Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Síða 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
DV
Nick Brown,
breski landbúnaðarráðherrann.
Gin- og klaufa-
veiki staðfest
Bresk stjórnvöld staðfestu í gær
að bráðsmitandi gin- og klaufaveiki
væri fundin en að sögn dýralækna
hefur hún þegar náð að dreifa sér
um Bretlandseyjar.
Landbúnaðarráðuneytið greindi
frá því að tilfelli af veikinni hefðu
fundist i búfénaði á bænum
Beaworthy í Devon I suðvesturhluta
Englands. Að sögn Jims Scuda-
mores, yfirdýralæknis i Bretlandi,
eru um 1500 kindur og 600 nautgrip-
ir á þessu eina búi.
Sagði Scudamore að helsta
áhyggjuefnið væri nú að rekja slóð
veikinnar en eigandi býlisins í
Beaworthy er með aðstöðu á þrettán
bæjum. Bannið hefur leitt til tafar-
lauss útílutningsbanns á bresku
kjöti og mjólkurvörum.
Tíu handteknir
á Spáni vegna
aðildar að ETA
Lögreglan í Madríd á Spáni hefur
handtekið 10 manns sem grunaðir
eru um að tilheyra aðskilnaðarsam-
tökum ETA. Þetta er þriðja
hóphandtakan á Spáni eftir að bíl-
sprengja varð tveimur að bana í síð-
ustu viku. Eru aðskilnaðarsamtök
ETA grunuð um að standa að baki
sprengjuárásinni.
Tuttugu og sex manns hafa fallið
í valinn á Spáni af völdum hryöju-
verka frá því að ETA rauf vopnahlé
í desembermánuði árið 1999. Talið
er að sprengjuárásinni í síðustu
viku hafi verið beint gegn ákveðn-
um borgarráðsfulltrúa úr röðum
sósíalista sem slasaðist í árásinni.
Dragoljub Kunarac
Fékk dóm í síðustu viku.
Dæmir í máli
Bosníu-Króata
Stríðsglæpadómstóll Sameinuöu
þjóðanna í Haag dæmir í dag í máli
tveggja Bosníu-Króata sem eru sak-
aðir um stríðsglæpi í Bosníustrið-
inu 1992-1995.
Hinir ákærðu eru Dario Kordic,
fyrrum stjórnmálaleiðtogi Bosníu-
Króata, og Mario Cerkez hershöfð-
ingi. Ákæran á hendur mönnunum
er í 22 liðum. Þar af eru fjórar um
glæpi gegn mannkyni vegna árása á
múslíma í miðhluta Bosníu á árun-
um 1992 til 1995.
Yfirheyrslur yfir Rade Markovic:
Gætu varpað Ijósi á
voðaverk Milosevics
Yfirheyrslur yfir Rade Markovic,
fyrrverandi yfirmanni leynilögregl-
unnar í Serbíu, sem handtekinn var
á laugardag, gætu orðið til þess að
upplýsa örlög Ivans Stambolics,
fyrrum forseta Serbíu, sem hvarf
fyrir hálfu ári. Þetta er mat lögfræð-
ings Stambolics.
Markovic var handtekinn vegna
rannsóknar á misheppnaðri morð-
tilraun gegn Vuk Draskovic, leið-
toga stjórnarandstöðunnar, en í
þeirri árás létust fjórir. Sagði Niko-
la Barovic, lögfræðingur Stam-
bolics, að Markovic kynni einnig að
vita um afdrif skjólstæðings síns.
„Ég vona að hann og þeir sem
standa honum nærri svari til saka.
Það er útilokað annað en að hann
hafi upplýsingar um málið,“ sagði
lögfræðingur Stambolics um þátt
Markovics í hvarfi hans.
Stambolic, sem var forseti Serbíu
í stjómartíð kommúnista, átt stóran
þátt í að Milosevic komst til valda á
Rade Markovic,
hinn alræmdi yfírmaður
leynilögreglunnar.
níunda áratugnum. Hann varð þó
að hætta afskiptum af stjórnmálum
eftir að flokksbræður hans snerust
gegn honum.
Stjórnarandstaðan hefur oftsinnis
kennt leyniþjónustunni um morð og
aðra glæpi sem voru einkennandi
fyrir síðustu valdaár Milosevics.
Markovic var yfirmaður leyniþjón-
ustunnar i stjórnartíð Milosevics og
dyggur stuðningsmaður hans. Er
talið að hann hafl átt stóran þátt í
hvarfi ýmissa andstæðinga forset-
ans á liðnum árum. í Júgóslaviu er
litið á handtöku Markovics sem
merki um að stjórnvöld hyggist
þrengja enn að Milosevic. í Belgrad
Daily var greint frá því að Milosevic
og Markovic hefðu verið nánir sam-
starfsmenn. Þá var einnig greint frá
þvi að Markovic hefði gætt sonar
Milosevics, Markos, um tíma. Al-
mennt er litið svo á að vitnisburður
hans sé mikilvægur í hugsanlegum
málaferlum gegn Milosevic.
