Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Page 32
52
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
Tilvera
Menningarárið
2000 - hvað ger-
um við svo?
Aldrei hefur meiri orku og
íjármunum verið varið til
menningar og lista á íslandi en
árið 2000. íslenskir listamenn
og aðrir atvinnumenn í menn-
ingunni, sem eru vanastir því
að hafa aldrei nógu mikla pen- [
inga til að hrinda hugmyndum
sínum í framkvæmd, höfðu allt í
í einu fullar hendur fjár og
báru ábyrgð á því að árþús-
undaskiptin á íslandi yrðu
bæði hátíðleg og skemmtileg.
Á málfundi í Leikhúskjallar- I
anum, sem Sjónlistafélagið og |
Listaklúbburinn gangast fyrir í I
kvöld, verður fjallað um þessar I
spurningar. Frummælendur
verða Þórunn Sigurðardóttir,
listrænn stjórnandi Listahátíð-
ar í Reykjavík og framkvæmda-
stjóri verkefnisins Reykjavík
menningarborg, Guðmmidur
Oddur Magnússon, prófessor
við Listaháskóla íslands, og
Jón Proppé, myndlistargagn-
rýnandi og sýningarstjóri, sem
jafnframt er fundarstjóri. Leik- i
húskjallarinn verður opnaður
klukkan 19.30 en málfundurinn
hefst klukkan 20.30.
Kabarett
■ KARI MEÐ DAGLEG UOÐ A
hverjum degi í heiit ár og einn dag
mun eitt Ijóð birtast í Hinu húsinu
eftir ungt skáld sem heitir Kári Tul-
inius. Ljóöin veröa rituö á ritvél
- sem er á borði út viö glugga. Ljóð
dagsins verður hengt til aflestrar út
í glugga og síöan safnað saman í
möppu. Kári hefur verk sitt í dag, á
tvítugsafmælisdeginum sínum, og
lýkur ársverkinu því 26. febrúar
2002. Allir eru velkomnir að koma
og lesa Ijóð.
Síðustu forvöð
Í RÚf REBÉKKA I HAFNARBORG
í dag lýkur málverkasýningu Rutar
Rebekku Sigurjónsdóttur í Sverris-
sal f Hafnarborg. Rut Rebekka sýn-
ir þar stór olíumálverk. Sem fýrr er
manneskjan í fýrirrúmi í myndum
hennar. Uppsprettan í tjáningunni
er líkaminn þar sem hún leitast við
að túlka með hreyfingu og dansi
einbeitni hans, fegurð og styrk. Frá-
sögnin með þensildráttum er allt {
'jí senn, með hrynjandi línu og lita
ásamt byggingu forma. Þetta er
fimmtánda einkasýnig Rutar en
áður hefur hún m.a. sýnt í Norræna
húsinu, Kjarvalsstööum, Kauþ-
mannahöfn, Svíþjóð og í Noregi.
Hún stundaöi listnám sitt í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
Myndlistaskólanum í Reykjavík og í
Skidmore Collage NY USA. Sýningin
í Sverrissal í Hafnarborg er opin frá
kl. 11-17 alla daga nema þriðju-
daga.
Bíó
1 POLANSKIHJÁ FILMÚNDI Í
kvöld kl. 22.30 verður myndin „The
Tenant" eða „Leigjandinn" sýnd í
' Háskólabíói á vegum Fiimundar.
Þetta er ekki ein af frægustu mynd-
um Polanski en óhætt er að mæla
með henni fyrir alla unnendur
spennu- og hryllingsmynda.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Sértu sáttur er kannski
ástæðulaust að breyta
- DV fór í heimsókn til ungra hjóna á Skúfsstöðum í Hjaltadal
Skúfsstaðir í Hjaltadal
Á Skúfsstööum hafa ættmenni Siguröar búiö í 130 ár og María á einnig ættir aö rekj'a í Hjaltadalinn.
DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Ung í búskap
Þorsteinn Axelsson og María Hjaltadóttir í félagsskap kýrinnar Búkollu.
Á síðasta vori hóf búskap á Skúfs-
stöðum í Hjaltadal ungt sambýlisfólk,
Þorsteinn Axelsson frá Litlu-Brekku á
Höfðaströnd og María Hjaltadóttir frá
Sauðárkróki. Þorsteinn er bróðurson-
ur Sigurðar Þorsteinssonar, fyrrum
bónda á Skúfsstöðum, sem reyndar
býr enn í nágrenninu, stofnaði skógar-
býlið Mela í jaðri Skúfsstaðalandsins.
Á Skúfsstöðum hafa ættmenni Sigurð-
ar búið í 130 ár og virðist því sem
framhald verði á því um sinn.
