Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Síða 2
2 Fréttir LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 ___________x>v Samkeppnisstofnun: I slag við risana - eftir úttekt á smásöluálagningu Ráöherrann kynnir álagninguna dv-mynd hari Valgeröur Sverrisdóttir viöskiptaráöherra kynnir skýrstu Samkeppnisstofnunar síödegis í gær. Meö henni eru Páll Magnússon, aöstoöarmaöur hennar, og Atli Freyr Guömundsson, deiidarstjóri í viðskiptaráöuneytinu. Samkeppnisstofnun blæs til sókn- ar gegn risunum á matvörumark- aðnum í skýrslu um smásöluálagn- ingu sem kynnt var í gær. Hyggst stofnunin fara af stað með mál í því skyni að uppræta hugsanleg brot á samkeppnislögum og mun rann- sókn stofnunarinnar í því tilviki beinast að einstökum fyrirtækjum. Þar eru efstir á blaði mat- vörurisarnir tveir sem ráða nær því öllum matvörkumarkaðnum hér á landi, Baugur og Kaupás. í skýrslu Samkeppnistofnunar er ekki dregin dul á að samþjöppun í formi samruna fyrirtækja á mat- vörumarkaðnum hafi dregið úr samkeppni og þar sé hugsanlega að leita skýringarinnar á hækkuðu vöruverði. Um 2/3 hlutar smásölu- markaðarins séu nú í höndum tveggja fyrrnefndra fyrirtækja og hafi Baugur til dæmis verið með 60 prósenta markaðshlutdeild í sölu á matvöru á höfuðborgarsvæðinu árið 1999 með 35 matvöruverslanir. Kaupás réð þá tæplega 30 prósent- um markaðarins með 28 verslanir. Rannsókn Samkeppnistofnunar á smásöluálagningu á matvöru var gerð að beiðni viðskiptaráðherra og náði yfir tímabilið 1996-2000. Byggð- ist ósk viðskiptaráðherra á þeirri staðreynd að verð á matvöru hefði augijóslega hækkað umtalsvert á tímabilinu þvert ofan í það sem ætla hefði mátt með hliðsjón af gengisþróun og erlendum verð- breytingum. I skýrslu Samkeppnisstofnunar kennir þó ýmissa grasa sem eru á skjön við þá almennu tilhneigingu til verðhækkana sem þar er annars að finna á hverju strái. Meðal ann- ars kemur á daginn að verð á eggj- um frá eggjabúum lækkaði á um- ræddu tímabili um 10-15 prósent og verð á pasta um 5 prósent út úr búð, þó svo að pasta hefði á sama tíma hækkað um álika prósentutölu í innkaupum frá birgjum. „Hækkun á smásöluverði á síð- ustu árum í matvöruverslun um- fram verðhækkun frá birgjum gefur ástæðu til að ætla að dregið hafi úr samkeppni í smásölunni. Samþjöpp- un í formi samruna er væntanlega helsta orsökin fyrir minni sam- keppni," segir í niðurlagi skýrslu Samkeppnisstofnunar sem í fram- haldinu blæs til sóknar gegn risun- um á matvörumarkaðnum ....í því skyni að uppræta hugsanleg brot á samkeppnislögum" eins og þar seg- ir orðrétt. -EIR Paul Welch hættir starfsemi Landlæknisembættið hefur rætt við Paul Welch, ameríska græðarann sem lagt hefur stund á námskeiðahald og andlega leiðsögn hér á landi undanfar- in ár. Að sögn Matthíasar Haildórsson- ar aðstoðarlandlæknis ræddi embættið „mjög alvarlega" við Welch. Viðræður voru á góðum nótnm og niðurstaða þeirra varð sú að Paul Welch kvaðst myndu hætta allri starfsemi hér. Landlæknisembættinu höfðu áður borist kvartanir vegna starfsemi Welch frá fólki sem telur sig hafa beðið skaða af námskeiðum hans. í 3-4 tilvikum hefur fólk sem var á námskeiðum hjá honum lent inn