Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Blaðsíða 26
42
________MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001
Íslendingaþættir______________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
mmm
95 ára_________________________
Ólafur Daðason,
Dalbraut 27, Reykjavík.
90 ára_________________________
Ingunn Sveinsdóttir,
Háeyrarvegi 1, Eyrarbakka.
SOJra__________________________
Ása Siguröardóttir,
Eyvindarhólum 2, Hvolsvelli.
Hrefna Magnúsdóttir,
Engihjalla 7, Kópavogi.
75 ára_________________________
Hreinn Óskarsson,
Ásvegi 26, Akureyri.
Óskar Ósvaldsson,
Seljavegi 19, Reykjavik.
Sigurður Jakobsson,
Reykjadal 2, Mosfellsbæ.
70 ára_________________________
Einar Sighvatsson,
Reynimel 82, Reykjavík.
Ingunn Sighvatsdóttir,
Túnprýöi, Stokkseyri.
Ólafur Árni Páimason,
Engihlíð, Búðardal.
Ragnar S. Sigurðsson,
Engihjalla 19, Kópavogi.
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Stóru-Mástungu la, Selfoss.
Sigríður Magnúsdóttir,
Kambahrauni 24, Hveragerði.
Sveinn Bjarnason,
Brúarlandi, Akureyri.
60 ára_________________________
Jóhann Bragi Hermannsson,
Víkurbakka 2, Reykjavík.
Sigríður Þorbergsdóttir,
Viðigrund 14, Sauðárkróki.
50 ára_________________________
Ásta Ásdís Sæmundsdóttir,
Jakaseli la, Reykjavík.
Ásthildur Hannesdóttir,
Hrauntungu 89, Kópavogi.
Guöný Eiríksdóttir,
Vættaborgum 154, Reykjavík.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Stórhóli 1, Húsavík.
Haukur Kristinsson,
Kringlunni 31, Reykjavík.
Hugi Hugason,
Sæbólsbraut 30, Kópavogi.
Ingunn Kristjánsdóttir,
Aðallandi 12, Reykjavík.
Jóhannes Jón Þórarinsson,
Skáldalæk, Dalvík.
Júlíus H. Hlynsson,
Blikabraut 13, Keflavík.
Lilja Hjördís Halldórsdóttir,
Brekkulæk 4, Reykjavík.
Sigurður Baldursson,
Fjarðarvegi 37, Þórshöfn.
Þór Þórarinsson,
Álfatúni 8, Kópavogi.
40 ára_________________________
Eiva Kristjana Guðmundsdóttir,
Skólagerði 3, Kópavogi.
Hanna Málmfriður Harðardóttir,
Vesturbrún 4, Flúðum.
Hanna Þórunn Axelsdóttir,
Drápuhlíð 39, Reykjavík.
Helgi Sigurösson,
Lerkilundi 17, Akureyri.
Hrafnhildur Arnkelsdóttir,
Grandavegi 7, Reykjavík.
Hulda Davíðsdóttir,
Grænumýri 18, Akureyri.
Jónas Jónasson,
Sogavegi 160, Reykjavík.
Linda Birgisdóttir,
Austurgötu 16, Keflavík.
Margrét Gunnlaugsdóttir,
Stekkjarhvammi 1, Hafnarfirði.
Sigriður Svandís Hjálmarsdóttir,
Hólsvegi 7,_Bolungarvík.
Slgurbjörg Ólafsdóttir,
Urriðavatni, Egilsstaöir.
Sigurður Malmquist,
Byggðavegi 92, Akureyri.
Sigurður P. Kristjánsson,
Njálsgötu 36, Reykjavík.
Sigurgeir Ólafsson,
Hörgsholti 27, Hafnarfiröi.
Sigurlaug K. Unnsteinsdóttir,
Hreiðurborg, Selfossi.
Þórunn Rán Jónsdóttir,
Kársnesbraut 90, Kópavogi.
/
{Jrval
- gott í hægindastólinn
Fólk í fréttum
Þórarinn Tyrfingsson
stjórnarformaöur og yfirlæknir hjá SÁÁ
Þórarinn Tyrfingsson
Þórarinn hefur verið persónugervingur fyrir starfsemi SÁ4 og þá vakningu
sem varð í áfengismeðferðarmálum hér á landi fyrir rúmum tuttugu árum.
