Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Side 29
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001
DV
37
Helgarblað
DV-MYNDIR ÞÓK
lungur gætir sín ekki á þessum þremur at-
ræöum fjármálalegs eðlis en fyrir
allmörgum árum stofnuðu safnað-
armenn sparisjóðinn Pundið að
sænskri fyrirmynd. Þetta skyldi
vera kristilegur banki sem léti
ágóða, nokkurs konar tíund af
bankastarfsemi, renna til trúboðs-
starfa og góðra mála. Pundið
komst í þrot og var sameinað öðr-
um sparisjóðum og allmargir sem
lagt höfðu hlutafé í púkkið töpuðu
því.
Konur, peningar og völd
Fela þessar sögur ekki í sér
þann lærdóm að trúarsöfnuðir
skyldu forðast fjármálavafstur?
„Það er afar hættulegt fyrir trú-
arleiðtoga að skipta sér af fjár-
málum. Það eru yfirleitt þrjú at-
riði sem verða safnaðarleiðtogum
að falli. Það er kvenfólk, peningar
eða valdagræðgi. Ef safnaðarleið-
togi eða öldungur gætir sín ekki á
þessum þremur atriðum lendir
hann fyrr eða síðar í vandræðum.
Þeir sem ætla að leiða safnað-
arstarf verða líka að leyfa Guðs
orði að leiða sig í sínu lífi því
þeir eru fyrirmynd. Ég á ekki að
segja öðrum hvað þeir eiga að
gera en gera sjálfur það sem ég
vil. Það er prédikunin í hegðun
okkar sem er svo mikilvæg. Verk-
in geta talað svo hátt að þau yfir-
gnæfi orðin.“
- Hefur þér orðið fótaskortur
og sagt eitt en gert annað?
„Það má eflaust grafa það upp.
Minn söfnuður litur eftir mér og
áminnir mig ef honum finnst ég
fara offari í orðum til að mynda.
Það er ekki illa meint heldur til
þess að við getum verið bræður
sem saman söfnumst en ekki
sundur deilum."
Getum ekki mokað yfir
- Er þetta mál allt saman vont fyr-
ir málstað allra hvítasunnumanna?
„Við getum ekkert mokað yfir
þetta eins og kartöflubændur hafa
verið að gera. Með því að ræða málið
af hreinskilni fyrir opnum tjöldum
getum við byggt upp okkar ímynd að
nýju og öðlast traust fólks að nýju.
Við eigum engan tilverurétt ef við
erum að þykjast vera kristnir. Það er
nóg af því í okkar þjóðfélagi. Við vilj-
um ekta boðskap, viljum vera sannir
og hreinir."
Mörgum finnst efnishyggja og
ágirnd einkenna okkar tíma. Þarf að
ryðja um borðum víxlaranna og hver
á að gera það?
„Ef við sem prédikum Guðs orð
eigum ekki að gera það, hverjir þá.
Við megum ekki bregðast. Nú er gott
tækifæri til að leiðrétta okkar sam-
tíma. Ég er ekki með hlutabréfa-
markaðnum eins og hann er í dag.
Þar láta menn stjómast af græðgi og
skammtímahugsun. Ég geri greinar-
mun á fyrirhyggju og græðgi. Sér-
staklega tel ég að grái markaðurinn
sé hættulegur. Ég sem kristinn mað-
ur vil frekar leggja fé til safnaðarins
en að leggja það 1 vogun á hlutabréfa-
markaði. Ef við emm sannkristin þá
hikum við ekki við að leggja okkar
milljónir í hendur Jesú Krists."
Jesús var ekki umburðar-
iyndur
Snorri hefur oft vakið athygli fyrir
allt að því vægðarlausan málflutning
sem sumum finnst jaðra við ofstæki.
Hvemi getur hann verið svona viss?
„Ég treysti því að Biblían viti bet-
ur. Hún flytur okkur boðskap margra
kynslóða sem vegur þyngra en okkar
stutta lífsreynsla. Viö getum ekki gef-
ið neinn afslátt af því.“
Þinn máiflutningur gegn t.d. sam-
kynhneigðum hefur ekki þótt vera í
takt við tíðarandann og ekki eins
umburðarlyndur og Biblían boðar.