á geðdeild. „Við lýstum yfir okkar skoðun á því að þessi starfsemi gæti verið fólki til verulegs tjóns og hann væri kominn inn á brautir sem við álitum að hann hefði ekki þekkingu á,“ sagöi Matthías. „Við sögðum honum að eins og þessir sjúklingar hefðu lýst þessu fyrir okkur og þeim afleiðingum sem þetta hefur haft á þá teldum við að þetta ætti ekki rétt á sér og væri í mörgum tilvikum skaðlegt. Hann kvaðst taka það mjög nærri sér að við værum að kvarta yfir þessu en sagði jafnframt að hann myndi hætta þessari starfsemi hér á landi.“ Matthías sagði því ekki að leyna að landlæknisembættið hefði ekki einung- is fengið kvartanir vegna starfsemi Paul Welch hér á landi heldur einnig stuðningsbréf þar sem fólk hefði talið sig hafa gagn af meðhöndlun hans. En hann hefði sjálfur tekið þá ákvörðun í kjölfar viðræðna sinna við embættið að hætta starfi hér. Matthías sagði að málinu yrði fylgt eftir ef tilefni gæfist til. DV tókst ekki að ná tali af Paul Welch. -JSS Mælt með Guðmimdi Einarssyni sem rektor Skálholtsskóla: Biskup víkur sæti - vegna tengsla við umsækjanda Skólaráð Skál- holtskóla hefur beint þeim tilmæl- um til Kirkjuráðs að Guðmundur Einarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, verði ráðinn næsti rekt- or Skálholtsskóla. Sex sóttu um stöð- una, þar á meðal séra Bernharður Guðmundsson, sem er mágur herra Karls Sigurbjömssonar biskups. Þar sem biskup situr í forsæti i Kirkjuráði sem ræður rektor hefur biskup ákveðið að víkja sæti vegna tengsla sinna við séra Bemharð og tekur Bolli Gústafssson, vígslu- biskup á Hólum, sæti hans. Kirkju- ráð verður kallað saman til fundar dagana 10.-11. maí og þar verður gengið frá ráðn- ingu nýs rektors í Skálholti. Formaður skóla- ráðs Skálholtsskóla er séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti. Hann og aðrir skólanefndar- menn þurftu að gera upp hug sinn gagnvart sex umsækjendum áður en þeir veittu Guðmundi Einars- syni stuðning sinn. Aðrir umsækj- endur voru séra Torfi Hjaltalín Stefánsson, fyrrum sóknarprestur á Möðruvöllum, Árni Svanur Daní- elsson guðfræðingur, séra Bern- harður Guðmundsson, verkefnis- stjóri á Biskupsstofu, Baldur Gaut- ur Baldursson guðfræðingur og Smári Ólason organisti. Guömundur Einarsson. Guðmundur Ein- arsson varð lands- þekktur er hann veitti Hjálparstofn- un kirkjunnar for- stöðu fyrir margt löngu og lét þar af starfi eftir uppþot sem varð vegna Herra Karl Sig- fiármála stofnunar- urbjörnsson. innar. Þá sneri hann sér að við- skiptum og útflutningi á fiski en hefur síðastliðinn vetur starfað sem kennari í Reykholtsskóla í Biskupstungum. Fráfarandi rektor Skálholtsskóla er doktor Pétur Pétursson, sonur herra Péturs Sigurgeirssonar bisk- ups, en Pétur mun hverfa aftur til fyrri starfa við guðfræðideild Há- skólans. -EIR Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna: Grænmetistillögurnar slá ryki í augu neytenda í nýútkominni áfangaskýrslu græn- metisnefndarinnar svokölluðu, sem land- búnaðarráðherra skipaði tii að leita lausna varðandi hátt grænmetisverð, koma fram hugmyndir þess efnis að afnema beri Gunnarsson. toUa af þeim tegund- um grænmetis sem ekki eru framleidd- ar hér. Auk þess er talið hugsanlegt að beina styrkjum til grænmetisbænda. