Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Síða 17
DV LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 17 Helgarblað Á tjá og tundri Allt var á rúi og stúi á bænum Stööulfelli í Gnúpverjahreppi, enda þótt húsiö þar skemmdist ekkert né heldur innanhússmunir. En óneitaniega var hjónunum Hrafnhildi Ágústsdóttur og Oddi Bjarnasyni, sem þar búa, illa brugöiö aö koma tii síns heima, eins og loftárás heföi veriö gerö á heimili þeirra. Eitt ár er liðið frá Suðurlandsskjálftunum: Með jarðskjálfta í undirmeðvitundinni - Sunnlendingar bjartsýnir og hafa byggt upp. Draga mikinn lærdóm af skjálftunum í fyrra. Mál til Viðlagatryggingar 1.700 talsins Húsaskemmdir á Hellu / þjóðhátíöarskjálftanum eyöilögðust nokkur hús aigjöriega, þar á meöal húsið aö Freyvangi 14. Eigandinn, Sveinbjörn Jónsson sem hér sést fyrir utan þaö, reif húsiö skömmu síöar - og hefur nú byggt nýtt á sama staö. Hann segir stjórnvöld um margt hafa veriö vanbúin aö takast á viö aö leysa vanda þess fólks sem varö fyrir tjóni og búsifjum í þessum náttúruhamförum. Rétt ár er liðið frá því Suð- urlandsskjálftinn mikli reið yfir. Það var síðdegis um kaffileytið á sjálfan þjóðhá- tíðardaginn ífyrra sem jörð á Suðurlandi skalf hressi- lega, eða sem mældist 6,6 stig á Richters-kvaða. Það var þó aðeinsfyrri hálfleik- ur á skjálftasvæðinu því að- faranótt 21. júní kom ann- ar skjálfti sem varjafn sterkur þeim fyrri, en varði skemmri tíma. Fyrri skjálftinn átti upptök sín í vestanverðri Rangárválla- sýslu og olli miklum búsifj- um á því svœði, til að mynda á Héllu, en einnig í Gnúpverjahreppi íÁmes- sýslu. Rœtur síðari skjálft- ans vom hins vegar undir Hestfjalli í Grímsnesi og urðu skemmdimar mestar þar í kring, ekki síst í Fló- anum - lágsveitum Ámes- sýslu. En hvemig er staðan á þessu svœði nú? Sleikja Sunnlendingar sárin enn þá og hvemig hefur upp- byggingarstarfið gengið? Og ekki síður; hvaða lærdóm geta menn dregið af þessum miklu náttúmhamfömm? „Reynslan gert mig þroskaðri og sterkari mann“ Hellubúar voru velflestir staddir í íþróttahúsinu á staðnum að fagna þjóðhátíðardeginum þegar skjálftinn mikli reið yfir. Fólk þusti út og til síns heima til að athuga hverjar skemmd- imar hefðu orðið. Aðkoman var ófóg- ur. Rúmlega þrjátiu hús á Hellu skemmdust og nokkur hús eyðilögðust algjörlega, þar á meðal húsið að Frey- vangi 14 þar sem Sveinbjöm Jónsson bjó með fjölskyldu sinni; konu og tveimur strákum. „Maður er enn í töluverðu uppnámi og líklega töluvert í það að ég nái áttum,“ sagði Svein- bjöm í samtali við DV daginn eftir skjálftann. Hann sagði þá vera ljóst að i húsinu yrði aldrei búið framar og það kom líka á daginn. Skömmu síðar var hús hans rifið. „Ég byggði nýtt hús í snatri og flutti inn skömmu fyrir síð- ustu jói en fram tit þess tíma bjó ég hjá foreldrum mínum,“ sagði Sveinbjöm þegar DV ræddi við hann núna i vik- unni. Hann segir að tryggingarfé hafi þó fráleitt bætt sér allan skaðann. Viðlaga- trygging hafi greitt honum tíu milljónir króna í bætur, en bygging nýs húss kosti fjórum milljónum betur. „Reynslan sem maður