Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2001, Blaðsíða 28
44
MÁNUDAGUR 12. MARS 2001
Tilvera
I>V
1 1 f i ft
Rætt um
stuttmyndir í
Listaklúbbnum
Listaklúbbur Leikhúskjallar-
ans efnir i kvöld til umræöna
um íslenskar dansstuttmyndir
undir yfirskriftinni Dansstutt-
myndir - vilt þú vera með?. Þeir
sem þarna leggja orö í belg eru
meðal annarra Kristín Pálsdótt-
ir, Helena Jónsdóttir, Reynir
Lyngdal, Sveinbjörg Þórhalls-
dóttir, Hálfdán Theodórsson,
Bjargey Ólafsdóttir og fleiri. Til
upprifjunar, og fyrir þá sem
ekki komust á kynningarkvöldið
19. febrúar, verða sýnd brot úr
öllum myndunum sem þar voru
kynntar. Húsið verður opnað kl.
19.30 en dagskráin hefst kl.
20.30.
IKIúbbar
■ GEIR OLAFS A GAUKNUM Það
er enginn anna/ en hinn Ijóshærði
söngfugl Geir Ólafsson sem sér um
að skemmta gestum Gauksins í
kvöld.
Leikhús
■ VOLUSPA I dag kl. 10.30 verður
sýnt leikritið Völuspá eftir Þórarin
Eldjárn í Möguleikhúsinu viö
Hlemm.
Síöustu forvöð
■ KRYSUVIKIN MIN I HAFNAR-
BORG FRAMLENGD Sýningin Krýsu-
víkin mín, á málverkum eftir Svein
Björnsson, hefur verið framlengd til
dagsins í dag. Sýningin er í Hafnar-
borg og er opin á sýningartíma
safnsins. Nú fer hver aö verða síð-
astur því hún veröur ekki framlengd
meira.
Myndlist
I GALLERI FOLD Kjartan Guðjóns-
son sýnir málverk til 11. mars í Gall-
eri Fold við Rauöarárstíg.Opiö á
verlunartíma.
■ GERÐARSAFN í KÓPAVOGI
Verk úr einkasafni Sverris Sigurðs-
sonar. Sýningin stendur til 31. mars
og er opin kl. 12-18 þriöjudaga til
sunnudaga.
■ GERÐUBERG „Stóll um stól frá
stól til sætls“, sýning á íslenskum
stólum stendur til 25. mars. Opiö kl.
10-20 mánudaga til fimmtudaga,
föstudaga kl. 11-19 og kl. 13-16
laugardaga og sunnudaga.
■ LISTASAFN ASÍ Sigrún, Eldjárn
sýnir málverk og bókverk í Listasafn
ASI viö Freyjugótu til 11. mars. Opið
kl. 14-18 nema mánudaga.
■ ÁSMUNDARSAFN VH) SIGTÚN
Fjöll rímar við tröll, Páll Guömunds-
son í bland viö Ásmund Sveinsson.
Opiö kl. 13-16 alla daga.
■ LISTASAFN REYKJAVÍKUR
HAFNARHUSI Sófamálverkiö er til
sýnis til 25. mars. Útisýning Ro-
berts Dells stendur til 25. mars en
franska frásagnarmálverkið stendur
til 21. mars. Opiö kl. 11-18.
■ LISTASAFN REYKJAVÍKUR.
KJARVALSSTOÐUM Gullni pensill-
inn, samsýning íslenskra fígúratífra
málara stendur til 24. mars. Opiö
daglega 10-17 en til kl. 19
miðvikudaga.
■ NÝLISTASAFNIÐ Samsýning
Steingríms Eyfjörðs, Rögnu Her-
mannsdóttur, Finns Arnars Arnar-
sonar og Huldu Stefánsdóttur
stendur til 25. mars. Opiö
þriöjudaga til sunnudaga kl. 12-17.
Átak til að fjölga stelpum í verk-, tækni- og tölvufræði:
Ekki bara karlar með hjálma
Salurinn í Flensborgarskóla í
Hafnarfirði var þéttskipaður stelp-
um eftir hádegi á fimmtudaginn
síðasta. Stelpurnar í Flensborg hafa
fengið gesti og erindi þeirra er að
hvetja þær til aö sækja sér fram-
haldsnám á sviði verk-, tækni- og
tölvunarfræði.