Er þetta rétt?
„Jesús var ekki umburðarlyndur.
Farísearnir kvörtuðu undan honum
og hann velti borðum víxlaranna.
Hann er okkar fyrirmynd."
Samkynhneigð er hættuleg
- Stafar okkur hætta af samkyn-
hneigðum sem hafa skilgreint sig
sem minnihlutahóp sem berst fyrir
réttindum sínum?
„Þetta er hættulegur lífsstíll og
menn umbera hann vegna þekking-
arleysis. Hið svokallaða umburðar-
lyndi felst í því að menn vilja leyfa
þessu að vera meðan það snertir ekki
þá sjálfa. Samkynhneigðir deyja upp
úr fertugu vegna þess að likaminn
þolir ekki það sem lagt er á hann. Að-
eins 1% samkynhneigðra nær gamals
aldri. Samkynhneigð byggist á laus-
læti og sjúkdómum."
Horfi ekki á naktar konur
- Nú hafa nektarstaðir rutt sér
mjög tO rúms á íslandi og þó þá sé
ekki að finna í Vestmannaeyjum eru
þeir á Akureyri. Muntu láta til þín
taka gegn þessari starfsemi fyrir
norðan?
„Ég er þessu andvígur og horfi yf-
irleitt ekkert á naktar konur. Ég við-
urkenni þó að þetta er mjög nálægt
eðli karlmannsins að horfa á bert
holdið og menn virðast vera tilbúnir
að halda fram hjá þegar því er að
skipta. En þetta er ekki það sem Guð
vill.
Þessar stúlkur eru yfirleitt kallað-
ar meyjar eða dansmeyjar. Þama er
verið að taka meyjarhugtakið og gera
úr því eitthvað útskryppi. Þessar
stúlkur eru dætur og systur einhvers
og það er verið að eyðileggja sál
þeirra fyrir peninga. 60% kvenna í
klámiðnaði hafa verið eyðilagðar
sem stúlkubörn. Klámiðnaðurinn
sýkir hug drengja sem skipuleggja
hópnauðganir. Klámmyndir eru
kennslumyndbönd á þessu sviði. Ég
vil loka þessum stöðum og ég vil
banna þetta. Ég veit að það er á bratt-
ann að sækja og þess vegna er brýnt
að tala gegn þessu.
Ég mun tala gegn nekt og klámi á
Akureyri og bræður okkar í Reykja-
vik hafa skipulagt mótmæli gegn
stöðum eins og þessum. En hér er
mikilvægt að málflutningur okkar sé
trúverðugur og við séum samkvæmir
sjálfum okkur.“
„Við getum ekkert mokað
yfir þetta eins og kart-
öflubœndur hafa verið að
gera. Með því að rœða
mdlið af hreinskilni fyrir
opnum tjöldum getum
við byggt upp okkar
ímynd að nýju og öðlast
traust fólks að nýju. Við
eigum engan tilverurétt
ef við erum að þykjast
vera kristnir. Það er nóg
af því í okkar þjóðfélagi. “
Verri en dönsk einokun
Snorri er sjómannssonur og alinn
upp við sjósókn og hann er harðvítug-
ur andstæðingur kvótakerfis í sjávar-
útvegi sem hann segir hliðstæðu
dönsku einokunarverslunarinnar og
íbúar Vestmannaeyja séu í varðhaldi
kvótaeigenda.
„Þetta er versta tegund einokunar
sem til er. Það tók okkur tvöhundruð
ár eða meira að losa okkur undan
jessu. Eftir 12 ár undir kvótakerfi
prédikari Einar Gíslason,
sem leiddi hann árum sam-
an, var föðurbróðir Snorra.
Móðir Snorra var fyrsti ung-
lingurinn i Vestmannaeyj-
um sem frelsaðist inn í söfn-
uðinn aðeins 14 ára gömul
en móðir hennar var virk í
söfnuðinum. Sjálfur frelsað-
ist Snorri aðeins níu ára.
