Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Síða 16
16 Helgarblað LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 DV Hella á Rangárvöllum: Fólksfjölgun í fyrra - þrátt fyrir Suðurlandsskjálfta. Tekist að komast yfir áfallið, segir sveitarstjórinn Rannsóknarmiðstöö í jarðskjálftaverkfræði: Mikilsverðar upplýsingar - fengust í skjálftunum í fyrra Jarðskjálftarnir á Suðurlandi gáfu mikOsverðar upplýsingar um eðli slíkra náttúruhainfara, svo sem um yf- irborðshröðun jarðskjálfta og hvemig mannvirki bregðast við þeim. í Rann- sóknarmiðstöð Háskóla íslands í jarð- skjálftaverkfræði, sem staðsett er á Selfossi, hefur síðasta árið verið unnið að úrvinnslu þessara upplýsinga, auk þess sem rætt hefur verið við fólk sem upplifði skjáiftana tvo og frásagnir þess verið bomar saman við hinar vís- inda- og tæknilegu upplýsingar. „Það er mikilvæg reynsla íyrir okkur að geta sannreynt hlutina með þessum hætti,“ segir Jónas Þór Snæbjömsson, verkfræðingur við rannsóknarmið- stöðina. Yngri hús eru traustar byggð Úr upplýsingum um Suðurlands- skjálftana tvo í fyrra myndast gagna- gmnnur sem nú er verið að safna í. Þangað munu þeir sem byggja á Suð- urlandi - sem og aðrir - geta leitað eft- ir upplýsingum, auk þess sem nota má upplýsingamar þegar settir era staðlar eða skrifaðar reglugerðir eða leiðbein- ingar um hvemig byggja skal hús þannig að þau standist reginöfl jarð- skjálfta. Jónas Þór Snæbjömsson segir að skjálftamir í fyrra hafi sýnt að hús sem byggð séu á sl. þrjátíu árum hafi að jafnaði staðist hamfaramir betur en hin eldri. Yngri hús séu almennt traustar byggð og byggingarefni í þeim vandaðri. Til dæmis hefur flöldi timb- urhúsa farið vaxandi. Fyrir 1970 hafi hins vegar verið nokkuð um að hús á Suðurlandi væra úr hlöðnum efnum, til dæmis holsteini, en slík hús stand- ast alla jafna iila jarðskjálfta. Einnig hafi undirstöður mannvirkja og frá- gangur þeirra haft mikið að segja - og það jafnvel ráðið úrslitum um hvemig hús stóðust átökin á liðnu sumri. -sbs Meö fótinn í sprungunni Þingmaöurinr Árni Johnsen á vettvangi í sólstöðuskjálftunum í fyrra. Hér er hann við Skeiðavegamót þar sem sprungur komu í þjóðveginn - svo djúpar og breiöar að fæti mátti stinga ofan í þær. íbúar í Rangárvallahreppi gleyma því líklega seint þegar jörðin byrj- aði að skjálfa í miðjum hátíðahöld- unum sautjánda júní í fyrra. Mar- ía Ólafsdóttir blaðamaður lagði leið sína austur á Hellu fyrir skömmu til að athuga hvernig uppbygging eftir skjálftana hefur gengið og fékk í leiðinni að for- vitnast um lífið á þessum slóðum. Að sögn Guðmundar Inga Gunn- laugssonar sveitarstjóra hefur uppbyggingin gengið ótrúlega vel og mun betur en menn þorðu að vona fyrst á eftir. iaröskjálftinn á besta tíma „í kjölfar skjálftans hefur mikið verið byggt hér og iðnaðarmenn hafa haft meira en nóg að gera. Menn eru komnir misjafnlega langt með lagfæringar og segja má að uppbyggingin sé á öllum stig- um. Sumir hafa verið að laga hluta af húsum sínum jafnóöum en aðr- ir hafa flutt út í bráðabirgðahús og lagað allt í einu. Nokkrir