María á einnig ættir sínar að rekja í
Hjaltadalinn og voru Hulda, fyrrum
húsfreyja á Skúfsstöðum, sem lést
skömmu fyrir siðustu jól, og Hjalti
Pálsson frá Hofi, faðir Maríu, bræðra-
börn.
Þau Þorsteinn og María segjast hafa
verið sérstaklega heppin með byrjun-
ina að fá þetta einstaka sumar og svo
veturinn eins og hann hefur verið.
„Þetta er búið að ganga ótrúlega vel.
Kýmar hafa mjólkað mjög vel og heil-
brigði verið sérstaklega gott. Júgur-
bólga hefur t.d. ekki sést í fjósinu og
það er mikill spamaður ef maður
sleppur við hana. Heyskapurinn gekk
náttúrlega sérstaklega vel og við eig-
um mikið af góðum heyjum. Ég held
að megi segja að það sé ekki til neitt
nema úrvalshey og svo var kornupp-
skeran líka sú mesta sem við höfum
séð,“ segir Þorsteinn. Búskapurinn
hefur lengi blrmdað i Þorsteini enda al-
inn upp í föðurhúsum á Höfðaströnd-
inni. Leiðin lá í almennt búfræðinám á
Hólum þaðan sem hann útskrifaðist
1990. Þorsteinn réðst til afleysinga á
búum í fjóra vetur og brá sér svo á ver-
tíðir til Grindavíkur flmm vetur, var
þar til sjós á línu og netum. „Það var
svo sem ágætt, þótt maður væri miklu
spenntari fyrir búskapnum," segir Þor-
steinn.
Búskapur í stað efnafræði
Það er hins vegar stutt síðan María
lauk námi við Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki. Hugur hennar stefndi til
háskólanáms og var efnafræðin þar of-
arlega á blaði. En þá tók líflð aðra
steínu, ekkert hefur þó verið útilokað
enn.
„Ég ætla að láta veturinn og sumar-
ið líða og sjá svo til. Mér er búið að
líða mjög vel héma og þetta hefur
gengið vel. Jú, það hefur togast svolít-
ið á í mér að halda áfram námi en svo
hef ég líka verið að hugsa að það sé
hægt að gera svo margt annað. Ef þér
líður einhvers staðar vel og þú ert sátt-
ur við þitt hlutskipti þá er kannski
engin ástæða til að breyta því. Sveita-
lífið hefur marga kosti, þetta er heil-
brigt líf. Mér finnst vera mikiil félags-
skapur hjá sveitafólkinu. Það eru
meiri samskipti milli fólks hér en er
t.d. úti á Sauðárkróki. Það er ákaflega
gott fólk héma í nágrenninu. Ókostirn-
ir em hins vegar að það er bindandi að
búa í sveit, sérstaklega með kýr.“
Nýi grundvöllurínn
óraunhæfur
Á Skúfsstöðum er aðallega mjólkur-
bú, 28 básar í fiósinu og 130 kindur á
fóðrum, auk nokkurra hrossa. Þor-
steinn segist nýta plássið i fiósinu
mjög vel og líklega verði mjólkin á
þessu framleiðsluári nokkuð yfir kvót-
Sviðsljós
Cindy á von á
barni á ný
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford er aft-
ur barnshafandi, samkvæmt frásögn
bandaríska timaritsins People. Fyrir á
Cindy 20 mánaða gamlan son með eigin-
manni sínum, Rande Gerber. Cindy mun
hafa fengið boð um 1 miiljarð íslenskra
króna fyrir að kynna tískuhönnuðinn
Ellen Tracy. Ef til vill verður fyrirtæki
hönnuðarins að snúa sér að fatnaði fyrir
bamshafandi mæður reynist fréttin rétt
um von á fiölgun í fiölskyldu Cindy
Crawford og eiginmanns hennar.
anum sem er 127.000 lítrar.
„Við þyrftum að bæta við okkur
kvóta en hann er dýr núna, 200 til 210
krónur lítrinn. Síðan liggur fyrir að
laga mjólkurhúsiö. Kröfumar em
orðnar svo miklar og það verður að
fylgja þeim, þó svo að mjólkin sem við
framleiðum hafi verið alveg jafngóð og
sú sem fer í gegnum nýju mjólkurhús-
in.“
- Er ekki mjög erfitt aó kaupa bú í
fullum rekstri í dag?
„Jú, það er það, og ég hugsa að það
eigi eftir að verða enn erfiðara á næstu
árum ef ekki verða gerðar breytingar á
lánakerfinu. Það er nýlega búið að
hækka grundvallarbúið um helming, í
rúmlega 180.000 lítra, sem mér finnst
óraunhæf tala. Það þýðir að væntan-
lega verður að laga lánakerfið að þess-
ari breytingu ef ekki á illa að fara.