„Ég man eftir minni frels-
isstund. Það var á samkomu
i Betel og prédikarinn hvatti
mig til að gefast Kristi. Ég
rétti upp hendina og við báð-
um saman. Það streymdi um
mig gríðarlegur friður og ég
man þegar ég hljóp frá Betel
og hingað heim þá fannst
mér ég svífa. Þetta var sterk
og ógleymanleg upplifun. Ég
lét svo niðurdýfast þegar ég
var 11 ára gamall og þá
gagnrýndu margir það og
töluðu um innrætingu. En
Gegn nekt
Snorri segist munu prédika gegn
starfsemi nektardansstaöa á Akur-
eyri en þangaö mun hann fiytja. „Ég
viöurkenni þó að þetta er mjög ná-
lægt eðli karlmannsins aö horfa á
bert holdiö og menn viröast vera til-
þúnir aö halda fram hjá þegar því er
að skipta. En þetta er ekki þaö sem
Guö vill. “
eru yngstu skipstjórar hér í Vest-
mannaeyjum rúmlega fertugir. Stýri-
mannaskólinn stendur auður og
þarna er þekkingin að hverfa og það
fer að verða of seint að bjarga útgerð-
inni. Það er ekki vafi á því að núver-
andi sjómannaverkfall er búið að
valda miklu tjóni nú þegar, Við ætt-
um að líta til Færeyja og sjá hvernig
þeir hafa það. Við höfum sett traust
okkar á sérfræðinga og menntaða
menn en þekking okkar á Guðs orði
er í molum.“
Biessað vínarbrauð
Snorri býður okkur til eldhúss í
kaffisopa og hefur borðhaldið með
borðbæn eins og hann hefur alltaf
gert. Við gæðum okkur á blessuðu
vínarbrauði og sterku kaffi við eld-
húsborðið í þessu gamla fjölskyldu-
húsi. En hvemig vildi það til að hús-
ið komst í eigu fjölskyldunnar?
„Þegar faðir minn og móðir voru
búin að missa sitt fyrsta barn vildu
þau endilega komast í betra húsnæði.
Hann var skipstjóri svo það varð að
ráði að hann snaraði kaupverði húss-
ins, 96 þúsund krónum, á borðið.
Konan sem seldi varð svo ánægð að
hún sagðist láta gluggatjöld og fleira
innanstokks fylgja húsinu. Pabbi
sagðist þá hefði keypt það þótt það
verðið hefði verið 104 þúsund og þá
varð konan afskaplega reið og sár,“
segir Snorri þegar hann segir okkur
fjölskyldusögu hússins.
„Þau byggðu ofan á húsið 1965 og
þetta hefur verið okkar fjölskylduhús
þótt við byggjum lengi annars staðar.
'Ég var á Vopnafirði og byggði mér
svo hús hér annars staðar í bænum.
Svo þegar pabbi lá banaleguna kom
Einar Gíslason prédikari til hans og
sagði: Óskar bróðir, ert þú búinn að
gera það sama og Hyskía, að ráðstafa
húsi þínu. Það varð að ráði að þau
báðu okkur að koma og búa héma.
Pabba haföi dreymt fyrir því að
þau byggju hér til síðasta dags og það
kom fram. Þegar við fluttum inn eftir
að hann dó 1991 þá vildi ég að
mamma kæmi sér vel fyrir því hún
átti aö búa hjá okkur áfram. Þá sagð-
ist hún verða í mesta lagi hjá okkur í
átta ár. Hana hafði dreymt fyrir því
lika.
Þegar hún dó þá sat hún hjá mér í
eldhúsinu og ég var að laga mat og
við voram að spjalla saman á meðan.
Hún þagnaði skyndilega og þegar ég
leit við sá ég að höfuð hennar var fall-
ið að veggnum og hún reyndist vera
látin. Hún hafði beðið Drottin um að
fá að fara með þessum hætti en hún
var rúmlega níræð þegar hún dó.
Þannig kom fram draumurinn um að
þau yrðu hér til síðasta dags í þessu
húsi.“
Dreymdi konuefnið
- En hefur þig dreymt fyrir óorðn-
um hlutum?
„Það hefur nokkrum sinnum kom-
ið fyrir og ég lít á það sem hluta af
guðlegri blessun. Mig
dreymdi fyrir því hvert yrði
konuefnið mitt. Ég var í
Kennaraskólanum í Reykja-
vík og bjó við Hverfisgötu.
