Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Page 14
14 Helgarblað LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 DV Harðar deilur um kaup Lyfjaverslunar íslands á Frumafli ehf.: Ásakanir um baktjalda- makk og valdabrölt - lögbannskrafa á viðskiptin tekin fyrir eftir helgi Hörö átök eru meðal hluthafa Lyfjaverslunar íslands hf. vegna fyrirætlana stjórnar að kaupa hluti í Frumafli ehf. sem er í eigu Jóhanns Óla Guðmundssonar og er jafnframt stór hluthafi í LÍ. Hafa þessi átök valdið miklu upp- námi og skapað óvissu með við- skipti hlutabréfa í LÍ á Verðbréfa- þingi íslands. Kaupin voru form- lega staðfest á stjórnarfundi á mánudag og hefur verið miðað við 860 milljónir króna. Lárus Blön- dal, sem situr í stjórn fyrir Aðal- stein Karlsson, sat ekki þann fund og krafðist þess að lögbann yrði sett á framkvæmd sölunnar og tek- ur sýslumaður afstööu til þess eft- ir helgina. Skyndifundur um miðja nótt „Ég var ekki boðaður á stjórnar- fund sem samþykkti þessi kaup,“ sagði Lárus Blöndal lögfræðingur sem er einn af fimm aðalmönnum í stjóm Lyfjaverslunar íslands. Um- ræddur stjórnarfundur LÍ var hald- inn klukkan hálfellefu síðastliðið mánudagskvöld og á dagskrá voru fyrihuguð kaup LÍ á Frumafli sem síðan voru samþykkt um miðja nótt. Hann segir að Grímur Karl Sæ- mundsen, stjórnarformaður LÍ, hafi vitað að hann væri á forum utan í þrjár vikur, en síðan hafl Grímur boðað þennan fund degi eftir að Lár- us fór út. Grímur Sæmundsen sagði í sam- tali við DV í gær að þetta væri rangt. Þetta væri bara hrein valda- barátta af hálfu Aðalsteins og Lárusar. Þeir reyni aðeins að vinna málstað sínum stuðning með rangfærslum í fjölmiðlum. Hann hafi boðið Lárusi að taka þátt í fundum simleiðis en Lárus hafi af- þakkað það. „Ég var einfaldlega í þeirri stöðu að vera að missa fleiri stjómarmenn í frí. Sú krafa var á félaginu að standa við gert sam- komulag um þessi kaup eða að öðr- um kosti að horfa fram á skaða- bótaskyldu vegna vanefnda. Um þetta vissi Lárus og samdi sjálfur yfirlýsingu í janúar um samkomu- lag vegna kaupanna." Aðalmenn í stjóm Lyfjaverslun- ar íslands hf. eru Grímur Karl Sæ- mundsen, Lárus Blöndal, Ólafur G. Einarsson, Óskar Magnússon og Öm Andrésson og sátu allir fund- inn auk varamanna nema Lárus. Tólfta júní var síöan kynnt aö stjóm Lyfjaverslunar íslands hf. hafi staðfest kaupsamninga vegna kaupa á Thorarensen lyfjum ehf. og Fmmafli hf. Hluthafafundur hafi verið boðaður 10 júlí nk. þar sem nánari grein verði gerð fyrir þessum samningum. „Við vorum þó búnir að óska eft- ir því að hluthafafundur fjallaði um þetta mál. Það er þvi mjög sérkenni- legt að stjómin taki þannig fram fyrir hendurnar á hluthafafundin- um sem hún hefur enga heimild til. Enda var búið að lýsa því yfir að hluthafafundur myndi fjalla um þetta vegna framkominnar kröfu þar um,“ segir Lárus. „Fundurinn var að sjálfsögðu full- komlega löglegur," segir Grímur. „Allar aðdróttanir um annað eru bara til að gera hlutina tortryggi- lega. Lárus Blöndal getur ekkert stjórnað því frá Spáni að Lyfjaversl- un íslands fundi ekki vegna aö- kallandi verkefna af því að hann sé á Spáni. Slíkt gengur ekki upp.“ _*rf. D a ;T0^p°^s 3o | 3TÓ WojftS ii -i" r\ inr\Alíir» -rTmSZ ...„L 'oTnpoi^S * mpoJMS ;«o ásve . o ■....< Sóltún 2 Fyrsta einkarekna hjúkrunarheimiliö sem nú er bitbein í höröum slag í fjármálaheiminum. Lögbannskrafa Lárus lagði í framhaldinu, ásamt tveimur öðrum hluthöfum, fram lögbannsbeiðni, hjá Sýslumannin- um í Reykjavík á þriðjudag, á fyrir- huguð kaup Lyfjaverslunarinnar á Frumafli ehf. Var þess kraflst að lögbann verði sett á gerð kaupsamn- ings LÍ við Jóhann Óla Guðmunds- son, eiganda Frumafls, og við því að Lyfjaverslun íslands ráðstafi til Jó- hanns eða annarra seljenda Frum- afls hlutafé í Lyfjaversluninni sem Lárus Blöndal. Grímur Karl Sæmundsen. samningur sé virkilega 860 milljóna króna virði. Samningur til 25 ára Umræddur samningur var undir- ritaður við ríkið í apríl 2000 og tek- ur hann á greiðslu ríkisins á rekstr- ardaggjöldum upp á 11.880 krónur og húsnæðisdaggjald upp á 2.420 krónur á legudag fyrir hvert rými. Það er samkvæmt verðlagi í ágúst 1999 sem breytist í hlutfalli við Oskar Magnússon. endurgjaldi í þeim viðskiptum. Jó- hann Óli er nú næststærsti einstaki hluthafi LÍ með 10,71% eignarhlut. Lárus gerir ráð fyrir að lög- bannskrafan verði tekin fyrir hjá sýslumanni eftir