Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Side 35
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001
DV
Tilvera
Dennis Quaid
47 ára
Hinn ágæti leikari,
Dennis Quaid, verður 47
ára í dag. Quaid þótt
snemma efnilegur leikari og fetaði þar í
spor bróður síns, Randys Quaids. Ferill
hans hefur dalað nokkuð undanfarin ár
og hefur hann aðallega verið fréttum
vegna skilnaðar hans og Meg Ryan.
Quaid er einnig góður tónlistarmaður,
spilar og semur lög og komu tónlistar-
hæfileikar hans einna best í ljós þegar
hann lék rokkarann Jerry Lee Lewis í
Great Balls of Fire. Hann og Ryan eiga
einn son, Jack Henry.
Gildir fyrír þridjudaglnn 10. apri!
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.i:
_ jfc Ástamálin ganga vel
M hjá þér og þú nýtur
lifsins óvenjuvel. Mik-
" ilvægt er að sinna
skylduverkum sínum vel.
Meira en
bara vinir
Geri Halliwell
og Robbie Willi-
ams hafa í marga
mánuði fullyrt að
þau væru bara
góðir vinir. Nú hef-
ur Robbie viður-
kennt að samband
þeirra sé enn inni-
legra. Það megi
samt ekki túlka
það sem að þau séu
kærustupar. Þetta
fullyrðir að
minnsta kosti blað-
ið Daily Star.
Geri Halliwell
vill hins
vegar ekki segja
nánar frá innileika
sambandsins. „Þér
myndi bara þykja
leiðinlegt að heyra
hvemig samband
okkar er,“ á hún að
hafa sagt 1 viðtali.
Robbie er nú
sagður vera að selja
ýmsar eigur sínar á
uppboði. Hagnaðin-
um á verja til góð-
gerðarmála. Meðal
þess sem boðið verð-
ur upp er rúm
Robbies, sem hann
segir marga haf leg-
Geri vill ekki greina nánar frá inni- ið í, salernisskál og
leika sambandsins viö Robbie. nærbuxur.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
Breytingar eru fram
lundan hjá þér í at-
vinnumálunum. Vinur
\ þinn reynist þér mjög
vel. Peningamálin ganga vel þessa
dagana.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
. Þú færð óvenjulegar
' fréttir af vini þínum
sem er langt í burtu.
Þú hefur mikið að
gera á næstunni og ættir að hvíla
þig vel áður.
Nautið (20. anril-20. maíl:
/ Liklegt er að þú sért
að undirbúa búferla-
flutninga en einhver
k.___É bið verður þó á þeim.
Þú keppist við að sinna öUu því
sem fyrir þig er lagt.
Tvíburarnir (21. maí-21, iCiní):
Þú kynnist einhveijum
’ sem á eftir að hafa
miMl áhrif á líf þitt.
Mikil spenna er á miUi
þín og'ákveðins aðUa og róman-
tíkin Uggur í loftinu.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi:
Ástvinir og hjón eiga
I mjög góðar stundir
saman og skipuleggja
fri í sameiningu. Fjár-
r standa fremur vel.
i-jónið (23. iúli- 22. ágúst);
Þér hættir til að vera
öfgafuUur og jafnvel
fordómafullur. Grunur
þinn í ákveðnu máU
reynist réttur. Happatölur þínar
eru 5,12 og 19.
jWeyjan (23. ágúst-22, .seRtk
Þú hefur haft óþarfa
áhyggju undanfarið.
sem þú hélst að
* r yrði erfitt viðfangs
leysist nánast af sjálfu sér.
Tvíburarnir o
&
vogin (23. se
ý
Vogin (23- sgpt.-.23„.0kt,):
Fjármálin standa vel
og miklar breytingar
verða á lífi þínu á
næstunni. Þú þarft að
leggja talsvert á þig til að ná settu
marki.
Sporðdreki (24. okt.-2l. nóv.l:
Það lítur út fyrir að
þig skorti markmið.
yÞú verður að finna
eitthvað til að stefha
að 1 lífinu. Vinir þínir vilja óðir
og uppvægir ráðleggja þér.
Bogamaður (22. nðv.-21. des.):
,Mál, sem þú hefur ver-
'ið að vinna að undan-
farið leysist á næstu
dögum. Þú ættir ekki
að hlusta allt of mikið á aðra,
treystu frekar á eigið innsæi.