Eina nóttina dreymdi mig
að þakið opnaðist og ég sá
stjörnubjartan himininn
yfir mér. Ein stjarnan sveif
niður til mín og rétt fyrir
ofan mig breyttist hún í gló-
andi hring og ég sá nafnið
Brynja grafið innan í hann.
Þá þekkti ég verðandi eigin-
konu mína en það var að-
eins vináttusamband. Þama
sá ég hvað myndi verða og
þakkaði Guði því hann er
mér vitrari og hefði ekki
getað valið mér betri konu.“
Frelsaöist níu ára
Betel-söfnuðurinn í Vest-
mannaeyjum var nokkurs
konar fj ölskyldusöfnuður í
tilfelli Snorra en hinn frægi
þetta hefur dugað til þessa dags og á
eftir að duga lengur."
Snorri ólst upp við að Einar frændi
hans var leiðtogi safnaðarins og Ósk-
ar faðir hans var hans hægri hönd.
Þeir bræður rera saman og um þá
sköpuðust sögur í samfélaginu í Vest-
mannaeyjum. Snorri tók við söfnuð-
inum 1975, fyrst með föður sínum en
1983 var formlega gengið frá stöðu
hans sem forstöðumanns með fullum
réttindum til að skíra, gifta og jaröa.
„Ég er alinn upp við að hafa skoð-
anir og hér byrjaði Hvitasunnusöfn-
uðurinn á íslandi. Hér er gígm-inn
sem hraunið rann úr og streymdi um
allt land.“
Trúboðinn fljúgandi
Snorri er á föram til Akureyrar.
Ástæður þess era ákveðin kaflaskil í
lífi þeirra hjóna en Brynja eiginkona
hans hefur setið á skólabekk einn vet-
ur í Háskólanum á Akureyri og
numið iðjuþjálfun og á eftir tvo vetur.
Þau hjónin eiga fimm börn sem mega
heita uppkomin og fara tvö þau
yngstu til náms í Reykjavík á vetri
komanda. Snorri hyggst starfa við
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði en hversu
endanleg er þessi ákvörðun. Kemur
þú aldrei aftur til Vestmannaeyja?
„Við munum leigja húsiö fyrst um
sinn og lítum ekki á þessa ákvörðun
sem endanlegan brottflutning en ger-
um okkur grein fyrir því að svo getur
þó vel orðið. Það veit enginn sína æv-
ina fyrr en öll er. Ég er 49 ára og Gyð-
ingar skiptu alltaf um leiðtoga á 49
ára fresti til foma og gafst vel. Guð
ræður okkar för, hann er okkar leið-
togi.
Við eigum böm í Eyjum, Vopna-
firði og Reykjavík. Mig dreymir um
að eignast litla flugvél sem ég geti
notað til að ferðast um landið og boða
Guðs orð. Ég sé mig í hlutverki hjá
söfnuðum landsins því ég er ekkert
hættur að prédika þó ég fari héðan.
Það er söfnuður á Akureyri og þar
mun ég vonandi njóta mín.“
- Ertu sáttur við að yfirgefa Vest-
mannaeyjar?
„Nei, ekki að öllu leyti. En kannski
er maður eins og kanarífuglinn í búr-
inu, maöur er ánægður í sínum litla
innilokaða heimi meðan maður veit
ekki hvað er fyrir utan.“
Ég vei ekki arftaka
Betel-söfnuðurinn telur
75 manns um þessar mund-
ir. Flest var í honum í
kringum 1990 þegar 110
meðlimir vora þar innan
veggja. En hvað verður um
söfnuðinn, hver tekur við
honum af Snorra?
„Ég vel ekki arftaka
minn. Við verðum að
treysta því að Guð hafi eitt-
hvað um málið að segja og
safnaðarstjórnin telur sex
trausta menn svo þetta er
ekkert í lausu lofti. Fólk er
vant ákveðnum manni og
það hugsar ekkert um breyt-
ingar fyrr en hann fer. Þeg-
ar ég tók við af Einari
frænda mínum þá datt mér
ekki í hug að fara í fötin
hans. Hans tími var liðinn
og minn kominn og þannig
verður það líka með arftaka
minn.“ -PÁÁ