Rósa Erlingsdóttir er verkefnis-
stjóri verkefnisins sem Háskóli ís-
lands og Jafnréttisstofa standa að í
samvinnu viö fjögur ráðuneyti og
fleiri aðila. Markmið verkefnisins
er að fjölga kvennemendum í verk-,
tækni- og tölvunarfræðinámi á há-
skólastigi en hlutfall þeirra er enn
innan við 20% í þessum greinum.
Átakið byggist fyrst og fremst á því
að kvennemendur og útskrifaðar
konur úr greinunum hvetja stelpur
í framhaldsskólum til að velja þær í
framhaldsnámi sínu. Um 40 konur
sem ýmist stunda nám eða eru út-
skrifaðar úr verk-, tækni og tölvun-
arfræðum heimsækja alla fram-
haldsskóla landsins í þessu skyni.
Átakið hófst 20. febrúar og því lýk-
ur 22. mars.
Góð laun og auövelt að fá
vinnu
Gestirnir í Flensborg eru þrír
auk Rósu: þær Hrund Skarphéðins-
dóttir verkfræðingur, María Hjalta-
lín kerfisfræðingur og Eyrún Linn-
et verkfræðinemi.
Rósa býður stelpurnar velkomn-
ar og segir þeim örlítið frá aðdrag-
anda kynningarinnar. Hún leggur
áherslu á þá miklu þróun sem
standi yfir og fram undan sé á sviði
tækni og hversu mikilvægt sé fyrir
konur að taka þátt í þessari þróun.
Einnig reynir hún að sýna stelpun-
um fram á að verk-, og tækni- og
tölvufræðimenntun sé fyrir alla.
„Verkfræðingar eru ekki bara karl-
ar með hjálma uppi á fjöllum held-
ur geta þeir lika verið konur í
Fjölmenni á stelpufundi í Flensborg
Salurinn var þéttskipaöur og þegar þær sem ekki höföu áhuga á fundarefninu höföu tínst út ein af annarri
sátu eftir um 50 stelpur.
drögtum fyrir framan tölvur."
Næst tók Hrund til máls. Hún er
byggingaverkfræðingur og segist
vinna hjá litlu fyrirtæki, aðallega
við hönnun vega. Hún segist ekki
hafa haft hugmynd um út í hvað
hún var að fara þegar hún hóf nám
í verkfræöi en hún hafi haft gaman
af að reikna. Hún leggur mikla
áherslu á að eftirspum sé eftir
verkfræðingum af öllum sviðum,
launin sem í boði eru séu góð og
afar auðvelt sé að fá vinnu erlendis.
Hrund segir stærðfræði og eðlis-
fræði vera ákveðnar undirstöðu-
greinar í faginu en alls ekki nauð-
synlegt að vera alger súpernemandi
í þessum greinum til að ráða við
verkfræðina. „Það er um að gera að
prófa,“ segir Hrund. „Þið þurfið
ekki að vera neitt ofsalega klárar,
bara að hafa gaman af þessu.“
DV-MYNDtR HILMAR ÞÓR
Hjálmlaus bygglngarverkfræöingur
„Þiö þurfiö ekki að vera neitt ofsalega kiárar, bara aö hafa gaman afþessu,“
sagði Hrund Skarphéöinsdóttir.
Ahugasamar um strákafögln
Margar stelpurnar sýndu mikinn
áhuga og aö fundi loknum vitdu
sumar haida áfram aö spyrja
og spjalla.
Þörf fyriri fólk meö ólíka
hæfileika
Næst tekur María við. Hún tekur
upp þráðinn þar sem Hrund sleppti.
„Maður þarf að hafa gaman af að
leysa þrautir," segir hún um eigin-
leika sem gott sé að hafa til að bera
fyrir nám í kerfis- eða tölvunar-
fræði. Hún segir eftirspurnina eftir
tæknimenntuöu fólki vera gríðar-
lega og mikil þörf sé fyrir fólk með
hæfileika á ólíkum sviðum.
Velta má fyrir sér hvort María
hafi ekki einmitt hér hitt naglann á
höfuðið um hvers vegna það sé svo
mikilvægt að verkfræði- og tölvu-
nám sé sótt af nemendum af báðum
kynjum.
Andinn á fundinum var óform-
legur og afslappaður og nú var
stelpunum boðið að spyrja. Þegar
hér var komið sögu hafði nokkuð
fækkað í salnum og þær sátu einar
eftir sem áhuga höfðu á efninu, um
50 stelpur.