Steíngeitin (22. des.-19. ian.i:
^ _ Dagurinn fer rólega af
stað en kvöldið verður
* Jr\ mjög skemmtilegt. Ást-
arlífiðblómstrarþessa
dagana. Happatölur þínar eru 3,
18 og 35.
Viktoría á Rauða torginu
Viktoría krónprinsessa Svíþjóöar var í heimsókn í Moskvu á dögunum og
skrapp á Rauöa torgiö meö forsetafrú Rússlands, Ljudmiiu Pútín. Forsetafrú-
in rússneska bauð sænsku krónprinsessu te í Kreml og að sögn Viktoríu
ræddu þær um heima oggeima.
Kærasta Reeves
lést í bílslysi
Keanu Reeves er
niðurbrotinn vegna
andláts unnustu sinn-
ar, Jennifer Syme,
sem lést af völdum
bílslyss. Jennifer,
sem var 29 ára, lést
eftir að hafa ekið á
þrjár kyrrstæðar bif-
reiðir á röngum veg-
arhelmingi og síðan
kastast út úr bifreið
sinni í Chauenga
Boulevard í Holly-
wood.
Lögregluna grunar
að Jennifer hafi verið
undir áhrifum fikni-
efna. Hún fann þung-
lyndislyf í bílnum og
hvítt duft í samanrúll-
uðum dollaraseðlum.
Jennifer Syme hafði
þjáðst af þunglyndi
síðan hún fæddi and-
vana dóttur í janúar í
fyrra og gengið til sál-
fræðings.
Samband Jennifer
Syme og Keanus Reeves
hafði verið stormasamt
áður en hún varð
barnshafandi og þau
höfðu nokkrum sinnum
slitið sambandinu. Þau
gerðu einnig hlé á sam-
bandinu eftir lát litlu
dótturinnar.
Óskarsgreiðslan komin í tísku
Nú vilja allar konur í Hollywood
láta setja upp hárið á sér eins og
Julia Roberts hafði það við ósk-
arsverölaunahátíðina. Tjásur út í
loftið eru búnar að vera. Greiðsla
Juliu sást reyndar á tískusýningum
síðastliðið haust þannig að í tísku-
bransanum er hún að verða gamal-
dags. Þrátt fyrir það hafa konur
ekki tekið við sér fyrr en nú. Hár-
greiöslumeistarinn Clive Lever í
London segir að hárgreiðsla kvik-
myndastjörnu hafi miklu meiri
áhrif en greiðsla fyrirsætu. Eftir
sýningu myndarinnar French Kiss
komu fjölmargar konur til hár-
greiðslumeistara og báðu um klipp-
ingu eins og Meg Ryan var með í
myndinni. Margar hafa einnig vilj-
að líkja eftir hárgreiðslu Cameron
Diaz og Jennifer Aniston.
iMac Dalmatíu
Komdu úr felum
iMacDVSE 600 MHz
Dalmatía
Örgjörvi: G3 600 MHz
Vinnsluminni: 128 Mb
Harður diskur: 40 Gb
CD-RW drif
56k v90 mótald
10/100 Ethernet
2 Firewire tengi
2 USB tengi
Mús
15” skjár
189.900 kr.
iMac DV 500 MHz
Flower Power
Örgjörvi: G3 500 MHz
Vinnsluminni: 64 Mb
Harður diskur: 20 Gb
CD-RW drif
56k v90 mótald
10/100 Ethernet
2 Firewire tengi
2 USB tengi
Mús
15” skjár
154.900 kr.
iMac 400 MHz
Indigo
Örgjörvi: G3 400 MHz
Vinnsluminni: 64 Mb
Harður diskur: 10 Gb
CD-ROM drif
56k v90 mótald
10/100 Ethernet
2 Firewire tengi
2 USB tengi
Mús
15” skjár
119.900 kr.
Frábær fermingargjöf
Hugbúnaður
Leikir
Mac OS 9.1 á íslensku Bugdom
l wL' iMovie 2 á íslensku Cro-Mag Rally
j Wkr iTunes á íslensku Nanosaur
! Mac Acrobat reader
FAXstf - Fax hugbúnaður
QuickTime
Palm dagbók
Netið AppleWorks
Internet Explorer Ritvinnsla
Outlook Express Töflureiknir
Netscape Communicator Gagnagrunnur
hugsaðu \ skapaðu \ upplifðu
Skaftahlfð 24 - Sfml 530 1800 - Fax 530 1801 - www.aco.is