Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Page 36
1/ inarina bíll
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
Bílhelmar
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
Jónína Siv
Bjartmarz Friöleifsdóttir
Varaformennska:
Jónína
sjóðheit
- en Siv þögul
Jónína Bjartmarz er sjóöheit fyrir
framboði tU varaformennsku Fram-
sóknarflokksins á flokksþingi í mars.
Samkvæmt heimildum DV eru yfir-
gnæfandi líkur á að af framboði verði
þó endanleg ákvörðun liggi ekki íyrir.
Jónína sagði fátt þegar DV ræddi við
hana í gærkvöld. „Ég gef yfirlýsingu á
næstu dögum,“ sagði hún. Aðeins
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra hefur lýst framboði til embættis-
ins en Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra er einnig talin veik fyrir
framboði. Sjáif varðist hún allra frétta
í gærkvöld. „Engar yfírlýsingar," sagði
Siv.
Hjálmar Árnason er enn sem komið
er einn í framboði til ritara flokksins.
Meðal tillagna fyrir flokksþing er að rit-
ari megi ekki gegna ráðherradómi. Á
miðstjórarfundi um helgina kom fram
hörð gagnrýni á þá tilfögu og er talið lík-
legt að hún verði ekki samþykkt. -rt
Ingvar E. Sigurðsson:
Líst vel á
myndina
„Ég hef ekkert
hitt Harrison Ford
en ég hitti Liam
Neeson aðeins og
það var ágætt,“
sagði Ingvar E.
Sigurðsson kvik-
myndaleikari sem
er heima í fríi frá
vinnu sinni í kvik-
myndinni K 19 -
The Widow
Maker. „Þetta eru frábærir strákar
sem eru með mér þama í áhöfn kaf-
bátsins og leikstjórinn er líka ósköp
yndisleg."
Vinnan við myndina er í fullum
gangi að sögn Ingvars og eru tökur
hafnar í Rússlandi. Hann segir engan
bilbug á mönnum að finna og sögur
um kærumál hljóti að vera stórlega
ýktar. „Þarna em allir að vinna sína
vinnu alveg sallarólegir," segir Ingvar
sem er glaður i bragði og horfír björtum
augum á vinnuna sem fram undan er.
Ingvar fer aftur utan á morgun og
byrjar i tökum 6. mars. Myndin verður
frumsýnd á árinu 2002. -ss
DV-MYND INGÓ
Hressir krakkar á frístælkeppni
Kristín Ýr Sjgurðardóttir, Sigrún Tinna Gunnarsdóttir, Siguröur Rúnar Birgisson og Anna Gréta Oddsdóttir, sem öil eru nemendur í Fossvogsskóla, brostu til Ijósmyndara DV
á Islandsmeistarakeppni Tónabæjar og ÍTR í frjálsum dönsum 10 til 12 ára á laugardaginn. Um 300 þátttakendur kepptu þar í hóp- og einstaklingsdansi.
Eigandi einbýlishúss í Grafarvogi neitar aö fara út þrátt fyrir hæstaréttardóm:
Farið fram á að seljandi
verði borinn út í dag
- samningaumleitanir lögmanna bera ekki árangur - flutningamenn tilbúnir
Kaupándi einbýlishúss í
Hverafold í Grafarvogi, sem ekki
hefur fengið húsnæðið afhent þrátt
fyrir að héraðsdómur og Hæstirétt-
ur hafi þáðir úrskurðað að hann
skuli fá eignina í samræmi við bind-
andi kauptilboð frá í ágúst, gengur
á fund sýslumanns í dag þar sem
hann mun krefjast þess að embætti
hans hlutist til um að bera seljand-
ann út fari hann ekki sjálfviljugur.
Óskað hefur verið eftir að flutninga-
menn verði eftir hádegið i dag
reiðubúnir að aðstoða við að% flytja
húsmuni út í Grafarvoginum.
