt-
framleiðslu bænda. Er það ekki til að
veikja ímyndina og málflutninginn þeg-
ar búið er að blanda stofninn því er-
lenda blóði með samþykki bænda?
„Þessum holdakynjum hefur ekkert
verið blandað inn í stofninn sem notað-
ur er til mjólkurframleiðslu. Kýmar eru
notaðar til að ganga með káifana sem
síðan em aldir upp i sláturstærð. Þessu
er að öðra leyti haldið aðskUdu og
BúkoUa hefur ekki gefið neitt út um það
að berjast á móti holdanautunum, við
erum að berjast á móti blöndun við
mjólkurkúakynið okkar. Þessi holda-
naut eru ekkert að blandast saman við
mjólkurkúastofhinn," sagði Ágúst.
Bann við fósturvísum
Þann 6. mars hefst búnaðarþing.
Ágúst segir að fyrir því liggi tvær tUlög-
ur vegna innflutnings á fósturvisunum.
Gunnar Sæmundsson, sem er í stjóm
Bændasamtakanna, er með tiflögu um
að innflutningnum verði frestað. Og Sig-
ríðm- Jónsdóttir í Gýgjarhólskoti er með
tUlögu um að hætt verði við innflutning-
inn tU frambúðar.
Um helgina var haldinn fundur i und-
irbúningshópi sem stefnir að því að
flytja inn fósturvísa á eigin vegum, án
samráðs við Bændasamtökin. Ekkert er
tU sem bannar innflutning ef farið er
eftir settum reglum í þeim málum. -NH
Tölvufyrirtæki selur ekki tukthúslimum:
Löglegt að neita föngum um viðskipti
„Það er meginregla, því miður, að
verslanir og þjónustufyrirtæki ráða
í raun hverjum þau selja. Hins veg-
ar finnast mér þetta afskaplega lé-
legir viðskiptahættir,“ sagði Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. DV skýrði
frá þvi á dögunum að Tölvulistinn
ehf. hefði tekið þá ákvörðun að
neita öUum föngum landsins um
viðskipti þar sem ákveðnir við-
skiptavinir verslunarinnar, sem eru
fangar, hafa ítrekað hótað starfs-
fólki misþyrmingum, eignatjóni og
jafnvel morði.
„Það er náttúr-
lega forkastanlegt
þegar kaupandi
gerir svona ráð-
stafanir eins og
þessar, þetta er
gjörsamlega út í
hött og ekki
mönnum sæm-
andi. Það er hins
vegar ekki hægt
að skikka neina
verslun í sjálfu
sér til þess að
selja einhverjum ákveðnum," sagði
Jóhannes Gunn-
arsson, formað-
ur Neytenda-
samtakanna.
Jóhannes. Hann tók sem dæmi að ef
einhvef er mjög leiðinlegur i mat-
vöruverslun þá má forráðamaður
verslunarinnar neita þeim aðila um
frekari viðskipti.
Samkeppnisyfirvöld geta skikkað
heildsala tU þess að selja smásöluað-
Ua vörur sínar en að sögn Önnu
Birnu Halldórsdóttur hjá Samkeppn-
isstofnun getur þetta tilvik eingöngu
faUið undir samkeppnislög ef um er
að ræða vöru sem ekki fæst hjá öðr-
um verslunum en Tölvulistanum.
„Ég bendi hins vegar föngunum á
að það eru miklu fleiri aðUar sem
selja tölvur og mér flnnst það afar
hæpið að láta það bitna á öllum föng-
um þótt einn ruddi sé þarna. Þetta fer
eitthvað skakkt ofan í mig. Þó að ég
viðurkenni rétt fyrirtækisins tU að
gera þetta þá finnst mér þetta af-
spyrnu lélegt,“ sagði Jóhannes. Það
skal tekið fram að talsmaður Tölvu-
listans sagði í samtali við DV í fyrra-
dag að hótanirnar væru itrekaðar og
að um það bU annar hver viðskipta-
vinur þeirra innan Litla-Hrauns væri
með leiðindi. Fangar á Kvíabryggju
eru mjög óánægðir með nýja stefnu
Tölvulistans. -SMK
DV-MYND DANIEL
Mikil veiöi
Loönan er bæði fyrir suöaustan
land og fyrir vestan
Akraneshöfn:
Metfarmi
landað úr
Ingunni
DV. AKRANESI______________
í fyrrinótt fannst loðna í talsverðu
magni við Ingólfshöfða fyrir suðaustan
land.
Loðnuflotinn hefur nær aUur stund-
að veiðar við SnæfeUsnes að undan-
fómu en nú er loðnan einnig fundin
fyrir austan. Skip sem landa venjulega
í Austfjarðahöfnum munu sækja í
þessa torfu á næstunni en skipin sem
landa hér fyrir vestan munu- áfram
stunda veiðar við SnæfeUsnes. Loðnan
vestan megin virðist vera komin nokk-
uð lengra í hrognafyUingu en sú fyrir
austan og því likur á að sú loðna
hrygni fyrr og þá líklegast hér í Faxa-
flóa. Fyrsti loðnufarmur Ingunnar AK
150, sem hún landaði í fyrradag vó
1.950 tonn. Skipið var ekki alveg fuU-
lestað; u.þ.b. 100 tonn vantaði upp á að
aUir tankar í skipinu væru fuUir. Þetta
er stærsti farmur sem landað hefur
verið á Akranesi. í gær var svo aftur
landað úr Ingunni þannig að á tveim-
ur dögum landaði skipið á ijórða þús-
und tonnum. Þetta er stærsti farmur
sem landað hefur verið í Akraneshöfn.
