Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 22
22 Helgarblað LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 !DV Fyrirmyndareiginkona setti auglýsingu í bæjarblaðið: Öll tilboð koma til greina Öllum í svefnbænum Maldon í austurhluta Eng- lands leist vel á frú Jos- ephine BackshaU sem var 39 ára aðlaðandi þriggja bama móðir og hamingjusamlega gift. Hún var talin fyrir- myndareiginkona, móðir og vinur. Hún var í húsmæðra- félaginu í bænum og söng í kirkjukórnum. Hún var hin dæmigerða enska miðstétt- areiginkona sem lifði flekklausu lífi er átti sinn þátt í því hversu bamaleg og auðtrúa hún var. Hvemig er annars hægt að útskýra að hún skyldi haustið 1974 setja auglýs- ingu í bæjarblaðið með orðalagi sem lögreglan sagði „að myndi vekja at- hygli allra kynóðra manna í mílu fjarlægð". Josephine Backshall hafði hins vegar ekkert sóðalegt í huga þegar hún sótti um hlutastarf til að drýgja tekjur fjölskyldunn- ar. Hún vonaðist eftir að fá einhvers konar skrifstofuvinnu en út úr auglýsingu hennar mátti lesa allt annað. í henni stóð: Kona nálægt fertugu óskar eftir hluta- starfi. Hefur eigin bíl til umráöa. Öll tilboð koma til greina.“ Síma- númer fjölskyldunnar var gefið upp í auglýsingunni. Fyrir aldarfjórðungi þóttu slík- ar auglýsingar gefá ákveðið í skyn. Litið var á þær sem tilboð um kynlíf gegn þóknun. En þaö var allt annað en Josephine Backshall hafði haft í huga. Dularfullur maður í heim- sókn Josephine fékk svar við auglýs- ingu sinni. Dularfullur maður kom í heimsókn til hennar og fal- aðist eftir henni í prufumynda- töku fyrir vörulista með snyrti- vöruauglýsingum. Maöurinn, sem kvaðst vera atvinnuljósmyndari, náði samkomulagi við Josephine um að mynda hana í bænum Wit- ham í Essex. Hún ók af stað til myndatökunnar í rauðu Ford Cortina bifreiðinni sinni. Jos- ephine sást ekki á lífi eftir það. Aldarfjóröungi síðar er hvarf hennar enn óleyst gáta. Yfir 25 þúsund manns hafa verið yfir- heyrð vegna málsins en lögreglan hefur engan grunaðan fundið. Lögreglan heldur málinu enn opnu en viðurkennir að rannsókn hennar hefur hvorki leitt hana á slóð dularfulla ljósmyndarans né neins annars. Sérstæð sakamál Þegar ljósmyndarinn heimsótti Josephine var eiginmaður henn- ar, Mike Backshall, í vinnunni sinni. Er hann kom heim sagði eiginkonan honum að hún gæti þénaö 100 pund yfir daginn með því að sitja fyrir vegna snyrti- vöruauglýsinga. Myndatakan ætti að fara fram daginn eftir i Whit- man. Kom ekki heim frá prufu- myndatökunni Um morguninn kyssti Jos- ephine manninn sinn í kveðju- skyni og sagði að hún kæmi heim um kvöldið. Hún talaði um að þau skyldu ef til vill halda upp á nýja starfið hennar með því að fara á veitingastað þegar hún kæmi heim. En hún kom ekki aftur heim. Hún hafði verið horfin í þrjá daga þegar lík hennar fannst í lítilli tjörn nálægt fjölfornum vegi. Hún hafði verið bundin á höndum og kyrkt. En henni hafði ekki verið misþyrmt kyn- ferðislega og hún hafði ekki verið rænd. Ástæð- an fyrir morðinu er enn óljós. Yfir 40 lögreglumenn tóku þátt í rannsókninni og fyrstu þrjá mánuðina voru yfir 10 þúsund manns yfirheyrðir. Lög- reglan leitaði manns sem hét annaðhvort Dave eða David og bar eftimafnið Thompson eða Johnson. Vinum Josephine þótti hún hafa sagt eitthvað þessu líkt þegar hún greindi frá nafni manns- ins sem hún ætlaði til fundar við vegna fyrirsætustarfs- ins. Rannsökuð vom nokkur þús- und bílnúmer í leit að bifreiö morðingjans sem talin var geta verið blá Fordbifreið. Slík bifreiö hafði sést á leiðinni frá Fountin kránni í