seldu hús sín öðrum sem hafa verið að gera við þau og margir eru líka að Heljargjá Þessi mikla sprunga eða öllu heldur gjá myndaðist við bæinn Bitru í Flóa í síöari skjálftanum. Þarna mátti glöggt sjá hvílíkt ógnarafl var á ferðinni í þessum skjálftum. með hverju ár- inu að áhrifin frá höfuðborg- arsvæðinu eru að færast aust- ur. Það eflir fyrirtækin sem hér eru í fram- leiðslu og þjón- ustu og styrkir stöðu byggðar- innar. Þá hefur aukist að fólk vill eiga heim- ili hér en starfa á höfuð- borgarsvæðinu og einnig sæk- ir fólk sífellt meira i að byggja hér sumarbústaði." DV-MYNDIR EINAR J. Bjartsýnn sveitarstjóri Uppbygging á Hellu eftir Suðurlandsskjálftann hefur gengið ótrúlega vel og betur en menn þorðu að vona fyrst á eftir. byggja sér ný hús,“ segir Guð- mundur Ingi og bætir við að þrjú bráðabirgðahús séu komin á lóðir þar sem hús voru rifin og verði að öllum líkindum þar til frambúðar. Skemmdir urðu líka á eignum hreppsins og er til að mynda eftir að gera við sprungur í veggjum á hreppsskrifstofunni, málningar- skemmdir á skólanum og skemmd- ir á hellulögn við sundlaugina. Hellubíó var það hús í eigu hreppsins sem fór verst út úr skjálftanum og í apríl síðastliðn- um var samþykkt að selja húsið ef einhver hefði áhuga á kaupa þaö. „Jarðskjálftinn kom á besta hugs- anlega tíma og vonandi að sá næsti, ef hann kemur, komi líka á þannig tíma. Okkur hefur tekist vel að komast yfir þetta áfall þrátt fyrir að fyrstu vikumar hafi áfall- ið verið mikið. Skjálftinn hefur samt ekki haft þau áhrif að fólk hræðist að búa á staðnum.“ húsnæði. Hins vegar sé til nóg af lóðum til að byggja á og einnig sé verktaki að byggja einbýlishús sem hægt sé kaupa. Guðmundur Ingi hefur gegnt starfi sveitarstjóra í ellefu ár og kann vel við sig á Hellu þvi stað- urinn sé góður, umhverfið fallegt og hæfilega langt sé á höfuðborg- arsvæðiö. Hann segist líka vera bjartsýnn á framtíð staðarins og möguleikana sem þar leynast. „Við finnum það meira og meira Hestamið- stöö með miklum tækifærum Sveitarstjór- inn telur að mikil tækifæri felist einnig í uppbyggingu í kringum hesta- mennsku sem fyrirhuguð er á Gaddstaðaflöt- um. Þar er stefnt að því að byggja upp reiðhöll og öfluga miðstöð sýninga og þjálfunar á íslenska hestinum á næstu árum. „Ef áætl- anir manna ganga eftir verður þetta mjög stórt fyrirtæki og hér eru skilyröi þannig aö mönnum þarf að mistakast verulega ef það á að vera einhver barlómur héma til framtíöar," segir Guðmundur og bætir við að það eina sem vanti sé bryggja og sjór því allt annað sé til staöar. -MA Áhrif frá höfuðborg færast austur Alls búa tæplega 800 Ibúar í hreppnum og er Hella þéttbýlasti hlutinn með um 650 manns. Guð- mundur Ingi segir að á síðustu tíu árum hafi íbúum fjölgað um hálft prósent að meðaltali á ári en á síð- asta ári fjölgaði þeim um þrjú pró- sent. Mikið atvinnuframboð hafi verið undanfarin ár og í raun hafi vantað fólk til starfa. Það sem hafi helst haft hamlandi áhrif á að fólk flytji á staðinn sé skortur á leigu-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.