Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 20
20 Helgarblað LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 I>V R-listinn er þrýstihópur Júlíus segir R-Ustann vera þrýstihóp þar sem allir kreljist þess aö fá sem mest. R-listi í blekkingaleik Júlíus Vífill Ingvarsson er framkvœmdastjóri Bil- heima og Ingvars Helga- sonar, fyrirtœkis sem fað- ir hans stofnaði fyrir rúmum fjörutíu árum. Hann er einnig borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins og landsþekktur óp- erusöngvari sem hefur nú að mestu lagt sönginn á hilluna. í viðtali við Kol- brúnu Bergþórsdóttur rœðir hann meðal annars um söng, fyrirtœkjarekst- ur og pólitík - Nú ólstu ekki upp hjá foreldrum þínum heldur fósturforeldrum. Af hverju? „Þegar mamma og pabbi hófu sinn búskap á Hávallagötunni bjuggu í næsta húsi hjón sem voru komin á sextugsaldur. Ég hændist mjög að þeim og varð eftir hjá þeim þegar foreldrar minir fluttu á Lyng- hagann með systkini mín. Mörgum finnst þetta skrýtið og hnjóta um þetta. En þetta var átakalaust. Þaö var góður samgangur á milli þessa heimilis og heimilis foreldra minna. Við systkinin vorum átta og eitt barnanna var í langri heimsókn. Ég tel mig heppinn að hafa fengið að vera með fósturforeldrum mínum en jafnframt heppinn að hafa ekki þurft að vera fjarri foreldrum mín- um og systkinum." - Vaknaði áhugi þinn á söng strax i æsku? „Fósturforeldrar mínir voru fæddir um aldamótin 1900. Þau höfðu hreinan og einlægan áhuga á listum eins og margt það fólk hafði sem upplifði sjálfstæðisbaráttuna. Þjóðin eignaðist á þessum tíma listamenn sem sköruðu fram úr í öllum listgreinum. Fósturforeldrar mínir sóttu mikið listviðburði, með- al annars man ég eftir að hafa farið meö þeim á tónleika hjá Stefáni ís- landi. En það var ekki fyrr en í menntaskóla sem áhugi minn á óperutónlist vaknaði til fullnustu. Þá hlustaði ég samtímis á Led Zepp- elin, Deep Purple og Enrico Caruso. Mér hefur alltaf fundist klassísk tónlist og dægurtónlist vera eitt en ekki eitthvað sem er aðskilið." Ekki erfitt aö sieppa - Þú stundaðir óperusöng um nokkurn tíma en segja má að þú hafir fórnað honum vegna annarra starfa. Var það ekkert erfitt? „Margir sem hafa kynnst söng- listinni, hafa mikla söngþrá, en hafa ekki stigið skrefið til fulls hafa kom- ið til mín og spurt: „Hvemig gastu hætt að syngja?" En þegar maður hefur starfað við sönginn eins og ég gerði þá horfir maður nokkuð öðru- vísi á hlutina og um leið er ekki svo erfitt að sleppa. Ég söng á annað hundrað óperusýningar og var jafn- framt að vinna við fyrirtækið. Þeg- ar maður vann allan daginn og söng svo á sviði á kvöldin varð maður mjög þreyttur. Þetta var of mikið og ég ákvað að taka mér hlé. Þetta er orðið langt hlé.“ - Hverja myndirðu nefna sem þína eftirlætisóperusöngvara? „Af þessum gömlu kempum finnst mér sérlega gaman að hlusta á danskan söngvara sem heitir Helge Rosvaenge. Hann er ekki mik- ið þekktur og þar er ekki síst um að kenna að hann söng í Þýskalandi fyrir stríð og í stríðinu og var vegna þess stimplaður nasisti. Fyrir vikið naut hann ekki mikilla vinsælda. En hann var mikill og sérstakur listamaður. Af ungu mönnunum finnst mér Bryn Terfel afar finn.“ - Nú taka allir óperuunnendur afstöðu til þess hver af tenórunum þremur þeim þyki bestur, Carreras, Domingo eða Pavarotti. Hver þeirra er þitt uppáhald? „Þegar ég var úti á Ítalíu var ég í námi hjá Arrigo Pola sem kenndi Pavarotti á sínum tíma og hann sagði mér sögur af honum. Mér finnst Pavarotti vera langmesti tekniker af þeim sem komið hafa fram á sjónarsviðið eftir Jussi Björl- ing. Það sýnir sig líka að Pavarotti ætlar að eldast vel. Hann er að nálg- ast sjötugt og er enn að syngja og það er með ólíkindum hvað hann getur enn þá gert.“ Júlíus Vífill, borgarfull- trúi Sjálfstœðisflokksins, er harðorður í garð R-listans. - Hvert er þá eftirlætisóperutón- skáldið? „Minn uppáhaldsóperuhöfundur hlýtur að vera Puccini. Það er ákveðin þróun frá Rossini og Verdi til Puccinis sem er óskaplega skemmtileg. En því miður hef ég aldrei sungið í Puccini-óperu á sviði og á það sennilega ekki eftir." Meö mörg járn í eldinum - Þú ert lögfræðimenntaður og ert í bisness? Ertu praktískur í hugsun? „Ég ákvað alla vega að ljúka praktísku námi áður en ég fór óskiptur í listnámið. Ég hef enga trú á stjörnumerkjum en ég er í tví- burunum. í bók sem Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur skrifaði um stjörnumerkin tók hann mig sem dæmi um týpískan tvíbura, þar sem ég væri alltaf með að minnsta kosti tvö járn í eldinum samtímis. Við systkinin erum flest alin upp með fyrirtæki pabba. Hann hóf reksturinn árið 1956 og fyrirtækið óx jafnt og þétt. Strax tólf ára gam- all var ég farinn að þeytast um bæ- inn á hjólinu mínu og rukka. Fyrir- tækið hefur alltaf staðið mér mjög nærri. Þetta er fjölskyldufyrirtæki i þeirri mynd sem maður þekkir best. Það er merkilegt að öll bílafyrirtæki landsins, kannski að einu undan- skildu, eru fjölskyldufyrirtæki þar sem önnur kynslóð sér nú um rekst- urinn. Þessi tilfinning fyrir því að fyrirtækið sé fiölskyldufyrirtæki á sinn þátt i að gera þessi viðskipti heillandi og skemmtileg.“ - Hefurðu mikinn áhuga á pen- ingum? „Ekki í þeim skilningi að ég lesi til dæmis mikið tímarit og fræði- greinar um peninga og viðskipti." - Þú ert borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins. Er þessi stuðningur eitt- hvað sem þú ólst upp við, pabbapóli- tík kannski? „Það vissu nú fáir hvar pabbi stóð í pólitík. Hann kom úr Sam- vinnuskólanum og átti aðallega við-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.