Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001 DV Fréttir Istak og Aðalverktakar bítast um rannsóknahúsið - mikil fjölgun nema við HA kallar á stærra rannsóknahús en áður var áætlað „Málatilbúnaður arktitektanna er rekinn að stóru leyti vegna ágrein- ings um höfundarrétt en þessi ákvörðun um annað húsnæði tengist því ekki. Rannsóknahúsið er einfald- lega of stórt til að passa inn á þenn- an byggingarreit sem áður var ákveðinn," segir Þorsteinn Gunnars- son, rektor Háskólans á Akureyri. Samkvæmt frumdrögum að deiliskipulagi hefur verið horfið frá þvi að hafa fyrirhugað rannsóknahús háskólans á skólalóðinni. Átök hafa orðið um rannsóknahúsið og er dómsmál í gangi milli hönnuða húss- ins og ríkisins. Deilan tengist þó ekki þeirri ákvörðun að reisa húsið á nýj- um stað, sbr. ofangreint svar rektors. Hann segir að áfram verði unnið að þvi að vígja húsið árið 2003 og er kostnaðaráætlun tæpur millj- arður króna. Búið er að velja tvö fyrir- tæki til að gera lokatilboð í rannsóknahúsið, annars veg- ar íslenska aðalverktaka og hins vegar Ístak-Nýsi. „Það er verið að vinna útboðsgögn fyrir þessa aðila og samhliða þessu er unnið að gerð Þorsteinn Gunnarsson. deiliskipulags svæðisins," segir rektor sem vonar að dómsmál muni ekki tefja framkvæmdir. Hitt sé ljóst að dómi undirréttar verði áfrýj- að á hvom veginn sem hann fellur. Ein ástæða þess að stærra hús þarf undir starfsemina en áður hafði verið áætlað er að skólinn byggist hraðar upp en menn gerðu ráð fyrir. Það stefnir í met- ijölda næsta skólaár. Að sögn rektors er ekki ólíklegt að stúdentar verði á bilinu 730-750 í haust og hefur nem- endafjöldi aukist um rúm 10% að meðaltali á ári. Meðal annars verður boðið upp á nýja upplýsingatækni- deild í vetur og er mikill áhugi á brautinni. -BÞ Framkvæmdir við stækkun Norðuráls ganga vel: Gangsetning kera í næsta mánuði DV, GRUNDARTANGA: Framkvæmdir við stækkun Norð- uráls úr 60 þúsund tonna ársfram- leiðslu í 90 þúsund tonn ganga mjög vel og eru á áætlun. Við stækkunina starfa milli 10 og 15 verktakar. Fjöldi starfsmanna sem starfa við stækkun- ina á staðnum er á milli 170 og 190 manns samkvæmt upplýsingum frá Norðuráli. Byggð var ný starfs- mannaaðstaða sem tekin var i notk- un í október á síðasta ári. Einnig var byggð viðhaldsbygging sem tekin var í notkun núna í janúar. Stækkun kerskála og fram- Unniö við að fóðra ker Stækkun kerskála og framkvæmdir viö nýja kerfóörunarbyggingu hafa staöiö í rúmt ár og er senn aö Ijúka. kvæmdir við nýja kerfóðrunarbygg- ingu hófst í febrúar á síðasta ári og núna er verið að leggja lokahönd á þessar byggingar. Unnið hefur verið að breytingum og endurbótum í skautsmiðju þar sem ný blöndunar- stöð baðefna hefur verið tekin í notkun. Einnig hefur verið unnið að breytingum á formölun og geymslu baðefna. Það verk er langt komið og vonast er til að stöðin verði tekin í notkun innan skamms. Að auki hef- ur vinnslulína til endurvinnslu skauta verið skipulögð að nýju. Frá síðustu áramótum hefur ver- ið unnið við uppsetningu súráls- flutningakerfis inni í kerskálunum, DV-MYNDIR DANÍEL V. ÓLAFSSON Góður gangur Verktakar viö vinnu hjá Noröuráli. Nærri 200 manns vinna viö stækkunina. stækkun þurrhreinsivirkis, kerfóðr- un, uppsetningu rafleiðara og ýmis- legt fleira sem tengist stækkunar- framkvæmdum. Áætlað er að fram- kvæmdum ljúki í júní í sumar og þá hefst gangsetning kera. -DVÓ ÁRSFUNDUR 2001 - 14. maí að Grand Hótel Reykjavík ;:á W ■ Lífeyrir Sameinaði lífeyrissjóðurinn Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins árið 2001 verður haldinn mánudaginn 14. maí 2001 kl. 16:00 að Grand Hótel Reykjavík. DAGSKRA 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. TiLLögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál löglega upp borin. Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar sjóósins rétt til setu á fundinum. Þeim sjóðfélögum sem hafa óhuga ó að kynna sér tillögur um breytingar á samþykktum Sameinaða lífeyríssjóðsins, er bent á að hægt er að nálgast þær á eftirfarandi hátt: • Á skrifstofu sjóðsins að Borgartúni 30, Reykjavík • Fá þær sendar með því að hafa samband í síma 510-5000 • Fletta þeim upp á heimasíðu sjóðsins á slóðinni www.lifQfrir.is Reykjavík 20. apríl 2001. Stjórn Sameinaða Lífeyrissjóðsins Borgartún 30 • 105 Reykjavík • sími 510 5000 • fax 510 5010 • mottaka@Ufeyrir.is • lifeyrir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.