Spurt var um inntökuskilyrði í
verkfræðideild og hvort ekki væri
nauðsynlegt að hafa lært mikla
stærðfræði. Svarið var að góður
grunnur væri nauðsynlegur en ekki
endilega að hafa lært t.d. alla stærð-
fræði á eðlisfræðibraut. Rósa skaut
inn í umræðuna að hægt væri að
taka síðustu framhaldsskólaáfang-
ana á námskeiðum hjá Endur-
menntunarstofnun Háskólans.
Ein á móti tíu strákum
Eyrún Linnet var síðasti frum-
mælandinn. Hún er stúdent úr
Flensborg og nú nemandi í „raf-
magninu" eða rafmagns- og tölvu-
verkfræði. Hún útskýrir uppbygg-
ingu námsins i verkfræðideild fyrir
stelpunum. Eyrún viil ekki gera of
mikið úr þyngd stærðfræðinnar í
deildinni. „Stærðfræðigreiningin á
fyrstu önn var sú sama og síðustu
tveir áfangamir í Flensborg,“ segir
hún.
Eyrún segir ástæöuna fyrir því
að hún valdi verkfræði vera þá að
hún vilji vera sjálfstæð. „Ég vil
ekki vera háð einhverjum karli og
geta ekki skilið við hann því þá
verði ég svo fátæk.“
I umræðum í lokin fullyrða þær
stöllur að launajafnrétti ríki milli
karla og kvenna á þeirra sviði
þannig að konur fái sömu laun og
karlar fyrir sambærOega vinnu.
Eftir að fundi hefur verið slitið
drífur þær áhugasömustu að gest-
unum og spyrja sértækari spurn-
inga. Þá eru líka sagðar grínsögur
úr verkfræðinni, tO dæmis um það
hvernig samfélagið sé þar sem er
ein stelpa á móti hverjum 10 strák-
um eins og er raunveruleiki Eyrún-
ar Linnet. -ss
Mel C hætt í
Kryddpíunum
Sjá nánar: Líflð eftir vlnnu á Vísi.is
Þá geta smástúlkurnar farið að
syrgja Kryddpíurnar. Hljómsveitin
er svo gott sem búin að vera eftir að
hin íþróttamannslega Mel C til-
kynnti fyrir helgi að hún væri búin
að fá nóg. Nú ætlar hún að helga sig
eigin einsöngsferli þar sem aOt er á
mikOli uppleið.
Mel viðurkenndi í samtölum við
breska blaðamenn að undanfarin
tvö ár hefði henni ekki þótt neitt
sérstaklega skemmtilegt að vinna
með stallsystrum sínum þremur í
stúlknasveitinni vinsælu.
„Ég verð alltaf kryddpía en ég hef
ekki í hyggju að starfa meira með
Kryddpíunum," sagði stúlkan. „Ég
hef þroskast og mig langar tO að
gera hlutina eins og ég vil hafa þá
og ekki þurfa að standa í málamiðl-
unum.“
Mel C, sem heitir réttu nafni Mel-
anie Chisholm og sem af mörgum er
talin hæfileikamesta Kryddpían,
sagði aö hún og hinar stúlkurnar
þrjár einbeittu sér aUar að eigin sól-
óferli um þessar mundir.
„Við vorum svo vinsælar að ekk-
ert jafnast á við það. Þetta var
spuming um að fórna lífi okkar og
reyna að halda i þessa velgengni
eða bara vera heiðarlegar gagnvart
okkur sjálfum. Við höfðum aUar
verið mjög ærlegar og vUdum aUar
reyna okkur á eigin spýtur," sagði
Mel C hin sportlega.
Kryddpíurnar voru upphaflega
fimm en fyrir nokkrum misserum
sagði hin rauðhærða Geri HaUiweU
skUið við staUsystur sínar tU að
standa á eigin fótum. Hljómsveitin
sló í gegn á árinum 1995 og á þeim
tíma sem síðan er liðinn hafa plötur
þeirra selst í 38 miUjónum eintaka.
Ekki má gleyma þvi að Kryddpí-
urnar komu af stað eins konar
menningarbyltingu með stelpna-
valdstali sínu.
Mel C
Sportlega kryddpían er hætt í
stúlknasöngsveitinni vinsælu.