Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Qupperneq 2
2 Fréttir LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 ___________DV Titringur efnahagslífsins: Mun breyta fjárlögunum - útgjaldahlið ríkissjóðs hefur vaxið ört Hræringarnar í efnahagslífi lands- manna þessa dagana munu hafa áhrif á fjárlög næsta árs. Þetta segir Ólafur Örn Haraldsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, en hann vill ekki tjá sig nánar um hvers kon- ar fjárlög verða lögð fyrir næsta þing. Vinna við gerð fjárlaganna er þegar hafin en það verður ekki fyrr en í nóvember sem frumvarpið verður lagt fram. „Það er alveg ljóst aö þær breyt- ingar sem við erum að sjá í efnahags- lífnu núna munu hafa einhver áhrif á fjárlagagerðina en það kemur fleira til en bara tekjuhliðin. Það hafa einnig orðið verulegar útgjalda- aukningar hjá ríkinu. Sem dæmi má nefna launahækk- anirnar sem er mjög stór póstur," sagði Ólafur örn í samtali við DV í gær. Spurður um vaxandi skuldabyrði ríkisins vegna erlendra lána, segir Ólafur Öm að vissulega muni verðbólgan hafa nei- kvæð áhrif. Eins og fram hefur komið í DV telur Vilhjálmur Egilsson, sjálfstæðismaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, að auknar líkur séu á harðri lendingu í efnahags- lífinu enda hafi forsendur breyst undanfarið. Forsætis- ráðherra telur aö verðbólgan muni hjaðna aftur innan skamms en ekki era allir svo bjartsýnir. Ólafur Örn vill ekki blanda sér í spár manna um fram- vindu efnahagslífsins og hann vill Ólafur Örn Haraldsson. ekki tjá sig um ummæli Vilhjálms. Vilhjálmur Egilsson sér ákveðna kosti við harða lendingu, þar sem efnahagslífið geti þá flýtt viðbrögðum sínum til að byggja upp nýtt hagvaxt- arskeið. Ólafur Örn viO ekki heldur segja skoðun sina á því. En bendir ekki allt til að næstu fjár- lög verði aðhaldssamari en verið hef- ur og óraunhæft verði að gera ráð fyr- ir tekjuafgangi? „Ég vil ekkert segja um það. Það væri óeðlilegt að tjá sig um það á þessu stigi,“ segir formaður fjárlaganefndar Alþingis. -BÞ Föstudagserill: Vá við Kringlu í síðdegiserli föstudagsumferðar- innar í gær urðu fimm umferðar- slys á Kringlumýrarbrautinni á skömmum tíma; þar af tvö alvarleg. í fyrra tilvikinu skullu tvær bif- reiðar saman á mótum Kringlumýr- arbrautar og Miklubrautar. Báðar voru að fara yfir á grænu ljósi og gjöreyðilögðust. Ökumaður annars bilsins var fluttur handleggsbrotinn á sjúkrahús. í síðara tilvikinu ók ökumaður gegn rauðu ljósi á mótum Lista- brautar á þrjár bifreiðar sem biðu eftir grænu og slasaði ökumenn þeirra allra. Þurfti stálskera til að ná þeim út. -EIR Dópaður og fullur á Reykja- nesbraut Lögreglunni í Reykjanesbæ var tilkynnt um bifreið sem valsaði á mikilli ferð á milli akreina á Reykjanesbraut á móts við af- leggjarann að Vogum í gær. Var hart brugðist við en áður en lög- reglumenn náðu á staðinn valt um- ræddur bíll út af veginum og varð því ekki meiri voði af. „Ökumaður var fluttur á slysa- deild en hann er grunaður um aö hafa verið undir áhrifum lyfja og áfengis,“ sagði varðstjóri lögregl- unnar. „Það var kannski eins gott að hann valt miðað við aksturslag- ið.