helgi. breytingar á visitölum. Samið er um 90 rými og greiðist fyrir hvern rúmliggjandi einstakling og hefjast greiðslur ekki fyrr en vistmenn eru komnir inn í Sóltúnsbygginguna til Málið snýst um samning við ríkið íslenskir aöalverktakar eru nú að byggja hjúkrunarheimili við Sóltún 2 í Reykjavik fyrir dótturfélag Frumafls, Öldung hf. Þar er um fyrsta einkarekna hjúkrunarheimili landsins að ræða með sérstökum samningi við ríkið. Lárus Blöndal segir að í Frumafli sem slíku liggi engin verðmæti og í raun séu einu verðmætin samning- ur þess, eða dótturfélagsins Öld- ungs, við ríkið um rekstur hjúkrun- arheimilis. Húsið sem verið sé að byggja í Sóltúni sé allt á lánum. Samningurinn við ríkið hafi verið gerður eftir útboð þar sem dóttur- fyrirtæki Frumafls, öldungur, var lægstbjóðandi. Lárus segir einfalt að hluthafar spyrji sig hvort sá Innlent fréttaljós Hörður Kristjánsson blaöamaöur dvalar. Samtals gæti þar verið um að ræða 1.287.000 króna greiðslu á dag frá ríkinu vegna 90 einstak- linga, eða 469.755.000 krónur á ári (nær hálfur milljarður) miöað við verðlag í ágúst ‘99. Samningur þessi gildir til 25 ára. Ríkisendurskoðun metur reksturinn þannig að hann eigi að skila 70 milljóna króna hagn- aði á ári. Kaupa ekki á hvaða verði sem er Hluthafi í Lyfjaverslun ísland sem DV ræddi við í gær sagði að málið væri í sjálfu sér einfalt. Lárus Blöndal væri einfaldlega að gæta hagsmuna hluthafa í LÍ. Þeir væru einfaldlega ekki tilbúnir að kaupa Frumafl á hvaða verði sem er. Lár- us segist hafa farið fram á þaö að fá að vita hvers virði óvilhallir aðilar myndu meta fyrirtækið og Búnaðar- bankinn orðið fyrir valinu. Sögur hafa verið í gangi um að bankinn hafi metið Frumafls- samning á hundruð millj- óna króna lægra verði en búið var að sam- þykkja. Þar muni um 500 milljónum. Grímur Sæmundsen stjórnarfor- maður segir ekkert slíkt mat hafa verið gert. Vangaveltur um slíkt væru úr lausu lofti gripnar því ekk- ert mat væri til frá bankanum. Er aö skapa sér stöðu Lárus segir það ljóst að með því að kaupin séu keyrð í gegn án af- skipta hluthafa, þá sé verið að gera stöðu Jóhanns Óla Guðmundssonar, eiganda Frumafls, mjög sterka inn- an LÍ. Þá stöðu geti hann síðan nýtt sér á hluthafafundinum. Fjöldi hlut- hafa sé þessu andvígur. Krafa um rannsókn Fjármálaeftirlits Grímur Sæmundsen sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann gagnrýnir harðlega bréf Ingva Arnar Kristins- sonar, fyrir hönd Búnaðarbankans Verðbréfa varðandi ráðgjöf við verðmat á Frumafli ehf. Um hafi verið að ræða trúnaðarmál á milli Gríms og Áma Tómassonar banka- stjóra og Ámi hafi ekki treyst sér til að gera mat, en lagt fram óformlegt núvirðismat á Sóltúnsverkefnið. í framhaldi af bréfi bankans lýsir Grímur því að hann hafi krafið Fjármálaeftirlitið um rannsókn á áðurnefndum samskiptum og við- skipti Búnaðarbanka Verðbréfa með hlutabréf í Lyíjaverslun ís- lands undanfarna daga. Bankinn ber af sér sakir Búnaðarbanki Islands sendi í kjölfarið frá sér ályktun þar sem bankinn harmar að hann skuli hafa verið dreginn inn í deilur sem geisa nú innan Lyíjaverslunar íslands. í yfirlýsingunni er tekið fram að Bún- aðarbankinn hafi engar upplýsingar látið frá sér fara opinberlega vegna þess máls sem nú er deilt um held- ur einungis gert stjóm félagsins og framkvæmdastjóra bréflega grein fyrir vinnu sinni að verðmati því sem um ræðir í yfirlýsingu stjórnar- formannnsins. Þá er einnig tekið fram að Búnaðarbankinn hafi ekki átt nein viðskipti með hlutabréf Lyfjaverslunar Islands hf. fyrir eig- in reikning undanfarnar vikur. Búnaðarbankinn hafi að eigin frum- kvæði þegar gert Fjármálaeftirlit- inu grein fyrir afskiptum sínum af þessu máli og miðlun hans með hlutabréf Lyijaverslunar íslands hf. að undanfórnu. í næstu viku skýrast væntanlega allar línur í málinu þegar sýslumað- ur tekur afstöðu til lögbannskröfu Lárusar Blöndal. „Ég á ekki von á öðru en að sá dómari sem tekur máliö fyrir taki sömu afstöðu. Það kæmi mér verulega á óvart ef dóm- ari samþykkti lögbann," segir stjórnarformaðurinn Grímur Sæ- mundsen. Lárus og Aðalsteinn sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem orðum Gríms er vísað á bug. Sama gerðu fjórir fyrrverandi stjórnarmenn í Lyfjaverslun íslands i yfirlýsingu til Verðbréfaþings Is- lands. Málinu virðist því engan veg- inn lokið. Orn Andrésson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.