Kaupandinn sagði i samtali við
DV að útburðarkrafan væri algjört
neyðarúrræði. Hins vegar liggi nú
fyrir að seljandinn ætli ekki að af-
. . DV-MYND PJETUR
Flutningamenn klárir
Um hádegi í dag mun „ seljandi “
þessa húss viö Hverafold
veröa borinn út.
henda eignina með eðlilegum hætti
og því sé útburður eina úrræðið.
Fyrir tveimur vikum var frestur
gefinn til dagsins í dag aö íbúar
hússins i Grafarvogi rýmdu það í
samræmi við Hæstaréttardóminn.
Eftir að eigandi einbýlishússins,
þriggja barna móðir, gerði kaupandan-
um gagntilboð í lok ágúst, sem hann
svo samþykkti, seldu bæði hann og
móðir hans ofan af sér minni eignir í
því skyni að fjármagna kaupin á ein-
býlishúsinu. Ákveðið haíði verið að
móðirin keypti húsið með syninum
ásamt fíölskyldu hans.
Þegar að því kom að skrifa átti und-
ir kaupsamning í október og afhenda
tilgreinda flármuni kom á daginn að
eigandi einbýlishússins, konan, var
alls ekki á því að ganga frá kaupunum
og því síður að afhenda. Hún hafði ætl-
að að kaupa hús í Mosfellsbæ en ekki
fengið. Kaupandinn sætti sig ekki við
að konan hætti við - búinn að gera
bindandi samning - og hann hafði selt
bæði sina eign og móðir hans sína.
Kaupandinn ákvað því að fara í út-
burðarmál sem hann vann bæði í hér-
aðsdómi og nú síðast í Hæstarétti. I
raun átti fólkið að fá húsið afhent 1.
desember en hefur frá þeim tíma búið
annars staðar.
Þegar lögmaður kaupandans gengur
á fund sýslumanns í dag mun hann
reiða fram 6,5 milljónir króna og fast-
eignaveðbréf fyrir því sem eftir stend-
ur af kaupverðinu sem var samtals
21,9 milljónir króna. Við svo búið mun
sýslumaður væntanlega fara með lög-
manni gerðarbeiðandans að Hverafold
34 og leitast við að fá útburðarkröfúnni
framfylgt með tilheyrandi aðgerðum.
Lögmaður konunnar sagði við DV
að hann kysi að tjá sig ekki um málið.
-Ótt
Karlmaður um tvítugt stakk stórum búrhníf í bak annars manns:
í gæsluvarðhald eftir lífs-
hættulega hnífstungu
Karlmaður um tvítugt var í gær
úrskurðaður í gæsluvaröhald til 5.
mars eftir að hafa orðið valdur að
mjög hættulegri og djúpri hníf-
stungu í bak þrítugs karlmanns í
Kötlufelli, laust eftir miðnætti að-
faranætur sunnudagsins. Sá sem
fyrir stungunni varð liggur á gjör-
gæsludeild en er ekki talinn í bráðri
lífshættu.
Eftir að lögreglu var tilkynnt um
slagsmál í stigagangi fjölbýlishúss í
Kötlufelli kom í ljós að maður hafði
verið stunginn í bakið með stórum
búrhníf. Sá sem fyrir árásinni varð
hafði greinilega hlotið djúpa stungu
og misst mikið blóð. Hann var strax
fluttur á sjúkrahús þar sem hann
gekkst undir aðgerð.
Böndin beindust strax að tvítug-
um karlmanni sem oft hefur komið
við sögu lögreglunnar áður. Hann
var handtekinn og færður á lög-
reglustöð. Þegar maðurinn var yfir-
heyrður gekkst hann við verknaði
sínum. Lögreglan taldi sig engu að
síður verða að leggja fram kröfu um
gæsluvarðhald vegna rannsóknar-
hagsmuna. Þegar maðurinn mætti
fyrir dómara gekkst hann við
hnífstungunni. Lögreglan yfirheyrir
þann sem fyrir stungunni varð þeg-
ar tækifæri gefst. -Ótt
Gæði og glæsileiki
smoft
CsólbaðstofaJ
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i