fékk af þessu hefúr tvímælalaust gert mig þroskaðri og sterkari mann,“ segir Sveinbjöm og segir reynsluna ekki síst felast í þeim samskiptum sem hann átti við ýmsar opinberar stofhanir eftir skjálftann. Þær hafi tvímælalaust verið vanmátt- ugar að takast á við það ægistóra verk- efni sem jarðskjálftinn var, til að mynda bótagreiðslur til fólks sem lenti i tjóni í skjálftanum. „Það er enginn beygur í mér og það stóð aldrei neitt annað til en að byggja upp aftur hér á Heliu,“ segir Svein- bjöm um hina mannlegu reynslu af skjálftunum, Hann kveðst þó tvímæla- laust vera mun næmari nú en áður á allar hreyfmgar í jörðu, minnugm- hinna kröftugu jarðskjálfta í fyrra. Býst vlð þriðja skjálftanum „Hér var allt úti um allt, allt gler og leirtau í molum og það eina óbrotna af þvi var það sem haföi verið í upp- þvottavélinni. Allt í fataskápum var komið út á gólf og svona gæti ég hald- ið áfram," segir Hrafnhildur Ágústs- dóttir á Stöðulfelli í Gnúpverjahreppi þegar hún í samtali við DV í vikunni rifjaði upp reynslu sína af skjálftunum í fyrra. Þegar hún kom með fjölskyldu sinni heim eftir jarðskjálftann mikla á 17. júní var allt þar innandyra eins og eftir loftárás. Hrafnhildur segir að það hafi tekið sig um það bil eina viku að koma hlutunum í samt lag aftur og tekur fram að engar skemmdir hafi orðið á húsinu á Stöðulfelli í skjálftan- um né heldur innanstokksmunum. Það sé býsna vel sloppið miðað við hvað gerðist á mörgum bæjum, sum hús gjöreyðilögðust og margir voru húsnæðislausir um lengri tíma uns bráðabirgðahúsnæði fyrir það fólk sem var á hrakhólum var komið upp á haustdögum. „Maður er alltaf með jarðskjálfta i undirmeðvitundinni og ég býst alltaf við þriðja skjálftanum, þeim stóra sem sagt er að komi og muni að öllum lík- indum eiga upptök sín á milli Skarðs í Landsveit og Heklu. Gnúpverjahrepp- urinn gæti tvímælalaust farið mjög illa út úr slíku,“ segir Hrafnhildur. Voru einmitt margir sem DV ræddi við í vik- unni vegna samantektar þessarar greinar á sömu nótum og Hrafnhildur - fólk býst við fleiri skjálftum í náinni framtíð. Sólstööuskjálfti af sama styrideika Síðari skjálftinn á Suðurlandi í fyrra kom svo aðfaranótt þriðjudags- ins 21. júní - það er um sumarsólstöð- ur. Hann var af sama styrkleika og sá sem reið yfir á fæðingardegi þjóðfrels- ishetjunnar. Sunnlendingar voru flest- ir gengnir til náða þegar jörð bifaðist, en það var þegar klukkuna vantaði tvær mínútur í eitt um nóttina. Upp- tökin voru sem áður segir í HestfjaUi og skiljanlega urðu skemmdir mestar í nágrenni upptakasvæðisins. Gamla húsið á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi, æskuheimili Guðna Ágústssonar landbúnaðarráð- herra sem og Hrafnhildar á Stöðulfelli og fjórtán annarra systkina til, brotn- aði allt mélinu smærra og fjölmörg hús önnur skemmdust. Við Skeiðavegamót fór vegurinn allur í sundur - og ótrú- lega myndir af heljargjá mikilli sem myndaðist þar skammt frá. Voru myndir af henni og öðrum afleiðingum þessara náttúruhamfara sendar til alira helstu ijölmiðla heimsins. ísland var í heimsfréttunum. „Stöndum