Þórarinn Tyrfingsson, stjórnar-
formaður og yfirlæknir SÁÁ,
greindi frá því í helgarviðtali í DV
um helgina að 228 fleiri einstakling-
ar hefðu komið í meðferð til SÁÁ á
síðasta ári en árið áður.
Starfsferill
Þórarinn fæddist í Reykjavík 20.5.
1947 og ólst þar upp. Hann varð
stúdent frá MR 1967 og lauk embætt-
isprófi í læknisfræði frá HÍ 1975.
Þórarinn var heilsugæslulæknir
á Hvammstanga 1977-79, hefur ver-
ið læknir hjá SÁÁ frá 1979 og unnið
að skipulagningu meöferðarmála
þar frá 1980. Hann var yfirlæknir á
Sogni 1980-86, i Vík frá 1986, á Stað-
arfelli frá 1980, á Vogi frá 1984 og yf-
irlæknir á stofnunum SÁÁ sam-
kvæmt nýrri skipan frá 1990.
Þórarinn sat í stjórnskipaðri
nefnd um úrbætur í áfengisvörnum
1984-86. Hann var kosinn formaður
SÁÁ 1988.
Þórarinn lék handbolta með
meistaraflokki ÍR 1964-75 og 1983,
var í unglingalandsliðinu í hand-
bolta 1965 og i stjórn handknatt-
leiksdeildar lR 1964-70 og formaður
1981-82.
Fjölskylda
Þórarinn kvæntist 7.4. 1969 Hildi
Guðnýju Bjömsdóttur, f. 26.4. 1944,
kennara. Hún er dóttir Björns Ein-
arssonar, rafmagnstæknifræðings í
Kópavogi, og k.h„ Gunnvarar Braga
Sigurðardóttur, dagskrárstjóra
bamaefnis Ríkisútvarpsins, en þau
era bæði látin.
Börn Þórarins og Hildar eru Hall-
dóra Kristin, f. 23.12. 1968, læknir, í
sémámi í barnalækningum í Hart-
ford í Connecticut í Bandaríkjun-
um, gift Jónasi Knútssyni, BFA í
kvikmyndagerð og BA í ensku og
latínu, sjálfstæöur atvinnurekandi,
og eru dætur þeirra Hrefna
Kristrún og Erna Kristín; Tyrfmg-
ur, f. 25.2.1970, klassískur gítarleik-
ari og kennari og nemi i viðskipta-
fræði við HÍ; Bjöm Logi, f. 16.2.
1972, nemi í læknisfræði við HÍ,
kvæntur Lindu Björk Sigurðardótt-
ur, löggiltum læknaritara, og eru
dætur þeirra Hildur Guðný og
Birna Björk; Hildur, f. 29.4. 1977,
nemi í læknisfræði við HÍ en
unnusti hennar er Ingi Þór Ólafsson
byggingaverkamaður; Þórhildur, f.
23.11. 1989, nemi við Árbæjarskóla.
Börn Þórarins frá því áður eru
Birgir, f. 29.9.1968, tölvunarfræðing-
ur í Reykjavík og félagi í GUSGUS,
kvæntur Sigrúnu Daníelsdóttur, og
er dóttir þeirra Silja Sóley; Ingunn
Edda, f. 15.3. 1969, fatahönnuður í
Noregi, og er dóttir hennar Nanna
Karen.
Bræður Þórarins eru Þórður, f.
17.1. 1944, tæknifræðingur í Reykja-
vík; Pétur, f. 18.5. 1953, tónlistar-
maður, dagskrárgerðarmaður og
MA í sálfræði.
Foreldrar Þórarins: Tyrfingur
Þórarinsson, f. 27.12. 1916, d. 12.4.
1985, húsasmíðameistari í Reykja-
vík, og k.h., Lára Þórðardóttir, f. 4.8.
1922, húsmóðir.