“ -EIR Fyrsta tollalausa káliö Veriö er aö keyra i verslanir fyrsta grænmetiö sem felldir voru niöur toll- ar af nýveriö. Hér er um aö ræöa iceberg-kál og aö sögn forsvars- manna Dreifingar, sem flytur káliö inn, iækkar verö þess um 22%, eöa úr 315 kr. á haus í 259 kr. þrátt fyrir örlitla hækkun frá erlendum birgjum. □V-MYND EtNAR J. Beöiö eftir aö komast inn Gríðarleg biöröö myndaöist viö Laugardalshöllina síödegis í gær af fólki sem beiö óþreyjufullt eftir aö komast inn á tónleika Rammstein og Ham. Þessi mynd var tekin um þaö leyti sem byrjaö var aö hleyþa inn í húsiö um kl. sjö. Stuttu seinna haföi rööin lengst til muna. Graðhestur í Viðey - engin hestaleiga í sumar Engin hestaleiga verður í Viðey í sumar eins og undanfarin ár. Samn- ingar við hestaleiguna í Laxnesi hafa ekki gengið upp og því verða útreiðartúrar ekki stundaðir í eynni að sinni. „Ég er hins vegar sjálfur með sjö merar i Viðey og er að flytja grað- hest til þeirra. Það verður mikið fjör,“ segir Ragnar Sigurjónsson, ráðsmaður í Viðey. Ragnar leigir merarnar ekki út til gesta en er hins vegar að rækta ákveðið litaaf- brigði af íslenska hestinum sem kallast slettuskjótt: „Þetta er eins konar indíánahestalitur," segir Ragnar sem fór með graðhestinn út í Viðey um kvöldmatarleytið í gær. „Ég vona að við getum byrjað aftur með hestaleigu hér í Viðey á næsta ári.“ Graðhesturinn sem fékk merarn- ar sjö í Viðey í gærkvöldi heitir Glitnir og kemur frá Refsstöðum í Borgarfiröi. -EIR Merarnar bíöa Glitnir kominn á prammann á leið út i Viöey. Hryssa og folald fengu aö fljóta meö og sýndi graðhesturinn af sér stillingu á meöan á feröinni stóö. Kári sígur Gengi hlutabréfa y í deCODE stóðu í gær í 7,56 dollurum I á hlut á Nasdaq- markaðnum í New York. Það er lækk- ' ’ ^Jtj un um 1,69% frá því jgPSjg markaðurinn var opnaður klukkan 14 að íslenskum tíma. Sprengja fannst Tveir Svisslendingar fundu ætl- aða handsprengju í móa utan girð- ingar við gömlu ratsjárstöðina í Rockville í gær. Lögreglan á Kefla- víkurflugvelli var kölluð til ásamt herlögreglunni. Þá kom í ljós að um reyksprengju var að ræða. Hún var ósprungin. Vantarfólk Erfitt reynist að fá fólk til starfa á Vestfjörðum um þessar mundir. Mikið er af störfum í boði á ísafirði, Flateyri og í Hnífsdal. Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunn- ar hefur fólki á vinnumarkaði fjölg- að nokkuð miðað við sama tíma í fyrra. Stelpur betri Stúlkur stóðu sig betur en piltar í samræmdum prófum 10. bekkja i vor. Nemendur í Reykjavík og ná- grannasveitarfélögunum gekk betur en nemum í öðrum landshlutum. Menningarborg á enda Reykjavík menn- ingarborg Evrópu árið 2000 er viða- mesta menningar- verkefni sem unnið hefur verið hér á landi. Skýrsla um verkefnið var kynnt í gær og von- ast aðstandendur eftir því aö hún nýtist til margs konar hluta í framtíðinni. Góðar undirtektir Hugmyndir Bolla í Sautján um stækkun Sundhallar Reykjavikur hafa fengið firna góðar undirtektir. Bendir margt til að af breytingun- um verði. Bílvelta á Kjalvegi Bifreið valt á veginum yfir Kjöl í gærkvöld, norðan við Hólaaf- leggjara í Biskupstungnahreppi, sunnan Bláfellsháls. í bílnum voru útlendingar. Enginn slasaðist og bif- reiðin er lítið skemmd. GSM-skuld Stórkostleg fjölgun árangurs- lausra fjárnáma og uppboða hjá ungmennum sem ekki hafa náð tví- tugsaldri er að hluta til vegna síma- skulda. Mikið GSM-tal kostar sitt. Valt í Djúpinu Bifreið valt i Mjóafirði í ísafjarð- ardjúpi siðdegis í gær. Ungt par sem í bílnum var slasaðist lítillega og erfiðlega gekk að koma bifreiðinni aftur á réttan kjöl og upp á veg. Ók á Ijósastaur Bifreið var ekið á ljósastaur aust- ur á Flúðum um eittleytiö í nótt. Stórsá bæöi á bifreið og ljósastaur eftir þau faðmlög. Bílstjórinn fékk að gista fangageymslur lögreglunn- ar í nótt en hann er grunaður um ölvunarakstur. -EIR/GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.