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir tiilögur grænmetisnefndarinnar vera tilraun til að slá ryki í augu neytenda. „Það er fiflagangur að ætla að al- menningur hagnist á þvi að tekið sé úr vinstri vasanum og sett i þann hægri. Og ég efast um að þessi styrkjapólitík sem gefin er í skyn í skýrslunni stand- ist skuldbindingar Islendinga.“ Að sögn Jóhannesar mun niðurfell- ing tolla á grænmetistegundum sem eingöngu eru framleiddar erlendis koma fiölskyldum lítið til góða. „Þær tegundir sem íslenskar fjöl- skyldur eru með á borðum eru lang- flestar framleiddar innanlands. Hitt er annað mál að það á löngu að vera búið að afnema þessa umræddu tolla.“ -jtr Jóhannes Blaðiöídag Eldklerkurinn farinn frá Vestmanna- eyjum Snorri í Betel Dreymir um eldflauga- varnakerfi Erlent fréttaljós Handrukkarar á íslandi Innlent fréttaljós Stórt orð listamaður Óskar Pétursson Hann er meðferðin Þórarinn á Vogi Kynja- verur í sjó Kjötmarkaður Ragnhel&ur Elríksdóttir Shell tapar Ehaldinn var í gær kom fram að áætl- að gengistap Skelj- nemi um hálfum Verkfalli frestað Verkfalli nokkurra hópa starfs- manna Hafnarfjarðarbæjar, þar á meðal ófaglærðra starfsmanna á leikskólum, sem hófst í gær, hef- ur verið frestað til 10. maí Búnaöarbankinn líka 230 milljóna króna tap varð af rekstri Búnaðarbankans á fyrsta fjórðungi ársins samkvæmt óend- urskoðuðu bráðabirgðauppgjöri. Þetta er tvöfalt meira tap en áætl- anir gerðu ráð fyrir. Minni innflutningur Almennur vöruinnflutningur dróst saman um liðlega 6% að raungildi í apríl og er þá átt við vöruinnflutning án skipa og flug- véla. Yfirvinnubann slökkvili&s Kjararáð Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna ákvað í gær að boða til yfirvinnubanns eftir að talið var fullreynt að ekki næðist saman með launanefnd sveitarfélaga. Krónan braggast - ögn Gengi íslensku krónunnar hækkaði lítillega í gær, eða um 0,08%. Gengisvísitala krónunnar stóð í gær í 140 stigum. 5,7 prósent verðbólga Seðlabankinn birti nýja verð- bólguspá siðdegis í gær og spáir því að verðbólgan verði 5,7% á ár- inu, Það er ríflega einu prósentustigi meira en síðasta spá sagði til um. Já við líknardrápi Tæplega helmingur þjóðarinn- ar, 46,5%, er fylgjandi líknardráp- um en þriðjungur andvígur þeim, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar þar um. Dýrar skrifstofur Kostnaður við nýtt skrifstofuhús- næði Alþingis í Austurstræti fór tugi prósenta fram úr áætlun. Ekki bætir úr skák að óánægja er meðal margra þing- manna með nýja húsnæðið og hyggjast nokkrir neita að flytja í nýju skrifstofurnar. Járnbraut - Keflavík Stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að semja við tvö erlend ráðgjafa- fyrirtæki og ístak um að kanna hagkvæmni þess að leggja járn- braut milli Reykjavíkur og Kefla- víkur. Messías í Fríkirkjunni Kór Fríkirkjunnar í Reykjavik, ásamt kammersveit og einsöngv- urum flytur nú um helgina óratoríuna Messías eftir Haendel í Fríkirkjunni. Stjórnandi er Kári Þormar. Tónleikarnir eru í dag og á morgun og hefjast kl. 17 báða dagana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.