Ætt
Tyrfmgur var sonur Þórarins,
trésmiðs og múrara í Borgarnesi,
Ólafssonar, b. á Einifelli í Staf-
holtstungum, Ólafssonar. Móðir
Ólafs var Guðríður Magnúsdóttir, b.
i Ausu í Andakíl, Ólafssonar, og
Ingibjargar Jónsdóttur, b. í Efra-
skarði, Magnússonar. Móðir Jóns
var Þórunn Jónsdóttir, systir Steins
biskups. Móðir Þórarins var Ólöf
Sigurðardóttir, b. á Mófellsstöðum í
Skorradal, Sigurðssonar, pr. í
Vatnsfirði, Þorbjarnarsonar, gull-
smiðs á Lundum, Ólafssonar, fóður
Ólafs, afa Ragnhildar, ömmu Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra og
Tómasar Helgasonar yfirlæknis.
Ólafur var einnig langafi Jóns, föð-
ur Þorsteins frá Hamri.
Móðir Tyrfings var Jónína Krist-
ín Jónasdóttir, sjómanns i Skáholti
í Reykjavik, Ólafssonar, b. í Efraseli
á Stokkseyri Jónssonar. Móðir Jón-
ínu var Kristín, systir Magnúsar
„rokkadrejara", langafa Megasar.
Kristín var dóttir Ásbjarnar, hús-
manns á Grímarsstöðum, Magnús-
sonar, og Kristínar Magnúsdóttur.
Lára er dóttir Þórðar, b. á Högna-
stöðum í Þverárhlíð, bróður Helgu,
ömmu Pálma Gíslasonar, fyrrv. for,-
manns Ungmennafélags íslands.
Þórður var sonur Jóns, skálds á Há-
reksstöðum, bróður Jóhanns, alþm.
í Sveinatungu. Jón var sonur Eyj-
ólfs, skálds í Hvammi, Jóhannesson-
ar, og Helgu Guðmundsdóttur, b. á
Sámsstöðum, bróður Sigurðar, afa
Jóns Helgasonar prófessors. Guð-
mundur var sonur Guðmundar, ætt-
foður Háafellsættarinnar, Hjálmars-
sonar. Móðir Þórðar var Ragnhildur
Þórðardóttir, b. á Brekku í Norður-
árdal, Jónssonar, og Halldóru
Tímotheusdóttur. Móðir Láru var
Gunnvör Magnúsdóttir, sjómanns á
Akranesi, Helgasonar, og Guðrúnar
Jónsdóttur eldra, b. í Síðumúla,
Sveinssonar, bróður Jóns yngra, afa
Guðmundar Böövarssonar, skálds á
Kirkjubóli. Móðir Guðrúnar var
Þórdis Jónsdóttir, b. á Tóftarhring í
Hvítársíðu, Jónssonar, og Guðrún-
ar, systur Jóns, langafa Halldórs H.
Jónssonar stjórnarformanns, föður
Garðars arkitekts.
Fimmtug
Jóhanna F. Björnsdóttir
leikskólaleiðbeinandi í Reykjavík
Jóhanna Freyja B jörnsdóttir,
leikskólaleiðbeinandi í Hólaborg,
Orrahólum 5, Reykjavík, er fimm-
tug í dag.
Starfsferill
Jóhanna fæddist í Sauðhaga á
Völlum. Hún var í barnaskóla á Eyj-
ólfsstöðum og síðasta árið í Mörk-
inni á Hallormsstað og stundaði
nám við Alþýðuskólann á Eiðum
1966-70.
Jóhanna starfaði á sumarhótel-
inu Eiðum og á Hallormsstað og
vann verslunarstörf við Kaupfélag
Héraðsbúa á Egilsstöðum í eitt ár.
Jóhanna ílutti til Reykjavíkur
1973 og hefur verið búsett þar síðan.
Hún var dagmóðir í tíu ár en hefur
starfað við leikskólann Hólaborg frá
1985.
Jóhanna átti sæti í stjóm For-
eldra- og kennarafélags Hólbrekku-
skóla og situr í sóknarnefnd Hóla-
brekkusóknar.
Fjölskylda
Eiginmaður Jóhönnu er Magnús
S. Magnússon, f. 25.9. 1949, verk-
stjóri við Malbikunarstöðina Höfða.
Hann er sonur Magnúsar Magnús-
sonar og Jóhönnu Árnadóttur í
Reykjavík.
Böm Jóhönnu og Magnúsar eru
Ásbjörg, f. 10.10. 1974, nemi í Há-
skólanum á Akureyri; Hrafnhildur,
f. 28.4. 1980, stúdent; Magnús, f. 3.4.