bænum Good Easter í Essex þar sem Josephine hafði verið með morðingja sínum. Paul Foster, 14 ára piltur, hafði tekið eftir bílnum þar sem hann var alveg eins og bíll foður hans. Paul Foster taldi sig einnig hafa séð háan, dökkhærðan mann við stýri Fordbifreiðarinnar og við hlið hans dökkhærða konu. Bíln- um hafði verið ekið í áttina að Maldon. Hann fannst aldrei þrátt fyrir leit lögreglunnar. Síðasta máltíðin var Kína- matur Lögreglam komst að þeirri nið- urstöðu að Josephine Backshall og fylgdarmaður hennar hefðu verið á Fountain-kránni um hálfri klukkustund eftir að hún fór að heiman. Talið var að þau hefðu því næst snætt saman á kínversk- um veitingastað. Krufning á líki Josephine leiddi það í ljós. Samkvæmt frásögn annars vitn- is var fylgdarmaður Josephine mjög hávaxinn, svo hávaxinn að höfuð hans bar við röð af bjórglös- um sem héngu yfir barborðinu. En sjónarvotturinn hafði ekki séð andlit mannsins. Josephine Backshall hafði setið við horn- borð. Þegar maðurinn kom til hennar með tvö bjórglös tóku þau upp létt hjal, að þvi er virtist. Vikurnar liðu án nokkurs ár- angurs í rannsókninni. Eina mögulega slóðin var snyrti- vöruprufa sem athugul lögregiu- kona sá á snyrtiborði hinnar myrtu. Varan var af sjaldgæfri tegund, innfluttri frá Frakklandi. Ef til vill taldi Josephine Backs- hall að hún ætti að auglýsa þessa vörutegund. En innflytjandinn þekkti ekki til neins lausa- mennskuljósmyndara þannig að Heimili Josephine Ókunnugur maður kom til húss Backshallfjölskyldunnar og bauð húsfreyjunni fyrirsætustarf fyrir snyrtivörufyrirtæki. Josephine Backshall Josephine var fyrirmyndarhúsmóðir sem vildi teggja sitt af mörkum til heimilishaldsins. Auglýsing hennar i bæjarblaðinu leiddi til undarlegrar atbúröarásar. „Josephine fékk svar við auglýsingu sinni. Dularfullur maður kom í heimsókn til hennar og falaöist eftir henni í prufu- myndatöku fyrir vöru- lista með snyrtivöru- auglýsingum. Maöur- inn, sem kvaðst vera atvinnuljósmyndari, náði samkomulagi við Josephine um að mynda hana í bænum Witham í Essex." þessi slóð leiddi ekkert. Mike Backshall kvaðst hafa ver- ið mótfallinn því að eiginkona hans leitaði sér að starfi. Henni hefði hins vegar verið umhugað um að leggja sitt af mörkum til heimilishaldsins. Þegar „ljós- myndarinn" heföi hringt hefði hann virkað eins og einhver skýjaglópur og hann hefði eigin- lega haldið að ekkert yrði af þessu. En konan hans hefði full- vissað hann um að þetta væri al- vöruljósmyndari og að hún myndi gæta sín. Eiginmaðurinn iðraðist hræðilega „Hún var mjög spennt fyrir starfinu og horfunum á að þéna 100 pund fyrir að sitja fyrir vegna nokkurra mynda," sagði Mike Backshall. „Ég iðraðst þess hræði- lega að ég skyldi ekki spyma við og banna Josephine að taka þetta starf að sér. Það var jú það sem mig langaði mest til að gera,“ greindi eiginmaðurinn frá. Það er enn hulin ráðgáta hvað kom fyrir Josephine Backshall. Hvers vegna var hún kyrkt þegar hún haföi hvorki orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi né verið rænd? Og hvemig gat morðingi hennar horfið sporlaust eins og hann heföi leyst upp? Það var starfsmaöur símafyrir- tæis, sepi var að leggja kapla við bæinn Bury Green á milli Essex og Hertford, sem fann lík Jos- ephine. För eftir hjólbarða voru á staðnum en rannsókn á þeim leiddi ekkert í ljós. Lögreglan viðúrkennir að henni hafi ekkert orðið ágengt en bendir á að málinu sé enn haldið opnu. Hús mannvonskunnar Katrin misþyrmdi börnuiti sínum eftir lát eiginmannsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.