Hundasnyrtlng
Eigandi þessa púöluhunds hefur brugðið á það ráð að skreyta hundinn sinn bleikum og gulum litum. Tilefnið er
hundasýning sem fram fór í Bangkok á laugardag þar sem keppt var um frumlegasta hundinn og þann loðnasta.
Mikil hætta á að flóðin í
Mósambik færist í aukana
Sjötíu og sjö þúsund manns eru á
heimilislaus vegna mikilla flóða í
miðhéruðum Mósambík og ná-
grennis að undanförnu. Ekkert lát
er á flóðunum og hafa yfirvöld farið
fram á aðstoð annarra ríkja við að
flytja fólk burt af hættusvæðum þar
sem viðbúið er að flóðin færist i
aukana á næstu dögum.
Yfirvöld í Mósambík sögðu í gær
að þau hefðu hafist handa við að
flytja 80 þúsund manns af flóða-
svæðunum vegna hættu á nýjum
flóðum. Alþjóðamatvælastofnunin
sagði' enn fremur að 30 þúsund
manns til viðbótar væru í hættu
sunnar í landinu þar sem áin Save
væri farin að flæða yfir bakka sína.
I fyrra létust 700 manns og rúm-
lega hálf milljón manna missti
heimili sín í flóðum i sunnanverðri
Afríku. Silvano Langa, fram-
I kafi
Um 70 þúsund manns hafa þegar
kvæmdastjóri almannavarna í Mó-
sambík, sagði að björgunarmenn
hefðu 4-5 daga frest áður ný flóö,
sem eiga upptök sín við Cahorra
Bassa-stífluna, skyllu á borgunum
Marromeu og Luabo.
„Okkar helsta áhyggjuefni núna
eru Marromeu og Luabo þar sem
um 80 þúsund manns búa,“ sagði
Langa. Cahorra Bassa er stærsta
stíflan í Mósambik en hún er við
Zambezi-ána. Veggir hennar eru 326
metrar á hæð og er vatnshæðin ofan
við stífluna þegar komin yfir hættu-
mörk.
Stjórnvöld í Suður-Afríku
greindu frá því í gær að þau myndu
senda þyrlur og flutningavélar til
Mósambíks til að aðstoða við fólks-
flutningana. Þá hyggjast stjórnvöld
í Suður-Afríku einnig senda björg-
unarsveitir á vettvang.
Bætt samskipti
Vladímír Pútín,
forseti Rússlands,
heldur i opinbera
heimsókn til Suður-
Kóreu i dag. Forset-
inn mun eiga við-
ræður við Kim Dae
Jung, forseta S-
Kóreu. Búist er við
að samskipti Norður- og Suður-
Kóreu verði ofarlega á baugi í við-
ræðum þeirra.
Skorar á Arabaráðiö
Forseti Sýrlands, Bashar al-
Assad, og forseti Líbíu, Múammar
Gaddafi, ræddust við í Trípólí um
helgina. Gaddafi hefur skorað á
Arabaráðið að beita sér fyrir því að
viðskiptabanni SÞ á Líbíu verði
aflétt í kjölfar þess að dómur er
genginn í Lockerbie-málinu.
Einn mánuður liðinn
Einn mánuður er nú liðinn siðan
jarðskjálfti reið yfir Gujarat-riki á
Indlandi. Þrjátíu þúsund manns
létu lífið í skjálftanum sem mældist
7,7 á Richter. Þúsundir eru enn án
heimilis en talið er að mánuðir
muni líða þar til tekst að útvega
húsaskjól handa öllum.
40 skotnir til bana
Öryggissveitir i Alsír skutu 40
manns til bana í bardögum við her-
skáa múslíma um helgina. Um 180
manns hafa látist í bardögum
stjórnvalda og múslíma í Alsír það
sem af er árinu.
Á leið til glötunar
Um leið og þess
er minnst að 10 ár
eru liðin frá frelsun
Kúveits er ósigur
íraskra hersveita
litinn öðrum aug-
um i íröskum íjöl-
miðlum. í nýlegu
fréttaskeyti írösku
fréttastofunnar INA segir að Kúveit-
ar séu á leið til glötunar. Konur þar
í landi klæðist nú kjólum að vest-
rænum sið og valdastéttin í landinu
geri ekkert til að spoma við þróun-
inni.
Jarðskjálfti í Kína
Tuttugu þúsund hús hrundu til
grunna og þrír létust er öflugur
jarðskjálfti reið yfir Sichuan-hérað í
Kína á föstudag.
Trúa ekki orðum Hillary
Samkvæmt skoð-
anakönnun sem
birt var í gær trúir
mikill meirihluti
íbúa New York ekki
orðum Hillary
Clinton er hún neit-
aði orðrómi um að
bróðir hennar hefði
þegið fé frá sakamönnum fyrir að
beita sér fyrir náðun tveggja fanga.
Aldrei of seint
Breska lögreglan ákærði í gær 67
ára gamlan mann fyrir morð sem
hann framdi fyrir 32 árum.
Lofar umbótum
Forsætisráðherra Tyrklands hef-
ur heitið því að birta í dag drög að
efnahagsaðgerðum sem eiga að
stemma stigu við fjármálakrepp-
unni þar í landi. Ekki stendur til að
stokka upp i ríkisstjórninni.