Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2001, Blaðsíða 13
MANUDAGUR 12. MARS 2001
13
I>V
Fréttir
Rjupu fjolgar með
aukinni skógrækt
DV. EGILSSTOÐUM:
fullyrðir Helgi Gíslason framkvæmdastjóri og hefur ýmislegt við fullyrðingar Ólafs K. Nielsens líffræðings að athuga
skógrækt er mesta ógnin við ís-
lenska náttúru þá eru fuglarnir í
góðum málum.“ Helgi sagðist telja
að þessi orð segðu betur en flest
annað á hvaða villigötum Náttúru-
fræðistofnun væri. -SM
„Rjúpan er skógarfugl, hún á af-
komu sína að mestu undir skógum.
Við aukna skógrækt eykst gróska
og afkomumöguleikar skógarfugla
eins og rjúpunnar sem og annarra
að ríkisstofnun á borð við Náttúru-
fræðistofnun láti ráðherra umhverf-
ismála ekki í té upplýsingar fyrir
Alþingi sem hafa hvorki við rök eða
staðreyndir að styðjast um fram-
kvæmdir þessa fólks.
„Eða eru þetta bara sjálfsögð og
eðlileg vinnubrögð þessarar stofn-
unar og skiptir það Alþingi engu
máli á hverju upplýsingar frá ríkis-
stofnun byggja? Er það nóg að ein-
hverjar skoðanir embættismanna
séu lagðar fram og kynntar sem
staðreyndir fyrir löggjafann?"
spurði Helgi. Hann sagðist vilja í
lokin benda á þau orð sem forstjóri
Náttúruverndar ríkisins viðhafði
við skógarbónda í Skriðdal. „Ef
DV-MYND SKULl MAGNUSSON
Eldfim umræða
Náttúruverndarsinnaðir menn deila
hart um afkomu rjúpunnar í skóg-
um. Alþingismönnum hefur veriö
sagt að skógar hafi neikvæð áhrif á
rjúpnastofninn, skógræktarmenn eru
á allt öðru máli. Hér er Helgi Gísla-
son í viðtali við DV í gær.
fugla og dýra,“ segir Helgi Gíslason,
framkvæmdastjóri Héraðsskóga á
Egilsstöðum, í samtali við DV.
„Náttúrufræðistofnun er lög-
vernduð ríkisstofnun rekin af al-
mannafé. Stofnunin heldur því fram
að skógrækt hafi neikvæð áhrif á
rjúpnastofninn án þess að geta sýnt
fram á að nokkrar rannsóknarnið-
urstöður liggi þar að baki, enda eru
þær ekki til. Þegar svo þessi ríkis-
stofnun lætur umhverfisráðherra
bera þær fyrir Alþingi, eins og það
sé einhver staðreynd að skógrækt
hafi neikvæð áhrif á rjúpnastofn-
inn, er ekki hægt að sitja þegjandi
undir slíkum ósannindum, því það
má auðveldlega halda hinu gagn-
stæða fram,“ segir Helgi Gíslason.
Helgi bætir því við að mörg þús-
und manns hafi að einhverju leyti
afkomu sína af skógrækt sem íjár-
mögnuð er með lánsfé til landeig-
enda úr ríkissjóði vegna laga sem
^sett voru 1999 um uppbyggingu
skóglenda í einkaeign. Því verði að
telja það sjálfsagða og eðlilega kröfu
LYFTULEIGAN ehf
■VES T-'U R V Ö R 9 «
• S í M I : 5 6 4 3 5 2 0 -
, LEIGA - SALA
AVINNULYFTUM
* Skæralyftur
• Körfulyftur
• Mastur fyrir einn mann
* www.lyftuleigan.is *
Ráðstefna og sýning
í Salnum f Tónlistarhúsi Kópavogs, fimmtudaginn 15. mars 2001
Fátt virðist ætla að hafa eins mikil áhrifá tölvuþróun framtiðarinnar og Linux og hugmyndafræðin
á bak við opinn hugbúnað. Segja má að undirstöður Netsins séu opinn hugbúnaður og
Linux sækir sífellt á, jafnt i vefvinnslu sem og hjá stórfyrirtækjum og einkaaðilum.
Skýrslutæknifélag íslands efnir til metnaðarfullrar ráðstefnu og sýningar á Linux og
opnum hugbúnaði þar sem meðal annars verður leitast við að svara spurningum eins
og hver staða Linux og frjáls hugbúnaðar er í dag, hver sé leyndardómurinn á bak við
gæði frjáls hugbúnaðar, hvort frjáls hugbúnaður og Linux sé ógnun við hefðbundna
hugbúnaðargerð, hvers vegna Linux er í notkun hjá flestum ef ekki öllum tölvudeildum
og hvort Linux henti hugsanlega betur en önnur stýrikerfi í skólastarfi.
Meðal fyrirlesara verða tveir af þekktustu fyrirlesurum heims á þessu sviði;
Eric S. Raymond, sem er einn helsti hugmyndafræöingur opins hugbúnaðar,
og Alan Cox, sem stendur næst Linus Torvalds í virðingarstiganum
í hugum Linux-notenda.
Dagskrá
11.00
12.45
12.55
13.15
14.15
14.30
14.45
15.15
15.30
16.30
16.50
16.55
18.00
Innritun ráðstefnugesta, opnun sýningar og hádegissnarl.
Setning ráðstefnu.
Heimsyfirráð eða dauði - Linux og framtíðin.
Árni Matthíasson, blaðamaður hjá Morgunblaðinu.
The Open Source revolution
How software engineering might finally grow up.
Eríc Raymond, hugmyndafræðingur um frjálsan hugbúnað.
KDE-umhverfið.
Arnar Hrafn Gylfason, Linux á íslandi.
Hvaða áhrif hefur Linux á rekstrarumhverfi
tölvudeilda og tölvufyrirtækja?
Gy/ft' Árnason, framkvæmdastjóri Opinna kerfa.
Kaffihlé og framhald sýningar.
Hvernig og hvers vegna er Linux notað
hjá íslenskri erfðagreiningu?
Heiðar Þór Guðnason, forstöðumaður tölvuþjónustudeildar.
Þróun Linux-kjarnans, útgáfa 2.4. og framtíðin.
Alan Cox, einn helsti forritari Linux kjarnans, Red Hat.
Sjálfstætt menntakerfi með frjálsum hugbúnaði.
Bjarni R. Einarsson, tölvunarfræðingur og Netverji.
Ráðstefnuslit.
Skráning
Þátttöku þarf að tilkynna í siðasta lagi 13. mars
til Skýrslutæknifélags íslands i sima 553 2460 eða
með þvi að senda tölvupóst á netfangið sky@sky.is
Þátttökugjöld
Fyrir félagsmenn kr. 9.800
Fyrir utanfélagsmenn kr. 12.800
Nemendur kr. 3000
Skýrslutæknifélag
íslands
Laugavegi 178 • 105 Reykjavik • Simi 553 2460 • Fax 520 7171
Netfang sky@sky.is • Veffang www.sky.is
Framhald sýningar.
Sýningu lýkur.
Tæknival opinkerfihf
Firmanet
ICELANDAIR
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
TEYMI
www.teymi.is
STRENGUR