Hjá okkur verður þetta strembið
næstu sex árin, en á síðan að verða
léttara. Við erum mjög bjartsýn á að
þetta gangi upp og hefðum náttúrlega
ekki farið út í þetta annars," segir Þor-
steinn.
„Já, ég held að megi segja að þetta
hafi gengið mjög vel hingað til og lofi
góðu,“ bætir María við, er greinilega
vel inni í hlutunum.
„Annars er ákveðin verkaskipting
hjá okkur. Ég get náttúrlega ekki geng-
ið i öll karlmannsstörf en hjálpa til við
mjaltir og þau útiverk sem ég ræð vel
við.“
@.mfyr:Vinnuhagræðing skilar sér
fljótt
- En þetta er óskaplega mikil vinrn d
blönduóu búi eins og hér er?
„Jú, það má reikna með alveg fóst-
um fimm tímum í gegningar og mjalt-
ir á hverjum degi, ef ekki er gert neitt
annað, náð í rúllubagga eða losað hey
og ýmislegt annað sem oft þarf að gera.
Annars er þetta í sjálfu sér ekki mikill
aukatími sem fer í kindurnar. Við
erum hvort eð er bundin yfir kúnum.
Tilkostnaðurinn við kindurnar er
heldur ekki mikill og þær gefa líka af
sér tekjur,“ segir Þorsteinn.
„Við fáum gott verð fyrir mjólkina
en tiikostnaðurinn þar er mikill," skýt-
ur María inn í.
- Er mikill hagur af kornrœktinni?
„Ég veit það nú ekki. Þetta hefur
komið ágætlega út þegcir uppskeran er
svona góð eins og hún hefur verið und-
anfarið. Mér líkar þetta vel og kýmar
em náttúrlega vitlausar í byggið og
Robbie hrint út
af sviðinu
Poppstjörnunni Robbie Williams brá
á tónleikum í Stuttgart i Þýskalandi
þegar honum var hrint út af sviðinu
fyrir framan þúsundir áhorfenda. Einn
úr áhorfendahópnum mun hafa stokk-
ið upp á sviðið og ráðist á Robbie sem
ekki varð meint af. Popparinn hélt
bara áfram að syngja eins og ekkert
hefði komið fyrir. Að sögn talsmanns
Robbies er talið að áhorfandinn hafi
ekki verið i andlegu jafnvægi. Yfirvöld
eru með málið í rannsókn.
þrífast vel af því.“
- En svo vió tölum um vinnuna aft-
ur. Það hlýtur aö vera mikið aö gera
yfir hábjargrœðistimann?
„Já, það verður að skipuleggja tím-
ann vel og öll vinnuhagræðing i sveita-
verkum er fljót að skila sér. Ég prófaði
núna að stilla saman kindumar,
„svampa" þær eins og kallað er, og
stíla á að þær beri á einum fimm dög-
um frekar seint næsta vor þannig að
hægt verði að sleppa þeim út að mestu.
Ef þær bera á stuttum tima verður
drýgri timi í önnur verk, eins og t.d.
viðhald girðinga, jarðvinnu, áburðar-
dreifmgu og fleira. Síðan er heyskap-
urinn mikiil annatími. Mér líkar best
að geta þurrkað heyið og flytja það
heim á vagni en bind svona þriðjung-
inn í rúllubagga. Það er nauðsynlegt
að vera með fiölbreytt fóður en þrátt
fyrir að rúllubaggaaðferðin sé fljótvirk
finnst mér ókosturinn við hana að það
er seinlegra að gefa úr böggunum. Svo
er það náttúrlega fiárragið á haustin
sem tekur sinn tima þannig að það er
alltaf nóg að gera,“ segir Þorsteinn.
„Við stílum á að fá eitthvað af að-
stoðarfólki yfir sumarið, vorum með
það síðasta sumar. Við komumst ekki
yfir þetta allt tvö ein,“ segir María og
kötturinn Salome er ásækinn. Maria
segir að stór hluti af því að hún kunni
svo vel við sveitalífið sé vitaskuld það
að henni þyki ákaflega vænt um dýrin
sín. Þorsteinn tekur í sama streng en
segir að það verði þó stundum að horfa
til þess að þetta sé atvinna manns,
annars mundi bara ofgölgunarvanda-
mál blasa við.
Það hefur reyndar verið að fiölga i
fiósinu á Skúfsstöðum undanfarið. Þar
eru komnir fimm fallegir kálfar en
daginn áður en DV-maður var á ferð
komu tveir þeirra í heiminn. Það er
smábaul í kúnum sem fylgja komu-
manni á braut en í hundunum tveim-
ur heyrist ekkert enda eru þetta fiár-
hundar sem hlaupa Mjóðlaust fyrir
kindahópinn og safna honum saman.
Þessa kosti munu þeir hafa sýnt ótví-
rætt við smölun á liðnu hausti.
-ÞÁ