í sömu sporum og áður“ í vikunni greindi DV frá óánægju hjónanna Margrétar Eggertsdóttur og Þórðar Guðnasonar í Köldukinn í Landsveit sem telja sig ekki hafa feng- ið þær bætur frá Viðlagatryggingu vegna jarðskjálftans sem þeim ber. Ummæli þeirra hjóna eru efnislega um margt lík því sem Sveinbjöm Jónsson reifar hér að ofan; að hið opinbera og stofnanir þess hafi ekki verið í stakk búnar að takast á við að veita fólki lög- bundna þjónustu í kjölfar skjálftanna. „í níu mánuði hefur maður verið send- ur á milli staða og útkoman er sú að við stöndum í sömu sporum og áður. Það vantaði ekki að eftir að jarðskjáift- amir gengu yfir komu þingmennimir æðandi hér í halarófu og hétu því ... fólkinu yrði hjálpað. Síðan hefur ekki heyrst í neinum.“ Þá var hér í blaðinu einnig rætt við Anders Hansen, hrossabónda á Ár- bakka í Holta- og Landsveit, en hús hans gjöreyðilögðust í jarðskjálftan- um. „Vegna þess hversu gamalt bruna- bótamatið var þá nam það ekki nema um einum þriðja af endurbyggingar- kostnaði húss af sömu stærð. í raun og vera höfum við beðið núna í heilt ár eftir því að ríkisstjómin kæmi með viðbótarframlag til þess að gera okkur mögulegt að byggja hús aftur. Við reiknum auðvitað með því að þetta framlag komi, en því er ekki að neita að við hefðum ekki trúað því fyrir ári að þetta yrði ekki komið núna,“ hafði blaðið eftir hrossabóndanum á Ár- bakka. Viölagatrygging greitt út tvo milljaröa Aðrir Sunnlendingar sem blaðið ræddi við tóku hins vegar allt annan pól i hæðina. Sögðu að starfsmenn Við- lagatryggingar, líkt og aðrir sem sinnt hafa málefnum þess fólks sem fyrir búsifium varð í skjálftunum, hefðu staðiö sína plikt með prýði. Að segja annað væri ósanngjamt. Eins og staðan var nú í vikunni hef- ur Viðlagatrygging greitt út bætur vegna jarðskjálftanna sem nema tveimur milljörðum og nítján milljón- um betur og málin sem komið hafa til afgreiðslu eru alls 1.850 talsins, að sögn Ásgeirs Ásgeirssonar, framkvæmda- stjóra stofnunarinnar. Hann segir að í nokkrum þessara mála hafi ekki kom- ið til þess að Viðlagatrygging greiddi út bætui' þar sem tjón hafi ekki farið upp fyrir lágmarks eigin áhættu, en hún nam 51.600 kr. hjá hverjum vá- tryggingataka. Ásgeir segir að strax þann 19. júní i fyrra hafi Viðlagatrygging sent verk- fræðinga og tæknifræðinga austur fyr- ir fiall til þess að meta tjón á húseign- um og næstu mánuði hafi verið unnið að því að greiða fólki út þær bætur sem því bar. Þeir sem fyrir mestu tjóni urðu fengu greiddar út bætur að hluta til strax - og síðan meira eftir því sem á leið. Viðlagatrygging setti upp tjóna- skoðunarmiðstöðvar á Hellu og Sel- fossi og alls unnu um 30 manns við tjónamatið þegar mest var auk mats- manna vátryggingafélaganna sem mátu skemmdir á innbúi. „Við vissum af tjónum á 807 stöðum í júlíbyrjun, en þau vom orðin 1.700 í október," segir Ásgeir sem telur að Viðlagatrygging hafi ekki verið lengur að afgreiða mál þess fólks sem fyrir búsifium varð í þessum miklu náttúruhamfórum en ætla heföi mátt. -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.