MikUl ki-aftur var í loðnuveiðinni um
helgina og nánast svartur sjór af
loðnu. Óli í Sandgerði var kominn á
miðin í fyrrakvöld og var síðan kom-
inn inn tU Akraness með fuUfermi
snemma í gærmorgun. -DVÓ
„Það sér varla á
milli augna“
„Það sér varla á mUli augna eins og
þeir segja stundum héma,“ sagði lög-
reglumaður á Sauðárkróki í samtali
við DV í gærkvöld þegar hríð gekk yflr
á Norðurlandi, Vestfjörðum og víðar.
BU haíði verið ekið út af veginum á
þjóðveginum á mUli Varmahlíðar og
Sauðárkróks. Þegar honum hafði verið
náð aftur upp á veg var bílstjórinn í
sambandi við lögregluna sem reyndi
að leiðbeina viðkomandi tfl bæjar í
síma. í Húnavatnssýslu fór annar bfll
út af í hálku og slæmu skyggni en eng-
in slys urðu á fólki. -Ótt
Veöriö í kvöld
£ ‘ t '“v ' s‘ %..
-iO" \
r ‘‘O
-gr..
r,
,2M
r -6°
j j í
r
El nyrðra
í kvöld verður norðlæg átt á öllu landinu og
henni fylgja él á norðan og norðaustanverðu
landinu. Hins vegar verður léttskýjað sunnan
og vestanlands. Frost verður á bilinu O til 10
stig.
Solargangur og sjavarföll
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síðdeglsflóö
Árdegisflóö á morgun
REYKJAVIK AKUREYRI
18.37 18.17
08.42 08.35
20.31 01.04
08.46 13.19
Skýringar á veðurtáknum
Í<vindAtt 10V-Hm
-10° ^VINDSTYRKUR Vcoact í motfum á sekúndu r"us 1 HEIOSKÍRT
£3 Ð
LÉTTSKÝJAO HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
W : - W
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÖKOMA
w ‘+r =====
ÉUAGANGUR FRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR FOKA
---------------------
Snjór úr heiöskíru
íslendingar þekkja skafrenninginn betur
en nokkur önnur þjóð enda
lymskubrögð Kára ekki óalgeng hér.
Fljótt getur snjófok safnast í skafla á
vegum og orðið vanbúnum ökumönnum
skeinuhætt. Skafrenningur veröur aö
blindbyl þegar réttar aðstæður skapast
en þær fyrirfinnast víða í hinu
manngeröa umhverfi, ekki síst viö
umferðarmannvirki. Sýnum aðgát og
foröumst fát í umferðinni.
Harönandi frost
Á morgun veröur hæg noröaustlæg eöa breytileg átt. Þaö verður skýjaö
með köflum og sums staöar él við ströndina. Frost veröur á bilinu 2 til 12
stig, kaldast í innsveitum.
Mióviku
Vindur: /O
5-10 m/s
Hiti -0” tii -12°
Noröan og noröaustan
5-10 m/s. Él veröa
noröaustanlands en
léttskýjaö sunnan- og
vestan tll. Talsvert frost.
Mlllllltll
Vindun
5-10,
Hiti -0° «1 -10”
Hæg breytileg átt og bjart
veður en noröan 5-10 m/s
og él austast. Frost verður
0 til 10 stig, mlldast vlö
vesturstróndlna.
Fostml.i:
Vindur:
5-10
Hiti -o°til -9'
2ES
l°til 3 ®A,a
Norölæg átt veröur og
fremur kalt, snjókoma eöa
él á norðanverðu landlnu
en léttskýjaö sunnanlands. !
AKUREYRI
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK
RAUFARHÖFN
REYKJAVÍK
STÓRHÖFÐi
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBLIN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEWYORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
É=Wni»mi,iiSMi.Teii.í
Snjóél á s. kl. -10
Úrk. í grennd -10
Snjóél -9
-11
Snjókoma -3
Skýjaó -5
Snjóél -12
Skýjaö -4
Úrk. í grennd -2
Léttskýjaö -2
Léttskýjaö -14
Snjóél 4
Snjókoma -8
-6
Skýjað -1
Úrk. í grennd -9
Þokumóða 15
Haglél 3
Hálfskýjaö 8
Alskýjað -1
Alskýjaö 11
Skýjaö 6
Heiðskírt -13
Hálfskýjað 1
Snjók. á s. klst. 1
Skafrenningur -12
Hálfskýjaö 4
Skýjað 2
Súld 9
Alskýjað -9
Snjókoma 0
Rigning 1
Skýjaö 18
Léttskýjaö 3
Léttskýjaö 1
Alskýjaö 2
Þoka -11