1985, nemi við Kvennaskólann í
Reykjavík.
Systur Jóhönnu eru Magnea Her-
borg, leikskólakennari í Keflavík,
og Amalía, dósent við Kennarahá-
skóla Islands.
Foreldrar Jóhönnu: Bjöm Sig-
urðsson, f. 20.9. 1927, bóndi í Sauð-
haga i Vallahreppi, og Ásbjörg Þor-
kelsdóttir, f. 28.1. 1929, d. 14.1. 1992,
húsfreyja.
Ætt
Björn er sonur Sigurðar, b. í
Sauðhaga, Björnssonar, b. á Vaði í
Skriðdal, ívarssonar. Móðir Sigurð-
ar var Ingibjörg Bjarnadóttir.
Móðir Bjöms í Sauðhaga var
Magnea Herborg, hálfsystir, sam-
feðra, Jóns í Klausturseli á Jökul-
dal, föður Hrafnkels, héraðsbóka-
varðar og fyrrv. alþm. og verkalýðs-
Merkir íslendingar
Haraldur Böðvarsson, útgerðarmaður og
velgjörðarmaður Akraneskaupstaðar,
fæddist á Akranesi 7. maí 1889. Hann var
sonur Böðvars Þorvaldssonar, kaup-
manns og útgerðarmanns á Akranesi,
og Helgu Guðbrandsdóttar frá Hvita-
dal. Böðvar var af Presta-Högnaætt,
sonur Þorvalds, bróður Böðvars gest-
gjafa í Hafnarfirði, langafa Magnúsar
Gunnarssonar bæjarstjóra þar.
Haraldur var einn þekkasti athafha-
og útgerðarmaður landsins á tuttug-
ustu öld. Hann gerði út opin skip til
þorskveiða frá Vörum í Garði 1908-1914,
vélbát frá Vogavík á Vatnsleysuströnd
1909-1916, rak útgerð og verslun í Sandgerði 1
1914-1941, heildverslun og skipaafgreiðslu í
i
Haraldur Böðvarsson
Bergen 1916-1924, heildverslun, útgerð og
skipamiðlun í Reykjavík 1915-1924 og síld-
arsöltun og útgerð á Siglufirði um árabil.
Hann var búsettur í Reykjavík 1915-1924
en síðan á Akranesi, enda starfrækti
hann umsvifamikla útgerð, verslun,
iðnað og skipaafgreiðslu frá 1906.
Haraldur var auk þessa mikill fé-
lagsmálamaður, var stjórnarformaður
Andakílsvirkjunar, sat í hreppsnefnd,
hafnamefnd og bæjarstjórn á Ákranesi
og sinnti mjög æskulýðs- og mannúðar-
mma málum. Hann og kona hans, frú Ingunn
Bjr Sveinsdóttir, gáfu Akraneskaupstað Bíó-
ÍW höllina þar 1943, ásamt öllum búnaði, en
^ ágóði hennar rann til byggingar Sjúkrahúss
Akraness. Haraldur lést 19. apríl 1967.
foringja. Magnea Herborg var dóttir
Jóns, b. á Setbergi í Fellum, Péturs-
sonar, b. á Þorgerðarstöðum í
Fljótsdal, Sveinssonar, b. á Bessa-
stöðum í Fljótsdal, Pálssonar, b. í
Bessastaðagerði, Þorsteinssonar, b.
á Melum í Fljótsdal, Jónssonar, ætt-
föður Melaættarinnar.
Móðir Magneu Herborgar var
Pálína Jónsdóttir er síðast var í
Sauðhaga.
Ásbjörg var systir Ágústu á Refs-
stöðum í Vopnafirði og Péturs, hafn-
arvarðar á Flateyri. Ásbjörg var
dóttir Þorkels, verkamanns í
Reykjavík, Gíslasonar, og Jóhönnu
Freyju Pétursdóttur húsmóður.
Jóhanna Freyja tekur á móti vin-
um og vandamönnum á heimili
þeirra hjóna, Orrahólum 5, að
morgni afmælisdagsins, eftir kl. 7.30
fyrir hádegi.
allan sólarhringinn. www.utforin.is
Sverrir Einareson Baldur Fredriksen
utfararstjori útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Sutarhlíö35 • Sími 581 3300
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.